Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1999, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1999, Blaðsíða 18
26 ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999 Sviðsljós Vann fyrir hverri krónu Julia Roberts er varla á flæðiskeri stödd eftir leik sinn í gamanmyndinni Notting Hill. Fyrir frammistöðu sina hlaut leikkonan rúman milljarð í laun og sjálf segist hún hafa unnið fyr- ir hverri krónu. Það er líkast til rétt því myndin slær víðast hvar aðsóknarmet. „Ef menn vilja borga mér svona mikið, þá þigg ég það að sjálfsögðu," sagði Julia í viðtali við Aftonbladet. Aðspurð um mótleikarann í myndinni, Hugh Grant, sagði Jul- ia að hann væri frábær náungi, aðlaðandi og vel gefinn. Jerry með Þá er það loksins opinbert; hjónabandi Mick Jagger og Jerry Hall er endanlega lokið. Það tók dómara í London ekki nema 13 mínútur að ganga frá skilnaðinum. Jagger hafði sett fram kröfu um að hjónavígsla hans og Hall árið 1991 hefði ekki verið lögformleg og svo virðist sem dómari hafi samþykkt þaö. Þrátt fyrir það er skilnaður- inn Jagger dýr en talið er víst að hann muni reiða fram um þrjá milljarða til Jerry. Óvíst er hins vegar hvemig glæsivillum þeirra hjóna verður skipt. Lögfræðingar fyrrum hjónanna tilkynntu að skilnaðurin færi fram í mestu vinsemd og til marks um það þá kyssti Jagger Jerry sína að skilnaði fyrir utan dómshúsið. Þau munu hafa einnig hafa gert með sér samkomulag um að taka jafnan þátt í uppeldi fjögurra bama sinna. labbar burt 3 milljarða Skilnaðurinn kostar Mick Jagger vart undir þremur milljörðum en hann ætti svo sem að hafa efni á því. Símamynd Reuter Með gullband um sig miðja David Beckham kom sinni heittelskuðu, Victoriu kryddpíu, heldur betur á óvart í brúðkaups- ferðinni þegar hann dró úr pússi sínu mittisband skreytt dýrindis demöntum. Beckham mun einnig hafa í hyggju að gefa Victoriu eymalokka í stíl. Þau David og Victoria eyddu hveitibrauðsdögunum í Frakk- landi og var sonurinn Brooklyn með í fór. Þau urðu að aflýsa fyr- irhugaðri ferð til Bora Bora vegna þess að David var skikkað- ur til að mæta á fótboltaæfmgu hjá Manchester United í gær. Þau kváðust hæstánægð með brúðkaupsferðina þótt hún hefði mátt vera lengri. leitar eftir sveinum og meisturum til starfa. Fjölbreyttur vinnutími sem sniðinn er að þínum þörfum. * Öll vinnuaaðstaða er til fyrirmyndar og mikil rækt lögð við að halda góðum vinnuanda. Laun 750 til 1150 kr. á tímann, full vinna u.þ.b. 129.000 kr. til 200.000 kr. á mánuði auk hlunninda. 0 Bjóðum þér að koma 1-3 daga til reynslu. Hringdu og fáðu nánari uppl. í síma 896 6998. Fullum trúnaði heitið. / i- \ JTL 7 "I ^—V Oldfield leitar að þeirri réttu í einkamáladálki Þrátt fyrir velgengni í tónlist- inni hefur Mike Oldfield, sem nú er orðinn 46 ára og á 3 milljarða króna í bankanum, ekki notið jafn mikillar velgengni hjá hinu kyninu. Eftir nokkur misheppnuð sambönd vonast kappinn nú til þess að ná sér í kvonfang með því að auglýsa í einkamáladálki. Hann auglýsti í hinu virðulega blaði Sunday Times undir fyrir- sögninni Einmana hjörtu og fékk mörg svör. Sérblað DV ©dxribOsi© RMHi [KjNl^WfL^ Miðvikudaginn 21. júlí nk. mun veglegt senblaö um ferðir innanlands fylgja DV Ferðir innanlands hafa komið út í tæpa tvo áratugi og er löngu búið að festa sig í sessi hjá lesendum DV sem margir hverjir geyma blaðið sér til upplýsingar þegar leggja á land undir fót. Auglýsendui’ athugið að auglýsingum parf að skila til DV fyrir föstudaginn 16. júlí. Umsjón efnis er í höndum Höskuldar Magnússonar, blaðam. DV, í síma 550 5000 Auglýsendum er bent á að hafa samband sem fyrst við Sigurð Hannesson, auglýsingadeild DV, í síma 550 5728, netfang: sh@ff.is, eða Þórð Vagnsson í síma550 5722, netfang: toti@ff.is Hin snoppufríða leikkona Andie MacDowell heldur á dóttur sinni, Söruh Margaret, þegar þær koma á frumsýningu kvikmyndarinnar „Muppets from Space“ sem var frumsýnd síðastiiðinn laugardag í Los Angeles. Andie léði einni persónu myndarinnar rödd sína. Símamynd Reuter Elton John hélt að hann væri með sólsting Elton John hélt að hann óreglulega. Elton varð að hefði fengið sólsting þegar HHL'.' aflýsa skemmtun sinni í hann svimaöi við tennis- HPpjr" *brúðkaup Victoriu Adams leik á frönsku rívíerunni og David Beckhams vegna á laugardaginn fyrir viku. R5-7\1I7' T il veikindanna og voru þau Hann segist hafa fengið Áúl mjög skilningsrík, að sögn sjokk þegar læknar tjáðu L A Eltons. Söngvarinn ætlar honum að hann þyrfti PVjJ| ÆBj að hvíla sig á næstunni. gangráð. ■■■-------Hann vonast til að geta Rannsókn hafði leitt í Elton John. haldið tónleika í ágústlok. ljós að hjarta hans sló Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.