Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999 DV Karl og Camilla: Sleiktu sólina saman á Spáni Rarl Bretaprins og Camilla Park- er Bowles sleiktu í siðustu viku sam- an sðlina á Spáni. Dvöldu skötuhjúin á setri hertogans af Wellington í hæð- unum fyrir ofan Granada. Miklar öryggisráðstafanir voru gerðar vegna dvalar prinsins á svæðinu og voru þjóðvarðliðar frá Madríd og hermenn á verði um svæðið. Camilla kom á undan Karli til Spánar og tók hertoginn á móti henni. Karl kom degi síðar með einkaþotu. Bæði hafa þau verið gest- ir hertogans og elsta sonar hans á setrinu nokkrum sinnum áður. Camilla mun hafa verið í felum á setrinu fyrir fimm árum þegar prins- inn viðurkenndi samband sitt við hana í sjónvarpsþætti. Er hún var á setri hertogans tveimur árum síðar vakti hún reiði breskra dýraverndun- arsinna með því að fara á nautaat. Karl hefur verið góður vinur hertoga- fjölskyldunnar um langt skeið. Dóttir hertogans, Jane Wellesley, er fyrrver- andi vinkona hans. Nokkrum dögum áður en Karl og Camilla héldu til Spánar var hún við hlið hans í opinberri móttöku í Buckinghamhöll. Reyndar var Elísa- bet drottning fjarverandi. Um var að ræða kvöldverð fyrir 80 Bandaríkja- menn sem hafa aðstoðað við fjáröfl- un til ýmissa góðgerðarmála sem Karl hefur áhuga á. Karl og Camilla þegar þau komu fyrst fram opinberlega saman í janúar síðastliðnum. Símamynd Reuter Sviðsljós Pamela búin að finna nýja vinnu handa Tommy í kjölfar tilkynningarinnar um að fyrrverandi sílíkon- og bað- strandargellan Pamela Anderson hefði ákveðið að taka á ný saman við Tommy Lee hefur nú frést að hún sé búin að flnna nýja vinnu handa honum. Tommy á að því er virðist að vera með Pamelu í sjónvarpinu í sjónvarpsþáttunum VIP. Tommy, sem sést hefur á tökustað með Pamelu og eldri syni þeirra, á að leika öryggisráðgjafa í þáttunum. Ekki er langt síðan Pamela varði í viðtali barsmíðar Tommys. Hún sagði að um ein- stakt tilvik hefði verið að ræða. Sjálfur kvaðst hann hafa verið undir miklu álagi, bæði heima fyrir og í vinnunni. Pamela sótti um skilnað frá Tommy í kjölfar barsmíðanna. Hann hafði slegið hana er hún var með komabam þeirra á handleggnum. Nú virðist hins vegar allt blómstra milli hans og Pamelu og ef til vill verður nýja vinnan til þess að auka enn frekar á ham- ingjuna. IJrval - 960 síður á ári - firóðleikur og skemmtun sem lifir mánuðum og árumsaman Dýrt að skilja við Gladys Það getur orðið dýrt fyrir hasarmyndaleik- arann Jean-Claude Van Damme fari sjötta hjónaband hans út um þúfur. Um síðustu helgi gekk Van Damme að eiga Gladys Portugues í annað sinn. Áður hafði hann skrifað upp á pappíra að hann myndi greiða henni um 400 milljónir ís- lenskra króna færi annað hjónaband þeirra í hundana. Van Damme og Gladys eiga tvö böm. Hann yfirgaf hana þegar hann hitti baðfatafyrirsætuna Darcy LaPier. Darcy sótti um skilnað frá Van Damme 1996. Hún fullyrti að hann hefði misþyrmt henni, neytt fíkniefna. Auk þess hefði hann varið of miklum tima með Gladys. Van Damme segir að hjónaband hans og Darcy hafi ver- ið mistök. Hann hafí í raun alltaf elskað Gladys. „Við erum sálufélagar," sagði hann við einn félaga sinna. Gladys var á sínum tima ákaflega reið út í Van Damme. Hún ákvað að gefa honum nýjan sjens en í þetta sinn þótti henni ör- uggara að hafa fjárhaginn í lagi færi allt illa á nýjan leik. Jean-Claude Van Damme. Símamynd Reuter tölvu-i tækni og vísinda Einræktun: - sjúkdómsbani eða sifjamannát? FYRSTUR MEÐ FRETTIRNAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.