Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1999, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1999, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 Fréttir „Viöræöuáætlun" aöila vinnumarkaðarins stenst ekki: Samningamál í lausu lofti - engar viöræöur hafa fariö fram um endurnýjun kjarasamninga DV, Akureyri: Þótt þau tímamörk hafi verið í síðustu viku að svokallaðir aðilar vinnumarkaðarins hafl átt að vera búnir að setjast niður og kynna sínar hugmyndir vegna endurnýjunar kjara- samninga, bólar ekki neitt á neinu í þá áttina. Viðsemjendur eru sem sagt, eins og svo oft áður, þegar orðnir á eft- ir áætlun strax í upphafi, sem mörgum þykir ekki lofa góðu um framhaldið. Málefni Verkamannasambands ís- lands hafa verið nokkuð í sviðsljósinu að undanfómu, ekki síst vegna þeirrar ákvörðunar stóra aðildarfélaganna þrigga við Faxaflóa að snúa baki við VMSÍ-forustunni og sjá sjálf um sína samninga i sameiningu. Þetta eru EfL- ing stéttarfélag í Reykjavík, Verka- mannafélagið Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavík- ur. Þótt hér sé einungis um þrjú félög að ræða segir það ekki háffa söguna, því innan þessara þriggja félaga er yfir Frá undirritun síðustu kjarasamninga. Þar var samþykkt viðræðuáætlun vegna endurnýjunar kjarasamningsins sem þegar hefur verið brotin. Björn Grétar Sigurður T. Sig- Sveinsson, for- urðsson, for- maður VMSI. „Flóamenn" treysta ekki. maður Hlífar, er talinn upphafs- honum maður að Flóa- bandalaginu. helmingur alira félagsmanna innan VMSÍ. Talsmenn verkalýðsins á lands- byggðinni tóku þessum tíðindum illa og segja þau veikja mjög samnings- stöðu þeirra. Áfall VMSÍ-forustunnar Það er að sjálfsögðu áfall fyrir VMSÍ-forustuna að flóafélögin þrjú skuli hafa valið þessa leið og ekki er til að bæta ástandið að háværar raddir eru uppi þess efnis að ástæða fyrir flóabandalaginu sé fyrst og fremst sú að forsvarsmenn félaganna þriggja treysti ekki VMSÍ-forustunni og bein- línis vantreysti Bimi Grétari Sveins- syni, formanni VMSÍ, til að leiða samningaviðræðumar. Uppákomur eins og þessi em að sjálfsögðu ekki til þess fallnar að flýta fyrir samningaferlinu en viðræðuáætl- un átti að liggja fyrir 15. október eða fjóram mánuðum áður en núgildandi kjarasamningar renna út 15. febrúar. Formaður VMSÍ hefúr reyndar viðrað þá hugmynd, eflaust eftir að hafa kynnt hana að einhveiju leiti meðal viðsemjenda, að fresta gerð nýs kjara- samnings í allt að einu ári, að þvi til- skyldu að um sérstakar launahækkan- ir verði að ræða tvívegis á tímabilinu frá því núverandi kjarasamningur rennur út og þar til samið verður. Þótt enn sé þetta aðeins hugmynd, má segja að þetta sé nánast það eina sem hinir svokölluðu aðilar vinnu- markaðarins hafa lagt fram. Menn hafa jú við ýmis tækifæri tautað í barm sér ýmsa gamla „frasa“ eins og t.d. að varðveita þurfi stöðugleikann, viðhalda þurfi kaupmætti og ýmislegt fleira i þeim dúr. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðu- sambands íslands, hefur reyndar lagt sérstaka áherslu á stöðugleikann og ummæli hans um 3-5% svigrúm til launahækkana vöktu athygli. Formað- ur Rafiðnaðarsambandsins mun hafa talað í svipuðum tón. Einn viðmæl- enda DV sagði varðandi þetta að for- seti ASÍ hlyti þama að vera að túlka skoðanir „einhverra hagfræðinga", þetta væri ekkert nálægt því sem hinn almenni verkamaður vildi sjá eftir næstu samninga. Aðrir semji fyrst Þing Verkamannasambands íslands verður haldið í næstu viku og verður að reikna með að þar verði lokið við kröfugerð fyrir komandi samninga, eða a.m.k. að meginlínurnar verði lagðar. Það kemur mörgrnn spánskt fyrir sjónir að þegar innan við 4 mán- uðir era þar til kjarasamningar renna út skuli mál ekki komin lengra en raun ber vitni og það kann að benda til Fréttaljós Gylfi Kristjánsson þess að ýmislegt eigi eftir að ganga á áður en til nýrra samninga kemur. Markmiðið með hugmyndinni um frestun kjarasamninga VMSÍ og við- semjenda þeirra mun ekki hvað síst að stuðla að því að nú gangi aðrar stéttir þjóðfélagsins frá sinum málum fyrst en komi ekki i kjölfar almennra samn- inga og semji um meiri hækkanir, eins og gerst hefur ítrekað. Verkalýðsfor- kólfar sem DV ræddi við töldu margir að þetta væri klókt útspil en áréttuðu þó að þeir væra ekki búnir að sjá við- semjendur segja já og amen við þess- um hugmyndum. Fleira héngi nefni- lega á spítunni, eins og t.d. það að ná tO baka verulegum hluta þess sem verkalýðurinn hafi tapað gagnvart öðr- um stéttum og þá væri það stóra mál- ið að ná til sín stærri bita að kökunni sem til skiptanna er, en áður hafi gerst. Allt í lausu lofti Nokkur hluti verkalýðsforustunnar mun fremur kjósa það að í næstu samningum verði samið um krónu- töluhækkanir. Að öllum líkindum er þó ekki samstaða um það innan forast- unnar frekar en svo margt annað og talið líklegra að menn haldi sig við gömlu leiðina, prósentuhækkun. En þegar kemur að því að ræða hvað sú prósentuhækkun gehu orðið mikil, er fátt um svör. „Félögin eiga hreinlega eftir að móta sínar kröfur, þetta er allt í lausu lofti enn þá,“ segir einn for- ustumaður innan verkalýðshreyfing- arinnar, og era það orð að sönnu. Staðan þegar innan við fiórir mán- uðir eru eftir af gildistíma núverandi kjarasamninga er því þannig að nán-i ast ekkert hefur verið lagt fram þótt komið sé fram yfir tímamörk. Verka- lýðsforastan er klofin og virkar vægast sagt hikandi. Frá atvinurekendum heyrist hvorki hósti né stuna. Þetta þykir mörgum ekki glæsileg staða. Gullið tækifæri Það eru 12 dagar þar til veitingastaðnum Keisar- anum við Hlemm verður lokað. Þá lýkur afar merkilegum kafla í svall- sögu borgarinnar en Keis- arinn hefur löngum verið griðastaður kynlegra kvista, fyllibyttna, fanta og þeirra sem stunda ljós- fælna atvinnu. Nágrannar Keisarans, með kaupmenn og talsmenn opinberra stofnana í fylkingar- brjósti, hafa fengið sínu fram og keypt Keisarann dýrum dómum af Margeiri Margeirssyni vejtinga- manni. Margeir fékk reyndar ekki það sem hann vildi fyrir slotið, 60 milljónir, en segist geta vel við unað. Það þýðir þá væntanlega að hann hafi fengið einhvers staðar í kring um 50 millur. Síðustu dagana sem Keisarinn verður við lýði má búast við stanslausri kveðjuveislu. Mörg tár- in verða þá felld og margt glasið tæmt í botn. En Dagfara kæmi ekki á óvart þó veitingamaðurinn glotti út í annað þar sem hann afgreiðir tárvota kúnnana. Óhætt er að fullyrða að Margeir Mar- geirsson hafi ávaxtað sitt pund betur en nokkur .... '%ÁJT7 verðbréfadrengur getur nokkurn tíma látið sig dreyma um. Að fá tugi milljóna fyrir stað eins og Keisarann er nokkuð sem fáir leika eftir. Dagfari hefur engar spurnir haft af framtíð fastakúnna Keisarans. Lögreglan mun ekki allt of ánægð með stöðuna enda gengið beint að meint- um brotamönnum við barinn hjá Margeiri. Og sú snilldarhugmynd að lögreglan taki að sér rekst- urinn í húsnæði sínu við Hverfisgötu hefur feng- ið takmarkaðar undirtektir. Lögreglan sér ekki snilldina í að hafa meinta brotamenn innan seil- ingar og geta lagað fiárhagsstöðu embættisins um leið. En einhvers staðar verða vondir að vera. Sú staðreynd hefur haldið vöku fyrir mörgum veit- ingamanninum við Laugaveg og í Kvosinni. Þeir óttast að fastakúnnar Keisarans taki upp á þeirri ósvinnu að hanga inni á gafli hjá þeim, fæli þá kúnna sem fyrir eru í burtu og veki ótta og reiði saklausra nágranna. Margeir sjálfur, sem á spila- búlluna Mónakó við Laugaveg, hyggst segja alveg skilið við gamla Keisaragengið. Hann ætlar sjálf- ur standa í dyrunum og meina því inngöngu á Mónakó. Og starfsbræður hans niður eftir öllum Laugavegi ætla að ráða sér dyraverði svo engin Keisarabytta ráðist inn hjá þeim. Dagfari er svolítið skilningsvana gagnvart þessum ótta við Keisaraliðið, finnst veitinga- menn við Laugaveg hafa takmarkað bisnissvit. Væri Dagfari veitingamaður við Laugaveg myndi hann mæta í kveðjuveisluna á Keisaranum og bjóða alla velkomna til sín. Það er ekki nóg með að Keisaraliðiö myndi tryggja jöfn og mikil við- skipti allan liðlangan daginn heldur yrðu tekj- urnar fljótar að ávaxta sig. Ekki liði á löngu áður en nágrannar, með talsmenn banka og ríkmann- legra verslana í fylkingarbrjósti, myndu bjóða tugi milljóna fyrir staðinn til þess eins að losna við Keisaraliðið. Veitingamenn við Laugaveg eru að missa af tækifæri lífs sins. Dagfari. sandkorn Johnsen á skeiði Fjárlaganefnd Alþingis var á ferð i Stykkishólmi á dögunum og skoð- aði þar ný íþróttamannvirki og fleira. Þegar komið var á íþrótta- völlinn kom keppnisskapið upp í þeim Hjálmari Jóns- syn og Kristjáni Pálssyni sem sam- mældust um að „taka karlinn“ í 100 metra hlaupi. Karl- inn var enginn ann- ar en Árni John- sen, gömul íþrótta- kempa sem mun einhvern tima hafa hlaupið 100 metrana á 11 sekúndum. Skemmst er frá því að segja að Árni, þrátt fyrir mikla líkamsburði, malaði þá nefndarbræður i hlaupinu. Var eft- ir því tekið hve hnarreistur Árni var á skeiðinu og haft á orði að gamli hlaupagikkurinn Michael Johnson hefði örugglega lært ýmis- legt af Johnsen í hlaupakúnstum... Fjöldasárindi Árni Þór Sigurðsson sagðist i viðtali við Dag ekki sjá foringja í framvarðasveit Samfylkingarinn- ar. Þá sagði Margrét Frímanns- dóttir að hann léti svona af því að hann hefði tapað prófkjörum í borgarstjórnar- og alþingiskosning- um og væri kannski sár. Þegar Ólafur Magnússon, Sólar- maður í Hvalfirði, gagnrýndi skoðun eða öllu heldur skoð- anaskipti Sivjar Friðleifsdóttur um- hverfisráðherra á umhverfismati Fljótsdalsvirkjunar sagði hún að svona léti hann bara af því að hann hefði ætlað sér meiri frama í pólitíkinni en ekki fengið, og orðið sár. Nú siðast gagn- rýndi Sigfús Ægir Árnason R-list- ann fyrir slaka frammistöðu í kennaramálum. Sigrún Magnús- dóttir sagði að hann hefði barist harkalega í prófkjöri en náð slæleg- um árangri. Þess vegna væri hann líklega pirraður. Var einhver að tala um eftirtíðaspennu...? Frestað? Storminum um hið umdeilda lagafrumvai-p um gagnagrunn á heilbrigðissviði virðist nú vera að lægja. Búið er að ákveða að gerður verð- ur gagnagrannur. Fresturinn sem fólk hafði til að segja sig úr gagnagrunninum er úti og íslensk erfðagreining er nú alfarið í eigu ís- lenskra aðila. Ingi- björg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra getur því andað léttar, a.m.k. enn um sinn. En nú heyrist það hins vegar úr heilbrigðisráðuneyt- inu að fresta eigi gerð gagna- grunnsins. Þar á bæ er mönnum uppálagt að láta það ekki heyrast út í þjóðfélagið enda mikið í húfi fyrir stærstu hluthafa fyrirtækis- ins... Stórlaxar í Eldhúsinu Hin nýja Kringla opnaði með pompi og pragt á fimmtudag. Með- al fyrirtækja í hinni nýju Kringlu er veit- ingastaðurinn Eld- húsiö sem var með opnunarhóf á fóstu- dag. Þar mátti sjá ýmsa þekkta einstaklinga. Með- al þeirra voru Lilja Pálmadótt- _____ ir, eitt Hagkaupssystkinanna, Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra og Hallur Helgason leikhússtjóri. Meðal þeirra sem koma að rekstr- inum eru Viktor Sveinsson, sem gerði garðinn frægan á Búðum, Ingvar Þórðarson athafnamaður og Björn Ársæll Pétursson hjá Marel... Umsjón Haukur L. Hauksson Netfang: sandkom @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.