Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Blaðsíða 28
^hfic^fti^innu Tvöföld áhrif halda sig Inni á Café Mennlngu á Dalvík. Stuömenn veröa í Ýdölum í Aðaldal ásamt lylgiliði. Það skipa Ivar bengó, Golli norölenski, Ari strætó, Silli tattoo að ógleymdum Danna driver. <ELe i khús Hellisbúlnn tekur á samskiptum kynjanna á eftirminnilegan hátt. Slggi Slgurjóns leikstýrir þessu stykki og Bjarnl erfrábær í hlutverkinu. Llght nights er skemmtilegur mögu- leiki f fslensku leikhús- lífi. Þó sýningunum sé kannski helst beint að túristum, leikið á ensku og svona, er samt bráðgaman fyrir fslendinga að mæta og upplifa þetta. Draugar, forynjur og hverskyns kynjaverur vaða þarna um sali og gefa áhorf- andanum til kynna hvernig fslensk þjóðarsál leit út fyrr á öldum. Sýnt er í Tjarnarbíói fimmtuoags- föstudags- og laugardagskvöld klukkan 21. 23.00-04.00 sMJMlNN SINCE 1931 Reykjavík: Austurstraeti 3, Suðurlandsbr. 46, Esso-stöðin Ártúnshöfða & Kringlunni. Hafnarfjörður: Esso-stöðin, Lækjargötu 46, Esso-stöðin, Reykjavíkurvegi 54. Keflavik: Hafnargötu 32. Akureyri: Kaupvangsstr. 1. rSUBiunv' Ferskleiki er okkar bragd.“ Góða skemmtun m Stendur þu fyrir einhverju? Sendu upplýsingar i t’-niail fokusöfokus is, fax 550 5020 skólaböllin í vetur Selfosssveitin Ofl hefur verið ansi áberandi í sumar og ekkert gefið systrum sínum, Skítamóral, Landi og sonum og Á móti sól, eft- ir í dugnaði. Bandið er ekki alveg nýtt af nálinni, drengirnir halda upp á tveggja ára afmæli sveitar- innar á Gauknum um helgina. „Það verður mikið um að vera á Gauknum alla helgina," segir Guðmundur Karl Sigurdórs- son, rödd hljómsveitarinar, „en sjálft afmælispartíið hefst klukk- an 10 annað kvöld. Allir velunnar- ar eru velkomnir í veisluna, það verðar ódýrar veitingar og óvænt- ar uppákomur." í Öfl eru ásamt Guðmundi bassaleikarinn Leifur Viðars- son, Baldvin Árnason á hljóm- borð, Helgi Valur Ásgeirsson á gítar og trommari er Þórhallur Reynir Stefánsson. Hvernig hefur gengið í sumar? Rosalega vel, við erum búnir að vera bókaðir um hverja helgi frá því í júní. Núna í haust stóð til að draga úr umsvifunum og halda áfram framhaldsskólanáminu, en ég sé ekki að það gangi, við erum nú þegar þéttbókaðir á skólaböll í vetur.“ Nú, eruö þiö þá ekki orönir moldríkir af þessu? „Nei, það er dýrt að koma sér af stað og útgjöld eru mikil, en við stefnum að sjálfsögðu að því að verða auðugir. Ætli næsta skref í þá átt verði ekki að koma plötu á markaðinn." Já, ég œtlaöi einmitt aö spyrja aó því, er ekki eitthvaö aó koma út? „Jú, en ekki í haust. Ég geri ráð fyrir að við tökum til við plötu- geröina strax eftir áramót. Við eigum nú þegar eitthvað af lögum og þau halda áfram að koma. í fyrra fór jólalag frá sveitinni i spilun og það fékk flnar mótttök- ur. Hver veit nema það verði á einhverri safnplötunni fyrir næstu jól,“ segir Guðmundur, söngspíra Ofl, að lokum. Lltla hrylllngsbúöln er sýnd í Borgarlelkhús- Inu. Þetta er söngleikur í léttum dúr og allir fara beinlínis á kostum, ekki síst Bubbi. •Kabarett Bee Gees-sýningin fór vel af stað um síðustu helgi. Nú er frumsýnigarskrekkurinn að baki og allir í toppgír. Söngvararnir Krlstinn Jóns- son, Davíð Olgeirsson, Krlstján Gíslason, Krlstbjörn Helgason og Svavar Knútur Krist- insson veröa í framlínunni en þær Hjördis Elín Lárusdóttlr og Guðrún Árný Karlsdóttir verða þeim til halds og trausts. tOpna nir Klukkan 16 opnar í Nýló samsýning 7 lista- manna frá Austurriki og Islandi. Þetta eru Gil- bert Bretterbauer, Josef Danner, Manfred Erjautz, Frltz Grohs, Michael Klenzer, Werner Relterer, Michaela Mat, Ásmundur Ásmunds- son, Margrét Blöndal, Blrgir Andrésson, Har- aldur Jónsson, Ósk Vilhjálmsdóttir og Pétur Örn Friðriksson. Sýningin er opin daglega frá 14 til 18 nema mánudaga og stendur til 19. september. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir._____________________________ ✓ Hildur Margrétardðttir útskrifaöist með láöi úr málaradeild MHÍ í vor. Nú er hún stokk- in af staö með sýningu í Gallerí Geysl, Hinu húsinu. Sýningin ber yfirskriftina .Fjölskyldu- meðlimir" og opnar klukkan 16. •Feröir Landverðir á Þingvöllum er búnir að vera dug- legir að fara í gönguferðlr með ykkur í allt sumar. Nú fer þeim aö Ijúka, svo drifið ykkur nú! Ferðafélag Akureyrar ætlar á Kerlingu í Eyja- firði. Þetta er þriggja bomsu klifur og brottför er klukkan 9. Ekið verður að Finnastöðum og n ±oo^ sctA i i fVi'C.ár 1 * ' 2- í sKr* f gengið þaðan upp suðaustan á fjallið og kom- iö sömu leiö til baka. ■ 29. ágúst • Krár Kringlukráln: Guðmundur Rúnar Lúðvíksson kominn aftur. Garrdamar! Guðlaugur og Vignlr eru kátir kallar og gestir á Kaffi Reykja- vík fá að reka sig á það í kvöld. Wonder-Hammond-grúvsveitin ísbráð er á Gauknum. Óskar Guðjónsson og Þórlr Bald- ursson fara fyrir þessari skemmtilegu sveit. Prógrammiö er troðfullt af Steve Wonder. Böl 1 Ball hjá eldri borgurum í Ásgarðl. Nú er það Caprí tríóið skemmtilega sem súrrar upp stemninguna. Hefst klukkan 20. •S veitin Funkmaster 2000 hefur aðsetur á Glaumbar öll sunnudagskvöld. Að þessu sinni er gestur þeirra enginn annar en altósaxistinn Sigurður Flosason, yfirkennari drengjanna úr Tónlistar- skóla FÍH. Fortlöarþrá á Tímatorgi: F7 Eb9IF7 Eb9IF7 Eb9IF7 Eb9IAb-9IAb-9IR Eb9IF7 Eb9ID-7 G7IC-7 F7IBb-7 Eb7IF og svo aft- ur og aftur. Alison Sumner rúllar þessu upp fýrir ykkur ef þiö klippið þetta út og farið á Rom- ance og leggið þetta á flygilinn. D j a s s Djasstríó Andrésar Gunnlaugssonar og instrúmentalhljómsveitin Jollý eru á Fógetanum frá klukkan 10. Kostar 500 kall inn. Fyrir börnin Nýtt barnaleikrit Þorvalds Þorsteinsson- ar er komið á fjalirnar. Þetta er Ævintýr- ið um ástina og er sýnt í Kaffileikhúsinu. Við fáum að kynnast Mettu sögusmettu, Púkan- um, Belgi sem er alþjóðlegur stórleikari og svo koma náttúruöflin Lindin, Vindurinn, Fuglinn og Tréð greinargóða við sögu. Frumsýnt er í dag klukkan 15. •Siöustu forvöö Nú er að Ijúka sýningu Skagaleikflokkslns á ýmsum munum tengdum starfsemi hans í Listasetrinu, Kirkjuhvoli á Akranesi. Sýning þessi var sett á laggirnar í tilefni 25 ára af- mælis flokksins. Opið til klukkan 18. •F er öir Berja- og sveppaferð i Skorradal á vegum Ferðafélagslns. Farið veður frá Mörkinni 6 og Umferðarmiðstöö klukkan 10.30. Útivlst ekur upp á Miðdalsfjall og gengur á Skriðuna, sem er móbergsstapi sunnan Skjaldbreiðar. Glæsilegt útsýni. Lagt verður af stað klukkan 9. Ferðafélagið arkar Síldarmannagötur, en það er gömul þjóðleið. Lagt verður að stað klukkan 10.30 frá Umferðarmiðstöð og Mörkinni 6. Árganga á yegum Útivistar, gengið frá rótum Brúarár niður í Brúarárskörö að vestan og síö- an farið yfir ána neðán við Strokk. Lagt í’ann klukkan 10.30. Góða skemmtun Stendur þu fyrir einhverju? Sendu tipplysmg.tr i e 'i.íil foktlStóJnKus is t.i\ 550 5020 f Ó k U S 27. ágúst 1999 V 28

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.