Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1999, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
41
Myndasögur
cö
N
&
Alveg eins og ÉG g þegarviðvofum tfú 7 -Égvaf alltafsvc rófnantfskur' erði^ ofuð! / /•rVr.
/j
Fréttir
Vatniö fossar út um yfirfall Skeiðsfossvirkjunar - meira en í vorleysingum.
DV-mynd Örn Þórarinsson.
Meiri vatnsagi en
í vorleysingum
rf'-
Miklar leysingar uröu í hlýindakafl-
anum í siðustu viku enda hitatölur lík-
ari því að hásumar væri. Hæst fór hit-
inn þann ellefta í 20,3 stig á veðurat-
hugunarstöðinni Sauðanesvita. Tals-
verður snjór var kominn en hann
hvarf á 2-3 sólarhringum. Flestar ár
urðu mórauðar eins og í vorleysingum
og vatnsflaumurinn víða gríðarlegur.
Ekki er vitað um verulegar skemmdir
af þessum sökrnn. Miðlunarlón Skeiðs-
fossvirkjimar fylltist og reyndist nauð-
synlegt að opna yfirfall á stíflugarðin-
um. Það hefur sjaldan gerst áður í nóv-
ember og varð að hleypa meira vatni
yfir en í mestu vorleysingum. - ÖÞ
Sæplast kaupir verk-
smiðju í Noregi
DV, Dalvílc__________________________
Sæplast hf. hefur undirritað vilja-
yfirlýsingu um kaup á verksmiðju í
Álasundi í Noregi af Polimoon A/S
í Osló. Verksmiðja þessi framleiðir
vörur úr plasti sem einkum eru
notaðar um borð í skipum, í höfn-
um og við sjávarsíðuna.
í frétt frá fyrirtækinu segir að
um sé að ræða baujur, flot, belgi,
björgunarhringi, fríholt og íjöl-
margar vörur sem tengjast sigling-
um. Þekktustu vörumerkin eru
POLYFORM og SCANMARIN.
Áætluð velta fyrirtækisins er um
600 milljónir króna á ári og selur
það vörur sínar víða um heim.
Þessi rekstur fellur mjög vel að
starfsemi Sæplasts hf. og fram-
leiðslu fyrirtækisins á trollkúlum,
auk þess sem það styrkir stööu fé-
lagsins í Noregi og á öðrum mörk-
uðum. Stefht er að því að ljúka
samningum fyrir lok nóvember og
að Sæplast hf. taki við rekstrinum
um áramótin. Þess má geta að selj-
andi verksmiðjunnar, Polimoon
A/S, hét áður Dynoplast A/S og er
þetta þriðja verksmiðjan sem
Sæplast hf. kaupir af þessu fyrir-
tæki á þessu ári.
Kaup þessi eru hluti af stefnu
stjómar Sæplasts hf. um að félagið
vaxi með uppbyggingu á rekstri er-
lendis. Á næsta ári má reikna með
að velta Sæplasts og dótturfélaga
verði uin 2 milljarðar króna og að
yfir 80% teknanna verði vegna sölu
annars staðar en á íslandi og að 2/3
teknanna verði til i verksmiðjum
félagsins í Kanada, Noregi og Ind-
landi. -hiá