Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1999, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1999, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1999 19 DV Ricky segir ekki orð um orðróm Latínukynbomban Ricky „mjaðmasveifla" Martin neitar að segja eitt aukatekið orð um orðrðminn um að hann sé hommi. Að minnsta kosti eru hommar hrifnir af honum og prýða myndir af poppstjörnunni forsíður hommablaða um gjörvallan heim. „í menningarsamfélagi mínu kyssast allir þegar þeir hittast í fyrsta skipti. Við latínóarnir erum með þetta í blóðinu," segir söng- fuglinn Ricky frá Puerto Rico. Allt á afturfót- unum hiá Demi Illa árar nú hjá kvikmynda- leikkonunni Demi Moore. Frumsýningu nýjustu myndar- innar hennar, Passion of Mind, hefur verið frestað til vors vegna neikvæðra viðbragða forsýn- ingagesta. Myndin var tekin upp í París, á sama tíma og Demi gekk í gegnum skilnað við töffar- ann og eiginmanninn Bruce Willis. Að sögn Stellans Skars- gárds, meðleikara Demi, fór hún aðeins einu sinni út þá átta mán- uði sem hún var í borginni þar sem ljósmyndarar sátu fyrir henni við hótel hennar. „Þeir voru að vonast eftir aö ná mynd- um af henni meö nýjum karl- manni,“ segir Stellan. Tina Turner er flott fuglahræða Hverjum þykir sinn fugl fagur, eða fuglahræða, eða þannig. Tina Turner hefur hingað til ekki þótt slorleg söngkona, með kraftmikla rödd og allt það. Nú á að nota þessa sömu rödd til að hræða burtu fugla frá flugvelli einum á Englandi. „Það hefur sýnt sig að rödd Tinu hentar betur til þessa en þar til gerðar kassettur sem notaðar eru í þessum tOgangi," segir flugvallarstjórinn Ron Johnson. Bandaríski tískuhönnuðurinn Betsey Johnson vill að ungu stúlkurnar verði svona klæddar á baðströndinni næsta sumar. Sýnt var í New York í vikunni. Sviðsljós Sjálfsvörn, bardagalist og uppbyggjandi líkamsrækt fyrir fólk á öllum aldri NÝ NÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST , Reynslumiklir þjálfarar. Æfingar fara fram í ÍR-heimilinu við Skógarsel (SVR leið 11 & 111) Barnaflokkur: þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18.50 Byrjendaflokkur: mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 19.40 og laugardaga kl. 12.10 Upplýsingar í síma: 587 7080, TaeKwonDo-deild ÍR Svo virðist sem örlögin hafi ráðð því að tískukóngurinn Valentino átti þátt í að ofurfyrirsætan Claudia Schiffer og milljónamæringurinn Tim Jefferies náðu saman að lokum. Skötuhjúin hittust fyrst í samkvæmi Valentinos í New York árið 1991. Þá þegar varð Tim yfir sig hrifmn af fyr- irsætunni. Hann gekk á eftir henni með grasið í skónum en það var til lít- ils. Claudia hafði ekki áhuga á honum, að því er þeir fullyrða sem grannt fylgdust með. Á næstu árum var Tim, sem hafði verið kvæntur Koo Stark um skeið, í sambandi við ýmsar fyrirsætur, þar á meðal Elle Macpherson og Ines Sastre. Claudia hitti hins vegar töframanninn David Copperfield og trúlofaðist hon- um. En í ágúst síðastliðnum lágu leiðir Tims og Claudiu saman á ný. Það var í kvöldverðarboði til heiðurs Valentino sem haldið var á Mallorca. Tim kom í boðið í fylgd tiskukóngsins. Tim var ekki lengi að koma auga á Claudiu sem á hús á Mallorca. Hún var ekki í fylgd unnustans. Þau höíðu reyndar lítið sést saman í nokkurn tíma. Tim leist jafn vel á Claudiu í þetta sinn og fyrir átta árum. Og greinilega þótti Claudiu hann álitlegri en fyrst þegar þau sáust þvi þau héldu áfram aö hittast. David Copperfield hætti hins vegar við fyrirhugaða komu sína til Mallorca. David hefur sést með nýrri ljósku, Angelicu Castro, sem er kynnir á sjón- varpsstöð í Chile. David gerir þó lítið úr sambandi þeirra og segir aðspurður að hann sé bara að njóta lifsins. Claudia segir reyndar það sama um samband sitt og Tims. Tim er rómantískari en Claudia og segir það hafa verið þess virði að bíða eftir henni. BRÆÐURNIR Lógmúla 9 • Sími: 530 2800 • Fax: 530 2820 BOSCH verslunin aðkeyrsla frá Háaleitisbraut Tlm beið í mörg ár eftir Claudiu Taylor í meðferð hjá kírópraktor eftir hryggbrot Kvikmyndaleikkonan Elizabeth Taylor er nú á batavegi eftir hrygg- brot sem hún hlaut í ágúst síðast- liðnum. Leikkonan hrasaði að næt- urlagi um teppi í húsi sínu. Elizabeth er í meðhöndlun hjá kírópraktor sjö daga vikunnar og verður líklega ekki búin að jafna sig til fulls fyrr en eftir tvo til þrjá mán- uði. „Hún leggur hart að sér til að ná fullum bata. Fólk veit ekki hvað það er mikill kraftur í henni,“ segir Ler- oy Perry, kírópraktorinn sem ann- ast kvikmyndaleikkonuna frægu. Fyrir um það bil einu ári hlaut Elizabeth svipuð meiðsl á baki og fór þá í sams konar meðferð. Hún hefur átt við vanheilsu að stríða um árabil. Fyrir tveimur árum gekkst Elizabeth undir aðgerð á heila til að láta fjarlægja æxli. Árið 1990 var hún hætt komin vegna sjúkdóms í öndunarfærum. www.umferd.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.