Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Blaðsíða 6
EM3 vai - 5. "öRtóber 19ð6 klukkan 21.451 Steindór Hjörleifsson sá um bíó- myndainnkaupin hjá Sjónvarpinu á fyrstu árum þess. Þegar allt gengur á afturfótunum og lífið ætlar alveg að gera mann vitlausan • er voða gaman að ímynda sér hvað væri gaman að vera einhver allt annar en maður er. Skrautlegustu karaktera þessa heims er án efa að finna í kvikmyndum og þess vegna er skemmtilegast að ímynda sér að maður sé fígúra úr einhverri ágætri bíómynd. Fókus spurði nokkra menn og konur með ímyndunaraflið í lagi hvaða kvikmyndapersónur þau myndu helst vilja vera. Ef ég væri kvikmyndapersóna tvífarar Jón Gnarr skemmtikraftur: Han Solo í Star Wars Catwom- afflnúír Batman II „Ég myndi vilja vera Han Solo úr Star Wars vegna þess að hann er hress. Og alltaf í góðum fíling. Og hann fær sætustu stelpuna í lokin. Hann er töffari og mig hef- ur alltaf dreymt um að vera töffari, svona góður töffari.“ Rósa Guðmunds- dóttir skemmtana- stjóri: Það sakar ekki að hafa sposkan svip ef þú ert gamanleikkona. Þessar tvær tignarlegu konur hafa eitthvað i andlitsfallinu sem fellur í kramið og kemur áhorfandanum strax í húmorgírinn. Það eru þessi kipruðu munnvik og kátínuglampinn í augunum. En þar lýkur líka samlíking- unni. Ferill Whoopy Goldberg hefur verið á hraðri niðurleið frá því hún vann leiksigurinn í Color Purple. Ingrid Jónsdóttir er hins vegar leik- kona á uppleið. Hún átti fína takta í upphafi ferils síns í Djöflaeyjunni í bragganum vestur í bæ og hefur stöðugt sótt í sig veðrið síðan. Miðað við frammistöðu hennar í Hnetunni nýverið megum við búast við ekki minna en leiksigri í vetur. „Þó það sé klisjukennt þá er ég afar mikill Star Wars-aðdáandi og myndi helst vilja búa í þeim ágæta heimi. Ég á allar Star Wars- myndirnar á vídeói síðan ég var lítill og veit að ég myndi helst vilja vera litli, græni kallinn Yoda sem er aðallærimeistari Jedi- riddaranna. Hann er mikill spek- ingur og segir margt mjög flott. Uppáhaldslínumar mínar úr Star Wars era allar úr hans munni. Til dæmis þegar Logi hittir hann í fyrsta skipti og segir: „I’m looking for að great warrior.“ Þá svarar Yoda: „War does not make one great.“ Ég hugsa að mér myndi líða vel ef ég væri þessi ágæti litli og græni maður.“ Halldór Gylfason leikari: Umrenn- ingur „Sko, ég myndi alveg vilja vera JR í Dallas af því að það kemst enginn með tæmar þar sem hann hefur hælana. Hann er mesta ill- menni sögunnar. Umrenningurinn sem Chaplin lék í svo mörgmn myndum er líka heillandi. Hann var svo fallegur að utan sem inn- an. Þessir tveir eru ólíkir og það væri gaman að prófa að vera þeir báðir.“ Magnús Þór Gylfa- son fréttamaður: Yoda í Ingrid Jónsdóttir. Whoopy Goldberg. „Ég myndi ekki vilja vera neitt annað en ég er en í smástund myndi ég kannski alveg vilja vera Catwoman. Átfittið á henni er sjúklegt. Ég væri líka til í að vera Supergirl af því að mig langar svo að geta flogið. Supergirl er líka ógeðslega sterk og getur til dæmis hent húsum til og frá. Eins væri ég til að prófa að vera vampíra úr einhverri kvikmynd.“ Hafdís Huld tónlistarmaður: Lfsa í Undralandi „Það væri fínt að vera Lísa i Undralandi. Það er örugglega skemmtilegt að vera í tómu ragli ofan í jörðinni, drekka lyf sem stækka mann og minnka á víxl, detta í holur, elta kanínur og tala við pöddur. Ég sá myndina oft þeg- ar ég var lítil og var nýlega gefin bókin.“ Helga Braga Jónsdóttir leikkona: Mary „Mig langar að vera Mary Poppins sem Julie Andrews lék. Hún er jákvæð og skemmtileg kona sem er alltaf i stuði. Svo flýgur hún um á regn- hlíf. Ég væri til í að eiga regnhlíf sem ég gæti flogið á.“ Senni- lega að góna Sjónvarpið er nýbyrjað þama. Líklegt að ég hafi setið og gónt. Nema ég hafi verið að leika í Iðnó þetta kvöld. Ég bara man það ekki. Nú, var þetta fyrsta bíómyndin í Sjón- varpinu já? Ég hef þá pantað hana inn og horft á hana, sennilega áður en hún var send út. Ég var dagskrárstjóri Lista- og skemmtideildar Sjónvarps- ins fyrstu þrjú árin og þetta var á minni könnu. Ætli mað- ur hafi ekki séð allt sem mað- ur keypti inn, kaupin gerðust þannig á eyrinni, það var fálið- að á stofnuninni. Þetta var spennandi verkefni, það var séð að sjónvarpið myndi sigra heiminn. Ég hafði ekki hugsað mikið um þennan miðil áður en ég hóf störf, en varð hug- fanginn um leið. Ríkisútvarpiö - Sjónvarp fór af stað með mikl- um glæsibrag 30. september 1966. Vilhjálm- ur Þ. Gíslason útvarpsstjóri kom fyrstur á skjá- inn og flutti ávarp en síðan rak hver liðurinn annan; skemmtiþáttur meö Savanna-tríóinu, Dýrlingurinn og fleira skemmtilegt. Næsta út- sending var svo miðvikudaginn 5. október en þá fór fyrsta þíómyndin í loftið. Þetta var franska myndin „French Cancan" I leikstjórn Jean Renoir frá árinu 1954, dans- og söngva- mynd um Henri Danglard og ævintýri hans inni á Rauðu myllunni. Með aðalhlutverk fóru Jean Gabin, Franpoise Arnoul, Marfa Félix og Phil- ippe 'Jay. Á undan myndinni var fyrsti þáttur- inn um Flintstone-fjölskylduna sýndur og nefndist þátturinn „Flintstoneþyrlan". ibúar á höfuðborgarsvæðinu höfðu þetta kvöld um tvær stöðvar að velja, því Kanasjónvarpiö lá einnig í loftinu á þessum árum meö Dick Van Dyke og fleira skemmtilegt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.