Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1999, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1999, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999 -■‘■JiJ J i/3J,3JJJ Skjóta ellinni reffyrir rass 4^ 4^ Ö// <?rw Z?uu orJ/u 67 úra /iraíí fvrir bað halda Öll eru þau orðin 67 ára en þráttfyrir það halda þau ótrauð áfram í vinnunni. Þau vildu ekki vera í sporum þeirra sem hætta störfum þegar þessum ákveðna aldri er náð. Ingveldur Sigurðardóttir verslunareigandi er 75 ára: Væri horfin yfir móðuna miklu Ingveldur Sigurðardóttir vinnur frá 10-18 alla virka daga í Versl- uninni Nálinni sem hún hefur átt í 40 ár. „Ég er í fullu fjöri og fer yfir- leitt á fætur á morgnana um sexleyt- ið. Mér finnst það afskaplega mikils virði að geta unnið svona mikið og hafa ánægju af því. Ég veit mörg dæmi um fólk sem er hætt að vinna en er í raun og veru í fullu fjöri. Það gæti verið útivinnandi en er látið hætta vegna þess að það þarf að koma yngra fólki að. Mér finnst óréttlátt að ekki sé hægt að minnka vinnuna smátt og smátt eftir að 67 ára aldri er náð. Ég átti mjög góða vinkonu sem sagði að við ættum aldrei að hætta að hugsa því þá endist maður miklu bet- ur. Þetta er rétt því ef maður hættir að hafa áhuga á hlutunum þá hvílist heilinn og fer ekki í gang aftur.“ Vin- kona Ingveldar varð 93 ára. „Ég hitti hana þremur mánuðum áður en hún dó og þá var hún að láta skrifa bók eftir sig. Þetta er einhver sú merkasta kona sem ég hef unnið með.“ Ingveldur er handavinnukennari að mennt frá dönskum skóla og segist hafa sett verslunina á stofn því hún hafí ekki kunnað neitt annað. Þegar hún varð 67 ára kom ekkert annað til greina en að halda áfram verslunarrekstrinum og vinna áfram í versluninni. „Þá hafði ég enga hug- mynd um hver gæti tekið við rekstr- inum. Ég er núna með konu í sigti sem er útlærð frá sama skóla og ég sem ég held að taki við af mér.“ Hún er spurð hvemig líf hennar „Ég er í fullu fjöri og fer yfirleitt á fætur á morgnana um sexleytið. Mér finnst það afskaplega mikils virði að geta unnið svona mikið og hafa ánægu af því.“ DV-mynd ÞÖK væri í dag ef hún hefði hætt að vinna rniklu," segir hún. -SJ 67 ára. „Ég væri horfin yfir móðuna M„Menn sem vinna hjá sjálfum sér halda áfram að vinna þótt þeir séu orðnir 67 ára,“ segir Örn Clausen lögfræðingur. „Hinir em allir rekn- ir öfugir út af þvi að þeir era komn- ir á vissan aldur, jafnvel þótt þeir séu í fullu fjöri og við góða heilsu. Ég hef hins vegar ekki efni á því að hætta. Ég er ekki í neinum lífeyris- sjóði og það stendur ekki til að fara í neinn héðan af. Ég verð því að vinna þangað til ég dett niður dauð- ur. Ég hef engin plön um að hætta á meðan ég get staðið mig í því sem ég er að gera.“ Öm hefði ekki viljað hætta að vinna 67 ára. „Þá hefði mér leiðst svo mikið. Ég veit ekki hvemig þeir fara að, þessir vesalings menn sem þurfa að hætta að vinna 67 ára. Þeir era að deyja úr leiðindum og era til dæmis að reyna að spila golf. Ég hef ekki gaman að neinu nema að vinna. Ég vinn alltaf þegar ég þarf Orn Clausen lögfræðingur er sjötugur: Legði ekki árar í bát Eiríkur Smith að vinna og fresta aldrei hlutunum. Ég les oft málin heima á kvöldin og um helgar." Öm þekkir marga sem hafa þurft að hætta að vinna eftir 67 ára af- mælisdaginn. „Þeir verða ómögu- legir. Þeim leiðist og vita ekkert hvað þeir eiga af sér að gera. Þeir ganga i félagsskap aldraðra og fara í ferðalög með öldruðum. Ég hef ekk- ert á móti slíku fyrir þá sem geta staðið í því. En ég veit um marga sem hafa verið i vinnu sem þeim hefur líkað vel og vilja ekki hætta. Reglumar segja hins vegar að þeir þurfi að hætta alveg sama hvemig þeir era á sig komnir andlega og lík- ainlega." Örn er spurður hvemig líf hans væri í dag ef hann hefði hætt að vinna 67 ára. „Ég væri vafalaust orðinn trésmið- ur eða kominn á sjó.“ Hann hefði ekki lagt árar í bát. -SJ „Eg veit ekki hvernig þeir fara að, þessir vesalings menn sem þurfa að hætta að vinna 67 ára. Þeir eru að deyja úr leiðindum og eru til dæmis að reyna að spila golf.“ DV-mynd E.ÓI. listmálari er að verða 74 ára: Áhugamál eru nauðsynleg „Það hlýtur að vera alveg skelfilegt að standa uppi eins og þvara eða húka einhvers staðar í stól og bíða eftir að tíminn líði.“ DV-mynd E. Ól. j í g ætla að vinna þar til yfir lýk- ur. Ég hef alltaf haft þörf fyrir að mála. Annars myndi maður ekki nenna þessu. Á meðan ég er heilsuhraustur held ég mínu striki. Svo reyni ég að stunda smávegis útiveru með þessu. Ég er í golfi og er búinn að vera í því í nokkuð mörg ár.“ Eiríkur Smith listmálari segir að vinnan sé hlutur sem hann gangi að eftir því sem áhuginn er fyrir hendi. „Þetta er ekki vinna frá 8-17. Ég get stundum verið að vinna fram á nótt eða bara ekkert. Þetta er eitthvað sem maður er að rjúka alltaf meira og minna í. Ég er með mjög góða að- stöðu á heimilinu þannig að ég þarf ekki að kvarta yfir neinu.“ Hann segir að það væri ekki gott ef hann væri ekki að vinna. „Ég bara þekki það ekki. Ég vorkenni fólki sem hefur engin áhugamál þeg- ar það er komið á þennan aldur. Ég ráðlegg fólki sem er að nálgast eftir- launaaldur að vera búið að koma sér upp einhverju hobbýi. Það hlýt- ur að vera alveg skelfilegt að standa uppi eins og þvara eða húka ein- hvers staðar í stól og bíða eftir að tíminn líði.“ Eiríkur biður ekki eft- ir að tíminn líði. „En hann líður ansi hratt.“ Nokkrar einkasýningar eru framundan; í Hafnarborg, Gerðu- bergi og í Galleríi Sævars Karls. „Það er í nógu að snúast." Eiríkur er spurður hvernig líf hans væri í dag ef hann hefði hætt að vinna 67 ára. „Ég hefði eflaust tekið eitthvað fyrir, svo sem spilað enn meira golf.“ /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.