Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Side 26
26
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
Afmæli
Karl T. Sæmundsson
Karl Theódór Sæmundsson, húsa-
smíðameistari og iðnskólakennari,
Aflagranda 40, Reykjavík, er níræð-
ur í dag.
Starfsferill
Karl fæddist á Akranesi og átti
þar heima fyrstu tvö árin en flutti
þá með foreldrum sínum til Hafnar-
fjarðar þar sem hann ólst upp fram
að fermingu.
Karl stundaði nám í húsasmíði
hjá Þorláki Ófeigssyni 1928-32, nám
við Iðnskólann i Reykjavík 1929-32,
lauk sveinsprófi þaðan 1932, stund-
aði framhaldsnám við Hillerod
Tekniske Dagskole í Danmörku
1934-35 og öðlaðist meistararéttindi
1936.
Karl starfaði við byggingarfram-
kvæmdir í Reykjavík og víðar til
1942 og starfaði síðan sem sjálfstæð-
ur byggingameistari í Reykjavík
fram yfir 1960, var eftirlitsmaður
með byggingarframkvæmdum varn-
arliðsins á Keflavíkurflugvelli
1952-56, var fyrsti kennarinn í verk-
legri kennslu við Iðnskólann í
Reykjavík, en þar kenndi hann á ár-
unum 1960-80, og var um skeið far-
arstjóri hjá Ferðafélagi
íslands og hjá Útivist.
Karl sat i prófnefnd til
sveinsprófs í húsasmíði
1962-65. Hann fór boðs-
ferð til Bandaríkjanna til
að kynna sér þar bygg-
ingaframkvæmdir 1955
og hefur farið margar
ferðir til Norðurland-
anna til að kynna sér
kennslumál.
Karl var einn af stofn-
endum flugfélagsins
Vængja hf. 1947, einn af
stofnendum Hvals hf. 1947 og Sam-
einaðra verktaka hf. 1951.
Karl hefur málað í frístundum
sínum um árabil en hann hefur
haldið fjórar einkasýningar í
Reykjavík og í Hveragerði, auk þess
að taka þátt í samsýningum.
Fjölskylda
Karl kvæntist 25.12. 1938 Helgu
Jónsdóttur, f. 26.6.1915, d. 19.5.1971,
húsmóður. Hún var dóttir Jóns
Benediktssonar, sjómanns og verka-
manns í Reykjavík, og k.h., Marínar
Gísladóttur frá Þykkvabæ.
Börn Karls og Helgu eru
Jón Ævar, f. 21.10. 1939,
skólastjóri við Suður-
hlíðaskóla, búsettur í
Reykjavík, kvæntur
Önnu Snorradóttur
sjúkraþjálfara og eru syn-
ir þeirra Örn, verkfræð-
ingur hjá Landssíman-
um, og Helgi, læknir í
Reykjavík; Auður Edda, f.
17.12. 1948, fyrrv. starfs-
maður Flugleiða í Kaup-
mannahöfn, nú starfs-
maður hjá Ingvari Helga-
syni hf. í Reykjavík, var gift Sigur-
geir Ólafssyni plöntusérfræðingi og
er sonur þeirra Andri háskólanemi.
Alsystkini Karls: Soffia Dóróthea,
f. 19.9. 1906, d. 28.8. 1907; Ágúst, f.
30.8. 1908, d. 1997, forstjóri Nýju
efnalaugarinnar i Reykjavík; Magn-
ús Ásgeirsson, f. 2.4. 1912, d. 11.6.
1947, húsamálari og listmálari í
Reykjavík; Eiríkur Frímann, f. 1.9.
1915, fyrrv. heildsali í Reykjavík;
Solveig, f. 27.9. 1917, húsmóðir i
Reykjavík; Kamilla, f. 18.10. 1918,
húsmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Karls voru Sæmundur
Sæmundsson Guðmundsson, f. 3.8.
1873, d. 9.12. 1955, kennari og ljós-
myndari á Akranesi, og k.h., Matt-
hildur Helgadóttir, f. 15.9. 1886, d.
11.6. 1959, húsmóðir.
Ætt
Sæmundur var bróðir Guðmund-
ar kennara, afa Guðmundar Jóns-
sonar, fyrrv. hæstaréttardómara.
Sæmundur var sonur Sæmundar, b.
á Vatnsenda í Flóa og sjómanns á
Stokkseyri, Guðmundssonar, b. á
Stóra-Klofa á Landi og á Vatnsenda,
Helgasonar.
Móðir Sæmundar kennara var
Guðrún Leonardsdóttir, b. í Egils-
staðakoti í Flóa, Ólafssonar.
Matthildur var dóttir Helga, skip-
stjóra á Flateyri, Andréssonar, b. í
Hvilft, Önundarfirði, Sakaríassonar.
Móðir Matthildar var Helga, syst-
ir Guðbjargar, ömmu Valdimars yf-
irflugumferðarstjóra og Gests,
skipulagsfræðings Ólafssona. Helga
var dóttir Bjöms, b. í Hvilft, Sakar-
íassonar, bróður Andrésar.
Karl tekur á móti ættingjum og
vinum að Aflagranda 40 í dag, milli
kl. 17.30-20.00.
Karl Theódór
Sæmundsson.
Andrjes Gunnarsson
Andrjes Gunnarsson vélstjóri,
Sólvangsvegi 3, Hafnarfirði, er níu-
tíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Andrjes fæddist að Hólmum í
Austur-Landeyjum. Hann lauk
barnaskólanámi í farskóla í Austur-
Landeyjum 1919, var járnsmíðanemi
i ýmsum vélsmiðjum, s.s. í Vest-
mannaeyjum 1922-24, og í Héðni og
Vélsmiðju Hafnarfjarðar, rúmt ár á
hvorum stað, lauk iðnnámi 1926 og
lauk vélstjóraprófi frá Vélskólanum
í Reykjavík 1929.
Að námi loknu var hann vélstjóri
á ýmsum skipum til 1938, starfrækti
Vélsmiðjuna Sindra á Patreksfirði
1939-45, stundaði ýmis störf víða
um land 1945-52 og var verkstjóri í
Áburðarverksmiðju ríkisins í Gufu-
nesi frá stofnun hennar 1952 og þar
til hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir 1970.
Andrjes gerði módel af skuttog-
ara 1945 og mun þar hafa verið í
fyrsta sinn að hugmynd að slíku
veiðiskipi var kynnt. Hann er heið-
ursfélagi í Félagi íslenskra hugvits-
manna.
Fjölskylda
Andrjes kvæntist 7.12. 1940 Aðal-
heiði Magnúsdóttur, f. 24.5. 1914, d.
24.2. 1994, verslunar-
manni. Foreldrar hennar
voru Magnús Jóhannsson,
f. 20.1. 1876 í Litlu-Hlíð, d.
22.3. 1955, hreppstjóri og
kaupmaðru á Patreksfirði,
og k.h., Þóra Vigfúsdóttir,
f. 19.11. 1870 á Auðkúlu í
Svínavatnshreppi, d. 23.8.
1940, húsmóðir.
Systkini Andrjesar eru
nú öll látin. Þau voru Kol-
beinn Gunnasrson, dó í
frumbernsku; Sigurður
Gunnarsson, drukknaði í
Vestmannaeyjum 1917; Andrés, dó á
fermingaraldri; Dýrflnna, kennari í
Andrjes
Gunnarsson.
Vestmannaeyjum; Okta-
vía, húsfreyja í Hallgeirs-
ey í Austur-Landeyjum;
Guðrún, húsfreyja í Hall-
geirsey; Katrín, húsmóð-
ir í Vestmannaeyjum og
Reykjavík.
Foreldrar Andrjesar
voru Gunnar Andrésson,
bóndi í Hólmum í Aust-
ur-Landeyjum, og Katrín
Sigurðardóttir.
Andrjes tekur á móti ætt-
ingjum og vinum á Sól-
vangsvegi 1, Hafnarfirði,
laugardaginn 2.10. milli kl. 15.00 og
18.00.
Kristjana G. Valdimarsdóttir
Kristjana Guðrún
Valdimarsdóttir húsmóð-
ir, Hólabraut 7, Hafnar-
firði, er sextug í dag.
Starfsferill
Kristjana fæddist á ísa-
firði og ólst þar upp. Eft-
ir að hún gifti sig var
hún húsmóðir á ísafirði
til 1971 er fjölskyldan
flutti til Hafnarfjarðar
þar sem þau hafa búið
síðan.
Auk húsmóðurstarfa hefur Krist-
jana stundað ýmis störf utan heim-
ilisins.
Fjölskylda
Kristjana giftist 26.12. 1956 Herði
Ingólfssyni, f. 30.6. 1932,
vörubifreiðastjóra. Hann
er sonur Ingólfs Lárus-
sonar, f. 18.9. 1904, d. 3.2.
1989, sjómanns, og Guð-
bjargar Kristínar Guðna-
dóttur, f. 27.6.1910, d. 21.3.
1938, húsmóður.
Böm Kristjönu og Harðar
eru Guðbjörg Harðardótt-
ir, f. 14.6. 1956, búsett í
Hafnarfirði, gift Helga
Sæmundssyni, f. 14.2.
1951, og eru böm þeirra
Hörður Guðni, f. 14.8.
1974, Sæmundur Breiðfjörð, f. 25.3.
1978, og Eva Dögg, f. 12.8. 1980; Er-
lingur Harðarson, f. 2.3.1959, búsett-
ur á Akureyri, kvæntur Amfríði
Amardóttur, f. 2.1.1960, og eru börn
þeirra Valdimar Öm, f. 29.12. 1987,
og Aldís Dagmar, f. 9.7. 1991; Linda
Björk Harðardóttir, f. 30.10.1966, bú-
sett í Bolungarvík, gift Finnbirni
Birgissyni, f. 10.9. 1961, og eru börn
þeirra Stefán Örn, f. 21.10. 1985,
Birgir Steinn, f. 27.8. 1988, og Natan
Elí, f. 18.4. 1997.
Hálfsystkini Kristjönu, sam-
mæðra, em Finnbogi, Auður og Vet-
urliði Gunnar.
Foreldrar Kristjönu eru Valdimar
Breiðfjörð Finnbogason, f. 29.6.1920,
d. 8.10. 1942, var á ensku flutninga-
skipi í seinni heimsstyrjöldinni, og
Rakel Sigríður Veturliðadóttir, f.
30.10. 1918, d. 10.5. 1984, húsmóðir.
Ætt
Valdimar var sonur Finnboga
Rúts, línumanns hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, Ólafssonar, b. í Múla í
Gufudal, Kristjánssonar, b. í
Fremri-Gufudal, Einarssonar. Móð-
ir Ólafs var Anna Jónsdóttir, b. í
Fremri-Gufudal Eiríkssonar. Móðir
Finnboga var Guðrún Aradóttir, b. í
Múla Jónssonar. Móðir Guðrúnar
var Hallfríður Þórðardóttir.
Móðir Valdimars var Jóhanna
Kristjánsdóttir, b. á Argilsstöðum
Jónssonar. Móðir Jóhönnu var
Eyrún Jónsdóttir.
Rakel var dóttir Veturliða, að
Lækjarmóti á ísafirði, Guðbjarts-
sonar, sjómanns á Flateyri, Þor-
geirssonar. Móðir Veturliða var
Guðrún Eiríksdóttir, b. á Skarði, Ei-
ríkssonar, og Sveinbjargar Þorkels-
dóttur.
Móðir Rakelar var Guðrún Hall-
dórsdóttir, Halldórssonar, og Sigur-
línu Gurðúnar Guðmundsdóttur.
Kristjana verður heima en tekur
ekki á móti gestum.
Valdimarsdóttir.
Til hamingju með
afmælið 29. september
90 ára
Bjarni Sigjónsson,
Hofskoti, Hofi IV, Hornafirði.
Magnús Gestsson,
Laugaskóla, Dalabyggð.
85 ára
Eva Jóhannesdóttir,
Kleppsvegi 12, Reykjavík.
80 ára
Jón Benediktsson,
Garðsbrún 3, Höfn.
75 ára
Ása Hjálmarsdóttir,
Arnarhrauni 21, Hafnarfirði.
Björn Júlíusson,
Starengi 8, Selfossi.
70 ára
Anna Marta
Guðmundsdóttir,
Hesteyri, Mjóafjarðarhreppi.
Áslaug Jóna Ó.
Jóhannsdóttir,
Hlégerði 11, Kópavogi.
Hjördís Ragnarsdóttir,
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
Jóhannes Ragnarsson,
Jörfa, Húnaþingi vestra.
Sigríður Jóna
Kristinsdóttir,
Kirkjuvegi 59, Vestm.eyjum.
60 ára
Jón Örn
Gissurarson
bifreiðastjóri,
Krummahólum 6,
Reykjavík. Kona
hans er
Brynhildur Guðmundsdóttir.
Örn er að heiman í dag.
Bragi Jóhannsson,
Norðurbyggð 9A, Akureyri.
Elísabet Þóra Þórólfsdóttir,
Móaflöt 13, Garðabæ.
Guðríður Gunnlaugsdóttir,
Sæbergi 19, Breiðdalsvík.
Jóhann Friðriksson,
Hásteinsvegi 33, Vestmeyjum.
Sigurður Sigurðsson,
Garðabraut 45, Akranesi.
Sólveig M. Gunnlaugsdóttir,
Bláskógum 13, Reykjavík.
Þorvarður Stefánsson,
Brekkugerði, Fljótsdalshreppi.
50 ára
Bergsveinn Halldórsson,
Suðurengi 3, Selfossi.
Hann tekur á móti gestum í
sal eldri borgara, Grænumörk
5, Selfossi, kl 19-22 í kvöld.
Erna Fjóla Baldvinsdóttir,
Suðurhólum 16, Reykjavík.
Hallgrimur Magnússon,
Álfatúni 23, Kópavogi.
Helgi Hallsson,
Kálfborgará, Bárðdælahreppi.
Kristín Jóhannsdóttir,
Strandgötu 27, Fjarðarbyggð.
Laugheiður Bjarnadóttir,
Maríubakka 24, Reykjavik.
Maria de Lurdes Jesus,
Nýjabæ, Tálknafirði.
Rúnar Ragnarsson,
Skúlagötu 7, Borgarnesi.
Valdís Harðardóttir,
Hlíðartúni 5, Höfn.
MUNUM!
Barn má aldrei vera í framsæti
bíls með öryggispúða, hvorki í
barnabílstól né í sætinu.
3 %
UMFERÐAR
RÁÐ
40 ára
Aðalsteinn Hauksson,
Njálsgötu 34, Reykjavik.
Ágúst Sigurjónsson,
Laufasmára 12, Kópavogi.
Fjölnir Þorsteinsson,
Kaplaskjólsvegi 37, Reykjavík.
Grétar Þór Eyþórsson,
Lerkilundi 15, Akureyri.
Hannes Svanur Grétarsson,
Sólheimum 32, Reykjavík.
Lovísa Árnadóttir,
Lækjarbergi 32, Hafnarflrði.
Svanhvít Ástvaldsdóttir,
Grettisgötu 55 C, Reykjavík.
Þórarimi Sveinsson,
Hamratanga 19, Mosfellsbæ.
Ægir Svansson,
Laufrima 18, Reykjavík.