Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1999, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1999, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999 BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI Úrval - gott í hægindastólinn í. ífcSe feÆfoiíiIKÍKi: 'r-í. r()iitu i'étta ViLJUM BÆTA VIÐ SJALFBOÐALH ^ I hr;f- ' v.'.v -, '-j . . Sjálfboðarli3ar Rauða krossins starfa átaksverkcfni eða föst verkefni 6-io tíma á mánuði hjá: - Vinalínu - Ungmennadeild - Kvennadeild - Sjálfboðamiðlun - Rauðakrosshúsi ið W- . ' m Starfið er fjölbreitt, uppbyggjandi og skemmtilegt! - ■ Söiubúðir á sjúkrahúsum, alþjóðahópur, símsvörun, verkstæði, skyndihjálp, sjúkravinir, unglingastarf og fl. Kynningarfundur verður miðvikudaginn 13. október kl 20 í Sjálfboðamiðstöð R-RKl, Hverfisgötu 105. Upplýsíngar í síma 551 8800. Utlönd Spenna vegna valdaránsins í Pakistan: Hætta talin á nýju stríði Hermenn hlynntir Pervez Musharraf hertóku ríkissjónvarpið, nokkra flugvelli og opinberar byggingar í gær. Símamynd Reuter Rólegt var í Pakistan í morgun eftir valdarán hersins þar i gær. Umheimurinn bíður hins vegar óró- legur eftir næstu aðgerðum Pervez Musharraf hershöfðingja sem nokkrum klukkustundum eftir að hann var rekinn i gær hafði látið hneppa Nawaz Sharif forsætisráð- herra í stofufangelsi. Indverjar eru í viðbragðsstöðu. Þeir búast við harðari afstöðu frá herstjórn í Pakistan og aukinni hættu á árekstrum. Mikil spenna ríkir enn milli Indlands og Pakist- ans eftir sjö vikna stríðið um Kasmír síðastliðið sumar. Mus- harraf ræður nú yflr kjarnorku- vopnum Pakistans. Deilan um Kasmír er talin ein af ástæðum valdaránsins. Hernum í Pakistan þótti hann vera niðurlægð- ur er hann varð að draga sig til baka frá Kargilsvæðinu í Kasmír í júlí síðastliðnum. Þá hótaði Bill Clinton Bandaríkjaforseti að frysta lán til Pakistans drægi herinn sig ekki til baka. Ekki er búist við neinum fiölda- mótmælum gegn valdaránsmönnun- um. Frá því að Sharif komst til valda fyrir tveimur árum hefur hann hrifsað til sín æ meiri völd. Ekki er langt síðan hann lét fang- elsa fjölda stjórnarandstæðinga og bannaði mótmælagöngur. Honum hefur einnig mistekist að reisa við efnahag landsins. Herinn í Pakistan hefur alltaf verið ríki í ríkinu. Valdarán hers- ins í gær var það fjórða frá þvi að Pakistan hlaut sjálfstæði fyrir 52 ár- um. í ávarpi til þjóðarinnar i gær- kvöld sagði Musharraf að vaidaránið hefði verið lokaúrræði. Forsætisráðherrann hefði með stefnu sinni graflð undan stoðum rikisins. Á síðasta ári þessa árþúsunds kanna DV, Bylgjan, Vísir.is og SS hverjir það eru að mati íslendinga sem skarað hafa fram úr og hvaða atburðir hafa sett hvað mestan svip á síðustu 1000 árin í sögu íslands. Eftirtalin bókmenntaverk fengu flestar tilnefningar: Atómstöðin Egilssaga Hávamál Nú stendur yfir val á Bókmenntaverki árþúsundsins og lýkur því sunnudaginn 17. október. Heimskringla Heimsljós íslandsklukkan Taktu þátt á www.visir.is. Saika Valka iBYLGJAm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.