Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Side 18
Dlp - Hi-Camp Meets Lo-fi
Hvaö? Jóhann í Lhooq og Sigtryggur Baldurs-
son meö listræna poppplötu.
Ekkl fyrir? Geirmundaraödáendur.
Emiliana Torrini
- Love in the Time of Science
Hvaö? Stórsöngkonan snýr aftur meö full-
þroskaö popp.
Melkmöguleikar: 50%
Hvaö stendur í veginum? Björk.
Land & synir - Herbergi 313
Hvaö? Sunnlenskt framfarapopp. Metnaðar-
fullt fram I fingurgómana.
Hættulegt? Kannski. Sumum aðdáendum
gæti þótt tónlistin of þung.
Páll Óskar - Deep lnside
Hvaö? Stórskemmtileg diskóplata frá konungi
diskósins.
Gengi: Platan selst ekki of vel. Fólki finnst hún
kannski of »gay“.
Framtíöarmöguleikar: Palli á aö meika þaö í
alþjóölegu hommapoppi.
Sálin hans Jóns míns -12. ágúst 1999
Hvaö? Sálin órafmögnuð. Tvö ný lög og tíu
gömul.
Fyrir: Alla Sálaraðdáendur.
Selma -1 am
Hvaö? Upphituð
Todmobile-lög, lög
úr Sporlausu og
n ý i r
europoppsmellir.
Vinsælast hjá:
krökkum undir 15
ára og konum yfir
fertugt.
Skítamórall
Hvaö? Önnur stórplata strákanna sem spiluðu
„Farin".
Helsta vandamál: Ekkert „Farin" á nýju plöt-
unni.
Stjórnin@2000
Hvaö? Sigga, Grétar og kó enn á ferö.
Þarf aö bæta einhverju viö? Nei.
RButtercup
- Alit á útsölu
Hvaö? Fyrsta
stórplata þessarar
rokkuðu sveitaballa-
sveitar.
Helsti heiður: Um-
slagið kosið Ijótasta
umslag ársins.
Karlarnir
okkar
Bjartmar Guölaugsson - Strik
Hvaö? Kappinn snýr aftur úr útlegðinni með
nýja sólóplötu.
Nýjar áherslur í textagerö? Nei. Eitt lagiö heit-
ir „Sítt að aftan“.
Geirmundur Valtýsson - Dönsum
Hvaö? Ljóðrænt hipp-
hopp í bland við
mínímallsk raftón-
verk.
Ertu aö meinaöa?
Auðvitað ekki. Á plöt-
unni er skagfirsk
sveifla.
KK & Maggi Eiríks - Kóngur einn dag
Hvaö? Blúsuðu góðkunningjarnir meö aöra
plötu sína saman.
Kunna þeir á gítar? Já, svo sannarlegal
Labbi - Leikur aö vonum
Hvaö? Gömul og ný dægurlög frá Labba „f
Mánum".
Söluhvetjandi staöreynd: Labbi er fimmtugur
en fer samt heljarstökk!
Raggi Bjarna - Viö bjóöum góöa nótt
Hvaö? Uppáhalds-standardar Ragga I Ijúfum
útsetningum.
Er Raggl kúl? Ganga grimmir hundar með
múl?
Rúnar Júlíusson
- Dulbúin gæfa í tugatall
Hvað? Mesti töffari
aldarinnar með öll
sín frægustu lög á
tveim diskum.
Samtals 52 lög.
Athygllsverö staö-
reynd: Sumir kokk-
ar kalla paté dul-
búna kæfu.
Bubbi Morthens - Sögur 1980-90
Hvaö? Tvöföld safnplata og 5 laga diskur með
samstarfi Bubba og Botnleðju og Ensími.
Framtíöarplön: Miðað við söluna á þessum
pakka verða „Sögur 1990-2000“ væntan-
lega á boðstólum um næstu jól.
Pálmi Gunnarsson - Séö og heyrt
Hvaö? Tvöfaldur pakki með því besta sem
Pálmi hefur sungið.
Staöreynd sem gleymist oft: Pálmi er ekki
síður góður bassaleikari en söngvari.
Það er ekkert mál orðið að vera í einu herbergi og stjórna græjunum í öðru, stíma
upp á hálendið í stórhríð án þess að týna sjálfum sér eða horfa á bíómyndir heima hjá
sér á risastórum skjá með víðóma hljóðkerfi þar sem sándið umlykur mann í stofusófanum.
Það er líka hægt að vera hrikalegur tengdur tölvunni með hjálp GSMsans sem í
framtíðinni er spáð að muni verða eitt aðalhjálpartæki heimilisins, þar sem með honum
er hægt að hríngja í tölvuna sem öllu stjórnar. Hér er því aðeins verið að tala um
forsmekkinn að tæknisælunni. Það flottasta í dag gæti verið orðið úrelt strax eftir ára-
Barstyringln á Bose
lifestyle stjórnar
græjunum meö
útvarpsbylgjum.
PowaiBd hfÆ*
CASSÍOPEIA
CassiopeiafráCasío getur gert allt þaö sama og heimilistölvan. Munur-
inn er sá að hún kemst í vasann og töskuna.
Live Stage
iJjStartl jMl“l
stafeetur þig
Þaö er enginn snjósleöagaur á landinu meö réttu
ráöi í dag, nema hann eigi Protek GPS staðsetn-
ingarúriö frá Casio. Þetta fullkomna hátækni-
armbandsúr er með innbyggðu staðsetningar-
tæki, sem er stillt inn á gervitunglin á því hnatt-
svæði sem eigandinn er staddur á
hverju sinni. Þegar búið er að stilla
úrið, segjum á íslandi, þarf notandinn
ekki aö gera neitt annað en ýta á
hnapp og þá segir úrið honum hvar
hann er staddur. Úrið ku vera óþarfi ef
menn ferðast mikið með strætó á
höfuðborgarsvæðinu, en kemur sér
vel fyrir þá sem þrá að verða næstum
þvl villtir I stórhrið uppi á hálendinu á
vélsleðum um áramótin. Þá geta þeir
bókstafléga keyrt eftir þessu úri í blind-
hríðinni. Protek er ekki mikið stærra en venju-
legt armbandsúr og svona álíka stórt - eða lítið
- og Nokia 6110 gemsi. Það gefur þvi augaleið
aö Casio Protek GPS er mun léttara og þægi-
legra I meðförum en ósköp venjulegt staðsetn-
ingartæki. - Kannski mætti mæla með því I
borginni líka fyrir þá sem eiga erfitt með að rata
heim af barnum. - Því miður er ekki hægt að
leita að þeim. Ekki ennþá. - Það kostar 34.900
krónur að týna ekki sjálfum sér.
Bose lifestyle eru græjur græjaqpa. Þær eru með al-
veg svakalega flott hljóökerfi og bassakeilu með inn-
byggðum magnara sem rúmast í lófastórum hátölur-
um. Með þeim er hægt aö fá ýmist einfaldan eða
sexfaldan geislaspilara, allt eftir því hve mikið er
hlustað á tónlist. Þessu fylgir móttakari fyrir fjarstýr-
ingu sem sendir út útvarpsbylgjur. Þvi má stjórna her-
legheitunum I 25 metra radius, milli herbergja og
hæða. Toppurinn á öllu saman er endurvarp hljóðsins
úr hátölurunum af veggjunum svo það er eins og
sándið sé allt um kring. Rottasta, nýjasta og full-
komnasta útgáfan af Bose er lifestyle 12 sett með
fimm hátölurum sem hægt er tengja bæði sjónvarp-
inu og DVD-spilaranum. En ef maður á bara venjulegt
videotæki þá eru þeir búnir sérstökum búnaði sem
skilar mónó-hljóðinu allt um kring eins og í venjulegu
heimabiói.
Framtíðlrí er ítöng
Fyrst maöur er á annaö borð búinn að fjárfesta í DVD þá er ekki um
annað að ræða en skella sér á breiðtjaldssjónvarp. Breiðtjaldssjónvarp
er með næstum því marflötum skjá í hlutföllunum 16/9 rétt eins og
kvikmyndabreiðtjald og biómyndir á DVD-diskum. íslenskar sjónvarps-
stöðvar eru meira aö segja farnar að búa sig undir breytingarnar með
tilraunaútsendingum í 16/9 um helgar. Loksins, segja svæsnustu kvik-
myndaáhugamenn. Þeir sem ekki þola svörtu rendurnar sem birtast
með myndinni á venjulega sjónvarpi ættu að skella sér á breiðtjaldið.
IÞeir gætu aö vísu þurft að umbera svartar rendur meö fram fréttunum
ef þeir flýta sér ekki læra á stillingarnar sem koma i veg fyrir slíkt stil-
brot. Ekki hægt að segja annað en þeir hugsi fyrir öilu hjá Philips, sem
býður útlitshannað 32“ hátæknisjónvarp á 332.900 krónur staðgreitt
ásamt myndbandstæki og hillu. Það er hægt að velja um þrjá liti en
DVD-spilarinn er aukalega.
Snemma á næsta ári má búast viö enn einni nýjunginni á þessu sviði
til íslands, en það eru svokölluð plasma sjónvörp. Þau eru meö alveg
flötum skjá og I rauninni ekkert nema myndramminn. Þaö er hægt að
hengja þau upp hvar sem er í stofunni - eins og málverk - þvi móttak-
arinn og hátalarnir koma sér. Skjárinn er þá kominn upp í 42“ en verð-
ið er óljóst ennþá.
Cassio Dfa
Flún heitir að visu Cassiopeia þessi lófastóra tölva sem getur allt það sama og heimilistölv-
an. Cassio er kraftmikil lófatölva með 32 megabæta CE forriti frá Windows. CE er ekkert
annaö en smækkuö útgáfa á algengustu ritvinnslu- og fjármálaforritunum. Hún er líka með
MP3 skrá þannig að hægt er að spila tónlist af Netinu ef menn eru með Bosch 909 gems-
ann á sér en þaö er líka hægt að nota hana undir póstinn. Cassiopeia er aöeins stærri og
þyngri en minnstu tölvurnar, þvi hún er heilir 17 sentímetrar á hæð, 9 á breidd og tveir á
þykkt. Minni tölvurnar eru ekki aðeins léttari - þær eru búnar mörgum sinnum minna for-
riti og geta ekki neitt nema skipulagt og haldið dagbækur. Það þýðir því ekkert annað en
vera meö Cassiopeiu ef maður ætlar að vera alvörutæknivæddur.
f Ó k U S 10. desember 1999
18