Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1999, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1999, Blaðsíða 32
Sölukössum er lokað kl. 19.30 á laugardögum og dregið kl. 19.45 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá I stma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö t DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö t hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999 .. HvalQörður: Okumaður mótor- hjóls brotnaði » Ökumaður bifhjóls slapp með beinbrot eftir að hafa kastast af hjóli sínu við Hvalfjarðarveg um tíuleytið í gærkveldi. Bíll ók frá Miðdalsvegi í veg fyrir ökumann bifhjólsins með þeim afleiðingum að hann kastaðist út i móa. í þeim svif- um kom annar bíll sem lenti á hjól- inu sem eftir lá á götunni. Mildi var að ökumaðurinn kastaðist af hjól- inu því ellegar hefði hann lent und- ir bílnum. Kolniðamyrkur var á staðnum. -hól ^ Garðabær: Ók á staur Bíl var ekið á staur rétt eftir mið- 4£ætti við Arnamesveg í Garðabæ í nótt. Bíllinn skemmdist illa og þurfti kranabil til að fjarlægja hann af vettvangi. Lögreglan i Hafnar- firði taldi ökumanninn ekki illa slasaðan. -hól Breiðholtsbraut: Mikil ísing Bíll valt út af klukkan rúmlega eitt í nótt á Breiðholtsbraut við Vatnsendaveg. Ökumaðurinn sem var um þrítugt slapp ómeiddur eftir 10 bíllinn hafði farið á hliðina. Bíll- inn skemmdist illa. Lögreglan í Reykjavík telur tildrög slyssins vera ísing á vegi. -hól Hillary Clinton á íslandi Forsetafrú Bandaríkjanna, Hillary Clinton, kemur tO landsins í dag og dvelur hér yfir helgina. Af því tilefni fjallar Helgarblað DV ítarlega um ævi hennar og störf. Spáð er í ijúpnaveiðitímabilið og skoðaðar græjur og gallar. Hafnar- fjarðarleikhúsið frumsýnir á næst- Jhnni nýja leikgerð af Sölku Völku og skrapp leikhópurinn af því tilefni í fiskvinnslustöð í Grindavík til þess að kynnast gulli hafsins af eigin raun og æfa sig á handtökunum. FER FORSETINN A BAK MEÐ HILLARY? Strobe Talbot, aðstoðarutanríkisráðherra Bandarfkjanna, yfirgefur hér Hótel Sögu uppúr klukkan átta í morgun. Tal- bot mun fyrstur ávarpa ráðstefnuna Konur og lýðræði sem hefst í Borgarleikhúsinu kl. 13. Jón Baldvin Hannibals- son, utanríkisráðherra íslands í Washington, á innfelldu myndinni, var einnig mættur. DV-mynd S í morgun Forsetafrú Bandaríkjanna til íslands í dag: Hillary fær gefins íslenska hesta Mikill undirbúningur vegna heim- sóknar Hillary Rodham Clinton, for- etafrúar Bandaríkjanna, var á loka- stigi í gær. Hill- ary, sem ávarpar ráðstefnuna Kon- ur og lýðræði, á í vændum þétta dagskrá á íslandi þar sem hún heimsækir Vest- mannaeyjar og skoðar þar hinn vestur-íslenska Keiko. Þá mun frúin fara til Þingvalla þar sem hún heimsækir Davíð Oddsson í sumarbú- stað forsætisráðherrans. Þar verða henni gefnar góðar gjafir því Lands- samband hestamannafélaga mun færa henni tvo íslenska gæðinga. Hillary er kunnugt um gjöfina og verða hestam- ir tveir sendir vestur um haf. Samkvæmt heimildum blaðsins eru það forsætisráðuneytið, landbúnaðar- ráðuneytið, Félag hrossabænda, Félag tamningamanna og íshestar sem standa að þessari veglegu gjöf. Hún verður færð forsetafrúnni sem gjöf frá íslenskum börnum. Eftir því sem blaðið kemst næst kviknaði hugmyndin að þessu fram- taki fyrst norður í Húnavatnssýslu. Forystumenn i hestamennsku og hrossarækt hófu þegar að vinna að málinu sem nú er í höfn. Mjög hefur verið vandað til valsins á gæðingun- um tveimur sem Hillary fær að gjöf. Annar er leirljós blesóttur frá Ár- gerði, úr ræktun Magna Kjartansson- ar. Hinn hesturinn er brúnn að lit, frá Brynjari Vilmundarsyni á Feti. Hillary verða afhentir hestarnir á Hæstiréttur hefur dæmt Ingi- mund Loftsson í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga 15 ára blaðburðar- stúlku í stigagangi flölbýlishúss á Suðurnesjum fyrir réttu ári. Þá var Ingimundi gert að greiða stúlkunni 450 þúsund krónur í miskabætur vegna tjóns á sálarlífi sem tilkvadd- Þingvöllum eins og áður sagði. Þar verður efnt til lítillar hestasýningar í tengslum við afhendingarathöfnina, þar sem konur fara með stórt hlut- verk. Nokkur ólga er vegna ráðstefnunn- ar og þess hverjar fá að sitja hana. Þannig er óánægja vegna þess að Kvenfélagasamband íslands er ekki inni í myndinni og formaðurinn, Drífa Hjartardóttir, er utangarðs. Nánar á bls. 4 ir sálfræðingar töldu verulegt og fómarlambið yrði lengi að vinna úr. Sama dag kvað Hæstiréttur upp dóm yfir Hákoni Rúnari Jónssyni sem rændi 160 þúsund krónum úr söluturni við Norðurbrún síðastlið- ið vor. Hákon var dæmdur i fimm ára fangelsi fyrir brot sitt. -EIR Hillary Clinton. -rt/JSS Dómar í Hæstarétti: Barnanauðgari 2 ár, sjoppuræningi 5 ár Veðriö á morgun: Rigning eða slydda sunnan til Á morgun gengur í austanátt, 10-15 metra á sekúndu með rign- ingu eða slyddu sunnan- og vest- anlands. Undir kvöld fer einnig að rigna norðaustan til. Heldur hlýnandi veður. Veðrið í dag er á bls. 29. Alþjóðafélag lækna: Sættir ólík sjónarmið „Nefndin er að leita leiða til að sætta ólík sjónarmið ef hægt væri,“ sagði Guðmundur Björnsson, for- maður Læknafé- lags íslands, um nefnd á vegum Al- þjóðafélags lækna, sem situr fund Læknafélags ís- lands í dag og á morgun. Þar mun nefndin kynna læknum og ís- lenskum stjómvöldum afstöðu sína til laga um gagnagrunn á heilbrigðis- sviði. Álitið fjallar um afstöðu tO þess sem snýr að trúnaði við sjúklinga og verndun persónuupplýsinga með til- liti Jil setningar íslensku gagna- grunnslaganna. Guðmundur sagði að alþjóðalækna- samtökin hefðu hingað til stutt sjónar- mið íslenskra lækna. „Þeir koma hingað með friði til að kynna íslensku læknasamtökunum og stjómvöldum sitt sjónarmið." -JSS Ólafur Ragnar Grímsson yfirgefur Sjúkrahús Reykjavíkur ásamt Dorrit Moussaieff. DV-mynd GVA Heilbrigðisþj ónusta: Hjúkrunarkona eltir forsetann Hjúkrunaifræðingar frá Sjúkrahúsi Reykjavíkur hafa fylgt forseta íslands frá því hann útskrifaðist axlarbrotinn þaðan fyrir skemmstu. Hjúkrunar- fræðingarnir sem sinna forsetanum em fleiri en einn og hafa vaktaskipti samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV. Hjúkrunarfræðingamir eru til taks þegar Ólafur Ragnar Grímsson þarf að sinna opinberum erindagjörð- um og í viðbragðsstöðu ef eitthvað fer úrskeiðis. „Allar upplýsingar um sjúklinga okkar em trúnaðarmál," sagði Gyða Halldórsdóttir hjúkrunarfram- kvæmdastjóri á skurðlækningasviði Sjúkrahúss Reykjavíkur en viður- kenndi samt aðspurð að hjúkrunar- fræðingamir fylgdu forsetanum ekki allan sólarhringinn. „Ég tjái mig ekki um þetta,“ sagði Róbert Trausti Árnason forsetaritari þegar hann var inntur eftir hjúkran- arkonum forsetans. -EIR MERKILEGA MERKIVÉLIN bfother pt-i2oq_ Islenskir stafir 5 leturstærðir 8 leturgerðir 6, 9 og 12 mm prentborðar Prentar í tvær línur Verð kr. 6.603 Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.