Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Síða 10
Jæja, þá er komið að því: Þið eruð komin heim til hans. Þetta virðist ágætis náungi - annars hefðirðu látið
hann keyra þig heim eftir eftirréttinn. En hvernig geturðu verið viss um að hann sé ekki bara að þykjast?
Hvernig á að þekkja
mann af plötusafninu hans
Stundum hefur konum verið
ráðlagt að kikja á baðherbergis-
skápinn hjá gæjanum en stefnu-
mótavanar konur í dag hafa
uppgötvað árangursríkari leið
til að kanna viðfangsefnið. Ef þú
kíkir sem snöggvast á plötusafn-
ið hans getur þú ákveðið hvort
þú átt að gera þér upp ógleði og
flýta þér heim eða hvort þú átt
að byrja að hugsa upp nöfn á
börnin ykkar.
Tónlist gegnir þýðingarmiklu
hlutverki í menningu samtím-
ans og plötusafn einstaklingsins
segir ekki aðeins sitt um tónlist-
arsmekkinn heldur líka hvaða
innri mann eigandinn hefur að
geyma. Á mótunarárunum hefur
maðurinn valið sér vini að hluta
til eftir tónlistinni sem þeir
hlustuðu á og í framhaldsskóla
hefur uppáhaldstónlistin hans
verið í bakgrunni á mörgum
bjórfljótandi kvöldstundum, sem
sumar hafa endað með einhvers
konar kynlífi. Plötusafnið segir
því ekki bara sitt um eigandann
heldur líka til um það sem finna
má undir nærbuxunum hans.
Stærðin skiptir kannski ekki
alltaf öllu máli en þú skalt þó
forðast menn sem eiga bara sjö
diska eða færri, sllkir menn eru
greinilega þunnyldi. Gleymdu
lika þeim sem eru bara með tón-
list á mini-disk. Það eru gaurar
sem mxmu alltaf verða of upp-
teknir af nýjasta dótinu sínu til
að nenna að sinna þér.
Hér eru nokkrir diskar og
dæmi um hvaða mann eigand-
inn hefur að geyma. Diskarnir
ljóstra upp um karakterein-
kenni sem hann myndi aldrei
segja þér frá sjálfur. í stað þess
að uppgötva það smátt og smátt
sjálf með þrúgandi samneiti tek-
ur Fókus af þér ómakið. Þú
munt þakka okkur síðar.
Alda - Out of Alda
Þér fannst þetta of gott til að
vera satt: gaurinn var myndarleg-
ur, mjór og snyrtilegur og eitt-
hvað svo barnalegur með þetta yf-
irvaraskegg. En nú veistu það fyr-
ir víst; hann er tólf ára. Breiddu
yfir hann sængina og bjóddu góða
nótt, hann þarf að vakna snemma
í skólann á morgun. Ef hann
þrætir og þú sérð á ökuskírtein-
inu hans að hann er fullorðinn
maður verðurðu að vona að hann
eigi dóttur á unglingsaldri sem
þessi diskur tilheyrir. Ef ekki,
munið þið gera lítið annað en að
fara saman í klippingu eða í búð-
aráp. Ekki láta blekkjast af þeirri
staðreynd að það var hann sem
1
bauð þér út. Hann á alveg örugg-
lega eftir að uppgötva nokkrar
staðreyndir um sjálfan sig og eig-
ið kynferði. Og við getum sagt þér
það strax, að þú vilt ekki vera á
staðnum þegar það gerist.
Papamir- Komplett
Hvað erða við groddalega karl-
menn sem þú hrífst að? Eru tvö
kvöld af trúboðastellingarkynlífi í
viku það sem þú ert að leita að?
Langar þig virkilega til að hola
þér niður og eyða því sem eftir er
af lífinu í tilfinningasnautt og fyr-
irsjáanlegt samlífi þar sem reynir
á þjónustulund þína og undir-
gefni? Ef þú svarar þessu játandi
skaltu doka við þegar þú sérð alla
Papadiskana í safninu. Jú, þitt
verður 300 fermetra einbýlishús í
úthverfi, 4 milljóna króna jeppi og
2,5 börn, en fljótlega verðurðu far-
in að velta því fyrir þér hvers
vegna þér fannst þetta svona eftir-
sóknarvert. Fyrstu árin verða allt
í lag, Húsasmiðjan um helgar og
svona, en eftir að krakkarnir
byrja í skóla fer sambandið að
gliðna. Eftir áratugalanga þolin-
mæði í garð fylliríisheimsókna
kunningja hans og lélegs kynlífs,
sem endar oftar en ekki með því
að hánn deyr brennivínsdauða
ofan á þér, verður allt sjálfsálit og
metnaður fokið út í veður og vind.
Þegar krakkarnir flýja hreiðrið
ertu orðin bitur kerling sem tuðar
og skammast út í allt og alla. Lifr-
in gefur sig loks og hann deyr fyr-
ir aldur fram. Þegar þú hendir
verðlausum eigum hans finnurðu
aftur þessa diska og gerir þér
grein fyrir því að ef þú hefðir bara
farið að okkar ráðum og sagst
vera lesbía hefði allt farið miklu
betur.
Raddir
Ef hann er ekki þegar búinn
að því, mun þetta ríkisstyrkta
ungskáld bráðlega kæfa þig meö
ódýrum vindlareyk á meðan
hann röflar út í eitt mn eigin
ljóðagerð, tíbetska búddamúnka,
nýjustu sendinguna hjá Kor-
máki og Skyldi og hvað það sé
mikil og djúp tilfinning í vísna-
söngli kotbændanna á Röddum.
Þú kemst fljótt að því að það er
ekki eitt einasta „trend“ sem
þessi náungi hefur ekki náð að
blóðmjólka áður en það varð
jafn kalt og hrollurinn sem nú er
farinn að gera vart við sig á bak-
inu á þér. Nei, þú hefur ekki
hugmynd um út á hvað „dogma“
gengur og færð því hálftíma
kynningu í staðinn fyrir að fá
í’ana eins og þú vilt. Gaurinn er
nefnilega gjörsamlega getulaus
þótt hann segist búinn að fara í
nokkra tantra-jógatíma. Líttu á
björtu hliðamar: Þú ferð heim
jafn einmana og ófullnægð og
áður en hefur þó óviðjafnanlega
„stefnumót frá helvíti“-sögu til
að segja í næsta saumaklúbbi.
Fríðrik Karisson - Lífsins fljót
Þó móðurumhyggja sé eitthvað
sem höfðar til þín kýstu að beina
þeirri tilfmningu að ekta bami, ekki
að manni sem lætur eins og bam. Ef
þú rekst á þennan disk í safninu
skaltu byrgja inni allar móðurlegar
tilfmningar því annars eyðirðu rest-
inni af kvöldinu í að jánka endalaus-
um straumi af niðurdrepandi þusi
og væli um það hve gaurinn á bágt
og þrautagangan sem hann hefur
lent í, maður lifandi! Það hvarflar að
þér að rukka manninn um þrjú þús-
und kall á tímann því þér er að lok-
um farið að líða eins og geðlækni.
Þrátt fyrir allt endar kvöldið ekki
með kynlífi - hann vill miklu frekar
láta halda utan um sig þar sem hann
liggur i fósturstellingu - og þar að
auki hefúr hann líklega ofnæmi fyr-
ir kynlífi. Vertu bara fegin að þurfa
ekki að sofa í sama rúmi og hann
því hann pissar að öllum líkindum
enn þá undir.
Gunnar Jökull p
- Hamfarir
Þú hefdir getað sagt I
þér strax: Maðurinn er '
liiði. Skræpóttu jakka-
fötin. Star Trek-bindið
hans og hvornig hann
vitnaði endalaust í Fóst-
bræðrabrandara þegar
hann reyndi að vora
fyndinn liefði átt að vora |
nóg fyrir þig, on nú ertu j
föst í stofunni hjá hon- ,jj
uin (hann byr reyndar i
bilskúr foroldra sinna) B|,
og hann or nu þegar bti-
inn að spila „Blllinn minn1'
þrisvar. „Hlustaðu,” segir
hann og tautar svo. „algjör
snilld, algjör snilld". Það er
engin franuíð i þessu. hann
mun búa í bilskúrnum lcngi
áfram og þú hofur aðcins um
tvennt að velja: Ef þú ort
fyrir títuprjóna loyíir þu
honutu að fara upp a þig í
meðaumkunarskyni. annars
gcngurðu út. Hann mun
okki taka eftir þvi þogar þú
ferð. svo upptekinn or hann
af Gunnari Jökli og þvi
skaltu stela báöum Tví-
höfða-diskunum lmns. Hann
á þá áritaöa.
Snörumar
Þú hefur þegar tekið eftir því
að diskurinn sjálfur virðist óspil-
aður en umslagið er krumpað og
þakið klístrugum blettum. Legðu
það frá þér undir eins og þvoðu
þér vandlega. Þó gæinn segist
hrífast af kvensöngkonum finnst
þér grunsamlega lítið af góðri
kvennatónlist í safninu og þér
finnst líka skrýtin þessi megna
harðfiskslykt í íbúðinni hans.
Ástand þessa disks sýnir einfald-
lega að þegar kemur að kynlífi
finnst þessum gaur bókstaflega
best að taka til hendinni sjálfur.
Anna
Halldórsdóttir
- Undravefurinn
Jú, jú, hann opnaði dymar
fyrir þig, borgaði matinn án þess
að blikna og sagðist dást að fólki
sem gefur vinnu sína til líknar-
mála, en samt, ekki bíta á agnið
alveg strax. Hvemig hann lætur
þennan disk liggja fremstan (í
stað þess að vera innan um disk-
ana með Maus, Botnleöju og Qu-
arashi sem em f meiri hluta í
safninu) er greinilegt merki um
að gaurinn er slepjulegur
kvennabósi. Með því að þykjast
fíla þessa væmkæru „stelputón-
list“ vill hann senda út þau
skilaboð að hann sé tilfmninga-
næmur og mjúkur maður sem á
gott úrval af bæði reykelsi og tei
- og hann segist ekki skammst
sín fyrir að gráta. Sannleikurinn
er samt auðvitað sá að þetta er
svikull skíthæll sem mun sofa
hjá vinkonum þínum um leið og
hann getur. Þó hann sé klár í að
hneppa frá brjóstahaldara og
kunni ýmsar framandi stellingar
er það ofar hans skilningi að
hringja í þig daginn eftir. Fyrir
utan þennan disk segir ilmvatns-
lyktin á koddanum hans sitt og
silkinærbuxurnar við hliðina á
rúminu hans. Hann kallar þig
líka enn þá Hönnu þó þú sért
margbúin að segja honum hvað
þú heitir. Þessi gaur fer greini-
lega frjálslega með slátrið á sér.
Ef þú ert ekki ánægð með að
vera bara enn eitt nafnið í rauðu
bókinni hans mælum við með
því að hringir strax á bíl.
Mundu svo eftir að taka símann
úr sambandi næstu vikurnar.
Serðir Monster
- Tekið stærra
upp í sig
Þessi liggur efst í hrúgunni og
diskurinn er í spilaranum. Hann
hefur því haft þetta ógeð í gangi á
meðan hann var að hafa sig til fyr-
ir stefnumótið. Hlauptu stelpa,
hlauptu! eru skilaboð okkar til
þín, ef svo ólíklega vill til að þú
sért svo græn að geta ekki sagt þér
það sjálf. Hann er að mixa drykki
inni i eldhúsi núna og þú getur
bölvað þér upp á að hann er að
setja svefnlyf í glasið þitt. Ef þú
sleppur ekki út áður en hann kem-
ur inn í stofu skaltu ekki hafa
neinn fyrirvara á heldur dúndra
sem fastast í klofið á honum og
þjóta út. Þú ferð ekki heim til þín,
heldur til vinkonu þinnar og sigar
svo löggunni á hann þegar hann
er að brjótast inn heima hjá þér.
Og þér sem .leist svo ágætlega á
hann þegar þig voruð að borða,
hann talaði alla vega nóg um það
hve vel hann þénaði í verðbréfun-
um. Að vísu fannst þér skrýtið
hvemig hann reif í sig blóðuga
steikina og leifði öllu grænmetinu,
en þegar hann kallaði á þjóninn -
„Hei, þú þarna hommatittur!" -
hélstu að þér hefði misheyrst.
' 1
'v
I
10
f Ó k U S 15. október 1999
msmtk