Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Side 16
plötudómur Frogs - The Invincible Frogs Planet ★ ★ Froskar rétta úr kútnum Gunnar Bjarni Ragnarsson hef- ur ekki náð sér vel á strik eftir endalok Jet Black Joe. Fyrst kom hann með Jetz þar sem besta lagið var eftir Júníus-bræðurna úr Vinýl, svo kom Mary Poppins, sem gaf út slaka plötu en nú réttir Gunnar úr kútnum með Frogs. Hinn froskur- inn er söngkonan Karólina Helga Eggertsdóttir og á disknum eru níu lög. Gunnar hefur ekki unnið með söngkonu áður svo ég veit og fer í tilefni cif því í nokkuð mýkri poppgalla en Lenny Kravitz-rús- skinnsjakkann sem tónlist hans hef- ur hingað til aðallega klæðst. Tón- listin með Frogs er sixtís-legt popp, snöggkryddað með sýru, syntum og nýlegum tölvutaktgjöfum. Karólína er ágæt söngkona. Til- þrifalítil kannski en þægilega ein- föld og silkimjúk. Lögin eru æði misjöfn. Sum eru varla meira en uppkast, fríkaðar tilraunir sem sýna þó fram á spilagleði. Nokkur er mjög góð, „Reverse" og „Christ Mess“ sérstaklega; bjartsýnislegt bláhimnapopp og hið slðamefnda minnir á The Cure og lagið „Crow- leymass" sem Hilmar Öm Hilm- arsson gerði með Current 93 fyrir Gunnar er einum of upptek- inn affortíðinni og lætur Karólínu syngja gamla JBJ- lagið „Falling". Til hvers veit ég ekki. Einnig er kjánaleg útgáfa af Bítlalaginu „She Said She Said“ afRevolver sem ég næ ekki heldur alveg tilganginum með. tólf árum. Gunnar er einum of upp- tekinn af fortíðinni og lætur Kar- ólínu syngja gamla JBJ-lagið „Fall- ing“. Til hvers veit ég ekki. Einnig er kjánaleg útgáfa af Bítlalaginu „She Said She Said“ af Revolver sem ég næ ekki heldur alveg til- ganginum með. Þessi plata Froskanna ber með sér að vera hálfgert „demó“, ekki mjög útpæld heild heldur misgott efni hrúgað saman. Þegar best lætur er bandið þó i góðum málum og það er bara vonandi að Gunnar Bjami fari að sýna meira af því besta sem hann kann. Dr. Gunni plötudómur Gildrumezz - Rock’n Roll Creedence Clearwater Revival ★ 85 ]MAm hMtámSL BTiirpi eniao fenjairokk Rokksveitin Creedence Cle- arwater Revival varð vinsæl í blá- enda 7. áratugarins og stóð út úr tónlistarlíflnu í Kalifomíu eins og marinn þumalputti. í miðju sýru- og hippatímabilinu var CCR að spila karlmannlegt fenjarokk sem sótti innblástur í frumrokk og kántrí, en var þó það einstakt og frábært að á það gátu flestir hlust- að. Þvi stóðu allar dyr opnar, hvert lagið af öðru fóm á toppinn eða nálægt honum, og bæði harð- gerðir trukkabílstjórar og froðu- legir hasshausar fundu sig í rokk- inu. Það var einræði í bandinu, John Fogerty réði öllu. Hann spil- aði á gítar og söng með amerísk- um töffarasjarma sem minnti einna helst á Little Richards. Bróðir hans Tom hafði ráðið fyrstu árin þegar bandið kallaði sig The Golliwogs, en þá gekk ekki baun. Tom gafst að lokum upp á einveldi bróður síns og hætti 1971. Þá fór líka að halla undan fæti og síðasta CCR-platan kom út 1972. John Fogerty er búinn að vera í tómu rugli síðan, 1 eiturlyfjavit- leysu og löngum lagaflækjum við fyrirtækið sem gaf út plötur CCR. Honum hefur tekist að gera nokkrar ágætar sólóplötur, en ekkert jafnast þó við stórsnilldina sem hann gerði frá 1969 til 1971. Tom Fogerty lést 1990 svo ekki kemur CCR saman á ný. Gamli trommarinn og bassaleikarinn hafa verið að spila sem CCR síð- ustu árin til að eiga fyrir skulda- bréfaafborgunum og eftir að John náði sér af ruglinu hefur hann iðulega spilað gömul CCR-lög á tónleikum. Eflaust eru svo u.þ.b. tvöhundruðþúsund kóverbönd í heiminum sem hafa CCR-lög á efnisskránni og örugglega nokkur önnur en mosfellska Gildru- mezzið sem sérhæfa sig í Fogerty. Það er ekki óvitlaus hugmynd að stæla CCR á krám því fátt er eins viðeigandi og að drekka bjór og svæla nikótín við safarikt fenjarokkið. Gildrumezz reynir að herma sem mest sannfærandi eft- ir snilldinni og þungarokkar lögin stundum aðeins upp. Þetta tekst svona la la, og þaðan af verr. Birg- ir söngvari er vitaskuld enginn Fogerty og er oft of hvell og skrækur til að vera eins kúl og fyrirmyndin. Kannski er það f lagi að hafa þennan disk til að selja örvita fyllibyttunum eftir böll en ég skil ekki alveg tilgang- inn í að setja þetta í almenna dreifingu. Þó CCR væri aðallega smáskífuband, gerði það þrjár Gildrumezz Rock'rj Rof) SfflEEÍMSllElS Gildrumezz reynir að herma sem mest sannfær- andi eftir snilldinni og þungarokkar lögin stund- um aðeins upp. Þetta tekst svona la la, og þaðan af verr. Birgir söngvari er vitaskuld enginn Fogerty og er oft ofhvell og skrækur til að vera eins kúl og fyrirmyndin. stórplötur sem ættu að vera til á hverju heimili: Willy & The Poor- boys, Green River og Cosmo’s Factory. Ef fólk vill frekar er svo til hellingur af þrýstnum safnplöt- um með þessu frábæra bandi. Þar sem allir hafa kost á frummynd- inni get ég ekki skilið að margir vilji hengja þá ekkert allt of vel litgreindu eftirprentun, sem Gildrumezzið færir hér fram, upp á vegg hjá sér. Þó má auðvitað steyta hnefann og kyrja með þeim á reykmettaðri krá: „Rólin, rólin, rólin on ðe rifer". Dr. Gunni f Ó k U S 10. desember 1999 Kringlunni, S. 553-3344

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.