Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1999, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1999
Fréttir
50
40
30
20
10
0
-10
-20
-30
-40
-50
Davíð
Oddsson
Vinsælustu og óvinsælustu
stjórnmálamennirnir
- samkvæmt skoöanakönnun DV 13. september 1998 -
t
Skoðanakönnun
Boraar eru saman vin-
sældir og óvinsældir tíu
umdeildustu stjórnmála-
mannanna samkvæmt
skoðanakönnun DV.
Grænu súlurnar sýna
niðustöðu síðustu
skoðanakönnunar
en hún var gerð í
janúar '99
Halldór Steingrímur J.
Ásgrímsson Sigfússon
Geir H.
Haarde
Margrét
Frímannsd.
Jóhanna Ingibjörg Sólrún Finnur Siv Ingibjörg
Sigurðard. Gísladóttir Ingólfsson Friðleifsdóttir Pálmadóttir
Skoöanakönnun DV á vinsældum stjórnmálamanna:
Enginn skákar Davíð
- ráðherratign færir Siv Friðleifsdóttur óvinsældir
Vinsælustu stjórnmálamennirnir - innan sviga eru niðurstööur DV- könnunar í jan. 1999 -
Sæti 1. (1.) Nafn Davíð Oddsson Atkvæöl 163 % af heild % þeirra sem tóku afstööu 27.2(26.2) 45.5(37.5)
2. (2.) Halldór Ásgrimsson 44 7,3 (9,5) 12,3 (13,6)
3. (9.) Steingrímur J. Sigfússon 36 6,0 (1,5) 10,1 (2,3)
4. (8.) Geir H. Haarde 21 3,5 (1,5) 5,9 (2,1)
5. (4.) Margrét Frimannsdóttir 17 2,8 (5,3) 4,7 (7,6)
6. (3.) Jóhanna Sigurðardóttir 10 1,7 (5,7) 2,8 (8,1)
7. (10.) Ingibjörg S. Gísladóttir 8 1,3 (1,0) 2,2 (1,4)
8.-10. (13.-15.) Finnur Ingólfsson 7 1,2 (0,7) 2,0 (1,0)
8.-10. (-) Árni Mathiesen 7 1,2 (-) 2,0 (-)
8.-10. (-) Siv Friðleifsdóttir 7 1,2 (-) 2,0 (-)
EsT5|
Ovinsælustu stjórnmálamennirnir
- innan sviga eru niðurstöður DV- könnunarí jan. 1999 -
Sæti Nafn Atkvæði % af heild % þeirra sem tóku afstö
1.(1.) Davíö Oddsson 74 12,3 (13,3) 25 (22,0)
2. (2.) Finnur Ingólfsson 47 7,8 (8,8) 15,9 (14,6)
3. (-) Siv Friðleifsdóttir 43 7,2 (-) 14,5 (-)
4.(5.) Ingibjörg Pálmadóttir 18 3,0 (3,2) 6,1 (5,2)
5- (-) Margrét Frímannsdóttir 15 2,5 (0,2) 5,1 (0,5)
6. (9.) Árni Johnsen 12 2,0 (2,5) 4,1 (4,1)
7. (18.) Ingibjörg S. Gísladóttir 11 1,8 (0,8) 3,7 (1,1)
8.(16.) Páll Pétursson 10 1,7 (1,0) 3,4 (1,3)
9. (3.) Jóhanna Sigurðardóttir 9 1,5 (3,7) 3,0 (6,0)
10. (7.-8.) Halldór Ásgrímsson 8 1,3 (2,7) . 2,7 (4,4)
IESS
Engin Islenskur stjórn-
málamaður er með tærn-
ar þar sem Davíð Odds-
son forsætisráðherra er
með hælana þegar kemur
að vinsældum. Davíð er
langvinsælasti stjórn-
málamaður landsins sam-
kvæmt skoðanakönnun
DV sem gerð var á mánu-
dagskvöld.
En Davíð er líka óvin-
sælastur og þar með um-
deildasti stjórnmálamað-
ur landsins. Halldór Ás-
grímsson utanríkisráð-
herra er næstvinsælasti
stjómmálamaðurinn og
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns fram-
boðs, í þriðja sæti. Geir H.
Haarde fjánnálaráðherra
er í Qórða sæti vinsælda-
listans en hann kom nýr
inn í 9. sæti í skoðana-
könnun DV í janúar. Ráð-
herraembættið aflar hon-
um prika meðal almenn-
ings. Margrét Fri-
mannsdóttir, talsmaður
Samfylkingarinnar, er í
flmmta sæti.
Ráðherrartign sem Siv
Friðleifsdóttir sótti svo
fast aö fá í kjölfar alþingiskosning-
anna hefur fært henni takmarkaðar
vinsældir. Hún stekkur beint í 3.
sæti óvinsældalistans, rétt á hæla
varaformanns Framsóknar, Finns
Ingólfssonar. Finnur var einnig í
öðru sæti óvinsældalistans í janúar-
könnun DV en óvinsælastur fyrir
rúmu ári.
Siv hefur ekki áður komist á blað
í þessum könnunum DV en stimpl-
ar sig rækilega inn eftir um íjóra
mánuði sem umhverfisráðherra.
Flokkssystir Sivjar, Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráðherra, er
í fjórða sæti óvinsældalistans en
hún hefur verið í einhverju af fimm
efstu sætum þess lista frá því hún
kom í ráðuneytið.
Siv Friðleifsdóttir er ekki bara
óvinsæl. Hún deilir 8.-10. sæti vin-
sældalistans með þeim Finni og
Árna Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra.
Úrtakið í könnun DV var 600
manns og skiptist til helminga milli
landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis
og eins milli kynja. Spurt var
tveggja spurninga: Á hvaða stjórn-
málamanni hefur þú mest álit um
þessar mundir?" og „Á hvaða
Aðrir óvinsælir
Sighvatur Björgvinsson 6
Steingrímur J. Sigfússon 6
Geir H. Haarde 3
Halldór Blöndal 3
2 atkvæði hvert:
Ágúst Einarsson, Árni
Mathiesen, Björn Bjarnason,
Guðni Ágústsson, Ólafur Örn
Haraldsson, Rannveig Guð-
mundsdóttir, Sturla Böðvarsson,
Sverrir Hermannsson, Valgerður
Sverrisdóttir, Ögmundur Jónas-
son og Össur Skarphéðinsson.
Eitt atkvæði hvert:
Arnbjörg Sveinsdóttir, Árni
Steinar Jóhannsson, Guðmundur
Ámi Stefánsson, Helgi Hjörvar,
Hjörleifur Guttormsson, ísólfur
Gylfi Pálmason, Ólafur Ragnar
Grímsson, Sólveig Pétursdóttir og
Svanfríður Jónasdóttir.
stjórnmálamanni hefur þú minnst
álit um þessar mundir?“. 60% að-
spurðra tóku afstöðu í vinsælda-
könnuninni þar sem 31 stjórnmála-
Aörir vinsælir
Guðni Ágústsson 5
Ólafur Örn Haraldsson 3
2 atkvæði hvert:
Björn Bjarnason, Kolbrún Hall-
dórsdóttir, Ólafur F. Magnússon,
Pétur Blöndal, Sighvatur Björg-
vinsson, Sólveig Pétursdóttir,
Sverrir Hermannsson og Össur
Skarphéðinsson.
1 atkvæði hvert:
Ágúst Einarsson, Ásgeir Gísli
Einarsson, Guðmundur Ámi Stef-
ánsson, Guðjón A. Kristjánsson,
Hjálmar Jónsson, Jón Baldvin
Hannibalsson, Jón Kristjánsson,
Páll Pétursson, Tómas Ingi 01-
rich, Ögmundur Jónasson.
maöur var nefndur til sögunnar.
50% tóku hins vegar afstööu til
spurningarinnar um óvinsælasta
stjórnmálamanninn og þar voru
samtals 34 stjómmála-
menn nefndir.
Einoka efstu sætin
Þegar litið er á svör
þeirra sem tóku afstöðu
til vinsælasta stjórn-
málamannsins, nefndu
45,5% Davíð Oddsson.
Þetta er níunda skoðana-
könnun DV í röð, eða frá
því í nóvember 1994, þar
sem Davíð er vinsælasti
stjórnmálamaðurinn.
Halldór Ásgrímsson
kom langt á eftir, er í
öðm sæti. 7,3% neftidu
Halldór, mun færri en í
könnun DV í janúar.
Davíð og Halldór einoka
tvö efstu sæti vinsælda-
listans en þetta er átt-
unda skipti í röð sem
þeir tróna saman á vin-
sældatoppnum í skoð-
anakönnun DV.
Jóhanna Sigúrðar-
dóttir, sem oft hefur
komið vel út úr könnun-
um DV, lætur lítið fyrir
sér fara í þessari könn-
un, nær 6. sæti vin-
sældalistans en hrapar
mjög í óvinsældum.
Margrét Frimannsdóttir, sem fer
niður um eitt vinsældasæti frá síð-
ustu könnun DV, er i fimmta sæti á
óvinsældalistanum. Hefur hún ekki
áður komist svo ofarlega á þeim
lista.
Óvinsælir
framsóknarráðherrar
Óvinsældir framsóknarráðherra
vekja strax athygli þegar litið er á
hvernig flokkarnir raöa sér í 10
efstu sæti yfir vinsælustu og óvin-
sælustu stjórnmálamennina. Fimm
framsóknarráðherrar, þ.e. allir utan
Guðni Ágústsson, eru á óvinsælda-
listanum. Framsókn á 2., 3., 4„ 8., og
10. sæti listans.
Davíð Oddsson er eini ráðherra
Sjálfstæðisflokksins á lista óvin-
sælda. Eyjamaðurinn Árni Johnsen
sér þó um að halda Davíð félagsskap
á þeim lista. Árni er í 6. sæti, færir
sig upp um þrjú sæti.
Á vinsældalistanum eiga stjórn-
arflokkarnir þrjá ráðherra hvor.
Samfylking á tvo fulltrúa þar en
þrjá ef Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri er talin með.
-hlh
Stuttar fréttir i>v.
Gissur vildi úttekt
Útvarpsráð hefur komist að því
að fréttastofa Sjónvarps hafi verið
hlutlæg í frétt-
um af virkjun-
um á Austur-
landi. Einn út-
varpsráösmað-
ur, Gissur Pét-
ursson fram-
sóknarmaður,
bókaði að hann
vildi samt láta fara fram óhlut-
dræga úttekt á fréttum Ómars
Ragnarssonar af málinu.
Kafaö að El Grillo
Undirritaður hefur verið verk-
samningur viö Köfunarþjónustu
Árna Kópssonar og Kjartans J.
Haukssonar um að stöðva olíuleka
úr flaki E1 Grillo á botni Seyðis-
fjarðar. Verkið hefst í næstu viku.
Meiri peningur
Borgarráð samþykkti í gær 20
milljóna króna viðbótarfjárveitingu
til leikskóla Reykjavíkur. Um er að
ræða viðbót við þær 30 milljónir
sem samþykkt var sl. vor að verja
til eflingar starfs í skólunum. Efla á
foreldrastarf og innra starf leikskól-
anna í borginni.
* Friðarmenning
Sameinuðu þjóðimar hafa ákveð-
ið að halda „Alþjóðaár friðarmenn-
ingar“ á næsta ári til að efla vitund
almennings um gildi friðar og hlut-
verk Sameinuðu þjóðanna á þeim
vettvangi. Mbl. greindi frá.
Stjórnarslit hugsanleg
Finnur Ingólfsson sagði á fundi
með framsókn-
armönnum í
Reykjavík að
deilur eins og
þær sem eru um
FBA milli
stjórnarflokk-
anna geti hæg-
lega leitt til
stjómarslita. Dagur greindi frá.
Hærri styrk
Framkvæmdastjóm Sjálfsbjargar
skorar á stjórnvöld að hækka bens-
ínstyrk til hreyfihamlaðra til móts
við hækkanir á bensínverði og bíla-
tryggingum. Dagur greindi frá.
Slök laxveiði
Veiðin í Elliðaánum hefur ekki
gengiö vel í sumar. 442 laxar eru
komnir á land en i fyrra 492 sem
var heldur ekki gott.
Tilboð í umönnun
Securitas ehf. og Verkafl hf. buðu
lægst í 25 ár, rúma átta milljarða, í
íjármögnun, byggingu og rekstur
hjúkrunarheimilis við Nóatún. Til-
boðiö hlaut jafnframt hæstu ein-
kunn fyrir þjónustu og aöstöðu.
Morgunblaðið greindi frá.
Aukinn réttur
Ríkisstjórnin hefur samþykkt
heimild til að leggja fram fmmvarp
til nýrra ættleiðingarlaga. Sam-
kvæmt frumvarpinu geta karl og
kona í óvígðri sambúð ættleitt bam
hafi þau búið saman í a.m.k. fimm
ár. í frumvarpinu er réttur ætt-
leiddra barna einnig aukinn til
muna. Morgunblaðið greindi frá.
Innifótboltavöllur
Bygging fjölnota íþróttahúss í
Reykjanesbæ er vel á veg komin en
gert er ráð fyrir að afhenda það til-
búið til notkunar um miðjan febrú-
ar, að sögn Kristins Baldurssonar
byggingarstjóra við Morgunblaðið.
Hækkanir
Davíö Oddsson forsætisráðherra
ítrekar áhyggjm' sínar vegna þeirra
hækkana sem
orðið hafa á mat-
vörumarkaði á
liönu ári sem
rekja megi til
meiri fákeppni.
Könnun Hagstof-
unnar sýnir að
hærra verð á
matvöru á mestan þátt í hækkun
neysluvísitölunnar, meiri en bens-
ínhækkanir undanfarinna mánaða.
RÚV greindi frá. -SÁ