Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
Fréttir
Sami aðili ræður tæpum 90 prósentum af grænmetismarkaðnum:
Einokun skollin á
- sem bitnar á framleiöendum og neytendum, segir Karl Rúnar Ólafsson
„Þetta er ekkert annað en einok-
un af versta tagi og það eru neyt-
endur og framleiðendur sem borga
brúsann," segir Karl Rúnar Ólafs-
son, kartöfluframleiðandi og eig-
andi Grænmetispökkunar Suður-
lands, um það markaðsástand sem
ríkir í grænmetissölu. Sölufélag
garðyrkjumanna ræður alfarið
verði á grænmeti, að sögn Karls.
Hann segir að með yfirráðum SG á
Ágæti hf. ráði sami aðili um 90 pró-
sentum af markaðnum. Karl segir
að eina fyrirtækið sem eftir er utan
blokkarinnar sé Mata hf. sem ráði
um 5 prósentum af grænmetisfram-
leiðslunni og 15 prósentum af ávöxt-
um.
„Þróunin hefur orðið sú að einn
aðili hefur náð þessu öllu saman.
Nú eru Bananasalan hf. og Bananar
ehf. komin undir Sölufélagið og á
dögunum náði fyrirtækið undir sig
Ágæti hf. Ég hef grun um að Baug-
ur hf. hafi átt aðild að kaupunum á
Ágæti. Baugur lagði niður sitt
ávaxta- og grænmetisfyrirtæki í
þessu kúpli núna. Það fyrirtæki bjó
Baugur til á sínum tíma þegar Sölu-
félagið var óþekkt en nú virðist
samstaða um þessa einokun. Með
þessum tilfærslum nær Sölufélagið
stjórnun á Ágæti og öllu grænmetis-
og ávaxtaapparatinu inn í Baug.
Þetta er grafalvarlegt mál að mínu
mati,“ segir Karl.
Fyrirtæki Karls framleiðir um
800 tonn af kartöflum árlega. Hann
segir erfitt fyrir einyrkja að komast
af undir þessum kringumstæðum á
markaðnum.
„Það er verið að drepa okkur og
það er ekki hægt að orða þetta öðru-
vísi en svo að einokun er skollin á.
Það er verið að þvinga verslanir
sem ég sel mína vöru til að kaupa
kartöflur af blokkinni. Kaupmönn-
um er hótað því að kaupi þeir ekki
kartöflur af þeim fái þeir ekki græn-
meti á sama verði áfram. Þetta eru
bara þvinganir," segir Karl.
Hann segir álagningu sölufyrir-
tækjanna vera hátt í 40 prósent af
útsöluverði.
„Nú eru þeir að taka inn aftur
það sem stríð undanfarinna ára hef-
ur kostað. Mér er það hulin ráðgáta
hvemig þessi fyrirtæki komast upp
með allt sem þeir gera og eins
hvernig þeir fara með bændur. Stað-
an er þannig að Baugur og Kaupás
eru búnir að skipta á milli sín
markaðnum í Reykjavik og nú á að
hækka verð í skjóli einokunar," seg-
ir Karl.
-rt
Karl Rúnar Ólafsson kartöflubóndi
er ómyrkur í máli og segir einokun á
grænmeti vera við lýði.
Stóra fíkniefnamálið:
Tveir menn
fluttir heim
Herbjörn Sigmarsson og Gunnlaug-
ur Ingibergsson sem handteknir voru í
Kaupmannahöfn á sunnudag vegna
stóra fíkniefnamálsins komu í lög-
reglufylgd til landsins I gærkvöld. Þeir
verða leiddir fyrir dómara í dag þar
sem taka á fyrir kröfu lögreglunnar
um að þeir sæti gæsluvarðhaldi.
Lögregla beið átekta í gær þar til
aðrir farþegar höfðu gengið frá borði
Flugleiðavélarinnar en leiddi þá tví-
menningana út úr vélinni og niður um
starfsmannaútgang út á flugbrautina.
Þar var þeim komið fyrir í tveimur
ómerktum bílum sem strax var ekið
greitt um flugvallarhliðið áleiðis til
höfuðborgarinnar. Þegar Herbjöm og
Gunnlaugur urðu nærveru DV varir
huldu þeir andlit sin eftir mætti. -GAR
Wimbledon býður
í Hermann
Enska knattspyrnufélagið Wimb-
ledon hefur gert Brentford tilboð í
tvo varnarmenn, Hermann Hreið-
arsson og Darren Powell, og er til-
búið til að greiða fyrir þá samtals
240 milljónir króna. Frá þessu var
skýrt á fréttavefnum Teamtalk í
morgun.
-VS
Lögreglan flutti tvímenningana úr flugvél og niður starfsmannaútgang og þaðan beint í ómerkta bíla.
DV-myndir Pjetur
Sameinaður útflutningsrisi SÍF tekur flugið:
Hvorki smokkfiskur né koikrabbi
- engin blokk, segir Friðrik Pálsson, stjórnarformaður SÍF
„Það er afskaplega erfltt að
skipa þessu félagi í einhverja
blokk. Eignaraðildin er af-
skaplega dreifð. Hún er
dreifðari en í flestum öðrum
félögum sem við höfum séð
birtast á seinni árum. Við
viljum gjaman félagsins
vegna fá að vinna með öll-
um,“ segir Friðrik Pálsson,
stjómarformaður Sambands
íslenskra fiskframleiðenda,
um hið nýja sameinaða félag
SÍF og ÍS aðspurður hvort hið
nýja fyrirtæki tilheyrði ann-
aðhvort blokk sem kennd hef-
ur verið við Kolkrabbann eða
Smokkfiskinn.
Hið nýja félag mun starfa undir
merkjum SÍF enda er nánast um
yfirtöku að ræða þó aðilar kalli
sameininguna samruna. Stjómar-
fundir beggja félaganna sam-
þykktu í gær samrunaáætlun sem
gerir ráð fyrir að sameining taki
gildi frá og með 1. júlí sl. Unnið
verður af fullum krafti samkvæmt
Forsvarsmenn SÍF og ÍS kynntu nýtt sameinað
fyrirtæki á blaðamannafundi í gær.
DV-mynd Pjetur
áætluninni og gert er ráð fyrir að
hluthafafundur fjalli um málið í
desember. Stærstu eigendur nýja
félagsins eru Burðarás með 7,9 pró-
sent, Framleiðendur ehf. með 6,7
prósent, Búnaðarbankinn með 6,7
prósent og Mundill ehf. með 3,3
prósent. Alls era á annað þúsund
hluthafar og leggja forsvarsmenn
áherslu á að eignaraðild sé dreifð.
Svo sem DV greindi frá f gær
verður Gunnar Örn Kristjáns-
son forstjóri nýja félagsins en
Finnbogi Jónsson, forstjóri ÍS,
verður aðstoðarframkvæmda-
stjóri. Þá er ákveðið að stjóm-
arformaður komi úr röðum SÍF
en varaformaður stjórnar frá
ÍS. Alls starfa um 1700 manns
hjá félaginu í 15 þjóðlöndum og
5 heimsálfum.
Um árabil tókust stóru út-
ílutningsfyrirtækin SH og ÍS
harkalega á. Friðrik Pálsson
stjórnaði þá SH. Hann segir
þann slag vera að baki enda
óþarft að fyrirtæki berjist inn-
anlands.
„Við þurfum ekki samkeppni
hér innanlands enda höfum við
nóg af henni erlendis," segir hann.
Aðspurður hvort SÍF sé ekki ein-
faldlega að gleypa ÍS með húð og
hári segir hann svo ekki vera.
„Ég lít ekki þannig á að við
séum að gleypa einn eða neinn.
Þessi samruni er af hinu góða og
Nýtt SIF
- fjórir stærstu eigendurnir
Buröarás
7,9%
Grandl ehf
6,7%
Búnaðarbanktnn
3,7%
Mundlll ehf
3,3%
1
DV
það er skemmtilegur slagur fram
undan,“ segir Friðrik.
-rt
Stuttar fréttir i>v
Ánægöir með Halldór
Á nýafstaðinni þingmannasam-
komu Evrópu-
ráðsins varð
Margrét Frí-
mannsdóttir
vör við mikla
ánægju með
störf Halldórs
Ásgrímssonar
utanríkisráð-
herra og íslenska sendiráðsins í
Strassborg. Dagur greindi frá.
Jörð skelfur
Enn varð 3,7 stiga jarðskjálfti
rétt fyrir kl. 10 í gærkvöld á Suð-
urlandi. Upptök hans voru við
Hestvatn í Grímsnesi.
Atvinnuráðgjöf
Guðmundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar, segir við Dag að
Byggðastofnun muni í samráði við
Hriseyinga kosta frekari vinnu ef
sveitarfélagið ræður tU sin ráðgjafa
í atvinnumálum. Rekstur Snæfells í
eynni, sem nú hefur verið ákveðið
að leggja niður, hafi geysilega þýð-
ingu fyrir samfélagið í eynni.
Varaformannsefni
Nýr varafomaður Alþýðu-
flokksins verður kjörinn á flokks-
stjórriarfundi á laugardag. Þrir
bjóða sig fram. Þeir era Guð-
mundur Árni Stefánsson alþingis-
maður, Pétur Jónsson borgarfull-
trúi og Jakob Frímann Magnús-
son hljómlistamaður.
Þögull um reykingar
Halldór Blöndal, forseti Alþing-
is, vildi ekkert
tjá sig um reyk-
ingar þing-
manna innan
veggja Alþingis-
hússins í trássi
við gildandi
reglur þegar
Vísir.is leitaði
eftir viðbrögðum
Seinkun
Útlit er fyrir að enduropnun
sjónvarpsstöðvarinnar Skjás 1
dragist til þriðjudagsins 5. októ-
ber en til stóð að opna sjónvarps-
stöðina nú um mánaðamótin.
Dagur sagði frá.
Nýtt sendiráö
Filippseyingar hafa stofnað
sendiherraembætti á Islandi og
mun nýr sendiherra Filippseyja
afhenda forseta íslands trúnaðar-
bréf í dag.
Ný gjaldskrá
Ný gjaldskrá Landssímans fyrir
leigulínur til gagnaflutninga verður
kynnt í vikunni. Gjaldskráin tekur
gildi á fóstudag, 1. október, að sögn
Ólafs Stephensen, upplýsingafull-
trúa Landssímans, við Vísi.is.
Á vergangi
Á nýafstöðnum aðalfundi Leigj-
endasamtakanna var lýst yfir neyð-
arástandi á leigumarkaði i borginni
og öðrum stærstu þéttbýlissvæðum.
Fólk sé á vergangi vegna húsnæðis-
leysis. Fundurinn skorar á stjórn-
völd, verkalýðssamtök og aðra að
móta nothæfa húsnæðisstefnu þar
sem leigumarkaður sé talinn sjálf-
sagður og nauðsynlegur valkostur.
Missir við mætingu
Þingmaður sem er í barneignar-
fríi getur ekki mætt við þingsetn-
ingu á fóstudag vilji hann ekki eiga
á hættu að glata fæðingarorlofs-
greiðslum. Mbl. greindi frá.
Ekkert hissa
Margrét Frímannsdóttir, for-
maðui- Alþýðubandalagsins, segm
við Morgun-
blaðið að grein
Árna Þórs Sig-
urðssonar,
varaþingmanns
Samfylkingar-
innar og for-
manns Alþýðu-
bandalagsins í
Reykjavík, í Morgunblaðinu í gær
komi ekki á óvart miðað mál-
flutning hans í framkvæmda-
stjórn Alþýðubandalagsins. -SÁ
hans i gær.