Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 29
% JÍ0 B §} ' v Jm ' Si«a,V<Ó . , fl Ben Stiller, fyrir miðri mynd, ásamt væntanlegum hetjum. Mystery Men, sem Sambíóin frumsýna í dag, er framtíðarmynd sem gerist í Campion City þar sem hinn venjulegi maður á möguleika á að verða ofurhetja í Mystery Men leikur Ben StiU- er öskukarlinn Roy sem sífellt verður fyrir árásum frá yfir- manni sínum. Roy, sem hefur yf- irnáttúrlega hæfileika, notfærir sér þessar árásir til að sjá hvað þolinmæði hans nær langt. Hank Azaria leikur Jeffrey sem býr heima hjá móður sinni þar sem hann eyðir tímanum lokaður í herbergi sínu við að æfa sig í hnífakasti. William H. Macy leik- ur heimilisfoðurinn Eddie sem þykir góður með skóflu. Hann vill allt til vinna að njóta virðingar fjölskyldunnar en uppsker aðeins stríðni og afskiptaleysi. Roy, Jef- frey og Eddie eru á daginn ósköp venjuleg meðalmenni en á kvöld- in eru þeir Mr. Furious, The Blue Raja og The Shoveler og sameina krafta sína í leit að illmennum í Champion City. Þeir félagar hafa þó ekki erindi sem erfiði þar sem borgin á sína ofurhetju, Captain Amazing (Greg Kinne- ar), sem sér um að borg- in sé nánast laus við glæpi. Þar sem lítið er orðið um glæpi leiðist Captain Amazing þófið og ákveður því að sjá til þess að brjálæð ingurinn Casanova Frankenstein (Geofrey Rush) sé látinn laus af geðveikrahæli þar sem hann hefur verið einangr- aður. Vopn- i n snúast í hönd- unum á Amazing og Casa- n o v a Frank- enstein fær yfir- höndina og stefnir á yfirráð í borginni. Nú er tími okkar manna runninn upp og fá þremenningarnir fjóra aðra sem svipað er ástatt um til að fylkja liði gegn Casanova Frankenstein. Leikstjóri Mystery Men heitir því einkennilega nafni Kinka Us- her og er Mystery Men fyrsta kvikmyndin sem hann leikstýrir. í fyrra var Usher valinn besti aug- lýsingaleikstjóri ársins af samtök- um leikstjóra í Bandaríkjunum og út á það var honum boðið að leik- stýra Mystery Men sem þykir mjög flott i útliti og er greinilegt að Usher hefur mikla reynslu í hraðri atburðarás en vantar kannski reynslu í gerð leikinna kvikmynda. Hann hefur allt frá árinu 1992 unnið við auglýsingar og stofnaði eigið fyrirtæki, House of Usher, árið 1996. Eins og sjá má af upptalning- unni hér að ofan skipar mikill fjöldi þekktra leikara hlutverkin í myndinni og má til við- bótar nefna Claire Forlani sem lék síð- ast á móti Brad Pitt í Meet Joe Black, Janeane Garofalo, Paul Reubens og Wes Studi. -HK Detroit Rock City, sem frumsýnd er í dag, er gamanmynd um fjóra unga skólastráka árið 1978 sem þurfa að beita brögðum til að komast á konsert með hljómsveitinni Kiss Detroit árið 1 Rokktónlist og gríni er blandað saman í Detroit Rock City sem Sam-bíóin frumsýna í dag. Myndin gerist 1978 og segir frá fjórum ung- um rokkurum, nemendum í menntaskóla í miðríkjum Banda- ríkjanna, og ferð þeirra til Detroit þar sem þeir ætla sér að komast á tónleika með goðunum í hljóm- sveitinni Kiss. Að sjálfsögðu er uppselt á tónleikana þegar þeir koma til borgarinnar og við fylgj- umst með strákunum í örvænting- arfullum tilraunum þeirra til að komast inn á þá. Óhætt er að segja að þeir verða fyrir ævintýralegri reynslu þann sólarhring sem þeir staldra við í bílaborginni. James DeBello, Edward Furlong, Sam Huntington og Giuseppe Andrews leika fjögur ungmenni sem eru á leið- inni á Kiss-tónleika. Edward Fur- long, Giuseppe Andrews, Sam Huntington og James De Bello eru í hlutverkum ungu rokkaranna en auk þeirra leika í myndinni Natasha Lyonne, Lin Shaye, Mel- anie Lynskey, Shannon Tweed og meðlimir Kiss, Gene Simmons, Peter Criss, Ace Frehley og Paul Stanley. Þekktastur ungu leikarana er Edward Fur- long sem er talinn meðal efnilegustu leikaranna í Hollywood og þeir sem sáu American Hi- story X, þar sem hann lék litla bróður E d w a r d s Nortons, geta örugglega samþykkt það. Furlong fékk fljúgandi start þegar hann lék á móti Arnold Schwarzenegger í Terminator 2 - The Judgement Day. Hann sýndi strax mikla hæfC* leika, meðal annars í Before and After, þar sem hann lék á móti Liam Neeson og Meryl Streep. Af öðrum kvikmyndum sem hann hef- ur leikið í má nefha The Grass Harp, Little Odessa, American He- art og Pecker. Næsta kvikmynd hans er fangelsisdramað Animal Factory sem leikarinn Steve Buscemi leikstýrir. -HK Rokkað í — —....- i r aster 20 clen Stuðninguir yfir magasvœði. Þunnar á tám. Sokkabuxur fyrir opna skó. NUDDAHRIF ANDAR „Skrefí framar” TVÖFÖLD i 10. desember 1999 f ÓkUS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.