Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Side 12
vikuna
14.10-21.10 1999
40. vika
Ain’t That a Lot OfLove með Simply fíed
er hástökkvari vikunnar. fíauðhærði
látúnsbarkinn gólar enn og aftur um
tregablandna ást og sætar stelpur. Þetta
lag nær aldrei toppnum. Simply fíed er
bara ekki þannig hljómsveit. Hún er og
verður númer 2(0).
Topp 20
01 Burning Down The House
(02) ThereSheGoes
03 Unpretty
[04 j Around The World
05 Sun Is Shinning
Tom Jones & The Cardigans Vikur 1 á lista 0 6
Sixpence None The Richer * 6
TLC H 17
Red Hot Chilli Peppers 6
Bob Marley & Funkstar t 4
(06) Blue (Da Ba Dee)
'071 LastKiss
(08) Myndir
09 Waiting For Tonight
10) (You Drive Me) Crazy
@ Égerkominn
(12) Mambo No. 5
(13) When You Say Nothing AtAII
Eiffel 65 4- 8
PearlJam 4^ 16
Skítamórall 'T 2
Jennifer Lopez 'T 2
Britney Spears ‘f 5
Sálin hans Jóns míns 'T 3 \
LouBega 16
Ronan Keating (Notting Hill) ® 15
(14) She’s All 1 Ever Had Ricky Martin t 4
(15) Coffe&TV Blur 4* 8
16 Heartbreaker Mariah Carey t 5
(17) Everything is Everything Lauryn Hill 4r 13
(18) Supersonic Jamiroquai n 3
19 : Larger Than Life Backstreet Boys t 6
(20) Ain’tThatALotOfLove Simplyfíed 4 4
Sætin 21 til 40
0 topplag vikunnar J háslðkkvari jf vikunnar 21. IflLetYouGo Westlife 4- 7
22. She’sTheOne Robbie Williams t 2
23. ToBeFree Emiliana Torrini 4, 4
nýtt a listanum 24. IGotAGirl Lou Bega X 1
25. Strengir Maus t 2 j
%»' stendur 1 staO 26. BrandNewDay Sting n3
^ hækkar sig íré 27. Tell Me It’s Real K-Ci&Jojo 4, 8
I sfðisiu viku 28. MuchoMambo Shaft t 2
X /ækkar sig frá 29. King Of My Castle Wamdue Project 4, 13]
SÍðJStU v/icu 30. Deeplnside Páll Óskar x A
’r))' fallv/kunnar 31. Smooth 32. HeyLeonardo 33. AIINMyGrill Santana & Rob Thomas Blessid Union OfSouls Missy Elliott & Nicole t 7 4- 71 X 1
34. Young Hearts Run Free’99 Candi Staton t 3
35. 365Days Lutricia McNeal 4,3
36. What My Age Again Blink 182 x n
37. / Saved The Worid Today Eurythmics t 2
38. Bills, Bills, Bills Desdtiny’s Child 4. 12
39. HigherThan Heaven Kéllé 4, 5
40. AlltÁHreinu Land og Synir X Í
„Já, viö værum líklega dauðir í einhverri sundlaug núna ef við hefðum samþykkt allt það sem bauðst í byrjun."
Enska hljómsveitin Supergrass
átti eina bestu plötuna 1995,
gleðipönkplötuna „I Should Coco“,
og olli taugatitringi á æðstu stöðum.
Calvin Klein vildi fá strákana til að
kynna nýja línu, Vogue vildi fá þá til
að sitja fyrir og Steven Spielberg
vildi fá þá til að leika í sjónvarps-
þáttaröð, einhvers konar útgáfu
þessa áratugar af Monkees-þáttun-
um sem fjölluðu um ævintýri apa-
strákanna og voru þrusuvinsælir í
lok sjöunda áratugarins. Supergrass
hafnaði öllum þessum gylliboðum
sem verður að teljast vel af sér vikið
því þá var gítarleikarinn Gaz
Coombes bara sautján ára og
trommarinn Danny Goffey nítján.
„Já, við værum líklega dauðir í
einhverri sundlaug núna ef við hefð-
um samþykkt allt það sem bauðst í
byrjun,“ segir Gaz. „Okkur fannst
það bara einum of ódýr leið. Ef það
er þetta sem þarf að gera til að verða
að stærstu hljómsveit í heimi hvað
segir það þá um tónlistina?"
Fíngerðu hljóðlátu
strakarnir
Supergrass er í þessu eingöngu
vegna tónlistarinnar. Lögin ' eru
skrifuð á þá félaga saman og þegar
þeir koma saman í hljóðveri ber
þeim saman um að eitthvað næstum
dulrænt eigi sér stað. „Ég veit ekki
hvernig ég get útskýrt það,“ segi
Gaz. „Þetta er eins og galdrar, okkur
líður eins og ekkert sé ómögulegt."
Hann og Danny voru fingerðu
hljóðlátu strákarnir í gaggó í Ox-
ford. Þeir héngu saman og hlustuðu
á Bowie á meðan aðrir reyndu við
stelpur og töluðu um fótbolta. Til að
þeir hefðu enn þá betri ástæðu til að
plötudómur
Þegar hljómsveitin
Supergrass kom
fram vakti hún svo
mikla athygli að
sjálfur Steven Spi-
elberg varð aðdá-
andi og vildi taka
hana upp á sína
arma. Strákarnir
sögðu nei takk og
sjá ekki eftir því.
Þriðja platan var að
koma út og sýnir
hljómsveitina í yfir-
vegaðri framþróun.
hanga saman stofnuðu þeir bandið
The Jennifers með tveim öðrum.
Bandið spilaði smávegis og gaf út
eina smáskífu en hætti 1993. Yfir
málsverði ákváðu Gaz og Danny að
vinna alltaf saman í framtíðinni. Nú
kom til sögunnar bassaleikarinn
Mickey Quinn sem var sex árum
eldri en strákamir. Hann féll þó vel
í hópinn, fílaði Bowie í botn líka og
á æfingum kviknaði strax þessi óút-
skýranlegi galdur en sem þeir hafa
talað um síðan.
Suð
— Hugsanavélin ★★★
Rokkaður9
Suð er tríó úr reykviskum bíl-
skúr. Bræðumir Helgi (söngur, gít-
ar) og Kjartan (bassi, hljómborð)
Benediktssynir hafa verið suðandi
frá upphafi og haft þrjá trommara í
vist. Sá síðasti heitir Magnús
Magnússon og spilar á Hugsanavél-
inni, fyrsta diski Suðs. Suð er
rokktríó en áhrifavaldar ekki auð-
heyrðir, helst að manni detti í hug
stólparokk tveggja annarra tríóa,
Sugar og Manic Street Preachers.
Rokkaður einfaldleiki er í fyrir-
rúmi; lögin borin upp af hefðbundn-
um bassa- og trommuleik, gitarinn
teppaleggur keyrsluna og hljómar
eins og sé verið að rífa strengina
niður með grænmetistætara. Oft er
þó slökkt á tætaranum og þá er sett
í poppgír. í hljóðvegg Suðs er svo
stundum rjátlað við hljómborð eða
kassagítar strokinn til hátíðar-
brigða. Að svo stöddu fengu Suð-
menn ekki verðlaun fyrir yfimátt-
úrlega hljóðfærahæfileika en innan
þess ramma sem innrömmunarstof-
an hefur sérhæft sig í gengur þetta
saman. Eins fengi Helgi seint medal-
íu frá stórsöngvarasambandinu,
rödd hans er hálfveikluleg og eins
og hann sé með hitavellu, strákur-
inn, en þegar mikið liggur við tekst
honum að gala sannfærandi án þess
að lyppast niður og fara að hósta.
Helgi málar sig sem leiðan lúser í
textunum: „En hvað sem ég geri og
hvort sem ég reyni, ég klúðra því“,
afsakar hann í „Gerist ekki betra"
og svipað hljóð er í strokknum i öðr-
um lögum. Siðferðislegar spuming-
ar sækja á skáldið, misheppnuð
sambönd virðast honum ekki ókunn
en hann gefur sér þó tíma frá nafla-
skoðuninni til aö lemja aðeins á
puttana á okkur, gráðugustu þjóð í
heimi. „Gráðuga fólkið kann sér
ekki hóf, endalaust kapp í leit að
betri bíl,“ lýsir hann réttilega yfir í
„Gráðuga fólkinu" en er þó ekkert
að þykjast betri því hann langar
Við klúðruðum tækifærinu
Önnur plata strákanna varð til eft-
ir að.þeir drógu sig út úr öllu fjöl-
miðlahavaríinu sem fylgdi fyrstu
plötunni. Fram á síðustu stund var
platan nafnlaus og ráðamenn hjá
Parlophone, sem hafði nælt í bandið,
voru svo stressaðir að þeir lofuðu
Gaz 2000 pundum ef hann kæmi með
nafn. Hann lét ekki á sér standa og
platan var nefnd „In It for the Mon-
ey“ og kom út 1997. Hún var þyngri
og flóknari en sú fyrsta en full af
skínandi efni sem sýndi að þetta
band var komið til að vera.
Eftir hefðbundna tónleikaferð og
ýmis hliðarverkefni (Gaz og Mickey
spiluðu á plötu með Dr. John og
Danny tók þátt í plötu með hljóm-
sveitinni Lodger) var lagt í þriðju
plötuna sem kom út nú í september
og heitir einfaldlega „Supergrass".
Hljómsveitin heldur þar áfram að
þróast, spilar fjölbreytta poppblöndu
sem nærist á uppátektarsemi og
áhrifum frá eldri breskum poppgoð-
um - Bítlunum, Pink Floyd og The
Who.
„Ég býst við að við klúðrum tæki-
færinu til að verða vinsældahljóm-
sveit og græða á vinsældum okkar,“
segir Danny. „En við hugsum til
framtíðar og við getum bara haldið
áfram að spilað þá tónlist sem við
viljum spila. Ef hún selst ekki mikið
þá það.“
Strákamir hafa sem sagt ekki
miklar áhyggjur af þessu og hafa
sagt blaðamönnum að bíða þar til
fimmta platan þeirra kemur. Þá
fyrst segjast þeir verða orðnir veru-
lega góðir. -glh
Suð hefur stimplað sig inn
með ágætri plötu og það er
algjör óþarfi að rokkáhuga-
fólk láti hana fram hjá sér
fara þótt hún fari hljótt á
markaðstorginu.
sjálfan í „fjarstýrðan hund og lík-
amsræktartóT1. í nokkuö þéttri
heild eru nokkur lög sem standa
upp úr, „Draumaveröld" best í nett-
leika sínum en ötulir rokkarar eins
og t.d. „Fylgdu mér“ og „Svipbrigð-
in“ líka sannfærandi. Suð hefur
stimplað sig inn með ágætri plötu og
það er algjör óþarfi að rokkáhuga-
fólk láti hana fram hjá sér fara þótt
hún fari hljótt á markaöstorginu.
Dr. Gunni
12
f Ó k U S 15. október 1999