Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1999, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1999, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 Útlönd Stuttar fréttir dv Jeffrey Archer ætlar ekki aö gefa sig: Neitar að endur- greiða bæturnar Amerískir dátar yfir sig hrifnir af Chelsea Clinton Chelsea Clinton, nítján ára dóttir bandarísku forsetahjón- anna, stal senunni þegar hún heimsótti höfuðstöðvar banda- rískra hermanna í Kosovo með foður sínum í gær. Þegar forsetinn klifraði upp á svið til að ávarpa hermennina voru ailra augu á Chelsea sem gekk um skælbrosandi og heilsaði á báða bóga. Clinton gat ekki stillt sig um að kvarta, í grínaktugum tóni þó, þegar yfirmaður her- stöðvarinnar hafi kynnt hann fyr- ir viðstöddum. „Eftir viðtökunum sem dóttir mín fékk hjá ykkur að dæma, hélt ég að hann ætlaöi að segja að ég væri pabbi Chelsea," sagði forset- inn. Clinton kom heim til Banda- ríkjanna í morgun eftir tíu daga ferð til landanna við Miðjarðar- hafið austanvert. Hann var í Kosovo í gær þar sem hann hvatti Albani til að fyrirgefa Serbum sem ráku þá á brott frá heimilum sínum þar sem tími átaka væri liðinn. Rússar halda áfram stórsókn- inni í Tsjetsjeníu Rússneski herinn hélt i gær áfram sókn sinni inn í Tsjetsjeníu til að ná landinu undir sig. Yfir- mennirnir gera sér vonir um að geta tekið höfuðborgina Grozní og aðra bæi án þess að til átaka komi. Samkvæmt fréttum frá Moskvu í gærkvöld voru gerðar loftárásir á fjölda héraða í Tsjetsjeníu í gær. Meðal annars var ráöist á bæinn Úrus-Martan, suðvestur af höfuð- borginni, helsta vígi uppreisnar- manna. Fréttir herma að um þrjú þús- und íslamskir uppreisnarmenn séu að búa sig undir að veija Grozní. Mikið mannfall varð í borginni þegar Rússar hertóku hana i stríðinu 1994 til 1996. Breski stjórnmálamaðurinn og rithöfundurinn Jeffrey Archer lá- varður neitar, að sögn, að endur- greiða dagblaðinu Daily Star sextíu milljónir króna sem hann fékk í miskabætur fyrir frétt í blaðinu fyr- ir tólf árum, að því er fram kemur á vefsíðu BBC. Blaðið hélt því fram að Archer hefði átt ástarfund með vændiskonu að nafni Monica Coghl- an. Archer tilkynnti um helgina að hann væri hættur við framboð til borgarstjóra London fyrir íhalds- flokkinn eftir að upp komst að hann hafði fengið vin sinn til að bera ljúg- vitni í meiðyrðamálinu gegn Daily Star á sínum tíma. Vinurinn veitti honum falska fjarvistarsönnun. Daily Star hefur gefiö Archer frest til klukkan 17 á morgun til að greiða því um 360 milljónir króna, það er miskabæturnar og máls- kostnað Archers, auk vaxta. Að öðr- um kosti verði farið fram á endur- upptöku málsins. Stuðningsmenn Archers, sem hef- ur haldið sig á heimili sínu nærri Cambridge frá því hneykslið komst um sögðu ekkert hæft í fréttum um að hann ætlaði að segja sig úr íhaldsflokknum. Mjög er þrýst á Archer að segja sig úr flokknum áð- ur en siðanefnd hans lýkur rann- sókn sinni á málinu. „Jeffrey Archer ætlar ekki að segja sig úr íhaldsflokknum," sagði Stephan Shakespeare, talsmaður lá- varðarins, í gær. Maðurinn sem kom á framfæri frásögn vinarsins sem bar ljúgvitni fyrir Archer heitir Max Clifford og er kynningarfulltrúi, eða PR-maður, að atvinnu. Hann hefur lagt frama fleiri stjómmálamanna úr röðum íhaldsins í rúst en Verkamanna- flokkinn getur nokkru sinni dreymt um, segir í norska blaöinu Aften- posten. Þótt almenningur þekki Clifford ekki gildir hið sama ekki um menn í opinberu lífi. Clifford hefur nefni- lega meiri völd en nokkur annar til að ráða því hvort menn ljúki starfsævi sinni í ríkidæmi eða nið- urlægingu og tárum. Þegar æsiblöðin birta forsíðu- fréttir af einhverju misjöfnu í fari stjómmálamanna eða annarra landsþekktra manna, spyrja fjöl- miðlamenn sig alltaf sömu spum- ingarinnar: „Var Max hér á ferðinni einu sinni enn?“ Clifford sá um að semja við æsi- blaðið News of the World um greiðslur til handa vini Archers sem bar ljúgvitni fyrir hann. Sjálfur mun hann hafa fengið rúmar sex mUljónir íslenskra króna fyrir. Eiginkona fyrrverandi bananaekruverkamanns í Níkaragva heldur hér á fjögurra ára barni þeirra sem er vanskapað. Konan var ein hundraða landbúnaðarverkamanna sem efndu í gær til mótmæla í Managva gegn notkun illgresiseyð- isins Nemagons. Afhentu mótmælendur skjöl í bandaríska sendiráðinu og kröfðust skaðabóta frá fyrirtækinu Stand- ard Fruit Company. Fullyrða verkamennirnir að börn þeirra fæðist vansköpuð vegna vinnu þeirra þar sem illgresiseyðinum hefur verið úðað. Símamynd Reuter GINUR Rekki ehf. Helluhrauni 10, 220 Hafnarfírði Sími 5650980 , GSM 895-9088 Dauösfollum af völdum alnæmis Qölgar: 36 milljónir smitaðar Yflr 2,6 milljónir manna hafa lát- ist af völdum alnæmis á þessu ári. Þetta er hæsta dánartalan á einu ári síðan faraldurinn hófst. Á næsta árþúsundi mun dauðsföllun- um fjölga að mati alnæmissérfræð- inga. Samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum hefur verið tilkynnt um 5,6 milljónir nýrra smittilfella á þessu ári. Alls eru 33,6 milljónir smitaðar. „Það er langt frá því að faraldur- inn hafi liðið hjá. Hann er þvi mið- ur að versna,“ sagði Peter Piot, for- stjóri þeirrar deildar Sameinuðu þjóðanna sem reynir að hindra út- breiðslu alnæmis, á fundi með fréttamönnum í gær. „Frá því að alnæmi uppgötvaðist 1981 hafa um 50 milljónir manna smitast," greindi Piot jafhframt frá. Verst er ástandið fyrir sunnan Myndasýning var haldin í Kuala Lumpur í tengslum við alnæmis- ráðstefnu þar. Símamynd Reuter Sahara i Afríku. Þar eru um 70 pró- sent allra alnæmissmitaðra og al- næmissjúkra. Á þessu ári hefur al- næmi aukist hraðast i Austur-Evr- ópu og i Mið-Asíu. Sprautunotkun í tengslum við fíkniefnaneyslu er kennt um i skýrslu frá Alþjóðaheil- brigðismálastofnuninni. Nær helmingur allra alnæmis- veikra smitaðist undir 25 ára aldri. Helmingurinn mun látast áður en hann nær 35 ára aldri. 11,2 milljónir bama undir 15 ára hafa misst móður sína af völdum al- næmis. Áætlað er að um 570 þús- und böm séu smituð af alnæmi. Yf- ir 90 prósent þeirra smituðust af mæðrum sínum við fæðingu eða við bijóstagjöf. Búist er við að meðalaldur i suð- urhluta Afriku hafi lækkað í 45 ár á milli 2005 og 2010 úr 59 árum eins og hann er nú. Vill neyðarlög í Aceh Herinn í Indónesíu fullyrti í gær að ástæða væri til aö setja neyðarlög i Aceh vegna vaxandi óróleika þar. 200 á DNA-skrá Norska lögreglan hefur nú fengið um 200 blóðprufur úr glæpamönnum sem hún ætlar að sefja á sérstaka DNA-skrá. Kosningum frestað Kosningum í Króatíu hefur verið frestað vegna veikinda Franjos Tudj- mans forseta. Kosningarnar áttu að fara fram 22. desember en hefur verið frestað þar til í janúar þar sem forsetinn hefur ekki getað undir- ritað sérstök kosningagögn. Talið er að ástandið geti leitt til pólítísks óróleika sem geti breiðst út til annarra fyrrum Júgóslavíu- ríkja. Græða á tá og fingri Eignir Norðmanna erlendis geta á næstu tveimur árum auk- ist um 270 milljarða norskra króna haldist olíuverð í 22 dollur- um á tunnuna. Lockerbiesprengjan Líbýumennirnir tveir, sem ákærðir voru vegna sprengjutil- ræðis í farþegavél sem fórst yflr Lockerbie í Skotlandi 1988, skella skuldinni á Palestínumann sem er í fangelsi í Svíþjóð. Prestur í 36 ára fang- elsi 74 ára írskur kaþólskur prestur var í gær dæmdur í 36 ára fang- elsi fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn drengjum fyrir 40 árum. Leitað að eftirmanni Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hef- ur hafið leit að eftirmanni Frakkans Michels Camdessus banka- stjóra sem ætlar að láta af störfum í febrúar. Cam- dessus hættir tveimur árum áð- ur en kjörtímabili hans lýkur. í yfirlýsingu frá Al- þjóða gjaldeyrissjóönum sagði að Evrópa ætti ekki að einoka um- ræðuna um nýjan bankastjóra Ófrjálsir fjölmiðlar Ástand pressunnar í Rússlandi hefur versnað undanfarin 3 til 4 ár. íraun er alls ekki hægt að segja að fjölmiðlar séu frjálsir, að mati fjölmiðlastofnunar í Rúss- landi. Jarðskjálfti í Grikklandi Jarðskjálfti, sem mældist 5 stig á Richter, gekk yfir norðvestur- hluta Grikklands í morgun. Námuslys í Ástralíu Fjórir námuverkamenn létu líf- ið og tveggja er saknað eftir hrun í gull- og koparnámu norðvestur af Sydney í Ástralíu í nótt. Nauðungarhjónabönd Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, sem kom í heimsókn til Óslóar í gær, kveðst vera sam- mála skýrslu mannréttindasam- taka sem segja aö- stæður kvenna i Pakistan hafa versnaö á undan- fornum árum. Bhutto sagði nauð- synlegt að koma í veg fyrir að for- eldrar þvingi börn sín í hjóna- bönd. Unga fólkið verði sjálft að fá að velja. Rak stjórnina Forseti Ingúsetíu, Ruslan Ausjev, rak í gær alla ríkisstjórn sína vegna lélegrar frammistöðu í sambandi við flóttamanna- strauminn frá Tsjetsjeníu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.