Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Side 28
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999
*40
Hringiðan
DV
Á skotsvæði Skotfélags Reykjavíkur fór á laugardaginn fram keppni á vegum
Hins íslenska byssuvinafélags. Keppnisreglur voru þær að einungis mátti skjóta
með eldgömlum herrifflum. Keppendur voru heldur betur gráir fyrir járnum.
„Experimental jam
session" var það
sem hljómsveitin
Big Band Brutal
bauð gestum Japis
að heyra á löngum
laugardegi. Spún-
kpíurnar láta tón-
ana flæða um
verslunina.
Lilja Gunnarsdóttir og Jóhannes A. Hinriksson
opnuðu saman sýningu í Gallerí Nema hvað á
föstudaginn. Listamennirnir standa hér fyrir
framan verk Jóhannesar sem ber þann
skemmtilega titil Hundur að pissa nr. 3.
Hljómsveitin Jagúar var á Kaffileikhús-
inu á föstudaginn. Þar skemmtu þeir
Jagúarmenn ásamt sveitinni Big Band
Brutal. Hrafn, saxófónleikari Jagúars, lét
ekki sitt eftir liggja.
Hundasýning
cavalier-deild-
ar Hundarækt-
arfélags ís-
lands fór fram í
Reiðhöll Gusts
á laugardag-
inn. Anna Mar-
grét Sigurðar-
dóttir og hund-
urinn Húgó
tóku þátt í
keppninni.
Músík og myndir stóðu fyrir tónleikum númer tvö á þaki
verslunarinnar í Austurstræti á laugardaginn. Þar kom
fram hijómsveitin Sigurrós og flutti sína Ijúfu tóna á
þessum sólríka langa laugardegi.
Á laugardaginn opnaði Hlff
Ásgrímsdóttir málverkasýningu t Ásmundarsai Lista-
safns ASÍ. Dóttir listakonunnar, Saga Steinþórsdóttir,
er hér með henni á mynd fyrir framan eitt verkanna.
Önnur mesta ferða-
helgi ársins er nú ný-
liðin og þótt straum-
arnir lægju í Mörkina
og á hvern þann gras-
blett landsins sem vert
er að tjalda á voru
nokkrir sem urðu eftir í
henni Reykjavík. Systurn-
ar Rocio og Aneliesse Calvi
skemmtu sér t.d. vel á Mono-
kvöldinu sem haldið var á
Skugganum.
Útvarpsstöðin Mono 87,7 og
Ballantines stóðu fyrir
djammi á Skuggabarnum á
laugardaginn. Þórhallur
Þorsteinsson, Egiil Reynis-
son, Pálmi Guðmundsson
(Monokóngur), Kjartan E.
Þormarsson og Benedikt
Árni Jónsson voru hressir á
Skugganum.