Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1999, Síða 9
FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999
9
dv Stuttar fréttir
Útlönd
Javier Solana
neitað um fé
Mikiö manntjón í flóðum í Mexíkó:
Tugir skólabarna
undir aurskriður
Trump íhugar framboð
Bandaríski auðkýfingurinn
Donald Trump lýsti því yfir i gær
að hann hygðist setja á laggimar
nefnd til að kanna möguleika á
forsetaframboði.
Sprengjuárás á Korsíku
Þrjár sprengjur sprungu í opin-
berum hyggingum á Korsíku í
nótt. Talið er að aðskilnaðarsinn-
ar séu á bak við árásirnar.
Heim án líffæra
Svii, sem fór til grísku eyjar-
innar Korfu til að fagna 50 ára af-
mæli sínu, fannst látinn daginn
eftir í sundlaug hótels síns. Eftir
jarðarförina fengu ættingjar að
vita að öll mikilvæg líffæri hefðu
verið tekin úr líkinu.
Frankel ákærður
Fyrrverandi verðbréfasalinn
Martin Frankel, sem handtekinn
var á flótta í Þýskalandi, var í
gær ákærður fyrir víðtækt fjár-
málasvindl.
Steypusprengjur
Bandarískar herflugvélar
varpa nú sprengjum fylltum
steypu í stað sprengiefnis í árás-
um á hemaðarmannvirki í írak.
Er steypan notuð til að koma í
veg fyrir manntjón.
Spánverjar reiðir
Spánverjar era æfir vegna um-
mæla Margaret Thatcher, fyrrver-
andi forsætis-
ráðherra Bret-
lands, á lands-
fundi íhalds-
manna.
Thatcher varði
Augusto Pino-
chet, fyrrver-
andi einræðis-
herra Chile, og
sagði framsalsbeiðni Spánverja
samsæri vinstrimanna. Talsmaður
stjórnarflokksins á Spáni, José
Maria Robles Fraga, kvaðst harma
ummælin.
Mandela í lúxusvillu
Nelson Mandela, fyrrverandi
forseti S-Afríku, 'hefur keypt sér
lúxusvillu á um 60 milljónir
íslenskra króna rétt utan við
Höfðaborg.
Utanríkisráðherrar Evrópusam-
bandsins eru bara reiðubúnir til að
láta Javier Solana, yfirmann utan-
ríkis- og öryggismála sambandsins,
fá helminginn af þeim peningum
sem hann hefur beðið um til að geta
gegnt nýja embættinu. Solana hafði
farið fram á um 150 milljónir ís-
lenskra króna sem verja átti til
ráðningar háttlaunaðra yfirmanna,
lífvarða, til ferðalaga, leigu á bryn-
vörðum bíl og sjónvarpsstúdiós.
Vegna afstöðu utanríkisráðherr-
anna verður Solana líklega að hætta
við að ráða yfirmann og setja upp
sjónvarpsstúdíó. Einnig verður
hann að draga úr ferðakostnaði.
Ýmsum stjórnmálamönnum þykir
sem Solana hafi verið auðmýktur.
Solana hætti í vikunni sem fram-
kvæmdastjóri NATO. Gert er ráð
Javier Solana þykir hafa verið
auðmýktur. Símamynd Reuter
fyrir að hann taki við nýja embætt-
inu eftir um það bil tvær vikur.
Menningin lykillinn
Hillary Clinton, forsetafrú
Bandaríkjanna, sagði á ráðstefnu
I Flórens á ítal-
iu í gær að
menningin væri
lykillinn að
allri framþróun
í þriðja heimin-
um. Sagði for-
setafrúin vest-
rænar stofnanir
hafa gert of
mörg mistök
með því að hunsa hefðir heima-
manna. Hillary sagði jafnframt að
mörg vandamál stöfuðu af al-
heimsvæðingu.
að sljákka í gífurlegu úrfefli sem
hefur valdið miklum usla í Mexíkó
undanfarna daga og orðið meira en
tvö hundruð manns að bana.
Á annan tug líka hefur fundist í
skólahúsinu og nærliggjandi íbúð-
arhúsum.
Innanríkisráðherra Pueblafylkis
sagði seint í gærkvöld að 166 manns
að minnsta kosti hefðu farist í fylk-
inu og að 125 væri saknað og taldir
af.
Hann sagði að 950 hermenn væru
við björgunarstörf í afskekktum
fjöllum í norðurhluta fylkisins þar
sem þrjátíu þúsund manns hafa orð-
ið að flýja heimili sín vegna skriðu-
falla og flóða. Níu bæir voru enn
einangraðir í gærkvöld.
Mestar skemmdir virðast hafa
orðið í Michun, sem er 160 kíló-
metra norðaustur af Mexíkóborg.
„Fjallið hljóp niður og gleypti bæ-
inn,“ sagði fréttamaður útvarps-
stöðvar eftir að hann hafði flogið yf-
ir svæðið síðdegis í gær.
Ernesto Zediflo forseti ætlar að
fljúga yfir hamfarasvæðið í dag.
Hann lýsti yfir hryggð sinni vegna
þjáninga íbúanna.
„Ég er mjög hryggur yfir mann-
tjóninu af völdum þessara flóða,“
sagði forsetinn við fréttamenn.
Víðast hvar í austur- og miðhluta
Mexikós var farið að sjatna í ám eft-
ir gífurlegt úrfelli undanfarna 3
daga. Að minnsta kosti níu fylki af
31 urðu fyrir barðinu á regninu.
Hague vill stýra
breska íhaldinu
burt frá Evrópu
William Hague, leiðtogi breska
íhaldsflokksins, ætlar að reyna að
vinna aftur hylli kjósenda með því
að lofa því að tengslin við Evrópu-
samandið verði helsta baráttumál-
ið í næstu þingkosningum.
í ræðu sinni á landsfundi
flokksins i gær kallaði Hague
Tony Blair forsætisráðherra
lygara, svindlara og hræsnara.
Hann hét því jafnframt að ef hann
yrði forsætisráðherra myndi
hann koma í veg fyrir samþykkt
allra nýrra samninga innan Evr-
ópusambandsins nema reglum
þess væri breytt.
Fundarmenn hrifust mjög af
ræðu leiðtogans og pappírsfánar
fóru á loft þegar Hague laumaði
kossi á eiginkonu sína undir ætt-
jarðarlagi Edwards Elgars, Landi
vonar og dýrðar.
Stjórnmálaskýrendur vora hins
vegar meira efins um hvort þetta
myndi duga til að saxa á 20 pró-
sentustiga forskot Verkamanna-
flokksins í skoðanakönnunum.
íbúi mexíkóska bæjarins Tulancingo reynir að komast leiðar sinnar á reið-
hjóli í vatnsaganum eftir rigningar undanfarið.
Björgunarsveitir mexíkóska hers-
ins fundu fjögur lík í skólahúsi í
indíánabænum Michun í Puebla-
fylki þar sem óttast er að aflt að sjö-
tíu manns kunni að hafa grafist
undir aurskriðum. Heldur var farið
r -Æ'
Flóttamenn
snúa heim til
Austur-Tímor
Fyrstu flóttamennirnir frá A-
Tímor sneru heim í morgun með
flugvél á vegum Sameinuðu þjóð-
anna. Fernando del Mundo, tals-
maður Flóttamannahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna, sagði að 94
manns frá 15 fjölskyldum hefðu
verið um borð í vélinni frá
Kupang á V-Tímor. Eftir að vélin
hafði lent í Dili sneri hún aftur
til Kupang til þess að sækja ann-
an hóp flóttamanna.
Samkvæmt yfirvöldum
Indónesíu flúðu um 250 þúsund
manns frá A-Tímor til V-Tímor
vegna voðaverka vígasveitanna
sem fylgdu í kjölfar þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar um sjálfstæði
A-Timor. Indónesísk lögregla
aðstoðaði við flutninginn heim.