Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Page 17
19. nóvember - 25. nóvember Líficí eftir vinnu myndl ist popp 1eikhús fyrir börn klassik b i ó veitingahús einníg ái visir.is Föstudagur 19. nóvemberl Popp Síðdegistónleikar Hins Hússins á Geysi Kakó- bar eru alltaf, alla föstudaga, kl. 17.00. Að þessu sinni er það enginn annar en eins manns tónlistarmiðillinn Plastic sem lætur okkur svífa í ambient stemningu.Plastic er eitt af aðalseglum Thule-útgáfuskipsins og hefur komið víða viö I hinum rafræna heimi í gegn- um árin. \/ Stjórnin heldur útgáfutónleika í Leikhús- kjaliaranum og lýðræði verður haft í hávegum. Megadiskurinn 2000 verður kynntur með pompi, prakt og léttum veitingum. Húsið verð- ur opnað kl. 23. •Klúbbar PZ: Lil'Louie Vega (Master at Work) á níu ára afmæli og Kaffi Thomsen fagnar. Þaö verður rokna gleði. Skuggabarinn klikkar ekki og er hreinlega að rifna af gjafmildi. Þar á að bjóða þeim sem mæta milli 23 og 24 í glas á barnum. Það borgar sig líka að koma á þessum tíma því þá er ókeypis inn. Þeir sem ekki koma fyrr en eft- ir miðnætti verða að borga tyrir sína drykki og 500 krónur í inngangseyri. •Krár \/ Hinn eini og sanni afmælisdagur Gauks á Stöng er runninn upp og það verður Ijós. Hann er sko 16 í dag og við skulum öll synga, fagna, deyja, týnast, elska og fara á barinn. Gaukurinn leggur á borð og býður upp á dj Þossa, Súrefni, Svein Waage, skemmtilega undarlegar uppákomur og eilífa ást. Café Romance státar af breska píanóleikaran- um Joseph 0¥Brian. Hann svíkur engan og staöargestir verða ölvaðir af hreinni lífsgleði. Dj Le Chef tekur við blindfullnum lýðnum kl. 23.30 á Wunderbar. Þá lýkur nefnilega einka- samkvæmi sem tröllríður salnum frá kvöld- fréttum. Fjörugarðurinn blómstrar og býður Víkinga- sveitina velkomna. Matargestir belgja sig út af krásum og týna sér í dansi. Njáisstofa býður Njál úr Vikingband hjartan- lega velkominn á Smiðjuveg 6. Rífandi stemn- ing í Njálsstofu og kostar ekkert að koma. Álafossföt bezt kynna hljómsveitina Þúsöld og það verður geigvænlegt stuð I Mosfellsbæn- um. Á Sirkúsinum ætlar Árni Sveins að sjá um að hrista rassa landsmanna úr klakaböndunum með þjóðlagatónlist frá ýmsum löndum. Mæt- ið með teppi og bongó. Þó svo að stór hópur Gullaldargesta sé ásamt vertum staðarins staddur í gleðiborginni Dublin um þessa helgi verður ósvikið stuð þar fyrir þá sem heima sitja því hljómsveitin Heið- ursmenn skemmtir til kl. 3. Hljómsveitina skipa þau: Kolbrún, Ágúst Atla og Gunnar. Gullaldarfólkiö segir þau vera landsþekkt úr þransanum og stuðbossa með meirú. Svo er boltinn á sínum stað og boltaverð á ölinu. Alltaf er hin enska Liz Gammon sæt og fin þar sem hún hamrar á píanóiö og syngur með á Reykjavíkurstofunni við Vesturgötuna. Þar er opið frá kl. 18 og stutt að fara yfir á Naustkjall- arann. Hljómsveitin Léttir Sprettir tekur á rás og um helgina feguröarsamkeppni strákar Freyr Hákonarson er umsjónarmaður keppninnar Herra Hafnarfjöröur sem fer fram á laugardags- kvöidiö. Hafnflrðingar láta ekki að sér hæða og þyrpast á keppnina Herra Hafnaríjörður sem sam- nefnd herrafataverslun stendur fyrir á kaffihúsinu Firðinum. Þetta er I fimmta skipti sem keppnin er haldin og í fyrri skipt- in var bæði fjölmennt og góð- mennt. „Já, hingað til hafa fjögur til fimm hundruð manns mætt á keppnina," segir Freyr Hákonar- son sem skipuleggur skemmtileg- heitin. Eru keppendurnir bara úr Hafnarjiröi? „Nei, öllum er velkomið að sækja um þátttöku. Ég held að þeir séu aðeins þrir eða fjórir úr Hafnarflrði. Annars koma þeir alls staðar af landinu. Þetta er ekki keppni um flottasta Hafn- firðinginn. Verslunin Herra Hafnarfjörður heldur keppnina og dómnefndin reynir að velja þann sem tekur sig best út í klæðnaðinum frá búðinni.“ Eru veglegir vinningar í boöi? „Já, ætli fyrsti vinningur sé ekki um 300 þúsund. Hann hljóð- ar upp á sólarlandaferð fyrir tvo, svítuna á Hótel Borg yfir heila helgi, Spoon-úr, málverk eftir Tolla og fataúttekt fyrir 60.000 krónur í versluninnni Herra Hafnarfjörður. Svo þaö er til mikils aö vinna: „Já, enda sóttu mjög margir um þátttöku, miklu fleiri en ég átti von á, og bæði huggulegir og virkilega flottir strákar. Það er líka gott i þeim hljóðið. Við buð- um þeim út að borða á A. Hansen og af þeirri ferð að dæma voru menn orðnir ansi heitir.“ í hvernig fötum koma þeir fram? „ S t r á k - arnir koma fram í Boxers-nær- buxum frá Punto Blanco og í fötum frá Herra Hafnar- firði. Annars verða fleiri tísku- sýningar frá búðunum sem eru mætir beint eftir æfingu á gigg. Það á víst að halda uppi hörkustemningu fram eftir nóttu á Kringlukránni. Athugiö aö það er stranglega þannað að vera að ráfa út af kránni til þess að fara nakin í bað í gosbrunninum. Böl 1 %/ Fókus býður á ball með Stjórninni i Þjóð- leikhúskjallaranum. Klipptu út boðsmiðann aftast í blaðinu og mættu í dansskónum. Stjórnin fagnar 10 ára starfsafmæli um þess- ar mundir og er einnig nýbúin að gefa út geisladiskinn @2000. Hún mun taka bæði gömul og ný lög á þessu balli og má búast við þrusustuði eins og alltaf á böllum með Stjórninni. Mætið snemma og þiggið veitingar á barnum. Það er enginn annar en skagfirski eilífðarsveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson sem mætir ásamt hljómsveit sinni á Naustkrána í kvöld og skemmtir gestum þar til kl. 3. Út á dansgólfið með ykkur! Áhugafólk um línudans tryllist úr eftirvæntingu, gleði og öðrum góðum hvötum. Það veröur árlegt haustball í Lionssalnum, Auðbrekku 25. Svaka, svaka, svaka dúndurball. Elsa sér um tónlistarstuðið og dansgleðin hefst kl.22:00. Það kostar átta- hundruökall að mæta og afar ráðlegt að koma í kúrekastígvélum. Barinn er galopinn. Næturgalinn tekur undir með tónlistarfólkinu Margréti og Baldri. Feikilegt tónafióð og allir verða galnir. Það eru Bara 2 sem leika fýrir dansi á „Á fostudagskvöldið verður Buttercup aö taka upp myndband við lagið, Allt á útsölu, af sam- nefndum diski. Þetta myndband verður líklega tekið upp í einhverri verslun og á eftir skellum við kannski í okkur nokkrum bjórum. Á laugar- daginn ætla ég að sofa út með kærustunni, írisi Kristinsdóttur, sem er einnig mikill söngfugl eins og ég en hún er í hljómsveitinni írafár. Svo pöntum við okkur líklega pitsu svona í hádegiskvöldmatinn. Á laugardagskvöldið fer ég svo á eitthvað skrall. Ætli maður fari ekki á Skuggann, svo á Astró og endi á Gauknum. Á sunnudaginn er svo planið að við ljúkum við myndbandið. Þetta myndi ég kalla frekar ró- lega helgi." Catalínu f Hamraborginni. Gestir staðarins gera sér fábreytnina að góðu enda fer hún fram úr björtustu vonum og sigrar hjörtu við- staddra endanlega. ©K1ass í k í ár er Barnakór Grensáskirkju tiu ára og eru í tilefni af því afmælistónleikar í Langholts- kirkju f kvöld, kl. 20. Auk barnakórsins eru flytjendur Kammerkór I, yngri félagar, Kam- merkór II, eldri félagar, Kvennakórinn Vox Fem- inae, Björk Jónsdóttir sópransöngkona, Svana Vfkingsdóttir píanóleikari og Margrét Jóhanna Pálmadóttir, stjórnandi. •Sveitin Skugga-Baldur gerir vfðreist og Húsvfkingar ærast þegar hann birtist fagnandi í Hlöðufelli. Börn og unglingar undir 16 verða þó að bfða betri tfma. Aðrir mæta galvaskir og borga 1000 kr. tyrir alsherjargleðina. Hljómsveitin Sólon spilar úr sér allt vit á Kaffi Akureyri. Það verður svakalega feikilega djúsf. Lundinn í Vestmannaeyjum flaggar hljómsveit- inni Blístró. Allir blístra sig hása og elska sjálfa sig og aðra. Jósí bróðir og syndir Dóra æra lýðinn á Odd- vitanum og hann verður endanlega vitlaus þegar fiðluleikarinn Valmari Valjatos stekkur fram. Hljómsveitin Sixties gerir ailt kolvitlaust á Mótel Venusi f Borgarnesi. Svakastuð. Hljómsveitin Gildrumezz tekur skemmtistaö- inn Við Pollinn með trompi. Tilefnið er útgáfa geisladisksins CCR. Keflvfkingar ærast þegar Þotuliðið þeytir stað- argestum á Ránni út í helbera alsælu. •Leikhús Þá er Krítarhringurinn í Kákasus eftir sjálf- an Bertolt Brecht rúllaður af stað á stóra sviði Þjóðleikhússins. Fólk keppist við að hæla þessarri frábæru uppsetningu og er sagt að þetta sé það besta sem hefur rambað á stóra sviðið f langan tíma. Fjöldinn allur af ieikurum fer á kostum f stykkinu og er sviðs- myndin einkar glæsileg. Drífðu þig að panta miða, sfminn er 5511200. Það er alveg endalaust sem hann Jón Gnarr er fýndinn og það sýnir hann og sannar í frábæru uppistandi, Ég var einu sinni nörd. Honum til hjálpar er fyndnasti maður íslands, Pétur Jö- hann Sigfússon, og þykir hann vera langtum fyndnari en Sveinn Waage. Sýningin hefst kl.21 í Loftkastalanum en satt að segja eru ekki mikl- ar líkur á að fá miða. Tékkaðu í síma 552 3000. Stefán Karl fer á kostum í hlutverki pirraðs uppa á leið um háloftin. 1000 eyja sósa er skrifað af Hallgrími Helgasyni og er sýnt meö léttum málsverði f lönó kl.12. Drffið ykkur þvf þeir fara að henda Sósunni út. Iðnó er byrjað að sýna leikritið Frankie og Johnny og er það sýnt kl. 20.30. Nú eru það Halldóra Björnsdóttir og Kjartan Guðjónsson sem leika i stað Michelle og Pacino. Þau standa sig miklu betur með dyggri leikstjórn Viðars Eggertssonar. Verkið virðist allavega ætla að fara vel af stað því það er búið að vera uppselt á nokkrar sýningar og þvf er sniö- ugt að hringja í Iðnó í síma 530 3030 og panta miða. Enn er Hellisbúinn að blíva feitt. Gæinn f lend- arskýlunni virðist einfaldlega höfða til innstu hvata nútímamannsins því það er eiginlega alltaf uppselt. Sýningin hefst kl.20 I íslensku Óperunni en síminn í miðasölunni er 551- 1475. Meira fyrir eyrað er söngskemmtun með lög- um Jóhanns G. Jóhannssonarvið Ijóð Þórarins Eldjárns í tilefni af hálfrar aldar afmæli Þórar- ins. Þar syngja þau Sigrún Hjálmtýsdóttir, Örn Árnason og Stefán Karl af mikilli list á Smíöa- verkstæðinu í Þjóðleikhúsinu kl.20.30. María Ellingsen leikur aðalhlutverkið f Sölku sem er einmitt ástarsaga eftir Halldór kallinn Laxness. Hafnarfjarðarleikhúsiö á heiðurinn af þessari uppfærslu en sýningin I kvöld hefst kl.20. Á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu í kvöld er sfðasta sýning á Vorið vaknar eftir Frank Wedekind. Skiptar skoðanir eru um ágæti sýn- ingarinnar en Halldór Gylfa þykir þó fróa sér af mikilli list og eru margar sviðslausnir einnig ágætar. Vertu umræðuhæfur og drffðu þig áður en það er of seint, sýningin hefst kl.19. •Kabarett i/ Mörg af bestu börnum þjóðarinnar úr lista- mannastétt safna undirskriftum f fjölmenn- ustu verslunarmiðstöðvum höfuðborgarsvæð- isins um helgina. Söfn- unin er til stuðnings kröf- unni um að lögformlegt umhverfismat fari fram vegna fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar. Listabörnin kátu verða á ferðinni frá föstudegi til sunnudags. Af þeim sem safna undirskriftum má nefna framkvæmda- stjóra söfnunarinnar Jakob Frímann Magnús- son tónlistarmann, Ragnhildi Gísladóttur, Valdimar Flygering, Eddu Björgvinsdóttur, \/=Fókus mælir með I =Athyglisvert S-K-l-F-A-N i .i ■ .. — Góða skemmtun Stendur þú fyrir einhverju? Sendu upplýsingar í e-mail fokus@fokus.is / fax 550 5020 staðir á Islandi Reykjavík: Austurstræti 3, Sudurlandsbr. 46, Esso-stöðin Ártúnshöfða & Kringlunni. Hafnarfjörður: Esso-stöðin, Lækjargötu 46, Esso-stöðin, Reykjavíkurvegi 54. Keflavik: Hafnargötu 32. Akureyri: Kaupvangsstr. 1. «SUBUJRY* Perskleiki er okkar bragð.’ 19. nóvember 1999 f ÓkblS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.