Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1999, Qupperneq 14
14
MIÐYIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1999
óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformadur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfus^óri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórl: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11, 105 RVlK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverö 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Hrun Samfylkingarinnar
Staða stjórnarflokkanna virðist sterk meðal kjós-
enda. Skoðanakönnun DV leiðir í ljós að nær helm-
ingur kjósenda styður Sjálfstæðisflokkinn og hefur
fylgi flokksins aukist verulega frá kosningum á
liðnu vori. Framsóknarflokkurinn stendur einnig
styrkum fótum og er annar stærsti stjórnmálaflokk-
ur landsins miðað við niðurstöður könnunar DV.
Það er ekki lítill árangur hjá flokkum, sem eru bún-
ir að sitja í ríkisstjórn í rúm fjögur ár, að nær sjö af
hverjum tíu kjósendum sem afstöðu taka eru stuðn-
ingsmenn þeirra.
Þessi styrkleiki stjórnarflokkanna endurspeglar þá
hagsæld sem íslendingar búa við og undirstrikar trú
þeirra á framtíðina. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
hefur fram að þessu tekist að sigla fram hjá þeim
skerjum sem hafa verið á leið hennar.
Fátt er ömurlegra fyrir stjórnmálamenn en að
verða þess áskynja að málflutningur þeirra fellur í
grýttan jarðveg meðal kjósenda. Samfylkingunni
tókst ekki í liðnum kosningum að öðlast tiltrú al-
mennings og tíminn hefur svo sannarlega ekki unn-
ið með henni. Hrun blasir við Samfylkingunni sam-
kvæmt könnun DV. Nú er svo komið að fylgið er
komið niður í helming þess sem Sighvatur Björg-
vinsson taldi að væri viðunandi í síðustu kosning-
um. Þá var hann búinn að átta sig á að draumurinn
um öflugan jafnaðarmannaflokk sem stæði jafnfætis
Sjálfstæðisflokknum yrði ekki að veruleika.
Margréti Frímannsdóttur, sem Sighvatur Björg-
vinsson skipaði sérstakan talsmann Samfylkingar-
innar, hefur ekki tekist að byggja upp trúnað og
traust við kjósendur. Og ekki hefur hún fengið mikla
hjálp frá samherjum sínum sem flestir þegja þunnu
hljóði. Sighvatur Björgvinsson lætur ekki í sér
heyra, Össur Skarphéðinsson hefur hægt um sig og
meira að segja Jóhanna Sigurðardóttir er þögnuð.
Guðmundur Árni Stefánsson hefur einn uppi til-
burði til að takast á við pólitík, enda í óformlegu
framboði til formanns Samfylkingarinnar þegar og
ef að því kemur að bræðingur vinstrimanna velur
sér formlega forystu.
Á sama tíma og Margrét Frímannsdóttir fær lítinn
hljómgrunn hjá kjósendum stendur fyrrum félagi
hennar, Steingrímur J. Sigfússon, traustum fótum.
Vinstrihreyfmgin, undir forystu fyrrum varafor-
manns Alþýðubandalagsins, náði mun betri árangri
í síðustu kosningum en margir reiknuðu með. Könn-
un DV bendir til að flokknum hafi auðnast að halda
því fylgi og það er nokkurt afrek. Vinstrihreyflngin
virðist að vísu dæmd til að vera smáflokkur um
ókomna framtíð, sem er í sjálfu sér ekki skrýtið fyr-
ir flokk sem byggir tilvist sína fyrst og fremst á hug-
myndum Steingríms, Hjörleifs Guttormssonar og Ög-
mundar Jónassonar.
Stærstu tíðindi könnunar DV eru annars vegar
hrun Samfylkingarinnar og hins vegar að Fram-
sóknarflokkurinn er annar stærsti stjórnmálaflokk-
ur landsins. Samfylkingarsinnar leituðu huggunar,
eftir afhroð í liðnum kosningum í þeirri staðreynd
að bræðingur vinstrimanna væri annar stærsti
þingflokkurinn. Ef svo fer sem horfir verður sálu-
hjáp forráðamanna Samfylkingarinnar að koma
annars staðar frá.
Óli Björn Kárason
Ég sendi um daginn stutta at-
hugasemd í lesendadálk DV vegna
viðtals við Carl I. Hagen, formann
Framfaratlokksins í Noregi, sem
hafði birst stuttu áður í blaðinu. I
viðtalinu gefur Hagen íslendingum
ráð varðandi vandamál sem geta
komið upp vegna innflutnings út-
lendinga og eitt af ráðum hans kem-
ur fram í fyrirsögninni: Lokið á
flóttafólkið meðan tími er til. í at-
hugasemd minni gat ég þess að
Hagen og flokkur hans hefði ýtt
undir fordóma gagnvart nýbúum í
Noregi og væri í raun hluti vand-
ans. Þórarinn Jóhann Jónsson
skrifar síðan lesendabréf í DV 6.
september í tilefni af athugasemd
minni. Hann skilur þaö svo að ég sé
sammála Hagen um að vandamál
séu til staðar í Noregi og spyr hvað
ég leggi til að við gerum til að leysa
umrædd vandamál.
Raddir umburðarlyndis og
gestrisni yfirgnæfandi
Ég vil byrja á að hafna þeirri ráð-
leggingu Hagens að loka á flótta-
Nýbúarnir hafa ekki safnast saman í sérstökum hverfum hér á landi,
börnin hafa lært íslensku og flest fullorðna fólkið komist allvel niður í
málinu, segir í greininni.
Marglitt samfélag
er af hinu góða
nokkur af þeim ráð-
um sem Hagen gefur
okkur og þar tek ég
undir með honum. En
það er líka mjög mik-
ilsvert i þessu sam-
bandi að andúð og
áróður gegn fólki af
ólíkum uppruna hefur
ekki farið hátt hér,
það hafa ekki komið
upp neinir hópar eða
flokkar sem hafa alið
á kynþáttahatri eða
fordómum svo orð sé
á gerandi. Þótt það
komi fyrir að fólk
með ólíka menningu
og litarhátt verði fyrir
ýmsu óskemmtilegu,
„Umburðariyndid felst í því að
við getum látið ýmiss konar trú-
arbrögð sem og trúleysi og alls
kyns venjur, siði og viðhorf gilda
saman í marglitu samfélagi. En
við verðum líka að skapa um-
burðarlyndinu skilyrði. Vestfírð-
ingar gera það til dæmis með því
að halda sameiginlega hátíð allra
íbúa þar sem kunnátta, siðir og
venjur allra fá að njóta sín. “
Kjallarinn
Einar Ólafsson
rithöfundur
fólkið. Eg tel einfald-
lega að okkur beri sið-
ferðileg skylda til að
hjálpa fólki í neyð og
veita því hæli ef þörf
er á og eftir því sem
við höfum tök á. Ég tel
það vera af hinu góða
að fólk hafl sem mest
frelsi til að flytjast
milli landa. Fólks-
flutningar eru stað-
reynd og í mörgum
löndum er orðin mikil
blanda af fólki af ýms-
um uppruna. Þeirri
þróun verður ekki
snúið við. Það er al-
gerlega óraunhæft að
ísland skeri sig þar úr,
hvað sem menn vilja.
Það er þó svo að
víða hafa ýmis vand-
amál fylgt stórfelldum
innflutningi erlendra
manna, sérstaklega
séu þeir frá öðrum
heimshornum með
ólíka menningu og
annan litarhátt. Þótt
hér megi margt betur
fara og við getum
margt lært af reynsl-
unni í öðrum löndum,
þá hafa þessi vanda-
mál þó verið tiltölu-
lega lítil hér. Það held
ég að sé meðal annars
vegna þess að nýbú-
amir hafa ekki safnast saman í sér-
stökum hverfum þar sem þeir hafa
einangrast frá innfæddum. Börnin
hafa lært íslensku og flest fullorðna
fólkið komist allvel niður í málinu.
Þetta er reyndar í samræmi við
þá eru raddir umburðarlyndis og
gestrisni sem betur fer yfirgnæf-
andi.
íslendingar ólíkir innbyrðis
Þórarinn segist ekki vilja flytja
vandræði heim í sinn garð og
fmnst sín trú, venjur, siðir og við-
horf eiga að gilda í sínum samfé-
lagi. Umburðarlyndið felst í því að
við getum látið ýmiss konar trúar-
brögð sem og trúleysi og alls kyns
venjur, siði og viðhorf gilda saman
í marglitu samfélagi. En við verð-
um líka að skapa umburðarlynd-
inu skilyrði. Vestfirðingar gera það
til dæmis með því að halda sameig-
inlega hátíð allra íbúa þar sem
kunnátta, siðir og venjur allra fá
að njóta sín. Auðvitað heldur ís-
lenska áfram að vera opinbert mál
á Vestfjörðum og nýbúarnir þar
verða að sætta sig við skötuilminn
þegar innfæddum dettur í hug að
elda skötu.
Við þurfum að skapa aðfluttu
fólki skilyrði til að viðhalda
sinni menningu og rækta hana.
Við skulum athuga það sem oft
gleymist að íslendingar eru líka
mjög ólíkir innbyrðis. Sumir
hafa mestan áhuga á íþróttum
svo að jaðrar við sérstaka menn-
ingu, öðrum finnst fátt hafa gildi
annað en listir, svo dæmi sé tek-
ið. Sumir hlusta á rapp en aðrir
Bach. Jafnvel í sömu fjölskyldu.
Og íslendingar hafa mjög mis-
munandi viðhorf. Með venju-
legri tillitssemi gengur sambúð-
in þó vandræðalitið. Vandræðin
byrja kannski þegar við fórum
að ganga út frá að það sé eitt-
hvað vandasamara að búa sam-
an þótt einn trúi á Allah og ann-
ar Krist eða einn sé dökkur og ann-
ar ljós yfirlitum eða forfeður
sumra hafi kveðið rímur en ann-
arra sönglað einhvern veginn öðru-
vísi.
Einar Ólafsson
Skoðanir annarra
Til hamingju, KR
„Sigur í keppnisíþróttum er sjaldnast tilviljunum
háður, miklu frekar uppsker íþróttafólk laun erfiðisins
- eins og til hefur verið sáð. Ástæða er til að óska Knatt-
spyrnufélagi Reykjavíkur og hinum fjölmörgu áhan-
gendum þess til hamingju með afmælið og hinn góða ár-
angur. Um leið skal þess minnst að ekkert stuðlar betur
að vímuefnalausri æsku en það starf sem íþróttahreyf-
ingin í landinu vinnur. Ekki er síst ástæða til að minn-
ast þess á þeim válegu tímum sem við nú lifum.“
Úr forystugreinum Morgunblaðsins 14. september
Bensínskattur bitnar ekki
bara á forstjórum
„Sjálfsbjörg samtök fatlaðra hefur Sent ríkisstjórn-
inni ábendingu þess efnis að skattar á bíla og bensin
bitni á félagsmönnum þar sem bifreiðar séu þeim afar
mikilvægar. Þeim sem ekki búa við fótlun þykir mjög
erfitt að vera án bíls í dagsins amstri .og það er vafa-
laust nær ómögulegt fyrir fatlaða að sinna erindum
sínum án þess að hafa bíl til umráða. Bifreiða- og bens-
ínskattar bitna því ekki aðeins á forstjórunum á nýju
jeppunum heldur einnig á öðrum sem geta ekki án
bílsins verið; þeim sem fara langa leið til vinnu, for-
eldrum sem þurfa að koma börnum sínum í og úr skóla
og almennt þeim sem þykir óskemmtilegt að kynnast
íslensku vetrarslagviðri of náið.“
Vef-Þjóðviljinn 14. september
Davíö getur ekki lengur
stungiö höfðinu í sandinn
„Davíð Oddsson, forsætisráðherra, fer hamförum
þessa dagana. Það er ekki nóg með að hann saki Kaup-
þing um vafasama viðskiptahætti, ákveði hverjir mega
eiga fjárfestingabanka og líki íslenskum athafnamönnum
við rússneska mafíu, heldur hefur hann nú tekið að sér
að skilgreina orsakir verðbólguvandans. Lengi vel vildi
Davíð ekki viðurkenna nein þenslumerki þrátt fyrir að-
varanir stjórnarandstöðu og fíármálastofnana. Nú, þegar
verðbólgan hefur tvöfaldast á skömmum tíma og er sú
mesta sem mælst hefur hér á landi í sex ár, getur forsæt-
isráðherra ekki lengur stungið höfðinu í sandinn. Hag-
fræðingar hafa bent á að ýmsar aðgeröir fyrri ríkisstjóm-
ar Davíðs Oddssonar, svo sem breytingar á skattalögum
og sala á hlutafé ríkisbankanna, hafí ýtt undir þenslu. En
Davíð veit betur. Það er skuldasöfnun og þensla sveitar-
félaga sem er verðbólguvaldurinn, að hans mati.“
Groska.is 14. september