Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 26
m Hverfispöbbar hafa sprottið upp í úthverfum Reykjavíkur eins og gorkúlur, mönnum til mismikillar ánægju. Menn spyrja hvort fyllirí og fantaskapur sé að færast inn í íbúðarhverfin eða hvort úthverfapöbbarnir séu bara hið besta mál og þeir flestir eins vinalegir og sjónvarpsþættirnir um Staupastein. y' Fókus lætur þessa spurningu liggja milli hluta en hefur tekið saman smá kort yfir helstu hverfispöbba borgarinnar 4 fyrir ölþyrsta úthverfabúa sem nenna ekki niður í miðbæ. Álafossföt bezt, Alafossvegi 22 Ölver Glæsibæ, Álfheimum 74 í miðri viku er staðurinn fullur af fðlki sem drekkur kaffi og syngur I karoki. Milli kl. 18 og 21 er staðurinn fullur af fólki sem kemur við á leið heim úr vinnu og þar er oft þekkt andlit að sjá. Um helgar fyllir fólk úr öllum þjóðfélagsstéttum staðinn. Innréttingarnar eru gamlar og staðurinn græn- og rauðmálaður og fullt af alls konar fótboltadóti á veggjunum. Breiðtjald og alltaf mikil stemmning þegar stórleikir eru í gangi. Starfsmenn staðarins stíga oft á svið ef enginn annar I vill syngja í karokíinu. Stærsti spilasalur landsins er á staðnum og þar hafa oftar en einu sinni stærstu pottarnir fallið. Bjórinn kost- ar380 milli kl. 11.30 og 21 en hækkar upp í 450 krón- ur eftir það. Eldra fólkið mætir fyrripartinn og það yngra á kvöldin þegar karokíið byrjar. Næturgalinn, Smiðjuvegi 14 Söngkonan Anna Vilhjálms rr-1- ••• staðinn ásamt manni sínum og treður of . Staðurinn er | fýrst og fremst dansstaður n u. stóru dansgólfi. Veggirnir eru málaðir gulir og blair og málverk I prýða þá. Bólstraðir stólar og koníaksstofa með sófum. Alltaf lifandi tónlist ogtekið er á móti fólki meö sælgæti. Einungis er opið um helgar. Aldurs-1 hópur 30 ára og eldri. Bjórinn kostar 500 krón" og rukkað erinn. Rauða Ljónið, Eiðistorgi 15 Þetta er heimapöbb KR-inga og hér er að fin... , .„slegt dót sem er tengt félaginu. Það eru þó ekki bara fótbolta- bullur sem sækja staöinn og aldur gesta getur verið mjög breiður þó meðalaldurinn sé 35-55 ára. Breiðtjald, spila- kassar, poolborð og pílukast á staönum. Matsala opin öll kvöld til kl. 23 og oft lengur ef þess er óskaö. Yfirleitt lifandi tónlist um helgar. Fölbleikur blær yfir staðnum og ýmis- legt skrýtið dót á veggjunum svo sem gömul hljóðfæri, styttur og golfkylfur. Bjórinn kostar 450. Blásteinn, Hraunbæ 102 Þetta er heimapöbb Árbæinga og Fylkisaðdáenda. Brúnar inn- réttingar og Ijósgulir veggir með myndum tengdum Fylki prýða staöinn. Opið til kl. 01 alla daga. Breiðtjald og spila- kassar. Aldurshópur 20 ára og eldri. Bjórinn er á 450 krónur nema á leikdögum hjá Fylki þá lækkar hann um 100 krónur fyrir styrktaraðila félagsins. Þessi krá er í sögufrægu húsi með mikla sál. Áður en staður- inn var opnaður hafði húsnæðið hýst bíó, Iþróttasal og bókasafn svo fátt eitt sé nefnt. Hér er dansað villt um helgar, yfirleitt | við lifandi tónlist og oft eru einhverjar skemmtilegar uppá- komur í boði á fimmtu- dagskvöldum. Staður- inn er gulmálaður með grænum sperrum í loft- inu. Á veggjunum hanga Ijósmyndir sem sýna starfsemi Álafoss sem og lista- verk eftir hina ýmsu listamenn sem fá að sýna list sýna á staönum. Aldurshðpur 20 ára og upp úr. Bjórinn er yfirleitt á „ 400 krónur. Aslákur sveitakrá, Ási, Mosfellsbæ Litill en notalegur staður með dökkri viðarklæðningu. Sagn- fræðilegar myndir og gamlir hlutir prýöa veggina. Frekar sumarbústaðaleg kantrí- stemmning. Alltaf lifandi tón- list um helgar. Aldurshópur 20 ára og upp úr en meirihluti gesta er þó í eldrí kantinum. Bjórinn er á 400 kr. virka daga en hækkar um hundrað- kall um helgar. r Café Hafnarfjörður Dalshrauni 11 Hér er nóg af sófum til aö kela í. Grænir tómlegir veggir og viðarklæddur bar. Lítið dansgólf með diskóljósum. Diskótek um helgar til kl. 03. Tvö stór sjónvörp og fleiri lítil. Fótboltinn sýndur þegar við á, annars rúlla tónlíst- armyndbönd á skjánum. Aldurshópur 20 ára og upp úr, þó meira af yngri kynslóðinni. Bjórinn er á 400 krónur. A. Hansen, Vesturgötu 4 Hér borða menn á neöri hæðinni en drekka og spjalla uppi. Efri hæö- in er undir súð og þar er nóg af sóf- um svo andrúmsloftið er mjög kósí. Um helgar eru stundum lifandi tón- llst og möguleiki að láta Ijós sitt skína í karokí. Aldurshópur 20 ára og upp úr. Bjórinn er á 500 krónur en boðið er upp á happy-hour alla virka daga kl. 21-23. Fjörðurinn, Verslunar- miðstöðinni Firðinum Hér er best að setjast viö borðin við gluggann því þá hefur maður stórkost- legt útsýrii yfir alla höfnina. Staðurinn er bjartur, innréttaður í kaffihúsastil en mætti vera meira kósí. Spilakassar og breiðtjald. Bjórinn kostar 300 krón- ur. Athugið, einungis opiö til kl. 01. Fjörukráin, Strandgötu 55 Staðurinn er allur inn- réttaöur í víkingastil og hér er reglulega boðið upp á víkingakvöld. Boð- ið er upp á lifandi tónlist um helgar og dansinn dunar óspart og eru það þá vals og gömlu dans- arnir sem eru aðallega stignir. Aldurshópur 35 ára og eldri. Bjórinn kostar 600 krónur og rukkað er inn um helgar. Riddarinn, Engihjalla 8 Gulmálaður lítill og snyrtilegur pöbb í riddara- stíl. Útvarpið er látið sjá um tónlistina og er yfirleitt stillt á Saga FM eða Létt 96,7. Dart, spilakassar og breiðtjald fyrír boltann. Fasta- gestir, fólk úr Engihjalla og nærliggjandi göt- um. Aldurshópur 20 ára og eldri. Bjórinn kostar 350 krónur. Catalína, Hamraborg 11 Staðurinn er skýrður í hausinn á flug- bátnum Catalinu og hangir mynd af honum á vegg staðarins. Einhvern veginn vantar staðinn allan fíl- ing. Hann er gulmálaður, nútímalegur og innréttaður að hluta í kaffihúsastfl en hvort hann er meira kaffihús, veit- ingastaður eða krá er nokkuð óljóst. Lifandi tónlist um helgar. Spilakassar, pila, sjónvarp og matsala. Aldurshópur 30 ára og eldri. Bjórinn kostar 350 krónur frá 16-21 á virkum dögum en annars 450 krónur. Jói risi, Jafnaseli 6 Notalegur viðarklæddur staður með gömlum aug- lýsingaspjöldum á veggj- unum og öörum skondn- um plakötum. Borö, stól- ar og þrír leðurklæddir hornsófar. Lifandi tónlist um helgar frá bandi húss- ins, King Creole með Jonny King í fararbroddi. Aldurshópur 30 ára og eldri en yngist upp þegar fótboltaleikir eru sýndir. Opið til kl. 02 um helgar. Bjórinn á 290 krónur fram til kl 23.30 en eftir þaö kostar hann 500 krónur. Péturs pöbb, Höfðabakka 1 Þetta er ekta vinnustaðakrá. Hingað kemur fólk úr vinnustöðum hverfisins til þess að fá sér einn bjór áður en farið er heim. Þar sem fólk kemur beint úr vinnunni eru menn mis- vel tilhafðir og oft með smurninguna upp fyr- ir haus. í upphafi var staðurinn innréttaður i kúrekastíl en hefur gengið í gegnum ýmsar breytingar þannig að í dag er hann alveg stíl- laus. Annaðhvort er plötusnúöur sem sér um tónlistina eða trúbador. Mesti annatíminn er milli 18 og 21 í miðri viku. Seldur er matur til 21.30. Spilaskassi, dart, breiötjald og pool- borð á staðnum. Stór bjór á 350. Aldurshóp- ur 30 ára og eldri. Gullöldin, Hverafold 5 Hér þekkja allir alla og er staðurinn mjög vinsæll um helgar. Mjög snyrtilegur staður með myndum af poppurum sem gerðu það gott á árunum ‘60-70. Hér er breiðtjald fyri boltann, spilakassar og pilukast. Um helgar er dansað á staðnum undir tónum frá bandi húss- ins, Svensen og Hallfunkel. Þeir eru alltaf með furðulega hatta á hausnum og skipta oft um höfuöföt á einu og sama kvöldinu. Aldurshópur 30 ára og eidri. Snyrtilegur klæðnaður. Stór bjór kostar 350 krónur fram til miðnætt- is en hækkar þá upp í 400 krónur. Nikka bar, Hraunbergi 4 Einn af heimilislegri pöbbum bæjarins. Grænleitir veggir meö brúnum týpískum kráar- húsgögnum. Speglar og Ijós- myndir af gestum á veggjun- um ásamt landakorti af há- lendi Skotlands. Um 35 viskítegundir. Risaskjár og pílukast. Lifandi tónlist allar helgar og þá er opið til kl. 02. F>ilumót einu sinni í mánuöi með veglegum verölaunum. Aldurshópur 24 og upp i 82 ára. Bjórinn er á 350 virka daga en hækkar upp i 450 um helgar. Happy hour alla daga milli kl. 21 og 22. í \ f Ó k U S 10. desember 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.