Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 17
Jólin er fyrir alla - líka tækjafríkin, tölvuleikjadrengina sem geta ekki hætt að spila þótt þeir séu orðnir stíffullorðnir og hina sem finnst alltaf betra að fá harðan pakka en mjúkan. Hér er efni handa þeim. Magnús tækjafrík Kjartan Benedikt tækjafrík Eyjólfsson: að hringja í hana úr Keflavík þurfti að hringja úr handsnúna símanum í símstöð áður en maður náði sam- bandi við sjálfa verslunina. Misheppnuð eftirlíking Hammondið er algjör snilld. Ég hef alltaf dýrkað það fyrirbæri. Það er víæt til merkilegri uppfinning. Það er vél inni í því sem snýst og býr til tónlist. Það er líka með sér- stökum Lesley-hátölurum sem snú- ast líka með rafmagnsmótor. Upp- haflega áttu hátalamir að líkja eft- ir hljóðum úr pipuorgeli en það misheppnaðist algjörlega. t staðinn hefur Hammondið þennan sérstaka tón.“ Magnús var lengi að taka skrefið úr Hammondinu yfir í synthesizer- inn. „Ég eignaðist fyrst Mini Moog, en það var hljóðgervill fátæka mannsins. Ég kom með hann heim frá New York og tii að koma hon- um í gegnum tollinn laug ég því að þetta væri straumbreytir sem breytir straumi í hljóð. Það var lægri tollurinn á straumbreytun- um,“ segir hann og játar að hafa komist upp með þetta. „Á áttunda áratugnum þurftu menn að fara til útlanda til að taka upp plötur eða fá sérstakt leyfi til að taka upp hjá Ríkisútvarpinu. Það var því stór stund þegar við bárum fyrsta hljóðupptökutækið upp tröppurnar í Hljóðrita 1975. Þegar við rifum utan af þessu um- búðimar og sáum aila takkana birtist okkur lykill að töfraheimi." -MEÓ. Jeppar meÖ ofvoxnum dekkjum þóttu brjálæöi þegar Benedikt tók fyrst upp á slíku fyrir tveimur áratugum. Nú eru þeir orðnir að vinsælu tómstundagamni fyrir alla. þannig að þeir þjóni þörfum eigandans. Það er hægt að breyta honum eftir því hvort á að nota hann í jöklaferðir eða ferðalög yfir sumarmánuðina. Upp úr 1990 fórum við að setja lórantæki í bílana. Þau eru mjög góð, en geta orðið fyrir truflunum og þess vegna hefur verið skipt yfir í GPS. Jeppar í dag eru líka útbúnir tölvum sem merkja leiðir inn á kort og hjálpa manni að rata. Ég held að fæstir geri sér grein fyrir því hversu mikil tækni er til staðar í bílum almennt í dag. Hún er allsstaðar og þvi ekki mikið mál í sjálfu sér. Það sem er erfitt er að búa til tæknilega góða hluti fyrir lítið verð.“ -MEÓ. Meira á næstu síðu -» “Fyrsta tækið sem átti hug minn allan var kafflkvörn sem frænkur minar áttu. Mér fannst fátt skemmtilegra en sitja á gólfinu og mala kaffi,“ segir Magnús Kjart- ansson hljómlistarmaður, sem var fjögurra ára þegar þetta var. „En undur og stórmerki gerðust fyrst þegar faðir minn fór til Grindavík- ur til að kaupa Radiophone. Það var ómissandi heimilistæki um 1960 og þótti ekki menningarheim- ili nema eiga þennan skáp með for- láta útvarpi, plötuspilara og segul- bandi.“ Meistarastykkið Dream Baby Þarna hófst tónlistaráhugi Magn- úsar liggjandi á fína ullarteppinu í betri stofunni. „Það fylgdi þessu ein 45 snúninga hljómplata með laginu Dream Baby með Roy Orbi- son. Þetta lag var auðvitað algjört meistarastykki i minum huga, en Magnús Kjartansson hljómlistarmaður á margar góðar minningar um tæki. Fyrsta stórkostlega tækið sem hann kynntist var Radiophone en í þá daga hlustuðu strákar á allt í útvarpinu, iíka erindi. Svo kom Hammondið og gerði Magnús aö hljómsveitartöffara. ég gat stillt plötuspilarann þannig að lagið spilaðist aftur og aftur. Ég held að þama hafi ég þjálfað með mér hæfileika, sem hefur nýst mér vel í hljóðveri og við útsetningar." Tækið orsakaði kenndir sem Magnús kenndi þá við kynþroska sinn. „Mér tókst 11 ára að nurla saman fyrir Hofner-bassagítar, sem ég tengdi við útvarpið. Þá tíðkaðist ekki að aðrir en atvinnumenn ættu magnara." Magnari var því næsta skrefið en um svipað leyti uppgötvaði Magnús píanóið sem honum þykir enn í dag vera hið mesta undratól. „Um þetta leyti varð lag- ið Whiter shade of pale gríðarlega vinsælt, en í því var leikið á orgel. Upp úr því urðu orgel ómissandi í öllum popphljómsveitum og við nördamir allt í einu orðnir aðal- mennimir í bænum. Ég keypti fyrst Farfisa-orgel og notaði það á meðan ég beið eftir Hammondinu. Það var níu mánuða bið eftir að fá það til landsins, en ég pantaði það að sjálfsögðu í gegn- um hljóðfæraverslunina Rín. Og til „Þóttum stórskrýt á atðni dekkiun “Ég byrjaði á að setja 8 cylindra vél í stað fjögurra í Willys jeppa frá '68 sem ég átti þegar ég var 18-19 ára og breyta um gírkassa. Það varð al- gjör bylting þegar 50 hestafla vél varð breytt í 350 hestöfl og þurfti mikla útsjónarsemi til að geta gert þetta," segir Benedikt Eyjólfsson, betur þekktur sem Benni í sam- nefndri bílabúð. „Seinna setti ég 400-500 hestafla vél í sama bíl. Loftið úr dekkjunum Um 1980 þóttum við alveg stór- skrýtnir sem ókum um á jeppum sem búið var að setja undir risastór dekk, skipta um vélar, gírkassa og fjöðrun. En upp úr þessu fæddist sú hugmynd að hleypa lofti úr dekkjunum, og í framhaldi af því varð til alveg nýr jeppaheimur. Menn urðu meðvitaðri um umhverfið, umgegni sína við náttúruna og jeppinn varð far- artæki fjölskyldunnar. Það hafði engmn dottið í hug áður að hleypa úr dekkjunum og við fengum heimsókn frá bandariska bílablaðinu Fo- urwheels, sem kynnti þetta í Bandaríkjunum. Þar höfðu menn auðvitað verið að keyra um á stórum jeppum, en það var mest til að sýnast fyrir stelpunum á ströndinni. Jepp- ar höfðu ekkert sérstakt nota- gildi, en nú voru þeir allt í einu orðnir notendavænir. Verðið er aðalmálið Jeppamenningin hefur breyst alveg gríðarlega mikið síðan. Jepparnir eru orðnir miklu öruggari og það er meira hugsað um að gera þá Rokkiö Sigur Rós - ágætis byrjun Hvað? Besta hljómsveit á ís- landi með bestu plötu ársins. Stökkbreyting: Lúðalegir lista- strákar sem engir vissu hverjir voru urðu að lúðaleg- i um listastrákum sem allir vilja “ snobba fyrir. Sjálfsmorð Sigur Rósar? Samstarf við Friðrik Karlsson og platan „Hugar-Rós“. GusGus - This is Normal Hvað? Önnur plata fjöllistahðpsins GusGus sem hætti að vera fjöllistahópur og gerðist hljómsveit og rak þar að auki söngkonuna sína. Fyrir hverja? Skrifstofufólk sem vill vera kúl og tækninýjungaspekúlanta. Er GusGus aö meikaða? Það heyrðist í þeim í auglýsingu á Ítalíu. Þetta er allt að koma. Frogs - The Invincible Frogs Planet Hvað? Útúrsýrt rokkþopp frá Gunnari Bjarna úr Jet Black Joe og vinkonu hans. Hvað afrekað? Umslagið þykir það næst- Ijótasta í ár. Gildrumezz - Rock'N Roll Hvað? Birgir Haralds og strákarnir úr Mosó taka 15 Creedence-lög af þallprógramminu. Spurningin er: Til hvers? Jagúar Hvað? íslenskt fönk Fyrir hverja? Þá sem hafa fariö á Jagúar-ball og þá sem fíla fagmannleg sóló. Geirfuglarnir - Byrjaðu í dag að elska Hvað? Blandað fjörpopp frá háðfuglum. Fyrir hverja? Ömmu, afa, pabba, mömmu o.s.frv. Ensími - BMX Hvað? Melódískt groddarokk, m.a. hljóðunnið af Steve Albini (hann er frægur). Álitlegt framtíðarplan: Aö gera heila plötu með Bubba Morthens. Maus - í þessi sekúndubrot sem ég flýt Hvað? Fjórða plata popprokkaranna góð- kunnu. Kostir: Flott lög, ágætir textar, flott umslag. Helsti ókostur: Hræðilega uppþembdur titill. Mínus - Hey Johnny! Hvað? Fyrsta plata Músíktilraunasigur- vegaranna. Þeir spila eitilhart þyngslarokk. Hvað kom á óvart? Umslagið er flott og platan hefur selst ágæt- lega. Suð - Hugsanavélin Hvaö? Rokktríó meö ágæta frumsmíö. Möguleikar á gullplötu: 0.4/100 Quarashi - Xeneszis Hvað? Önnur plata rapprokkaranna. Niðurstaða: Jafnvel betri en sú síðasta. Klamedía X - Pilsner fyrir kónginn Hvað? Poppband sem vann Rokkstokk ‘98 með þokkalega plötu. Gengi? Bandið hefur poppað upp á krám en annars hefur lítið til þess spurst. Poppiö Á móti sól - 1999 Hvað? Rokkuð sveitaballasveit með fyrstu „alvöru"-plötuna slna. Koma meðlimirnir frá Suðurlandi? Já. BORGA MilRA... Afhverju a&borga meira fyrir sömu vöru annars staðar? 1HOMSON SONY DOEWOO CailOII BEKO SHARP Panasonic P/oneer m otorola JVC IMOKIA EPSON' TELEFUNKEN FUjHSU ericsson $ ^ Merkin tryggja gæðin - BT tryggir verðið! EKKI BT Skeifunni - S: 550-4444 • BT Hafnarfirði - S: 550-4020 • BT Kringlunni - S: 550-4499 • BT Reykjanesbæ - S: 421-4040 • BT Akureyri - S: 461-5500 ^^mmm 11 10. desember 1999 f Ókus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.