Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Page 28
28
nn
Ummæli
Hvað eiga laun
að hækka?
„Maður sem kemur oft fram
í fjölmiðlum 0g
sem margir segja
að sé réttlátur,
, auk þess sem rík-
isstjórn hans er
vinsælust frá1
, upphafi vega,
hans laun hækk-
uðu sem nam tvö-
foldum mánaðarlaunum verka-
fólks, 130 þúsund krónur eða
minnst 30% hækkun.“
Sigurður T. Sigurðsson
verkalýðsforingi, spurður um
hve laun verkafólks eiga að
hækka mikið, í Degi.
Athugsemd við
gagnrýni
„Ekki finnst mér undarlegt
að RÖP hafi tekið eftir ólíkum
hljómi kóranna tveggja í þessu
verki þar sem það er samið ein-
göngu fyrir barnakórinn og
blaadaði kórinn sat stilltur og
prúður án þess að gefa frá sér
nokkurt hljóð og tók þar af leið-
andi ekki þátt í flutningnum."
Jón Stefánsson kórstjóri,
í Morgunblaðinu.
Samfylkingin
á lágflugi
„Því miður hefur Samfylk-
ingunni ekki tekist
að ná flugi eftir að
hafa hlekkst á í
kosningunum í
vor. Líklegt er að
forystuleysi og
skortur á skýrri
hugmyndafræði
ráði þar mestu um en
til allrar ólukku hafa menn til
þessa einmitt forðast umræðu
um þetta tvennt."
Árni Þór Sigurðsson, vara-
þingmaður Samfylkingarinn-
ar, í Morgunblaðinu.
Boðun fagnaðar-
erindisins
„Hvað er hann að gera þessi
ungi sjávarútvegsráðherra? t
Stendur hann bara með LÍU og
boðar fagnaðarerindið um
kvótakerfi íslendinga úti í
löndum."
Erna V. Ingólfsdóttir hjúkrun-
arfræðingur, í DV.
Er enginn til að
skylmast við
„Stundum fæ ég það á tiifinn-
inguna að Davið
Oddssyni hund-
leiðist að hafa eng-
an til að skylmast
við og fari í póli-
tískar skylming-Jí
ar við sjálfan sig
af leiðindum ein-
um saman.“
Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands, í Degi.
:i j ,.! : '• i /
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
Nor&urlandshérað
eystra
Norðurlandshéraö
vestra
Suðurlandshérað
ÍPVl
Staðsetning heilsugæslustöðva
- og skipting landsins í læknishéruð -
Vestfjarðahérað
Reykjavíkurhérað
Rey kjaneshérað j
Austurlandshérað
Þorbergur Aðalsteinsson handknattleiksþjálfari:
Deildin verður sterkari í
vetur en undanfarin ár
í kvöld hefst keppnistímabilið í 1.
deild karla í handboltanum og víst er
að mikil spenna er i loftinu hjá þeim
tólf liðum sem skipa deildina. Einn
reynslumesti þálfari landsins er án
efa Þorbergur Aðalsteinsson sem nú
er að hefja sitt sextánda tímabil í röð
sem meistaraflokksþjálfari. Þorberg-
ur sem á árum áður var einn besti
handknattleiksmaður landsins hefur
meðal annars þjálfað
landsliðið og sið-
ast ÍBV i fjögur
ár. Nú er hann
aftur á móti
tekinn við
Víkingum en
með því liði lék
hann lengst af. í
stuttu spjalli var
hann fyrst spurð-
ur hvernig honum
litist á vetur-
inn: „Vík-
ingar eru
að koma
upp úr 2.
deild og
því er fyrst
og fremst
litið á
það sem
tak-
mark
að
halda sér i deildinni. Fyrir mér er
þetta nýtt og spennandi verkefni, lið-
ið er nánast óskrifað blað og að
mörgu að gæta svo allt fari vel, það
eru óvissuþættir sem verður að
takast á við þegar þar að kemur og
þvi hver leikur mikilvægur."
Maður dagsins
Segja má að Þorbergur sé kominn
heim eftir fiögurra ára dvöl í Eyjum:
„Ég átti heima í Fossvoginum áður
en ég flutti til Eyja og er aftur kom-
inn í Fossvoginn og farinn að hafa
afskipti af mínu gamla félagi,
þannig að þetta er allt mjög spenn-
andi fyrir mig og mína fjölskyldu.
Þetta er sextánda árið í röð
sem ég þjálfa meistara-
flokk í handbolta
og væri ekki að
þessu nema
vegna þess að
ég hef mjög
gaman af því
og vona að
reynsla mín
eigi eftir að
reynast Vík-
ingum vel.“
Þorbergur
segir tölu-
verðar breyt-
ingar muni
verða á Vík-
ingsiiðinu
frá því í
fyrra: „Við
erum búnir
að styrkja
liðið með
leikmönnum á borö við Valgarð
Thoroddsen, sem kemur frá ÍBV, Leó
Örn Þorleifsson frá KA og Sigurbjörn
Örvarsson frá Breiðablik þannig að
Víkingsliðið verður sterkara en í
fyrra og ekki veitir af því mér sýnist
deildin ætli að vera mun sterkari í
vetur heldur en síðustu ár. Ef það er
eitthvað lið sem ætti að skera sig úr
þá er það Afturelding, þeir eru með
mjög sterkt lið, en að öðru leyti tel ég
deildina vera jafna og baráttan um
sætin verður rnikil."
Víkingur var stórveldi í handbolt-
anum, þegar Þorbergur lék með því,
er það metnaður hjá honum að koma
félaginu á þann stall aftur? „Það væri
auðvitað mjög skemmtilegt og verð-
ugt verkefni en fyrir þetta tímabil er
fyrsta skrefið að halda sér í deildinni
og ef það tekst þá er öruggt að mark-
miðið verður sett hátt, það er mikill
hugur í Víkingum í dag en fara þó
varlega af stað.“
í Vestmannaeyjum var Þorbergur
í ágætri vinnu hjá Vinnslustöðinni
meðfram handknattleiksþjálfuninni
og er í svipuðu starfi í Reykjavik í
dag: „Aðalstarf mitt í Eyjum var við
fiskútílutning og það er mitt aðal-
starf i dag, hef aðeins skipt um
vinnustað er núna i starfl hjá Fisco
hf.“
Vinnan og handboltinn tekur nán-
ast allan tíma frá Þorbergi og lítill
tími til að sinna áhugamálum þegar
handboltinn er á fullu: „Ég er flest
kvöld við að þjálfa liðið eða stjórna
því í leik og maður reynir eftir
fremsta megni að stunda fjölskyld-
una þegar tími gefst til.“ Eiginkona
Þorbergs er Erna Valbergsdóttir og
eiga þau tvö börn. -HK
Víkingur og KA eigast við í Víkinni
í kvöld.
Handboltinn í kvöld
Handboltinn er þessa dagana að
byrja að rúlla af fullum krafti. Þeg-
ar er hafin keppni í 1. deild kvenna
þar sem ein umferð er búin og í
kvöld verður leikin 1. umferðin í 1.
deild karla. Byrjað er í deildinni af
miklum krafti því 2. umferðin hefst
síðan á fóstudagskvöld.
Sex leikir eru á dagskrá í kvöld
og eiga íslandsmeistarar Aftureld-
ingar heimaleik
gegn FH og má
segja að þetta sé
stórleikur fyrstu umferðarinnar en
þessi lið léku til úrslita um íslands-
meistaratitihnn á síðasta keppnis-
timabili. í Austurbergi leikur ÍR
gegn Stjörnunni, í Strandgötunni,
Hafnarfirði, leika Haukar-Fram, í
Valsheimilinu Valur-HK, í Vest-
mannaeyjum leika ÍBV -Fylkir og í
Víkinni taka nýliðar Víkings á
móti KA. Allir leikir kvöldsins
heQast kl. 20.
Á föstudagskvöld eru tveir leikir
í 1. deild karla, í Ásgarði, Garðabæ,
leika Stjarnan-Haukar og í KA-
heimilinu á Akureyri leika KA-FH.
í 1. deild kvenna eru einnig tveir
leikir, Valur-Haukar leika í Vals-
heimilinu og ÍBV-UMFA leika í
Vestmannaeyjum.
Iþróttir
Bridge
Þetta spil kom fyrir í annarri um-
ferð Hornaíjarðarmótsins í tvímenn-
ingi og sami samningur, 3 grönd, var
spilaður á öllum borðunum 11 í mót-
inu (22 pör). Á átta borðum var
samningurinn ódoblaður og á sex
þeirra fengu sagnhafar 11 slagi. Á
tveimur borðanna varð sagnhafi að
sætta sig við að fá aðeins 9 slagi.
Botninn í NS fengu þau tvö pör sem
leyfðu sér þann munað að dobla þrjú
grönd. í þessu spili var suður gjafari
og allir á hættu. Eftir pass suðurs
opnaði vestur á einum spaða. Sagnir
þróuðust síðan upp í þrjú grönd og
norður ákvað á tveimur borðum að
dobla þrjú grönd austurs til að
tryggja sér útspil í spaðalitnum
(fyrsta sagða lit vesturs);
* ÁKG107
* 2
* D84
* D963
* 98432
V ÁD3
4 Á10
* KG10
* D
* G9876
* 963
* 8542
Kaffi Thomsen:
Finnsk
stemning
Tilrauneldhúsið verður
til staðar á Kaffi Thomsen í
kvöld og kynnir Tilrauna-
eldhúsið Iskelma Juureva -
finnska stemningu. Þau
sem fram koma eru: Helvík,
en sú sveit er skipuð Risto
Tulirauta á gítar og Samuli
Kosminen á slagverk,
Takatukka sem þeir skipa
Birgir Bragason
á kontraþassa,
Böddi Brútal -
rödd, Kristin
Björk á sampler og ÓBÓ á
trommur. Auk þessa spilar
DJ Heiða finnska slagara og
boðið verður upp á
chillipoppkorn að narta í.
Aðgangseyrir er 500 kr.
Café Romance
Píanótónlist er í háveg-
um höfð á Café Romance
enda barinn uppbyggður
sem píanóbar. Margir góðir
píanóleikarar og söngvarar
hafa látið ljós sitt
skína á bárnum og
þessa dagana spil-
ar þar þreskur pí-
anóleikari Joseph O’Brian
og hefur hann fengið góðar
viðtökur hjá gestum á Café
Romance.
Skemmtanir
Suður hlýddi kalli norðurs og
spilaði út spaðadrottningunni.
Norður sá í hendi sér að ef hann yf-
irdræpi drottninguna, myndu að-
eins fást 4 slagir á spaða. Ekkert var
því til fyrirstöðu að
suður ætti drottn-
inguna aðra í litn-
um og því var
nauðsynlegt að
gefa suðri fyrsta
slaginn. En suður
átti ekki fleiri
spaða og því
ómögulegt fyrir vörnina að hnekkja
þessum samningi. Suður reyndi í
örvæntingu sinni að spila lágu
hjarta í þeirri von að norður ætti
kónginn en það gerði sagnhafa auð-
veldar um vik. Báðir sagnhafanna
fengu 12 slagi í þessum doblaða
samningi og skrifuðu 1350 í sinn
dálk. Annað þeirra para var Erlend-
ur Jónsson-Sigurjón Tryggvason
sem stóðu uppi sem sigurvegarar í
lokin. ísak Örn Sigurðsson