Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1999, Page 32
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ1999
Básafell:
Sléttanesið af-
hent í október
Sléttanesið ÍS, skip Básafells hf. á
-»»ísafirði, verður afhent nýjum eigend-
um sínum í október ef stjórn Básafells
hf. samþykkir söl-
una. Svanur Guð-
mundsson, fram-
kvæmdastjóri
Básafells hf., stað-
festi þetta í morg-
un. Hann sagði
jafnframt að ekki hefði verið ákveðið
hvenær stjómarfundurinn yrði. Lík-
legt er talið að átök verði á fundinum
því ekki eru allir á eitt sáttir um söl-
una á Sléttanesinu ÍS. -bmg
Máli Loga Berg-
* manns vísað frá
„Það er rétt, málið var fellt niður
hér, vísað var á 112. greinar laga um
meðferð opin-
berra mála, sama
afgreiðslan var í
báðum kærumál-
um,“ sagði Ragn-
heiður Harðar-
dóttir saksóknari
1 morgun. Kæra-
mál vegna hand-
töku Loga Berg-
Logi Bergmann manns Eiðsson-
i Eiðsson.
ar, fréttamanns
Sjónvarps, við
vetur er úr sög-
Hörpubrunann
unni.
Ríkissaksóknari fór með loka-
rannsókn málsins eins og lög gera
ráð fyrir þegar um er að ræða kæra
á hendur lögregluþjóni.
Logi Bergmann Eiðsson sagði í
morgun að hann væri ánægður með
aö málinu væri lokið. Lögreglan
kærði Loga en hann krafðist rann-
sóknar á handtökunni. Hann segir
að fjöldi manns hafi verið yfirheyrð-
ur.
„Það undarlega við þetta var að í
upphafi var það lögreglan sjálf sem
annaðist um skýrslutökur, ríkissak-
sóknari tók við málinu á seinni stig-
* um. Það er bara mjög fínt að vera
laus við þetta,“ sagði Logi Berg-
mann í morgun. -JBP
Norðurá:.
Aldrei séð ána
svona
„Ég hef oft og mörgum sinnum
veitt i Norðurá og oft á þessum tíma,
en ég hef aldrei séð ána svona á þess-
um tíma árs. Vatnsmagnið í henni var
ótrúlegt," sagði Þórarinn Sigþórsson,
sem var að koma úr ánni i gærdag,
eftir einhver mestu flóð í júli sem
elstu menn muna. „Hollið veiddi 100
laxa og við Ingólfur Ásgeirsson feng-
’ ^um 25 laxa, en við vorum komnir með
20 laxa eftir fyrsta eina og hálfa dag-
inn.“ -G.Bender
Bláa lónið var opnað að nýju um helgina á nýjum stað en endurbætur á bað-
staðnum kostuðu um hálfan milljarð. Þessir undu sér vel í nýju lauginni um
helgina og nutu heita vatnsins sem er stundum sagt vera allra meina bót.
DV-mynd ÞÖK
Landslagsarkitekt um Grjótaþorp:
Fólkið ætti að flytja
- þoli þaö ekki „hljóm“ bæjarins
„Fólk verður að gera sér grein
fyrir að það er í hringiðunni þegar
það kýs að búa í miðbænum. Ákveð-
inn hávaði er innbyggður í miðbæj-
arhverfi og fólk sem ekki þolir slík-
an hávaða ætti að flytja og búa ann-
ars staðar," segir Reynir Vilhjálms-
son landslagsarkitekt um árvissar
kvartanir íbúa í Grjótaþorpinu í
Reykjavík um hávaða frá Tívollinu
við Reykjavíkurhöfn óg samkomu-
stöðum í nágrenninu. Reynir hefúr
unnið mikið að skipulagsmálum í
Reykjavík og meðal annars átt
dijúgan þátt í skipulagi neðra Breið-
holts og Árbæjarhverfis.
„Reykjavík á að vera lifandi borg
Reynir VII-
hjálmsson.
og sjálfur er ég
nýkominn frá
Kaupmanna-
höfn. Þar hlust-
aði ég á flug-
eldasprenging-
amar í Tívolí á
miðnætti á
hverju kvöldi og
þar virðast íbú-
ar ekki kippa
sér upp við
slíkt. I raun og veru er umræddur
hávaði hljómur bæjarins og það
verður fólk annað hvort að skilja
eða þá að flytja," segir Reynir Vil-
hjálmsson. -EIR
Bóndi kærir skógræktarmenn:
Veiða kindur
\ net og
drekkja þeim
„Ég er búinn að kæra þetta til
Dýraverndunarsambandsins. Þeir
girða í sjó fram og í endann setja
þeir net sem kindumar festast í og
drakkna svo á flóði," sagði Ölver
Benjamínsson, bóndi á Ystu-Görð-
um í Kolbeinsstaðahreppi, um skóg-
ræktartilburði eigenda jarðarinnar
Valshamars á Skógarströnd. „Sonur
minn missti tvær kindur í vörpuna
hjá þeim í fyrra og núna eru þær
famar að drakkna aftur,“ sagði Öl-
ver.
Lögreglan í Búðardal tók skýrsl-
ur á vettvangi í gær og er málið í
rannsókn. Landeigendur að Vals-
hamri, sem girða með fyrrgreindum
hætti til að vemda skógrækt sína,
era þekktir athafnamenn í Reykja-
vík og hafa stundað skógrækt um
árabil á Skógarströnd.
„Ég þoli einfaldlega ekki þessa
meðferð á skepnum í nafni skóg-
ræktar. Það á ekki að líðast að
menn veiði kindur í net og drekki
þeim," sagði Ölver Benjamínsson,
bóndi á Ystu-Görðum.
-EIR
Helgi Hjörvar, forseti borgarstjórnar:
Kennarar vinni
fyrir kaupi sínu
„Kennarar verða að vinna fyrir
kaupinu sínu,“ segir Helgi Hjörvar
um kröfu grunnskólakennara í borg-
inni, sem sögðu
upp stöðu sinni i
vor og telja sig
eiga ógreidd laun
fyrir ágústmánuð.
„Þessi háttur hef-
ur jafnan verið
hafður á hjá kenn-
urum sem sagt
hafa upp. Þann
fyrsta er greitt fyr-
ir vinnu sem
vinna á um haust-
ið og við getum
ekki litið svo á að
uppsagnimar séu
einhver mála-
myndagerningur
eins alvarlegar og
þær eru,“ sagði
Helgi við DV i
morgun. Hann
segir að kennarar
sem sagt hafa upp í borginni séu um
200 og fari fækkandi þessa dagana.
„Þetta mun valda ákveðnum vanda en
við munum leita allra leiða til að þess
að það bitni ekki á þjónustu við skóla-
börn og fjölskyldur þeirra.“
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambandsins, ætlar að hitta lög-
mann félagsins í dag vegna þessa
máls. „Ég mun ræða það við hann
hvort ástæða sé til að fara þá leið að
fara með málið fyrir félagsdóm. Oft
þegar það er ágreiningur um túlkun á
kjarasamningum þá hefur verið farin
þessi leið,“ segir Eiríkur. Hann sagði
að Kennarasambandið hefði ekki rætt
málið við æðstu menn borgarinnar en
viðræður hefðu staðið við kjaraþróun-
ardeild borgarinnar um nokkurt
skeið. Aðspurður um fjölda kennara,
sem sagt hefðu upp í borginni, sagði
Eiríkur: „Þetta skiptir einhveijum
hundruðum en ég hef engar staðfestar
upplýsingar um fjölda uppsagnanna.
Staðan er betri víða úti á landi og það
er vegna þess að þar er verið að
greiða ofan á venjulegan taxta.“ -hb
Sandgerði:
Tekinn á 186
Lögreglan í Keflavík stöðvaði
ökumann sem keyrði á 186 kiló-
metra hraða á Sandgerðisvegi
um eittleytið i nótt. Ökumaður
sinnti ekki stöðvunarskyldu lög-
reglu og keyrði inn í Sandgerði.
Var hann stöðvaður þar skömmu
síðar, færður á lögreglustöð og
sviptur ökuskírteininu. Ökumað-
urinn, sem ekki er orðinn tvítug-
ur, mun því líklega missa bílpróf-
ið í einhverja mánuði. -EIS
Eiríkur Jónsson.
Veðrið á morgun:
Norðanátt
og kólnandi
Norðlæg átt, víðast 8 til 13 m/s.
Rigning eða súld víöa um land en
léttir heldur til suðvestanlands.
Kólnandi einkum um norðanvert
landið.
Veðrið í dag er á bls. 37.
Pantið í tíma
18
da?ar í Þjóðhátíð
*
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
5 70 3030