Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1999, Síða 9
Arkan ætlaði að
segja frá Milos-
evic gegn mild-
ari refsingu
Zeljko Arkan Raznatovic
reyndi að semja við belgisk yfir-
völd um skilyrðin fyrir því að
hann gæfi sig fram. Gegn upplýs-
ingum um gamlan félaga sinn og
forseta Júgóslavíu, Slobodan
Milosevic, vonaðist Arkan til þess
að fá sjálfúr mildari meðferð hjá
dómstólunum. Fréttastofan
MSNBC, sem er í eigu NBC-sjón-
varpsstöðvarinnar og Microsoft,
greindi frá þessu í gær.
Arkan og Milosevic eru sakaðir
um stríðsglæpi. Alþjóðastríðs-
glæpadómstóllinn í Haag vill fá
þá fyrir rétt.
Sagt var að Arkan hefði haft
samband við yfirvöld í Belgíu 25.
júni síðastliðinn. „Við sögðum
honum að við myndum handtaka
hann og sennilega framselja
hann. Síðan höfum við ekkert
heyrt í honum,“ sagði talsmaður
saksóknaraembættisins í Brussel,
Jos Colpin.
Faxafeni 8
Dömupeysur
tvœr fyrir eina
Herrabolir
tveir fyrir einn
Opið
Mán - Fi 10-18
Fö 10-19
Lau 10 - 18
Su 12-17
NYJAR VÖRUR
DAGLEGA
Á FRÁBÆRU
VERÐI
ÞRIÐJUDAGUR 13. JULI 1999
i>v Stuttar fréttir
Utlönd
15 létust í Rúmeníu
15 manns létu lífið og margir
slösuðust er aurskriða féll í Rúm-
eníu í gær. í Ungverjalandi hafa 6
látið lifið í óveðri undanfama
þrjá daga.
Græðir á túristum
Játvarður prins, sem hlaut titil-
inn jarlinn af
Essex er hann
gekk í hjóna-
band, var í gær
sakaður um að
nota nafh sitt til
að græða á
túristum. Prins-
inn ætlar að taka greiðslu fyrir að
flytja fyrirlestra um endurupp-
byggingu Windsorkastala eftir
brunann.
Svíar iðnastir í ESB
Svíar em iðnastir þegna Evr-
ópusambandsins. Aðeins 36 pró-
sent af þeim sem em eldri en 55
ára eru i vinnu. í Svíþjóð starfar
61 prósent þjóðarinnar áfram eft-
ir 55 ára aldur.
Eitur í brjóstamjólk
Leifar af 350 tegundum eitur-
efna hafa fundist í brjóstamjólk,
þar á meðal ilmvatn, sólarolía,
þungmálmar og illgresiseyðir.
14 eiginkonum of mikið
Hjónaband 33 ára Bandaríkja-
manns og bróðurdóttur hans, sem
var undir lögaldri, var lýst ógilt.
Maðurinn, sem býr í Utah, átti
auk þess 14 aðrar eiginkonur.
Fjölkvæni er nú ólöglegt meðal
mormóna.
Þögðu um alnæmissmit
Þeir sem smituðust af alnæmi í
Frakklandi fyrir 1985 í sambandi
við blóðgjafir vora ekki látnir
vita þar sem yfirvöld óttuðust
ákærur.
Menn bin Ladens teknir
Tveir menn, sem grunaðir era
um samstarf við
hryðjuverkamann-
inn Osama bin
Laden hafa verið
handteknir í
London. Talið er
að hinir hand-
teknu hafi átt þátt
í sprengjuárásunum gegn sendi-
ráðum Bandaríkjanna í Kenýa og
Tanzaníu í fyrra þegar 200 manns
létust.
Apar handteknir
Apamir Munni og Hamid voru
handteknir af lögreglu i Bangla-
desh í gær. Þeim er gefið að sök
að hafa flutt eiturlyf á milli
manna og munu sérþjálfaðir til
þess verkefnis. Lögregla kannar
nú hvort fleiri apar séu í „vinnu“
hjá óprúttnum eiturlyfjasölum.
Hjúkkur borða á ný
Um 240 þúsund pólskir hjúkr-
unarfræðingar eru hættir hung-
urverkfalli eftir að þeir fengu lof-
orð um 2% launahækkun. Upp-
hafleg krafa hjúkranarfræðing-
anna hljóðaði upp á 10%.
Fresta kjöri
Stjómvöld á Papúu Nýju Gíneu
hafa ákveðið að fresta kjöri nýs
forsætisráðherra landsins en Bill
Skata sagði af sér embættinu í
síðustu viku.
Bretlandsför
Margrét Þórhildur Danadrottn-
ing hyggst
halda í opin-
bera för til
Bretlands í
febrúar árið
2000. Dana-
drottning fór
síðast í slíka
ferð til Bretlands árið 1974.
Helen Forrest látin
Söngkonan Helen Forrest er
látin, 82 ára að aldri. Helen gat
sér frægðar fyrir söng sinn, eink-
um á fjórða og fimmta áratugnum
þegar hún söng með stórstjömum
á borð við Benny Goodman,
Harry James og Artie Shaw.
Andstaða við Milosevic vex með degi hverjum:
Þrýstingur á KLA
að afvopnast ekki
Um fjögur þúsund Serbar söfnuðust saman í bænum Valjevo í gær og kröfðust afsagnar Milosevics
Júgóslavíuforseta. Lögregla beitti kylfum á mannfjöldann sem kastaði grjóti í ráðhúsið. Símamynd Reuter
Liðsmenn í Frelsisher Kosovo
(KLA) kunna að verða beittir þrýst-
ingi heima fyrir um að láta vopn sín
ekki af hendi ef Slobodan Milosevic
verður áfram við völd í Júgóslavíu.
Þetta var haft eftir Wesley Clark, yf-
irhershöfðingja NATO, í gær.
Clark sagði jafnframt að frelsis-
herinn hefði 90 daga til að skila
vopnum sínum og enn sem komið
væri gengi afvopnun f héraðinu sam-
kvæmt áætlun. Hann sagðist þó efins
um að allir liðsmenn frelsishersins
myndu láta vopn sín af hendi.
„Ég tel að það velti á því hvort
Milosevic verði forseti áfram. Ef
hann verður það má gera ráð fyrir
auknum þrýstingi á að hunsa sam-
komulagið um afvopnun, vegna þess
að menn munu vilja búa sig undir
það versta sem væri önnur árás
Serba á héraðið," sagði Clark.
Andstaðan við Milosevic forseta
vex með hverjum deginum sem líð-
Wesley Clark, yfirhershöfðingi
NATO, hvetur Serba til að mótmæla
veru Milosevics á valdastóli.
ur. Þúsundir Serba hafa gengið um
götur landsins að undanfömu og
krafist tafarlausrar afsagnar forset-
ans.
„Ég hvet Serba til að halda mót-
mælum sínum áfram og kalla Milos-
evic forseta til ábyrgðar. Hann er
rót vandans og ætti að víkja þegar í
stað,“ sagði Clark.
Ef Milosevic segði af sér telur Cl-
ark mun líklegra að áætlun um af-
vopnun KLA gengi eftir.
í gær héldu mótmælin í Serbíu
áfram af krafti og komu íjögur þús-
und manns saman í bænum Valjevo
í vesturhluta landsins. Lögregla
beitti kylfum en æstur múgurinn
kastaði grjóti í ráðhúsið og réðst að
lokum til inngöngu. Forystumaður
hópsins, Arsenijevic, sagði tilgangi
mótmælanna náð ef af þeim fréttist
til annarra héraða Serbíu og fólk
þar færi út á götumar í mótmæla-
skyni við forseta landsins.
Ertu búirm að græja bíiirm?
Bassabox 900w
naust
Borgartúni 26 • Sími 535 9000 • Fax 535 9040 • www.bilanaust.is
Rússnesk mafía
stýrði finnsku
orkufyrirtæki
Finnska orkufyrirtækið Neste,
sem er í eigu ríkisins, hefur háð
langa baráttu til að losna úr klóm
rússnesku mafíunnar. Tengslin
við mafiuna kostuðu rússneskan
yfirmann fyrirtækisins lífið. Blað-
ið Helsingin Sanomat sagði frá
málinu um helgina.
Samkvæmt grein blaðsins
flæktist Neste í net mafíunnar
þegar fyrirtækið reisti bensín-
stöðvar snemma á þessum áratug
í St. Pétursborg. Finnar keyptu
þjónustu rússnesks öryggisgæslu-
fyrirtækis sem tengdist rússnesk-
um glæpasamtökum.
Þegar yfirmenn Neste komust
að mistökum sínum tókst þeim
ekki sjálfum að losna undan
hrammi mafíunnar. Náið sam-
starf rússneskra og finnskra yfir-
valda var nauðsynlegt. Neyddist
fyrirtækið til að segja upp fjölda
rússneskra starfsmanna sinna til
að verða hreint. Fyrir tveimur ár-
um var aðstoðarframkvæmda-
stjóri rússneska dótturfyrirtækis-
ins skotinn til bana. Morðið hefur
ekki verið upplýst.