Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Blaðsíða 16
Skilnaðir verða sí algengari hér á landi. Það eru víst allir að skilja
og kynin orðin drulluþreytt hvort á öðru. Um síðustu helgi voru
stelpurnar til dæmis með ráðstefnu um stöðu sína og þær vilja hag
sinn bættan í samfélaginu. Fókus er sammála því og þess vegna
köstum við hér fram vísi að orðabók sem eiginmenn og verðandi
eiginmenn ættu að lesa til að geta skilið konuna betur.
Kvensk-ísl
orðabók
Ég ver6 enga stund = Farðu úr
skónum og komdu þér vel fyrir fyr-
ir framan sjónvarpið á meðan þú
þíður.
Er rassinn á mér siginn? = Segðu
mér að ég sé falleg.
Baðherbergið er svo lítiö að mað-
ur kemst þar varla fyrir = Ég vil
nýja íþúð.
Við ætlum bara að kaupa súpu-
skálar = Ég þarf líklega ekki að
taka það fram að við munum líka
kíkja við í nokkrum fataþúðum, líta
við í snyrtivöruverslunum og svo
var ég að frétta að það væru
komnar nýjar vörur í þúsáhalda-
deildina og að það væri útsala I
sængurfatadeildinni og Ó, guð,
hvað þessi bleiku rúmföt færu vel
við svefnherbergið ef við myndum
mála það í stíl og skipta um
gluggatjöld...
Viö verðum = Ég vii...
Þú ræður = Þér ætti að vera oröiö
Ijóst hvað ég vil.
Gerðu það sem þú vllt = Ég næ
mér niður á þér síðar.
Við þurfum að ræða saman = Ég
þarf að leggja fram kvartanir.
Ég er ekkert æst = Auðvitað er ég
æst, fávitinn þinn.
Ég er ekkert tilfinningasöm, ég er
ekki að gera úlfalda úr
Ég er á túr.
Slökktu Ijósln = Ég er
ekki sátt við sjálfa
mig.
Bílinn er að verða
bensínlaus =
Farðu og fylltu
tankinn.
Ruslapoklnn er
fullur =
Farðu út
með
ruslið.
Hundurinn er að gelta = Farðu
fram úr og athugaðu hvort eitt-
hvað sé aö.
Okkur vantar ný gluggatjöld =
...og parket og málningu og hús-
gögn og teppi...
Mig vantar nýja skó = Ég kann
ekki lengur við hin 40 pörin.
Þú veröur aö læra aö tjá þig =
Vertu bara sammála mér, það er
auðveldara.
Ertu að hlusta
= Of seint, þú
ert búinn að
vera.
Þetta er allt í lagi
= Þú færð að borga
fyrir þetta síðar.
Já = Nei.
Nei = Nei.
Kannski = Nei.
Fyrirgefðu = Þú átt eftir að sjá eft-
ir þessu.
Hvernig finnst þér maturinn = Það
er fljótlegt að búa þetta til svo það
er best fyrir þig aö venjast honum.
Var barniö að gráta = Drullaðu
þér á lappir og sinntu barn-
inu.
Ég er ekki að öskra =
Ég er að öskra af því
það er mikilvægt sem
ég er að segja.
Elskarðu mig? = Ég
er rétt bráðum að
fara að biðja þig um
nokkuð sem kostar
drjúgan pening.
Hvað elskaröu mig
mikið? = Ég gerði
nokkuð í dag sem
þú átt eftir að
hata mig fyrir.
.suBwnv'
Ferskleiki er okkar bragð
f Ó k U S 15. október 1999