Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999
39
Sviðsljós
Stefnir lögfræð-
ingunum sínum
Madonna hefur stefnt fyrrver-
andi endurskoðanda sínum og
lögfræðingum sinum vegna samn-
ingsrofs og vanrækslu. Fer söng-
konan fram á um 150 milljónir ís-
lenskra króna í bætur. Málið
snýst um skatt sem söngkonan
borgaði 1992. Hún var þá sögð búa
í Kaliforniu. Yfirvöld i New York
sögðu hana búsetta þar og létu
hana borga um 150 milljónir
aukalega í skatt.
Gengur betur að
starfa án kærasta
Fyrrverandi Kryddpíunni Geri
Halliwell gengur best þegar hún er
ein. Þetta upplýsir hún í viðtali við
bandaríska blaðið USA Today.
„Ég hef ekki átt kærasta í fimm
ár. En það er allt í lagi. Ég hef
miklu meiri sköpunarkraft þegar ég
stunda ekki kynlíf," segir Geri. Hún
bætti því reyndar við að hún fyndi
stundum fyrir tifinu í líkamsklukk-
unni.
Geri er nú góðgerðarsendiherra
hjá Sameinuðu þjóðunum og
flakkar vitt og breitt um heiminn til
að ljá ýmsum málefnum lið. Hún
hefur því í nógu að snúast og hefur
tæpast tíma aflögu fyrir kærasta.
Geri Halliwell. Símamynd Reuter
Hin gullfallega og hálslanga Bai Ling stillir ser upp fyrir Ijósmyndara fyrir
frumsýningu kvikmyndarinnar Wild Wild West. Myndin, sem var frumsýnd
nýlega í Los Angeles skartar m.a. Will Smith í aðalhlutverki. Símamynd Reuter
Keypti lúxusvillu án þess að skoða hana:
Vill leika í gam-
anmynd um ást
Ben Affleck og Matt Damon
hafa hug á að leika í gamanmynd
um ást. Myndina ætla þeir sjálfir
að framleiða. Aðalhetjan er
Stanley, sem Luke Wilson leikur,
og draumastúlkan hans er Denise
Richards leikur. Ýmislegt gengur
á í gamanmyndinni og neyðist
parið til að eyða kvöldi með
svikara. Jay Lacopo fer með
hlutverk svikarans. Affleck leikur
vin svikahrappsins.
Landafræði ekki
Konur
í skútusiglingum
sterkasta fag Mel B
Kryddpían og fyrrum Islandsvin-
urinn Mel B er víst þekkt að öðru
en að víla hlutina fyrir sér.
Á dögunum reiddi Kryddstúlkan
til að mynda fram rúmar tvær
milljónir punda fyrir nýja lúx-
usvillu en komst svo að því að slot-
ið var langt frá því að vera á þeim
stað sem hún hafði ímyndað sér.
Frá þessu greindi breska
heimsfréttablaðið.
Ruglingurinn varð þegar Mel B
var ásamt Kryddsystrum sínum á
tónleikaferðalagi um Bandaríkin
fyrir skemmstu. Mel B mun allt í
einu hafa fengið þá hugdettu að nú
væri góður tími til húsakaupa. Með
einu símtali fékk hún breskan fast-
eignasala til að senda sér myndir af
húsum hið snarasta.
Það var hús í 18. aldar stfl sem
gjörsamlega heillaði Mel B upp úr
skónum. Húsið, sem er átta svefn-
herbergja, kvað vera ljómandi fal-
legt. Einhverra hluta
vegna taldi Mel að
húsið væri í úthverfi
Hampstead en sú stað-
setning var henni
mjög að skapi. Hún
hringdi óðara í fast-
eignasalann og keypti
húsið í gegnum síma.
Það var því ekki
fyrr en Kryddstúlk-
urnar sneru aftur til
Englands að Mel B
komst að því að
draumahúsið var alls
ekki þar sem hún
hélt. Það var langt úti
í sveit í Buckingham-
héraði.
Vinur Mel B mun
hafa haft á orði að
þetta væri dæmigert
fyrir Kryddstúlkurn-
ar. „Ég er reyndar
Mel B hefur ásamt eiginmanninum Jimmy Gulzar komist að raun
um að sveitalifið er eins og sniðið fyrir þau.
furðu lostinn yfir að
nokkur skuli kaupa
hús án þess að skoða
það. Þetta sýnir bara
hversu veru-
leikafirrtar stúlk-
urnar eru,“ sagði
vinurinn meðal ann-
ars í viðtali við
breska heimsfrétta-
blaðið.
Svo virðist þó sem
Mel B hafi hitt
naglann á höfuðið
því hún var ekki
fyrr búin að skoða
húsið ásamt ást-
manni sínum, Jim-
my Gulzar, en þau
uppgötvuðu að þau
eru einmitt rétta
fólkið til að búa úti í
sveit.
t
Háqæ ðaframköllun á lægra verði!
Yfiriitsmyn d Ný framköllunarvél sem skilar meiri myndgæðum
M fy!gir fra™k°Uun Filma fylgir klukkustundaframköllun á 35 mm filmum
T^Tpfcfc . ABS framkollun
Qpið mánudaga - föstudaga frá kl. 9.00 - 18.00
laugardaga frá kl. 10.00 - 14.00
og sunnudaga frá kl. 13.00 - 17.00
MIÐBÆJARMYNDIR
Austurstræti 20 Sími 561 1530