Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1999, Blaðsíða 18
J
34
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
Hringiðan
*
*>
*
'SSKsfess!
Lýður Árnason læknir, Ólafur Ragnarsson popp og Jón Rósmann Mýrdal sungu lögin af nýrri karlrembu-
plötu sinni í Leikhúskjallaranum á laugardaginn.
Dagur Kristinsson heitir nýkrýndur herra Hafnarfjörður
1999. Dómnefnd var nokkuð sammála um að velja Dag
sem hér sést á nærunum. Það var að vanda verslunin
Herra Hafnarfjörður sem átti veg og vanda af keppn-
innl. DV-myndir Hari
Alvöru spilavfti að hætti herra Bond
var starfrækt að lokinni frumsýningu
myndarinnar The World Is not enough í
Bfóborginni á föstudaginn. Páll Stein-
arsson leggur nokkra „kalla“ undir.
Palli og Danni úr hljómsveitinni Maus
voru ánægðir með nýjustu James Bond
myndina The World Is not enough eftir
frumsýningu í Bíóborginni á föstudag-
inn. Þá var einnig frumsýnd stuttmynd
þeirra Mausverja, Kerfisbundin þrá.
Það var haldið
karlrembukvöld
í Þjóðleikhús-
kjallaranum á
laugardaginn.
Karlremburnar
Ólafur Popp,
Lýður læknir og
Jón Rósmann
héldu þá út-
gáfutónleika
fyrir nýja plötu
sem þeir eru að
gefa út. Hinrik
Ólafsson leikari
lét öllum illum
látum á karl-
rembukvöldinu.
Fjórar sýningar voru
opnaðar í Nýlista-
safninu á laugardag-
inn. Séra Vigfús Þór
Árnason, dóttir hans
Björg og Hörður,
„popp“-organisti í Graf-
arvogskirkju og sýru-
polkasveitinni Hr. Ingi R.,
voru á meðal sýningargesta.
Kvöldklæðnaður var skilyrði fyr-
ir aðgangi að Bíóborginni og
frumsýningu nýjustu stórmynd-
arinnar um njósnara hennar há-
tignar, James Bond. Þorsteinn
Joð, Hvati og Þór Bæring snyrti-
legir að vanda.
■■
Grétar Örvarsson
lifir sig hér inn í tón-
listina af nýrri plötu
Stjórnarinnar
2000“. Á föstudag-
inn var haldið út-
gáfuteiti og Ball
Þjóðleikhúskjallar-
anum þar sem
hljómsveitin hefur
verið „húsbandið" í
um fjögur ár.
Leikritið Baneitrað sam-
band á Njálsgötunni, sem
var frumsýnt fyrir nokkru,
hefur verið sýnt við góðar
viðtökur. Sigurður Sig-
þórsson, Stefán Nonni,
Bryndís Blöndal, Dóra
Hrund og Kristján Þor-
steinsson voru meðal
gesta á sýningu verksins
á laugardaginn.
■m