Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1999, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Hálfs árs biö eftir bæklunaraögerðum á Landspítalanum:
Vakna grátandi
af kvölum
- segir Gróa Ormsdóttir sem heldur sér gangandi á lyfjum
„Þetta hefur verið mjög erfiður
tími. Verkirnir eru stanslausir en
er haldið niðri með sterkum lyíjum.
Það kemur fyrir að ég vakna grát-
andi af kvölum,“ segir Gróa Orms-
dóttir, 63 ára Reykvíkingur, sem er
með ónýtan hægri hnjálið en fær
ekki aðgerð á bæklunardeild Land-
spítalans fyrr en jafnvel eftir 6 mán-
uði.
Þrautaganga Gróu hefur staðið allt
síðan í júli í sumar þegar hún leitaði
fyrst læknis eftir mikla verki í fætin-
um. í ágúst kom í ljós að hnjáliðurinn
var ónýtur en þá hafði hún verið vik-
um saman á sterkum verkjalyfjum
auk róandi lyfja til að geta sofnað. Þá
þarf hún magalyf vegna aukaverkana
hinna lyfjanna. Alls er lyfjakostnaður
Gróu um 10 þúsund krónur á mánuði
meðan á biðinni stendur.
„Ég er í fullri vinnu og mér skilst á
þeim sérfræðingi sem annast mig að
þess vegna þurfi ég „aðeins" að biða f
sex mánuði. Það þýðir að verði ég svo
Krafist lögbanns:
Höldum
ótrauðir
áfram
Jónas Garðars-
son, formaður
Sjómannafélags
Reykjavíkur.
- segir Jónas Garðarsson
„Það er búið að boða okkur til
sýslumanns í dag því fulltrúar
útgerðarinnar hafa beðið um
lögbann á aðgerðimar. Við sjá-
um bara hvað setur en það er
nokkuð sérkennilegt ef íslensk
stjórnvöld
ætla að fara
þjösnast á
því að ís-
lenskir út-
gerðarmenn
geti nýtt sér
svona ódýrt
vinnuafl,“
segir Jónas
Garðarsson,
formaður
Sjómannafé-
lags Reykja-
víkur, en
sjómannafé-
lagið hefur
undanfarið hindrað að skipið
Nordheim sé affermt í Sunda-
höfn. BSRB lýsti í gær yfir
stuðningi við aðgerðimar en
áöur hafði ASÍ gert slíkt hið
sama. Skipið er skráð á Kýpur
og er í leiguverkefnum fyrir
Eimskip. Útgerðarfélagið hefur
hafnað þvi að gera lágmarks-
launasamning við áhöfnina upp
á 1100 dollara mánaðarlaun en
hásetar hafa nú um 300 dollara á
mánuði. Fulltrúar útgerðarinn-
ar höfðu áður beðið um lögreglu-
fylgd við uppskipunina en því
var hafnað. „Skipverjamir þora
ekkert að segja um málið. Það er
helst að yfirmennirnir segi eitt-
hvað því þeir eru á skikkanleg-
um launum en hinir þegja bara.
Staðan er allavega sú að við
höldum okkar aðgerðum ótrauð-
ir áfram,“ segir Jónas.
-hdm
heppin að komast
að eftir sex mán-
uði verð ég búin
að bíða og þjást í
10 mánuði. Þetta
ástand er nánast
óbærilegt en það
bjargar mér að ég
sit við vinnu
mína. Lff mitt
gengur út á það
að éta verkjatöfl-
ur til að fá smá-
frið frá verkjun-
um og komast í
vinnuna. Þá þarf
ég að éta maga-
töflur til að fá
ekki magasár af
verkjatöflunum.
Ég hef vaknað
grátandi af kvöl-
um og það er eng-
in leið til að ég
geti sinnt heimil-
inu ásamt vinn-
unni. Dóttir mín
og barnabam
Gróa Ormsdóttir þarf að taka þrenns konar lyf til að
halda út sólarhringinn á meðan hún er á biðlista eftir að-
gerð. DV-mynd E.ÓI.
hafa hlaupið undir bagga þar og þrif-
ið heima hjá mér. Ég get ekki farið í
göngutúra eða gert neitt sem kallar á
hreyfmgu vegna þjáninga í fætinum
og eina ráðið er að þyngja á lyfja-
skammtinum," segir Gróa.
Hún segist hafa áhyggjur af því að
ánetjast hinum fimasterku verkjalyfj-
um á meðan á biðinni stendur.
„Ég veit ekki hvemig mér gengur
að losna úr þessum vítahring verkja-
lyfjanna. Það á eftir að koma í ljós en
margt bendir til þess að ég verði háð
þessu,“ segir hún.
Hún segist undrandi á því að að-
eins séu 25 rúm á bæklunardeild
Landspítalans fyrir sjúklinga þeirra 5
lækna sem geri bæklunaraðgerðir.
„Það hlýtur að vera eitthvað mikið
að í kerfinu. Getur verið að þeir sem
stjóma þessum málum viti ekki að á
bak við hvert nafn á biðlistanum er
löng þjáningar- og raunasaga," spyr
Gróa.
DV reyndi að ná í Halldór Jónsson,
yfirlækni bæklunardeildar Landspít-
alans en hann svaraði ekki skilaboð-
um. -rt
Frá fundi Reykjavíkurdeildar landssamtaka foreldrafélaga leikskóla í fyrrakvöld á Hótel Loftleiðum. DV-mynd E.ÓI.
Leikskólagjöld hækka um 13% frá og meö áramótum:
Málsókn hugsanleg
- segir Elísabet Gísladóttir sem segir samstööu mikla hjá landssamtökum foreldrafélaga
„Á fundinum vom ítrekuð mótmæl-
in við hækkuninni. Einnig kom fram
að líklega væri ekki lagaheimild fyrir
þessari gjaldskrártöku leikskólanna og
var ráðgert að kanna það frekar og
hugsanlega fara í mál,“ segir Elísabet
Gísladóttir, formaður Reykjavíkur-
deildar landssamtaka foreldrafélaga
leikskóla, eftir fund landssamtakanna
í fyrrakvöld, en Leikskólaráð ákvað í
fyrradag að hækka leikskólagjöld um
13% frá og með næstu áramótum. Er
þetta hækkun upp á 2500 krónur á
mánuði á bam fyrir gifta foreldra ef
bamið er í gæslu átta tíma á dag.
Höfðu samtökin búist við 11% hækk-
un. „Fólk var mjög einróma á fundin-
um en það er orðið þreytt á þessu og
því er mikil samstaða og samkennd,"
segir Elísabet.
„Það em auðvitað alltaf pólitískar
spumingar um hvað á að gera en það er
alveg ljóst að það hefur verið þannig að
foreldrar greiða hluta af þessu. Þeir
greiða núna þriðjung en Reykjavíkur-
borg 2/3 og ef þetta hlutfall ætti að vera
lægra þyrfti einfaldlega að taka pening-
ana með hærri sköttum eða einhveiju
slíku, einhvers staðar ff á verður að taka
peningana. Það kostar þetta að reka
leikskólana og af þvi greiða foreldramir
1/3,“ segir Kristín Blöndal, formaður
Leikskólaráðs Reykjavíkur. „Borgarráð
samþykkti fyrir viku að láta 70 milljón-
ir til leikskóla Reykjavíkur á næsta ári
til viðbótar við aðrar 70 milljónir sem
þegar var búið að ákveða. Jafnframt fól
borgarráð leikskólum Reykjavíkur að
fmna leið til að hækka hlutdeild for-
eldra í rekstrarkostnaði leikskóla í átt-
ina að þvi sem hann var árið 1997. Þá
var hlutur foreldra 34,5% en var nú
kominn niður í 32,2%. Til þess að ná
þessari hlutdeild foreldra kom í ljós að
það þurfti 13% hækkun og er hlutur for-
eldra nú þriðjungur af rekstrarkostnað-
inum sem er talið vera eðlilegt."
-hdm
Björgun í Húsavíkurhöfn
Fjórir Húsvíkingar björguðu rúss-
neskum sjómanni sem féll milli
skips og bryggju í Húsavíkurhöfii
aðfaranótt sunnudags. Maðurinn
var hætt kominn. Atburðurinn átti
sér stað um klukkan 2 aðfaranótt
sunnudags þegar verið var að landa
rækju frá Noregi úr rússnesku
skipi. Dagur sagði frá.
RÚV blessar Kringluna
Meirihluti útvarpsráðs lagði í gær
blessun sína yfir fýrirhugaða alls 38
klukkustunda útsendingu þáttarins
„Brot úr degi“ á Rás 2 frá Kringl-
unni í desember, en þrír fulltrúar
minnihlutans lögðust gegn málinu.
Dagur sagði frá.
Hafnarfjaröarhalli
Tryggvi Harðar-
son, bæjarfulltrúi
Samfylkingar í
Hafnarfirði, telur
að ætla megi að af-
koma bæjarsjóðs
verði neikvæð um
1200 miljónir króna
á næsta ári. Þar af sé hrein skulda-
aukning um 950 milljónir króna. Það
sé því ekki rétt hjá meirihluta Sjálf-
stæðis- og Framsóknarflokks í bæjar-
stjóminni að niðurgreiðsla skulda
verði um 200 miljónir króna á næsta
ári. Dagur sagði frá.
Hjón ríkari
í skýrslu sem tekin var saman að
beiðni Jóhönnu Sigurðardóttur og
lögð er fram á Alþingi í gær segir
m.a. að tekjur hjóna og sambýlis-
fólks hafl hækkað meira en tekjur
einstæðra frá árinu 1995. Árið 1997
vom tekjur einstæðra feðra hærri
en tekjur einstæðra mæðra og sam-
eiginlegar eignir hjóna og sambýlis-
fólks vora að meðaltali um 600%
meiri en eignir einstæðra foreldra.
Vísir.is sagði frá.
16 milljarða aukaskattur
Skattar á ein-
staklinga og fyrir-
tæki hafa aukist
um 16 milljarða frá
því í fyrra. Skatt-
tekjur hafa m.a.
aukist vegna þess
að skattleysismörk
og bætur hafa ekki hækkað í sam-
ræmi við almennar launabreyting-
ar. Stöð 2 greindi frá.
Kraftur í Akureyringum
Akureyringar era mun kröftugri í
byggingu íbúðarhúsnæðis á þessu
ári en árunum á undan. Bygging var
hafm á samtals 152 íbúðum en til
samanburðar var hafrn bygging á 59
íbúðum í fyrra, svipað og árin þar á
undan. Dagur sagði ffá.
Fótboltinn í hús
Nýtt knattspymuhús mun risa í
Grafarvogi við Víkurveg, samkvæmt
tillögu nefndar sem borgarstjóri skip-
aði fýrr á þessu ári og samþykkt var
í borgarráði í gær. Mbl. sagði frá.
Áfram í gæslu
Tveir karlmenn, 37 og 39 ára,
vora úrskurðaðir í áframhaldandi
gæsluvarðhald í þrjár vikur í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær vegna
rannsóknar á tilraun til að smygla
30 kilóum af hassi frá Barcelona.
ESB-tregöa
Halldór Ásgrímsson utanrikisráð-
herra sagði að loknum fundi utan-
ríkis- og vamarmálaráðherra Vest-
ur-Evrópusambandsins (VES) í gær,
að sum ESB-ríkin sýndu „fyrirstöðu
og tregðu" vegna sjónarmiða auka-
aðildarríkjanna að VES, NATO-ríkj-
anna íslands, Noregs, Tyrklands,
Póllands, Tékklands og Ungverja-
lands. Sagði Halldór íslendinga hafa
bókað óánægju með framgang mála.
Mbl. sagði frá.
Ég mótmæli allur
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra berst nú af
öllum þunga fyrir
því að halda ráð-
herradómi. Áhugi
hans fyrir um-
sömdu embætti hjá
Byggðastofhun
kvað hafa minnk-
að. Valgerður Sverrisdóttir, sem átti
að taka við af Páli um áramót, segist
ekkert geta sagt, málið væri við-
kvæmt. Dagur sagði frá. -GAR