Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Page 22
Midvikudagur
24. nóvember
• Krár
Café Romance kynnir breska píanóleikarann
Joseph O'Brian. Hann fer liprum fingrum um
píanóiö og staðargestir verða ölvaðir af
hreinni lífsgleði.
Fónkmaster 2000 mætir í fönkveislu á
Glaumbar ásamt nýrri fönksveit sem enginn
þekkir nafnið á. Veigar eru á hóflegu verði og
aðgangur ókeypis.
Kempurnar Ingvar V. og Gunni Skímó taka
nokkra létta slagara á Wunderbar í kvöld. Þeir
vilja að allir fái sér fimm í fötu á 1000 kall
áður en þeir byrja að hlusta. Af hverju ætli það
sé?
Kyssum Gauk á Stöng því Klss mætir í afmæl-
isveisluna og kossaflóðiö ætlar engan enda
að taka. Varalitur út á kinnar og munnvatn nið-
ur á tær.
Gummi P. og Eddi Lár. blása tærum unaöi í
Næsta bar.
<Leikhús
Þá er Krítarhringurinn í Kákasus eftir sjálfan
Bertolt Brecht rúllaöur af staö á stóra sviði
Þjóöleikhússins. Fólk keppist viö aö hæla
þessarri frábæru uppsetningu og er sagt að
þetta sé það besta sem hefur rambaö á stóra
sviðið 1 langan tíma. Fjöldinn allur af leikurum
fer á kostum í stykkinu og er sviðsmyndin
einkar glæsileg. Dríföu þig að panta miða,
siminn er 5511200.
i^ilenska óperan er komin á fullt undir traustri
hönd nýs óperustjóra. Nýlega var Mannsrödd-
In, La voix humaine, ópera eftir Francis Pou-
lene frumsýnd og ku hún vera nokkuð góð.
Þetta er hádegissýning, góð nýbreytni, og
hefst sýningin í dag kl.11.30 meö léttum
málsverði.
•Kabarett
)/ Hinar eldhressu söngkonur, Margrét Eir
og Hera Björk, bjóða söngelskum gestum
Iðnó upp á bland í poka á tónleikum sem bera
yfirskriftína Tón-leikar. Þær ætla að syngja alls
konar lög, bæöi sönglög, söngleikjalög, djass,
frönsk lög og danslög frá öllum heimsálfum.
xMeð þeim kemur fram hljómsveit skipuð hljóð-
færaleikurunum Kristjáni Eldjárn, Jóni Rafns-
syni og Jóhanni Hjörleifssyni. Hljómsveitar-
stjóri er Karl Olgeirsson. Tónleikarnir hefiast
klukkan 21.
< Sport
Átta lið mætast í 1. deild kvenna í handbolta.
Haukar keppa við Víking viö Strandgötu og
hefst leikur þeirra klukkan 18. FH og Fram
keppa í Kaplakrika, Grótta/KR og Stjarnan
mætast í sínum leik úti á Seltjarnarnesi og
loks leika UMFA og ÍR á Varmá. Allir þessir
leikir hefiast klukkan 20.
Haukar mæta Val í Nissandeildinni í hand-
knattleik klukkan 20 við Strandgötu í Hafnar-
firði.
Fimmtudagíif
25. nóvember
•Krár
Café Romance kynnir breska píanóleikarann
Joseph OVBrian. Hann fer liprum fingrum um
píanóið og staðargestir verða ölvaðir af
hreinni lífsgleði.
Papar mæta í endalausan og umfram allt
gleðilegan afmælisfagnaðinn á Gauki á
Stöng. Gaman, gaman, gaman.
Nú er bjórinn kominn upp í 1390 krónur á
Wunderbar, það er að segia ef keyptir eru
fimm saman í fötu. Hækkunin frá þvl á þriðju-
dag er bætt upp með sérvalinni dúndur góðri
skífutónlist sem stjórnað er af Pétri Jesus og
Matta Reggie. Undrið svíkur engan.
Þeir eru nú ýmsu vanir, bransakempurnar og
viskíraddirnar Rúnni Júl. og Siggi Dagbjarts.
Þannig ætti það ekki að taka mikið á þá þó að
eitthvað fari að hitna í kolunum á Kringlu-
kránni. Þá brjóta þeir bara flösku og stilla til
friðar. Svona á að gera þetta, strákar, gott
stöff!
•Klassík
í kvöld veröa tónleikar hjá Sinfóniuhljómsveit
íslands í Háskólabíói, tileinkaðir perlum tutt-
ugustu aldarinnar. Á verkefnaskrá eru verkin
The Chairman Dances, eftir mínimalistann
John Adams, 3. píanókonsert Prokofjevs og
vera uppselt á nokkrar sýningar og því er snið-
ugt að hringja I Iðnó I slma 530 3030 og
panta miða.
Leikfélag Reykjavlkur heldur áfram að sýna
Litlu hryllingsbúðina eftir þá Howard Ashman
og Alan Menken. Hún mælist vel fyrir hjá al-
menningi og þykja þau Stefán Karl, Valur
Freyr og Þórunn Lárusdóttir standa sig vel I
aðalhlutverkum. Bubbi er líka ágætis planta.
Sýningin hefst kl.20.
•Kabarett
Það verður bingó I Glæsibæ að vanda. Ekki vit-
laust að láta reyna á gæfuna I Ásgarði.
Forhertir bingóspilarar munu storma á enn eitt
bingóið I Ásgarði. Fyrsta talan verður dregin úr
pokanum klukkan 19.30 og I lok kvöldsins
þarf ekki að reikna með vonsviknum vinnings-
höfum.
Nú skunda línudansarar galvaskir I Lionssal-
inn, Auðbrekku 25, Kópavogi. Þar bíður Elsa
með tónlistina og stuðið. Stundvísleg mæting
klukkan 21.
iSíöustu forvöð
Myndlistarkonan Sigurrós Stefánsdóttir hefur
sýnt olíumyndir í Bílar og list, Vegamótastíg 4.
Yfirskrift sýningarinnar er „Á ferð". Þetta er 9.
einkasýning Sigurrósar en henni lýkur I dag.
•F undir
Ungir íslendingar lesa úr verkum sinum á
Súfistanum. Stefán Máni kynnir Myrkravélina
og Börkur Gunnarsson Sama og slöast. Andri
Snær Magnason les úr Sögunni af bláa hnett-
inum og Didda úr Gullinu I höfðinu. Lesturinn
hefst klukkan 20.
Góða skemmtun
Stendur þú
fyrir einhverju?
Sendu upiilýsingar i
e-mail fokus@fokus.is / fax 550 5020
Lifid eftir vmnu
mefXira. á.\
www.visir.is
Coniuntio eftir Snorra Sigfús Birgisson. Hljóm-
sveitarstjórinn verður Anne Manson og ein-
leikari á píanó verður Ástralinn Roger Wood-
ward. Tónleikarnir heflast klukkan og eru I
blárri áskriftarröð.
Kákasus eftir sjálfan
af staö á stóra sviði
Þjóðleikhússins. Fólk keppist við að hæla
þessarri frábæru uppsetningu og er sagt að
þetta sé það besta sem hefur rambað á stóra
sviöið I langan tlma. Fjöldinn allur af leikurum
fer á kostum I stykkinu og er sviðsmyndin
einkar glæsileg. Drífðu þig að panta miöa,
slminn er 5511200.
Sýningum fer fækkandi á Fegurðardrottning-
unnl frá Línakri eftir Martin McDonagh. Feg-
urðardrottningin lætur samt fara vel um sig á
litla sviðinu i Borgarleikhúsinu kl.20 og biður
leikhúsgesti vinsamlegast að slökkva á frið-
þjófunum áöur en haldið er af stað.
Iðnó er byrjaö aö sýna leikritið Frankie og
Johnny og er það sýnt kl. 20.30. Nú eru það’
Halldóra Bjórnsdóttir og Kjartan Guðjónsson
sem leika I staö Michelle og Pacino. Þau
standa sig miklu betur meö dyggri leikstjórn
Viöars Eggertssonar. Verkið virðist allavega
ætla að fara vel af stað því það er búið að
Leikhús
Þá er Krrtarhringurinn í
Bertolt Brecht rúllaður
Elsti p
Markmiðið var að losna við raðamenninguna og sleppa við dyraverði," segir Ulfar einn af þremur eigendum Gauksins.
Gaukur á Stöng hóf ferilinn fyr-
ir sextán árum síðan og bauð upp
á bjórlíki og dinnertónlist. í dag
er hann elsti pöbb landsmanna,
selur alvörubjór beint úr kranan-
um og sprautar lítríkri tónlistar-
flóru beint í æð pöbbagesta.
Næstu daga verður 16 ára afmæl-
inu fagnað með glans. Hljómsveit-
ir á borð við Ensími, Maus, Sól-
dögg, Jagúar og Mum stíga á
stokk. X-kynslóðin verður kynnt
fyrir bjórlíkinu og verð veiganna
verður í lægri kantinum. „Já,
Gaukurinn opnaði fyrstur af þess-
um pöbbum og seldi bjórlíki.
Hann átti að vera innlegg i menn-
ingarlífið sem uppistóð af klúbb-
um eins og Óðali og Broadway.
Það þurfti krá í skemmtanaflór-
una. Diskótek þar sem fólk stóð í
rööum til að komast inn. Mark-
miðið var að losna við raðamenn-
inguna og sleppa við dyraverði.
Strax fyrsta kvöldið varð spreng-
ing og við réðum varla við það.
Daginn eftir var ráðinn dyravörð-
ur,“ segir Úlfar Þórðarson, einn af
þremur eigendum Gauksins. Úlfar
hefur fylgt Gauknum meira og
minna frá upphafi og man fæð-
ingu staðarins glöggt.
Hvernig var stemningin í
upphafi?
„Það var ótrúleg stemning. Ætl-
unin var að Gaukur á Stöng yrði
krá og matsölustaður þar sem fólk
gæti fengið sér snarl og bjór. Það
var tónlist 2-3 í viku, svona létt
dinnertónlist. Guðmundur Ing-
ólfsson og Guðmundur Stein-
grímsson léku jass, nokkrir ungir
strákar stofnuðu Jassgaukana og
Rokkabillýbandið kom fram.“
Tónlistarpottur
„Tónlistarlífið vatt upp á sig.
Eyjólfur Kristjánsson og Bítla-
vinafélagið komu í kjölfarið á
Rokkabillýbandinu og kringum
‘89 hófst lifandi tónlist á hverju
kvöldi," útskýrir Úlfar.
Nú hefur Gaukur á Stöng staöist
tímans tönn meóan aðrir barir opna
og loka. Hefuröu skýringu á því?
„Gaukur á Stöng hefur verið á
floti allan tímann. Við reynum að
fylgjast með því sem er í gangi í
tónlistinni. Þess vegna er Gaukur-
inn nokkurs konar grasrót í því
sem er að gerast i tónlistinni. Við
veitum ungum og efnilegum tón-
listamönnum tækifæri og blönd-
um því saman við það sem er að
gerast hverju sinni. Við bjóðum
upp á allar tónlistarstefnurnar,
rokk, popp, jass o.s.frv. Eiginlega
ajlt nema klassíkina en það stend-
ur til að bæta úr því,“ segir Úlfar
og bætir við að Gaukur á Stöng
reyni að skemmta fólki á sem
breiðustum grundvelli. Gaukur á
Stöng á að vera eitt allsherjar
skemmti- og tónlistarhús.
Það verður enginn svikinn af
þvi að heilsa upp á afmælisbarnið
sem heldur sannkallaða tónlistar-
veislu út mánuðinn.
Fókus og tiskuverslunin Kusk héldu skuggalegt
partí á Skugganum á föstudagskvöldiö þar sem
þoðið var upp á vin á þarnum og tiskusýningu
með stelpum frá Eskimo. Eigendur Kusk, þau
Dísa, Ámundi og Lísa, voru að sjálfsögðu á
staönum og er mál manna að allt hafi verið al-
veg brilliant. Þeir sem létu meðal annars sjá sig
vvoru Simbi klippari og félagar, Addi Knúts x-
Saga Film og félagar I Ungmennafélaginu
Watan Bc sem er félagsskapur nokkurra at-
hafnamanna hér I bæ, Raoul.einkaþjálfari og
bumbubani, Erla og Anna
skuggadrottningar með
meiru, Dóri , Ijósmyndari úr
Hausverkinum, var ekki að
taka myndir. B> Maggi Rikk ,
nýjasti vertlnn á Ozio, kikti
við, Jón Kári sást I góðum
hópi fólks, Rikki Daða,
landsliðskappi I fótbolta,
skallaði í stön^ina og inn og einnig var þar Auö-
unn Helga, varnarmaöur úr fótboltalandsliðinu,
og Gústi úr Hausverknum klikkar ekki á Skugg-
anum. Þaö gerðu ekki heldur félagarnir Magn-
Cs Ver og Sæmi sterki sem voru mættir sem og
Olli úr 17 sem tók vel á þvi. B>Mæja á Skjá ein-
um poppaði upp stemmninguna og Kristján
hjá Góðu fólki reyndi að auglýsa sig. Barði I
Bang Gang lét sjá sig sem og Linda, afgreiðslu-
stúlka I Hanz. Þórhallur x-titringur var mjög cool
á þvi, Friöjón frá Allied Domecq kom I góöra
vina hópi, svo I lokin þá var crew-ið frá Atlanta
I mjög góðu geymi og þar fór fremstur I flokki
Arngrímur eigandi. Annars var svo stappað alla
helgina á Skugganum að maður hefur sjaldan
séð annað eins.
Kaffibarinn var I góðu
stuði á föstudagskvöldið
þar sem Egill Helgason,
blaðamaður og skjá-
stjarna, vigði kvöldið með
veglegri fertugsafmælis-
veislu. Það var ríkjandi
gleði fram að miðnætti en
þá fóru fastakúnnar að
sýna sig. Friðrik Þór kvikmyndagerðargúrú birt-
ist glaðbeittur, Baltasar Kormákur, leikari,
leikstjóri og athafnaskáld, heilsaöi á báöa
bóga, Björn Jörundur gleðipinni heiðraði stað-
inn með nærveru sinni og Siggi I Gus Gus
gussaðist. Reynir Lyngdai kvikmyndagerðar-
maður kom, sá og sigraði, Oddný I Ensími sýndi
sig og aðstoðarleikstjórinn hugumstóri Fahat
Jaball skemmti sjálfum sér og öðrum. Rúsínan
I pylsuendanum var tónlistarkvendiö Móheiöur
Júlíusdóttir.
Bjartur gekk Ijósum logum og bauð I veglegt út-
gáfuparti á föstudagskvöldið.
Skáldafrömuðirnir réðu sér
ekki fyrir kæti og hópuðust
þyrstir til forleggjarans örláta.
Þar mátti sjá ritglaða parið
Evu Mínervu og Hrafn Jökuls-
son og annað ritglatt par
Geröi Kristínu og Kristján
kærastann hennar. Bragi Ólafs og Sjón krunk-
uðu kátan vísnasöng og Halli Jóns krunkaöi
jafnt um myndlist og skáldskap. Ljósmyndar-
arnir Páll Stefánsson og Einar Falur léku á alls
oddi, stórspekúlantinn Úlfhildur Dagsdóttir
spekúleraði og Halldór Guömundsson, útgáfu-
stjóri I Mál og menningu, sló á létta strengi.
Það var greinilegt að margir glöddust yfir opnun
franska rauðvínsbarsins Sirkus við Klapparstig-
inn sem fékk loksins leyfi til að opna á föstu-
dagskvöldið. Fullt var út úr dyrum mjög fljótlega
og færri komust að en vildu. Meðal þeirra fyrstu
sem mættir voru til að skoða dýröina var Óttar
Proppé hjá Máli og menningu í fríöum félags-
skap og Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld glaður
yfir því að vera sloppinn heim frá Dönum. Frakk-
ar búsettir á Islandi létu sig að sjálfsögðu ekki
vanta og var þar fremstur I flokki bókakápu-
skreytirinn Robert Guillemette með dóttur sinni
Ástu og Julie Coadou, sem nýveriö þreytti
frumraun sína hjá Skjá einum. Ellsabet Þor-
geirsdóttir, ritstjóri Veru, var hæst ánægð með
rauðvínið og sama má segja um Diddu þótt hún
hefði hægt um sig I félagsskap Þórs Eldons. Þá
slæddust þarna inn af gömlum vana nokkrir af
fastagestum Grand Rokks, þeirra á meðal Stella
rokkari og Birna Þórðar. Þegar Egill Helgason
hafði kvatt gesti sina á Kaffibarnum kom hann
líka yfir, enda þekktur Frakklandsvinur. Sökum
fjölmennis komst Egill þó aðeins inn á góðvild
tvlfara sins I Geirfuglunum, rétt eins og systir
hans Halla og Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona.
Það var ekki eins glatt á Kaffibarnum á laugar-
dagskvöldið en glatt þó. Kvikmyndagerðarmaö-
urinn Kristófer Dignus brosti framan I heiminn
og lýðurinn trylltist. Gagga kvíkmyndagerðar-
kvendi lét einnig Ijós sitt sklna og Ingvar at-
hafnaskáld lét fara vel um sig. Kannski var ekki
nógu glatt á Kaffibarnum því
korteri seinna sást til kvik-
myndakempnanna Kristó-
fers og Göggu á Grand
Rokk. Egill Ólafsson
lífskúnstner kíkti llka við á
Grand Rokk sem var grand
að vanda. Tónlistarkvendið
Stella Hauks hló og gladdi
beygð hjörtu og einhvers staöar grillti I enn eina
kvikmyndakempuna, hann Gunna Páls.
Gamla kaffibúllan Prikið tekur stórkarlalegum
umskiptum og á laugardagskvöldið tútnaði
hornhúsið út af helberum fagnaði. BJörgvin G.
Sigurösson, undrabarn I þingmennsku, og Dalla
forsetadóttir vildu gleöjast með glöðum en dyra-
vörðurinn hrópaði lokað og
skellti hurðinni. Þau héldu á
mekku ungpólitíkusanna,
Sólon íslandus. Einhverjir
náðu þó að fagna á Prikinu.
Þar á meðal þúsundvolta-
megastjarnan Björk, leikar-
inn Hilmir Snær, stórundrið
Dóra Wonder og
llfskúnstnerskvendið Margrét Vilhjálmsdóttir.
mrs'* /
22
f Ó k U S 19. nóvember 1999