Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Síða 36
ft
"Punkturinn kl. 31.3
Vegamót kl
f Ó k U S 15. október 1999
Mikael Torfason og
Teitur Ijósmyndari
stjórnuðu drykkju-
keppni á milli
Mono og FM
síðastliðið laugar-
dagskvöld. Sendu
stöðvarnar tvo
aldrei á ævi minni
jafn mikið af alkó*
jafn stuttum tíma“
menn hvor. Frá
Mono mættu
Jóhannes og Ingó
en FM sendi þá
Bjarka og Halla.
Þetta var hörku-
keppni og augljóst
að stöðvarnar eiga
í harðri samkeppni.
Hér er öll sagan í
máli og rnyndum,
óritskoðuð.
Mónnko I
Arbælngurinn Jóhannes á IVIono
glottir og ætlar aö taka þetta
kerfisbundiö.
Ingó, Jóhannes, Bjarki og Halli á
Punktinum, stuttu áöur en fyrstu
bjórarnir fóru aö kippa.
[LÁgaffefll. 31 .-171 !
M ^
Á LA Café dugöi ekkert minna en
stórt leöursófasett fyrir drukkin liö
FIVI og Mono. Þaö er Bjarki sem
heldur á tómu glasi enda alltaf bú-
inn langt á undan hinum keppend-
unum.
Bjarki Sigurðsson mætti fyrstur
og vissi ekki alveg í hvað hann var
mættur. En eftir að hafa fengið að
vita að um væri að ræða bjór-
keppni með tveimur einföldum
reglum - byijað verður að drekka á
Keisaranum og svo bara niður
Laugaveginn, einn bjór á hverjum
stað og undir tímapressunni - þrjár
mínútur á bjór - leist honum ekk-
ert svo vel á tímatakmarkið. Taldi
tímann vera of lítinn og sagðist
vera snafsamaður.
í því augnabliki mætti samstarfs-
maður kauða, Hallgrímur Krist-
insson, með bjór í hönd - þvílík
hetja. Og síðan var beðið eftir þeim
Jóhannesi Ásbjömssyni á Mono
og félaga hans Ingólfi Árnasyni.
Þegar þeir voru loks mættir - 10
mínútum og seint - var tölt inn á
Keisarann og var klukkan rétt um
níu.
Sly Stallone
Besti barinn í bænum stóð fylli-
lega undir væntingum. Fjórum
stórum og reffilegum bjórum var
skellt á borðið. Halli hafði losað sig
við Tuborginn sem hann hafði ver-
ið að drekka og var því til í tuskið
og því var bara byrjað. Bjarki á FM
tók sinn á 27 sekúndum þrátt fyrir
að vera snafsamaður. Hinir voru
allir frekar jafnir en Jóhannes
ójafnari en aðrir. Bjarki reynir þá
að æsa sinn mann upp og hvetur
hann til að verða FM til sóma. Jó-
hannes flissar töffaralega og kveik-
ir sér í sígarettu. Er ekkert að láta
þetta vefjast fyrir sér.
„Ég ætla að taka þessa keppni
bara eins og Sly Stallone í The
Specialist," útskýrir Jóhannes sem
er víst morgunhani þeirra Mono-
manna. „Þama þegar hann er að
hringja í James Woods og
skellir á einni sekúndu áður
en löggan nær að rekja sím-
talið.“
Bjarki hlustar ekki á Jó-
hannes og heldur áfram að
hvetja sinn mann. Halli æs-
ist upp og stynur: „I can do
it.“ Og svo klárar hann og
svo kemst Ingó Mono-maður
að botni krúsarinnar en Jó-
hannes heldur áfram að
glotta og lætur háð gesta Keisarans
sig engu varða.
„Þú endar með því að drekka
þennan bjór með barnabömunum
þínurn," kallar einn útlifaður leður-
jakkamaður með skrautleg sólgler-
augu og gestir besta barsins í bæn-
um skellihlæja.
Jóhannes glottir áfram og klárar
ekki fyrr en ég er farinn að telja
niður: tiu, níu ... þrír, tveir. Og Jó-
hannes lemur krúsinni í borðið.
Útsending kl. 8
Einn bjór er náttúrlega ekki neitt
og ekkert hægt að dæma menn út
frá honum. En á Mónakó dældu fé-
lagarnir bjór númer tvö niður og
voru allt i einu orðnir ógurlegir fé-
lagar. Sátu við sama borð og brostu
settlega sín á milli og Halli mælti
fyrir skál sem var óvenju væmin:
„Megi þeir betri vinna“ og eitthvað
í þeim dúr. En það nennir enginn
að hlusta á ástarhót erkifjenda og
því er krúsunum kastað í þá og
öskrað: „Byrja!“
Klukkan tifar og Mono-mennirn-
ir halda kúlinu á meðan Bjarki
tæmir í einum teig og Halli fylgir
honum fast á eftir og minnir félaga
sinn á að hann á að mæta í útsend-
ingu kl. 8 um morguninn.
„Já,“ segir Bjarki og hlær. „Það
má því kalla það svona lokatest. Ef
ég meika það þá get ég allt.“
Nú byrjar ropið. Langar strokur
sem leggja af stað frá maganum og
fikra sig upp vélindað og breytast í
dimmar drunur rétt áður en þær
læðast út í reykmettað andrúms-
loftið. En Halli og Bjarki kvarta
undan reykingastrompunum frá
Mono. Segjast vera sjálfum sér,
stöðinni og Þorgrími Þráinssyni
til sóma.
Jóhannes hlustar ekki á þá. Seg-
ist bara telja að það væri gott að
vera kýldur í magann núna.
„En þá myndirðu spýja yfir þann
sem kýldi,“ segir Bjarki og piltarn-
ir hlæja og Jóhannes klárar síðast-
ur eins og vanalega.
Þá er haldið á Punktinn og þar
birtast fjórar SoL bjórflöskur og Jó-
hannes segir:
„Einn bar í viðbót og þá er hægt
að ná af okkur ælumynd."
Halli samþykkir það ekki og tek-
ur upp símann. Hringir i konuna til
að útskýra fyrir henni í hverju
hann er lentur og að þess vegna
skuli hún ekkert vaka eftir honum
og leyfa honum að sofa út. Það virð-
ist ganga eftir - skilningsrík kona -
og keppnin heldur áfram.
Ingólfur: „Djöfull er þetta vond-
ur bjór.“
Enginn mótmælir því en piltarn-
ir okkar láta sig hafa það. Gera
þetta bara eftir hefðinni. Bjarki
fyrstur og Jóhannes síðastur. Frek-
ar tilbreytingalaust.
Bætti einhver kókos-
bollu ofan í þennan
bjór?
„Ég sé að stór bjór er á 400 og lít-
ill á 300. Er Fókus ekkert fyrir það
að spara?“ segir Halli þegar gengið
er inn á LA Café og hlammað sér i
leðursófasett ásamt fjórum stórum.
Bjarki gefur lítið út á lítinn bjór
og klárar auðvitað fyrstur og segist
ætla að læra dönsku til geta leikið í
næstu Thule-auglýsingu. En Jó-
hannes og Ingó eru enn rólegir og
einhver grunur vaknar um það að
Jóhannes hafi ælt strax á Punktin-
um til að hliðra til fyrir fleiri bjór-
um. En það getur ekki talist ólög-
legt enda laumast Bjarki á klósettið
með Halla um leið og hann klárar.
Jóhannes: „Ég sé það í hylling-
um að standa yfir FM liggjandi í
jörðinni seinna í kvöld.“
Ingó kinkar kolli og þeir félagar
klára sína á Sly Stallone sekúnd-
unni.
Bjarki: „Næsta Thule-auglýsing
verður með mér.“
Á Lilleput, sem er næsti bar,
vakna hinsvegar upp efasemdir um
mig og Teit. Keppnismennirnir eru
að verða drukknir og finnst ósann-
gjarnt að þeir einir séu með
brenglaða dómgreind og stútfullan
maga. Því heimta þeir að við fáum
okkur bjór. En auðvitað neitum
við. Erum í vinnunni og verðum að
taka faglega á þessu. Þá kemur bar-
þjónninn skyndilega með áskorun
um að keppendurnir fái sér staup
með bjómum en það eyðileggur al-
veg móralinn. Ég tek því helvítis
staupið og skola því niður til að
halda Mono og FM á mottunni. Það
róar þá niður og bjórarnir renna
ofan í þá með sama hætti og áður.
„Bætti einhver k'ókosbollu ofan í
þennan bjór?“ spyr Ingó í fúlustu
alvöru. Bjórbragðið er farið að
renna saman í eitt hjá honum.
Jóhannes: „Hvað segiði drengir,
getum við ekki samið um það að ef
þið vinnið þá hætti Mono og öfugt?
Eða að við Ingó fáum kannski bara
að vita hvaða hljóð þetta er í þess-
um peningaleik ykkar?“
FM-piltamir hlæja en Halli tekur
þetta sem hrós. Að Jóhannes vilji
vita hljóðið í peningaleiknum. En sá
leikur er þannig að spilað er hljóð á
FM og sá sem getur upp á því fær
einhvem haug af peningum.
Þetta er þó stundargaman því
næsti bar bíður. Svo á Halli í vand-
ræðum með að losa um því hann
getur ekki migið og kann ekki við
að æla.
Mamma og pabbi stolt
„Við erum á leiðinni á rassgatið.
Þið vitið það?“ segir Jóhannes og
flissar það mikið að hvaða leikmað-
ur sem er gæti séð að hann er hrein-
lega á rassgatinu.
Og bjóramir versna í vitum strák-
anna. Þeim finnst bjórinn á 22 alla-
vega ekki góður en láta sig hafa það.
En nú er þetta farið að verða virki-
lega erfitt og maginn farinn að þenj-
ast aðeins of mikið út. Allir
drengimir klára samt á tíma en
nokkrum sekúndum eftir er Ingó á
leiðinni á klósettið með glas í hönd
og skilar smá gumsi ofan í glasið. En
það kemur nú fyrir bestu menn og
hann má eiga það strákurinn að
hann var ekkert viðkvæmur fyrir
því að Teitur skyldi ná mynd af
magasýrunum. Engin spéhræðsla
þar.
Og svo eftir að bjóramir á Vega-
mótum eru horfnir ofan í maga í full-
miklum vinskap útvarpsdrengjanna
mætum við á Kaffibarinn og Bjarki
fer að biðja um einhver bónusstig
fyrir að vera alltaf langfyrstur með
bjórinn. Honum finnst tímatakmörk-
in nú vera of rúm, sem er annað en
fyrr um kvöldið. Enda margt breyst
síðan. Strákurinn er orðinn ærandi
hávær og blindfullur eins og félagar
hans. En það era ekki nein bónus-
stig og því smellir Bjarki bara einum
kossi á bardömuna og er ánægður
með lífið og tilverana.
Jóhannes: „Mamma les alltaf
Fókus og hún og pabbi munu segja
vinum sínum að þetta sé ég í blaðinu
og að þau séu rosalega stolt af mér.
Þetta er eitthvað sem þau hafa alltaf
dreymt um.“
Á Grand Rokk fagnar barþjónninn
okkur og þakkar fyrir að fá drengina
þó ekki fyllri en þetta. Strákarnir
hlusta ekkert á það því Mono-pilt-
amir eru uppteknir við að reyna að
fá peningahljóðið upp úr FM-strák-
unum. Það gengur eitthvað illa og
stemmningin er að breytast hægt
yfir í nettan rig á milli liðanna. Þessi
rígúr fer þó framhjá Jóhannesi.
Hann virðist vera þannig náungi að
hann tekur ekkert nærri sér.
Jóhannes: „Ég hef aldrei á ævi
minni innbyrt jafn mikið af alkóhóli
á jafn stuttum tíma.“
„Bætti einhver kókosbollu ofan í
þennan bjór?“ spyr Ingó í fúlustu
alvöru.Bjórbragöiö er fariö aö
renna saman í eitt hjá honum.
'írjl ^
A 22 var
stemmning-
in orðin
frekar
skemmtileg.
Piltarnir
voru orðnir
blindfullir og
fannst bjór-
inn ekki
bragöast
vel.
Ingó, „Vest-
mannaey-
ingur frá
helvíti",
náði bjórn-
um niður en
stuttu síðar
skilaöi
hann hluta
af honum.
Og stundum
voru allir
bestu vinir
og langaöi
bara til aö
vera í
djamminu
alla nóttina.