Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Qupperneq 18
18
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999
Fréttir
DV
Ásbjörn Björgvinsson, forstööumaöur Hvalamiöstöövarinnar á Húsavík:
Reiknar með 10-12
þúsund manns í sumar
DV, Húsavík:
„Við opnuðum Hvalamiðstöðina í
júní á síðasta ári og aðsóknin varð
strax mjög góð. Við höfðum opið
fram í september og á þeim tíma
komu hingað um 6 þúsund manns,
og ég á fastlega von á því að hingað
komi í sumar 10-12 þúsund manns,“
segir Ásbjörn Björgvinsson, for-
stöðumaður Hvalamiðstöðvarinnar
á Húsavík.
Það verður án efa farið að tala
um Húsavík sem „hvalabæinn" hér
á landi áður en langt um líður. AI-
gjör umskipti hafa orðið í bænum
hvað varðar aðsókn ferðamanna
síðan hvalaskoðunarferðir hófust
fyrir nokkrum árum, áður fyrr var
Húsavík ekki mjög ijölsóttur bær af
ferðamönnum, en nú er allt annað
uppi á teningnum. Hvalaskoðunin á
þar stærstan hlut að máli, og svo
kom Hvalamiðstöðin í kjölfarið og
miðstöðin er mjög skemmtileg heim
að sækja.
Þegar inn er komið er beinagrind
af hrefnu sem hangir niður úr loft-
inu mjög áberandi, sú fyrsta sinnar
tegundar hér á landi en hún er 7
metra löng. Þá er 200 kg þung haus-
kúpa af andarnefju einnig mjög
Ásbjörn Björgvinsson við hauskúpu af andarnefju í Hvalamiðstöðinni á
Húsavík. DV-mynd gk
áberandi, hauskúpa af skugganefju
eða gáshnalli sem strandaði við
Djúpavog, og einnig beinagrind af
háhymingi. Ekki er hægt að segja
frá safninu í smáatriðum í stuttri
blaðagrein, en þar eru alls kyns
hlutir sem tengjast hvalveiðum við
ísland fyrr á árum, bæði myndir og
ýmis verkfæri sem notuð voru við
veiðar og hvalskurðinn. í safninu er
hægt að kynna sér sögu hvalveiða
hér við land af myndböndum, og
tvisvar á dag eru haldnir fyrirlestr-
ar um Skjálfandaflóa og hvalaskoð-
unina þar.
Ásbjöm Björgvinsson er maður-
inn á bak við uppbyggingu safnsins,
og segja má að áhugi hans á öllu er
tengist hvölum hafi orðið hvatinn
að uppbyggingu Hvalamiðstöðvar-
innar. Eigendur miðstöðvarinnar
em um 20 fyrirtæki, langflest á
Húsavík, og fleiri aðilar, en hann
segir skilning hins opinbera á þess-
ari starfsemi í lágmarki.
„Ríkisvaldið hefur ekki sýnt
þessu framtaki nokkurn áhuga og
engan stuðning þótt við höfum svo
sannarlega þurft á honum að halda
við uppbygginguna hér. En þetta
gengur vel, fólk sýnir þessu mikinn
áhuga og þetta á mikla framtíð fyr-
ir sér,“ segir Ásbjöm. -gk
Beinagrind af 7 metra langri hrefnu er mjög áberandi þegar komið er inn í
Hvalamiðstöðina. DV-mynd gk
Breiðdalsvík:
Hlaut þátttöku-
rétt á kraftamót
Taktu sumarmyndirnar þínar á Kodak filmu og sendu okkur bestu myndina strax.
Þú getur lagt myndirnar inn ( keppnina hjá Kodak Express um land allt eða sent þaer
beint til DV, Þverholti 11,105 Reykjavík, merktar “SUMARMYNDAKEPPNI”.
Keppt verður í tveimur flokkum: A) 16 ára og yngri, B) Allir aldurshópar.
CANON IXUS L-l pakki.
Frábacr APS myndavél með Ijó:
CANON IXUS
FF25 myndavélar
CANON IXUS M-l pakki.
Þessi nctta APS myndavél vegur aðeins 115g.
Sérmerkt Canon leðurtaska isamt filmu fylgir.
KODAK filma og
námskcið í Ijósmyndui
KODAK filma með
afslátt af framköllun
CANON IXUSAF
I vinning fyrir bestu innscndu
sumarmynd mánaðaríns ur báðum
flokkum (júlí og ágúst.
Verðmæti 9.900.-
Áukaverðlaun
verðlaun
DV, Breiðdalsvík:
íþróttir og leikur settu svip á
Breiðdalsvík í júní í góðu veðri og
við grunnskólann. Þar var reið-
hjólarall og voru þátttakendur frá
þriggja áira og upp í sextugt.
Þá voru ýmsar greinar til afl-
rauna þar sem aðeins konur kepptu
og vann Árnleif Höskuldsdóttir allar
greinamar og hlaut 44 stig. Hún öðl-
aðist þar með rétt til þátttöku í ís-
landsmóti kvenna í kraftlyftingum.
Einnig sýndu kraftlyftingamenn list-
ir sínar. Þá var fótbolti barna og
fullorðinna og reiptog. -HI
Frá verðlaunaafhendingu í krafta-
keppni.
Þátttakendur í hjólarallinu voru á öllum aldri. DV-myndir Hanna
Hraustir menn í Víkurtrölli
Andrés Guðmundsson tók hressilega á í Vík-
urtröllinu 1999. DV-mynd GVA,
DV.Vík:
Þeir tóku hressilega á
kraftajötnamir, sem komu
við í Vík í Mýrdal 27. júní, og
kepptu þar í Víkurtröllinu
1999. Kapparnir voru að
koma frá Höfn þar sem þeir
tóku þátt í Hálandaleikum
daginn áður.
I Víkurtröllinu 1999 var
keppt í trukkadrætti, hjóla-
veltu, kastað lóði yfir rá og í
því hver gæti lengst haldið 25
kílóa poka á lofti með útrétta
arma.
Sigurvegari keppninar var
Andrés Guðmundsson. í öðm
sæti varð Hjalti Úrsus Árna-
son og í því þriðja Pétur Guð-
mundsson.
-NH