Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Síða 29
I
Hvaöa fólk er þaö sem er aö
stela?
„Það er eiginlega gamalt fólk,
aðallega konur og svo unglingarn-
ir. Fólk er ekki að þessu af því að
það vantar pening heldur er ein-
hver önnur hugsun þarna á bak
við, til dæmis að fá eitthvert
kikk.“
Fœröu stundum hjartslátt þegar
þú sérö einhvern grunsamlegan?
„Jú, jú, það kemur fyrir, en í
þessu starfi get ég ekki fengið út-
rás fyrir adrenilínflæðið. Ég má
ekki nota það og það getur stund-
um verið erfitt. Maður æsist en
verður að halda ró sinni. Ég verð
því að fá útrás með öðrum leiðum
og mín leið er að stunda íþróttir.
íþróttirnar gefa mér kannski það
sem upp á vantar I starfinu."
Öryggisvöröur, er þaö ekki bara
löggu“wanna be“?
„Nei, það held ég nú ekki, en
samt gera margir sér það í hugar-
lund þegar þeir verða öryggisverð-
ir en þetta er aldeilis ekkert svo-
leiðis. Þetta er miklu meira eftirlit
með einhverju sérstöku. Búning-
urinn er nú samt ekkert ófrá-
brugðinn löggubúningi nema hvað
ég hef smellubindi á meðan lög-
regluþjónar hafa teyjubindi," svar-
ar Sigurður, kíminn.
Hlýtur þú þá viröingu sem þú átt
í skilið í starfi?
„Já, ég held það. Fullorðið fólk
er mjög ánægt með þetta og finnst
gott að hafa gæslu í búðum. Það er
kannski helst að það séu einhverj-
ir ungir krakkar sem eru að skjóta
einhverju að manni en maður þyk-
ist bara ekki heyra það.“
Ef heimsendir yröi á morgun,
hvaö væri þaö síöasta sem þú
myndir gera?
„Ég á nú eftir að gera svo margt
þannig að ég myndi bara fara heim
og leggja mig. Það væri best að
sofa þetta bara af sér.“
€
%
í:
*
Sigþór Siguijónsson, eigandi Kringlukrárinnar:
• Eldra folki.ð
verst meo
•
Hvaöa kosti hefur Kringlukráin
® fram yfir aörar krár?
~ „Sko, það sem margir átta sig
ekki á er að við seljum ekki bara
: vin og bjór, við seljum einnig
góðan mat og errnn með ball-
rekstur,“ segir Sigþór Sigur-
jónsson, eigandi Kringlu-
krárinnar. „Þetta er fyrst og
fremst góður veitingastaður með
Áhöfn
Krinqlunnar
hátt þjónustustig. Ekki „bara
krá“, svona eins og „bara hús-
móðir“.“
Er þá nafniö ekki svolítiö rugl-
andi?
„Það sem íslendingar gera sér
kannski ekki grein fyrir er að
kráar-nafnið er elsta heitið yfir
veitingarrekstur í norrænu máli
og krár til dæmis í Danmörku
eru einhver bestu veitingahús
þar í landi. Veistu, ég held að það
sé illa komið fyrir þeim stað sem
býður bara upp á brennivín."
Þannig aö þú sérö ekki eftir
nafninu þó svo aö þaö geti valdiö
misskilningi?
„Nei, alls ekki, þetta er gott
nafn og góður staður, það vita
þeir sem versla við okkur,“ svar-
ar Sigþór, viss í sinni sök.
Eru íslendingar kröfuharðir?
„Já, og mjög góðir kúnnar en
stundum eru þeir ósanngjamir.
Þetta er svo skrítið að sumir ís-
lendingar gera kröfur hérna
heima sem þeir gera til dæmis
ekki erlendis. Ég myndi segja að
kröfurnar væru alltaf að aukast
og sem betur fer segi ég því það
heldur manni við efnið.“
Kunna íslendingar aö drekka?
„Já, ég held að þetta sé að
breytast. Ég hef nú séð ýmislegt
og mér finnst að meðferð á víni
hafi batnað til mikilli muna eftir
að bjórinn var leyfður. Ég verð
að segja að það sé fólkið sem er
eldra en sextugt sem er verst með
víni því það er einfaldlega af
gamla skólanum og vill drekka
sinn harða drykk og finnst bjór-
inn vera sull. Hins vegar er
yngra fólkið mikið í bjórnum og
soft drykkjum og verður ekki of
drukkið og kann að skemmta sér
i hófi.“
Finnst þér aö þaö œtti aö lækka
aldurinn sem til þarf til aö mega
kaupa vín?
„Ég vildi geta svarað þessu ját-
andi en verð að svara þessu neit-
andi. 18 ára maður í dag er ein-
faldlega ekki eins þroskaður og
18 ára maður var þegar ég var á
þessum aldri. Þetta er ekki sagt í
einhverjum hroka. Sem betur fer
er kannski 18 ára maður ekki
orðinn nógu þroskaður þvi mér
finnst að böm eigi að fá að vera
börn. Það var ekki upp á teningn-
um i gamla daga þar sem krakk-
ar þurftu að vinna og axla
ábyrgð."
Sigþór, ein samviskuspurning:
Fœröu stundum samviskubit þeg-
ar þú heyrir um þaö í fréttunum
aö þaö sé alltaf fleira og fleira
fólk aö fara í meðferö?
„Nei, nei, ég get ekki tekið
þetta inn á mig og ég gæti ekkert
verið í þessum bransa ef ég ætl-
aði að gera það. í mínu starfi hef
ég kynnst mörgum og ég verð að
segja það af hreinskilni að ég ber
mikla virðingu fyrir fólki sem
tekur á sínum málum og horfíst í
augu við vandann. Ef viðkom-
andi hefur ekki vald á því sem
hann er að gera, þá finnst mér
bara virðingarvert ef hann reyn-
ir að laga vanda sinn,“ svarar
Sigþór.