Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1999, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999
7
Fréttir
Sex íslenskar kvikmyndir frumsýndar i ár:
Blómlegt ár erlendis fram undan
- segir framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs
„Við sjáum fram á blómlegan
kvikmyndavetur þannig að í kjölfar-
ið gætum við verið að horfa á blóm-
legt kvikmyndaár á alþjóðlegum
vettvangi,“ segir Þorfinnur Ómars-
son, framkvæmdastjóri Kvikmynda-
sjóðs, en gert er ráð fyrir að alls
verði 6 íslenskar kvikmyndir frum-
sýndar hér á landi í vetur. Þorfmn-
ur segir að möguleikarnir séu mikl-
ir á alþjóðlegum vettvangi því um-
ræða um íslenskan kvikmyndaiðn-
að erlendis hefur verið mikil upp á
síðkastið. „Það hefur vakið athygli
út fyrir landsteinana að auknu fjár-
magni hefur verið variö til kvik-
myndagerðar á Islandi, en ekki síst
hafa þau lög
sem sam-
þykkt voru
í vor, þar
sem er-
lendir aðil
ar sem
gera kvik-
myndir hér
á landi eiga
kost á því
að fá allt að
12 prósent
af öllum
kostnaði
sem til fell-
ur til baka,
vakið mikla
athygli."
Þorfinnur
segir að
nokkuð hafi
verið skrif-
að um þetta
i erlendum
kvikmynda-
blöðum og
I I I I I I I I I I I I
.............■■■■■■■■■■■■■■
,
f A Ungfrúin góöa V J Raskó 101 Reykjavík Fuglar
V V
r a Myrkrahöföinginn V /
Óskabörn þjóðarinnar
TTTTTT
rma
Í.I..IJ iii ii m
ísland verði æ bet-
ur staðsett á
landakorti kvik-
myndagerðar-
innar.
Fyrsta myndin
í haust
Ails verða sex mynd-
ir sýndar það sem eftir
er þessa árs
Þorfinnur Ómarsson, framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs. en auk þess að
gert er ráð fyrir að ein mynd verði
frumsýnd á nýársdag árið 2000.
„Þessar myndir verða auðvitað
sýndar með smámillibili svo þær
flækist ekki hver um aðra,“ segir
Þorfinnur. Hann segir ástæðuna
fyrir þessum mikla fjölda mynda í
ár vera bæði hærri fjárframlög rík-
isins til kvikmyndagerðar en auk
þess séu þrjár myndir sýndar í
haust sem hefur dregist að ljúka
við.
Gert er ráð fyrir þvi að kvik-
myndin Ungfrúin góða, í leikstjóm
Guðnýjar Halldórsdóttur, verði
frumsýnd um miðjan september en
hún er nú i hljóðvinnslu í Dan-
mörku. Þá verður fyrsta mynd
Ragnars Bragasonar, Fíaskó, frum-
sýnd í október, en Ragnar skrifaði
handritið að myndinni ásamt því að
leikstýra henni. Verið er að klippa
myndina sem fer svo í hljóðvinnslu.
Myrkrahöfðinginn, eftir Hrafn
Gunnlaugsson, er í hljóðsetningu og
verður tilbúin fjótlega en hugsan-
legt er aö hún verði sýnd í lok árs-
ins, jafnvel í desember. Sömu sögu
er að segja af mynd Jóhanns Sig-
marssonar, Óskabörn þjóðarinnar.
Þá verður byrjað að taka kvikmynd-
ina Englar alheimsins eftir sam-
nefndri skáldsögu Einars Más Guð-
mundssonar í lok mánaðarins en
Friðrik Þór Friðriksson leikstýrir
myndinni. Aðstandendur myndar-
innar gera ráð fyrir að frumsýna
hana 1. janúar árið 2000. Þá er ver-
ið að taka myndina 101 Reykjavík
eftir sögu Hallgríms Helgasonar um
þessar mundir. Baltasar Kormákur
er leikstjóri myndarinnar en meðal
þeirra sem leika í myndinni er
spænska leikkonan Victoria Abrii.
Verið er að taka myndina í mynd-
veri í Reykjavík en hún verður
einnig tekin á Snæfellsnesi. -hb
Suðurlandsbraut 16,
sími 588 9747.
Borgartúni 36.
sími 568 8220.
Brjánslækur:
Rækjuvinnslan
aftur í gang
Alit bendir nú til að rækju- og skel-
fisksvinnsla geti hafist að nýju á
Brjánslæk á Barðaströnd eftir alllangt
stopp. Ræjuverksmiðja á staðnum var
fyrir nokkru slegin Háanesi á Pat-
reksfirði og Lómi hf. i Hafnarfirði á
uppboði en fyrirtækin buðu þar á
móti Odda hf. á Patreksfirði og höfðu
betur. Guðfinnur Pálsson hjá Háanesi
sagði í samtaii við DV að hugmyndin
með kaupunum væri að hefja vinnslu
að nýju á Bijánslæk. Fyrirtækin tvö
hafa yfir að ráða tveimur rækjutogur-
um, Guðrúnu Hlín og Lómi, en Guð-
finnur sagði að ekki væri síður horft
til vinnslu á skelflski. Hann sagðist á
þessari stundu ekki geta sagt til um
hvenær vinnsla gæti hafist en rækju-
verksmiðjan væri nánast tilbúin í
slaginn. „Þetta er alla vega ekki keypt
til þess eins að horfa á það,“ sagði
Guðfmnur Pálsson.
-HKr.
Skemmdarverk
DV, Akranesi:
Skemmdarverk voru unnin á þrem-
ur vinnuvélum Skóflunnar hf. á Akra-
nesi á dögunum. Þegar starfsmenn
Skóflunnar hf. á Akranesi mættu til
vinnu eftir helgi brá þeim heldur bet-
ur í brún því búið var að brjóta 12 rúð-
ur í þremur vinnuvélum sem fyrirtæk-
ið á. Engu var þó stolið úr þeim.
Um var að ræða götusópara, belta-
gröfu og vörubíl. -DVÓ
Óskyld mynd
Með grein um efnafræði ástarinn-
ar í síðasta helgarblaði DV var birt
mynd af stúlku. Það skal tekið fram
að stúlka þessi tengist ekki efni
greinarinnar persónulega heldur
var myndinni ætlað að vísa til
kvenna almennt. Ef þessi framsetn-
ing blaðsins hefur valdið einhverj-
um misskilningi biður DV hlutað-
eigandi velvirðingar.
Það er eins og Leifur lifni við eins og flest annað í blíðskaparveðrinu. Hann
nýtur sín óneitanlega best í sólinni á sumrin er hann virðir fyrir sér útsýnið.
Vantar einungis að hann stökkvi niður af stalli sínum og bjóðist til að bera
töskuna fyrir konuna í miðjunni. DV-mynd GVA
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og meó 15. júlí 1999 hefst innlausn
á útdregnum húsbréfum i eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
3. flokki 1993
1. flokki 1994
1. flokki 1995
1. flokki 1996
2. flokki 1996
3. flokki 1996
30. útdráttur
27. útdráttur
26. útdráttur
25. útdráttur
21. útdráttur
19. útdráttur
18. útdráttur
15. útdráttur
12. útdráttur
12. útdráttur
12. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
þriðjudaginn 13. júlí. ;
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóói, i bönkum,
sparisjóðum og veróbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
s
Ibúðalánasjóður
| Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800