Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Page 32
Páll Óskar verður í Kringlunni í dag. Það verða að sjálfsögðu einhver læti í honum en á milli kl. 16-18 mun kauði árita forsíðu Fókuss - sérprent- aða. Fókus mælir með því að allir sannir aðdáend- ur Páls Óskars fari í Kringluna í dag og fái áritað piakat frá goðinu. Annars eru þær nokkrar Kringlumyndimar sem búnar hafa verið til og óhætt að mæla með Mallrats eftir Kevin Smith. Hún lýsir stemmn- ingunni á ágætis hátt. Þetta er fín ræma með þeim Shannon Doherty, Jeremy London, Jason Lee og Ben Affíeck í að- alhlutverkum. Það verður samt að við- urkennast að þessi mynd er ekki nærri því jafn góð og Clerks sem Kevin gerði um sjoppu í Bandaríkjunum. Jens Ólafsson verslunarmaður: Loksins geta hjónin gert það - sem þau hefur lengi langað til. Verslað í nýju Tekk Vöruhúsi í Kringlunni. Áhöfn Kringlunnar Sigurveig Þ. Sigurðardóttir læknir: r 0 —z-. V *” v5.'-=. - — nJIL. ifanrlamáí teeSlB IUCIBIIC9I Hvernig er aó vera lœknir á Is- landi? „Ég er barnalæknir og það er alltaf mjög skemmtilegt og gefandi starf,“ svarar þessi indæla kona sem starfar á skrifstofu sinni í Kringlunni og auð- vitað á spítala. Margir 5 ára krakkar segjast œtla aö verða lœknar. Var þaö svo meö þig? „Ég ákvað það nú ekki 5 ára og ég held að ég hafi endanlega ákveðið að verða læknir þegar ég skráði mig í læknisfræðina. Því er þó ekki að neita að það að verða læknir er draumur sem ég átti mér.“ Þú lést þinn draum rœtast en heldur þú aö annaö fólk sé eins duglegt viö aö láta drauma sína rœtast? „Það hugsa ég að það geri í dag. Fólk hefur oftast nær tækifæri til að láta drauma sína verða að veruleika." Heldur fólk stundum aö þú getir gert kraftaverk? „Flestir eru nú raunsæir í þessum málum. Fólk finnur hins vegar oft að maður getur gert gagn þegar það kem- ur til dæmis með vandamál sem eru ómeðhöndluð. Þegar þetta gengur upp verður fólk svo ánægt." Gleöur þaó þig mest? „Já, það gleður mig mikið þegar ég sé vandamál leysast og þá sérstaklega þegar böm eru lasin því þegar þau em lasin þá kemur það niður á allri fjöl- skyldunni. Þegar maður finnur að maður er að gera gott þá líkur maður vinnudeginum með bros á vör.“ Hvernig er ástandiö á þjóöinni? „Ástandið er að batna. Fólk er farið að verða sér betur meðvitandi um hollustu og aðra þætti sem gera því gott. Læknirinn er ekki lengur eitt- hvert goð og allir trúa orðum hans eins og hinum heilaga sannleika." Er borin nógu mikil viröing fyrir lœknum eöa eru íslendingar þverir? „Ég held nú svona yfir höfuð að ís- lendingar séu samvinnuþýðir. Fólk tekur mark á lækni sínum og vinnur með honum. Það er lítið um að fólk sé með einhvem mótþróa ef það á við einhvem vanda að glíma.“ Hvaö veröur um okkur þegar við deyjum? „Ef ég vissi það nú. Ég eyði ekki miklum tima í að íhuga hvað verður um okkur eftir dauðann, ég verð nú bara að viðurkenna það. Það er samt örugglega framhald en ég get ekkert fullyrt um það.“ Ef þéryröi sagt aó heimsendir yröi á 'morgun, hvaö yröi þaó síöasta sem þú myndir gera? „Ég hugsa að ég myndi nú ekki gera neitt sérstakt því ég gæti alls ekki treyst á að þetta væri rétt. Ætli ég myndi ekki bara láta það koma í ljós hvort heimsendirinn kæmi eða ekki,“ svarar Sigurveig brosandi. TEKK V Ö R U H Ú S Kringlunni • Sími: 581 4400 • Bæjarlind 14 - 16 • Sími: 564 4400. En fyrir þá sem vilja ást í stórmarkaði er Scenes From a Mall málið. Woody Allen og Bette Midler leika í henni en leikstjórinn er Paul Mazurski sem gerði meöal annars Enemies: A Love Story. Þessi mynd fiallar hrikalega mikið um tilvistarkreppu hjóna og það að Woody reið hóra - tveim. Kringlan er annars að verða svo stór að Fók- us mælir með því að uppamir mæti með golfbílana á opnun Kringlunn- ar í dag. Að visu er ekki alveg vitað hvort það er löglegt eða siðlaust eða bara í fullkomnu lagi. Allavega væri gaman ef nýríku upparnir okkar gerðu eitthvað til að gleðja bömin og rúntuðu með þeim um Kringluna i dag og á morgun. Annars er Jackie Brown eftir Tarantino rétta myndin til að komast í þvílíkt Kringlustuð og óhætt að mæla með þeirri ræmu. Kringlusenumar þar era þokkalega spennandi. Myndin er lika gerð eftir bók Elmore Leonards og hann svíkur ekki. Er með 13 lykla á lyMaklppunnl Hvaó geriö þió í þessári verslun? „Við bætum skó og smíðum lykla og fleira sem fylgir þessu tvennu," segir Jens Ólafsson, eigandi Þráins skóara. Hugsar þú betur um skóna þína og lykla en annaö fólk? „Já, ég held það svei mér þá,“ svar- ar Jens um leið og hann skellir hægri löppinni upp á borð og sýnir íþrótta- skóna sem hann er í. Hva, af hverju ertu í svona skóm? „Þeir eru bara svo þægilegir og svo þarf ekkert að pússa þá. Það þýðir nefnilega ekkert að vera í spariskóm héma inni, þeir verða bara skítugir." Hvaö ertu með marga lykla á lykla- kippunni? „Þeir eru nú ansi margir... ég er með 13 lykla,“ svarar Jens eftir að hafa gefið sér góðan tíma í að telja og bætir við: ,JÉg held að það sé ekkert meira en gengur og gerist. Helming- inn af þessum lyklum nota ég einu sinni á dag, hina oftar." Finnst þér fólk vera kœrulaust þeg- ar kemur aö því aó lœsa eignum? „Já, og fólk í dag er að flýta sér of mikið, það er málið. Fólk er að gleyma lyklum, veskjum, gleraugum og fleiru hérna á borðinu hjá okkur. Það er alltaf eins og fólk sé að missa af einhverju. Alltaf á einhverju spani.“ Eru Islendingar stressaóir? „Ég er nú ekki stressaður, kannski af því að mánaðamótin eru búin,“ svarar Jens, skellihlæjandi. Hver er lykillinn aö velgengni? „Það er framkoma við kúnnann, þegar máður er að afgreiða. Ef ég er elskulegur við kúnnann þá er kúnn- inn elskulegur við mig. Það er lykill- inn og skiptir bara öllu máli. Samt erum við nú öllu vanir hérna því fólk er svo misjafnt." Kanntu ekki einhverja skemmtilega sögu af kúnna? „Hmmm, ég veit það nú ekki. Kannski er best að segja sem minnst svo kúnnarnir hætti ekki að koma,“ svarar Jens glottandi. Hvaö er það leióinlegasta sem þú gerir? „Að bursta skó...“ Og þú vinnur viö þaö! „Já, pældu í því. Nei, ég er að fífl- ast, það er ágætt að busta skó. Mér finnst ekkert sérstakt leiðinlegt. Lífið hefur bara sinn gang og maður þarf að takast á við þann vanda sem kem- ur upp hverju sinni, sama hver hann er.“ Hvernig veröur ísland eftir 200 ár? „Ég er ekki farinn að hugsa svo langt. Þjóðfélagið breytist og fólk bara fylgir með. Vonandi verður fólk samt ekki eins stressað." 4 ' vm& HM ■ f Ó k U S 15. október 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.