Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Side 2
2
MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2000
Fréttir
Lykilmenn Búnaðarbankans sakaðir um innherjaviðskipti:
Islandsbanki uppsprettan
- segir Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaðarbankans, og ver sina menn
„Þetta er hreinlega rangt hjá
fréttastofu Stöðvar 2, fréttin er til-
komin vegna þess að íslandsbanki
læddi þessari frétt inn á föstudag-
inn. í þessum skrifum í Morgun-
komi íslandsbanka á netinu segir
að einkennilegt sé að koma með
„aðvörun" 17 dögum eftir að úthoði
lauk,“ sagði Stefán Pálsson, aðal-
bankastjóri Búnaðarbankans, í viö-
tali viö DV í gærkvöldi. Hann telur
að hér sé kunni hluti af samkeppni
bankanna tveggja að birtast al-
menningi en Búnaðarbankinn er nú
talinn vera verðmætari en íslands-
banki. Bankastjórinn segir það
skyldu bankans að „aðvara“ þegar
afkoma hans batnar um-
fram allar spár á örstuttum
tíma.
Stefán segir það út í hött
að tala um innherjavið-
skipti í bankanum. „Starfs-
menn okkar voru auðvitað í
fullum rétti að bjóða i þessi
bréf, öllum stóð þetta til
boða, þeir tóku þátt í lög-
legu útboði og fóru að öllum
reglum. Ekkert óeðlilegt er við það
að starfsmenn vilji eignast hlut í
bankanum," sagði Stefán Pálsson
um fjórmenningana, sem eru lykil-
starfsmenn Búnaðarbankans og
keyptu hlutabréf í vinnustað sínum
fyrir um 75 mibjónir króna.
Þeir hafa hagnast vel á
stuttum tíma.
“Náttúrlega gefur það
augaleið að lykilstarfsmenn
hljóta að búa yfir upplýs-
ingum um fyrirtækið, menn
sem vinna við að gera út-
boðslýsinguna. En allir
höfðu aðgang að þeirri lýs-
ingu,“ sagði Stefán. „Viö
vitum að bankinn er verðmætur og
við eins og margir aðrir höfum trú
á Búnaðarbankanum.
Sem forsvarsmaður bankans taldi
ég að við yrðum að tilkynna Verð-
bréfaþingi um að útkoman virtist
ætla að verða mun betri en spáð
hafði verið í óendurskoðuðu 9 mán-
aða uppgjöri sem salan byggðist á.
Bankinn á mikið safn af skráðum
og óskráðum hlutabréfum. Gengi
hlutabréfa í desember sveiflaðist
upp um 10% - það þýddi bætta af-
komu um 270 milljónir. Þessa er get-
ið i útboðslýsingu sem dæmi um
fyrirvara. Þetta eru stórar tölur og
við töldum skylt að greina frá því
með þessari „aðvörun" eða ábend-
ingu,“ sagði Stefán Pálsson.
Ekki náðist í Val Valsson, banka-
stjóra Islandsbanka, vegna þessa
máls í gærkvöldi.
-JBP
Stefán Pálsson.
Hörð lífsbarátta einstæðs föður og 75% öryrkja:
Berst fyrir ungum börnum sínum
- fjársöfnun til styrktar Qölskyldunni hafin í Borgarfirði
„Markmiðið hjá mér er ekki nema
eitt, það er að koma mér á réttan kjöl
og halda áfram með bömin mln hjá
mér,“ sagði Þórður Njálsson, rúm-
lega fertugur einstæður faðir og 75
prósent öryrki sem búsettur er í
Breiðholti. Saga Þórðar er saga
langrar og strangrar baráttu. Sú bar-
átta stendur enn. Hann berst við að
ná heilsunni, halda bömunum sín-
um, sem em tveggja, fjögurra og sex
ára, og láta enda ná saman.
Það var árið 1973 sem Þórður
slasaðist um borð í varðskipi. Það
slys leiddi til þess að taka þurfti af
honum fótinn 12 árum síðar. Hann
fór mjög illa út úr þeim veikindum.
Það var svo í október á síðasta ári
sem eiginkona hans, Helga Fossberg
Helgadóttir, veiktist af krabba-
meini. Hún fór í aðgerð og síðan
hefðbundna meðhöndlun sem stóð
fram á mitt sumar. Þá vöknuðu von-
ir um að hún myndi ná sér. En sið-
an tók krabbameinið sig upp aftur
og hún lést 20. desember sl. Helga
var fædd að Þórgautsstöðum í Hvít-
ársíðu og hefur kvenfélagið þar nú
hafið fjársöfnun til styrktar Þórði
og fjölskyldu hans.
Auk litlu barnanna þriggja þeirra
Helgu búa hjá Þórði 19 ára sonur,
Guðmundur Njáll, sem hann átti
áður, svo og unnusta Guðmundar,
einnig 17 ára sonur, Sigurður, og 19
ára dóttir, Ástríður Edda, sem
Helga átti áður. Sigurður er í skóla
uppi á Akranesi en kemur heim í
fríum. Ástrlður Edda er við nám í
Reykjavík.
Datt niöur á nýársmorgun
„Tveggja ára dóttir okkar Helgu
fór til vinkonu okkar í vetur meðan
veikindin voru sem mest,“ sagði
Þórður. „Ég tók hana heim á Þor-
láksmessu og hafði hana hjá mér
um jólin. Svo datt ég niður á
nýársmorgun. Læknar segja mér að
líklega hafi þetta verið spennufall
eða bólgur í höfðinu. Ég missti allt
jafnvægi og röddina. Þetta lýsti sér
svipað og blóðtappi við heilann. Ég
var á spítalanum þar til í fyrradag,
þá komst ég heim. Yngsta dóttirin
fór aftur til vinkonu okkar en hin
bömin tvö fóru til foreldra minna
meðan ég þurfti að vera fjarverandi.
Ég er að klóra mig upp úr spennu-
fallinu núna en á eftir að fara í ein-
hverjar rannsóknir."
Þau Þórður og Helga voru með
sjálfstæðan atvinnurekstur en veik-
indin gerðu það að verkum að hann
gekk ekki sem skyldi. Þegar Helga
veiktist var Þórður eins mikið hjá
henni og hann gat. Hann hafði ekki
tök á að sinna starfi sínu á meðan.
Síðan rak hvert áfallið annað.
„Staðan hjá mér nú er sú að ég er
með talsvert af skuldum sem ég er
að reyna að klóra mig út úr. Svo er
ég að berjast við að komast út úr
því sem ég kalla 2000-vandann sem
kom upp á nýársmorgun. Ég ætla að
hafa öll börnin mín hjá mér, ég er
alveg klár á því.
Það verður þó að segjast eins og
er að þó að þetta hafí verið rosalegt
stríð þá hef ég fengið mikinn og dýr-
mætan stuðning,“ sagði Þórður.
„Foreldrar mínir hafa staðið eins og
klettar við bakið á mér. Sama máli
gegnir um foreldra Helgu, vini og
ættingja okkar beggja, fyrrum
vinnufélaga, fólkið í Borgarflrði og
Sigurð Amarsson, prest í Grafar-
vogi. Starfsfólkið á krabbameins-
deildinni og líknardeildinni er engu
líkt, þetta eru englar.
Eins og áður sagði hefur Kvenfé-
lag Hvítársíðu hleypt af stokkunum
fjársöfnun til stuðnings Þórði og
fjölskyldu hans. Tekið er á móti
framlögum í Sparisjóði Mýrasýslu,
Borgamesi, reikningi nr. 3648.
-JSS
Pórður Njálsson meö börnin sín, Ásgeir Helga, 4 ára, og Guðrúnu Júlíu, 6
ára, Guömund Njál og unnustu hans, Guörúnu Evu Jónsdóttur. Á myndina
vantar Póru Björg, 2 ára, Sigurö Geirsson og Ástríði Eddu Geirsdóttur.
Verður mönnum refsað fyrir að róa í trássi við lög?
Bjórauglýsendurnir sluppu
- ekkert hægt að fullyrða um sjómenn, segir Hilmar Baldursson
Fjölmargir kvótalitlir útgerðar-
menn stefna nú að því að hefja veið-
ar í kjölfar svokallaðs Vatneyrar-
dóms Héraðsdóms Vestfjarða. Þeir
ætla ekki að bíða eftir niðurstöðu
hæstaréttar i málinu.
Forsætisráðherra, sjávarútvegs-
ráðherra og forsvarsmenn LÍÚ hafa
sagt að ekkert hafi breyst við úr-
skurð héraðsdóms sem gefi kvóta-
lausum útgerðum tilefni til að hefja
veiðar. Lög séu enn í fullu gildi sem
banni slíkt og brot á þeim varði
refsingu.
Hilmar Baldursson, lögfræðingur
og framkvæmdastjóri Samtaka
kvótalítilla útgerða, segir að form-
lega séu enn lög í gildi sem banni
slíkar veiðar. Hins vegar hafi áður
komið upp mál af svipuðum toga þar
sem tekist var á um stjómarskrárá-
kvæði um prentfrelsi. Það varðaði
bann við áfengisauglýsingum og
voru bjórframleiðendur sýknaðir í
héraðsdómi fyrir að hafa
brotið bannið. í kjölfar
hérðaðsdóms auglýstu bjór-
framleiðendur af kappi en
ekkert var gert til að stöðva
þær auglýsingar. Hæstirétt-
ur sneri dómi héraðsdóms
við en engum refsingum var
beitt vegna meintra brota
bjórframleiðenda á lögun-
um í miUitíðinni. Hilmar
segir þó ekkert hægt að fuU-
Hilmar
Baldursson.
yrða um hvort svipuð niður-
staða yrði gagnvart hugsan-
legum brotum sjómanna.
„Menn taka auðvitað
áhættu með þvi að róa og
við hvetjum enga tU þess.
Ég reikna þó með því að ef
hæstiréttur snýr við niður-
stöðu héraðsdóms þá reyni
menn að fá niðurstöðu hjá
mannréttindadómstóli Evr-
ópu.“ -HKr.
Stuttar fréttir i>v
Flugleiðir neita
Flugleiðir hafa neitað að end-
urnýja samn-
ing við stéttar-
félög landsins
um ódýrar ut-
anlandsferðir.
Stéttarfélögin
leita nú ann-
arra leiða svo
félagsmenn geti
ferðast ódýrt næsta sumar og
njóta til þess aðstoðar Samvinnu-
ferða-Landsýnar. Stöö 2 greindi
frá.
Barist um Smáralind
Þrjár verktakasamstæður berj-
ast um miUjarðs króna samning
um framkvæmdir við Smáralind
í Kópavogi. Stöð 2 greindi frá
þessu.
Snjóflóðarannsóknir
Atvinnuþróunarfélag Vest-
fjarða hefur lagt tU að á Vest-
fjörðum verði miöstöð snjóflóða-
rannsókna og rannsókna á veið-
arfærum. Þá hefur einnig verið
lagt til að símenntun og endur-
menntun í byggðarlaginu verði
efld sem og þekking á markaðs-
málmn. Samgöngur þarf einnig
að bæta, að mati Atvinnuþróun-
arfélagsins. Ríkissjónvarpið
greindi frá.
Kínverjar mótmæla
Kínverska sendiráðið í Reykja-
vík mótmælir
heimsókn
Tómasar Inga
Olrichs, for-
manns utanrík-
ismálanefndar
Alþingis, tU
Taívans.
Tómas Ingi
mun dvelja í
Taivan fram að næstu helgi. Upp-
lýsingafuUtrúi kínverska sendi-
ráðsins, Yang Jiazhong, lýsti yfir
óánægju sinni með ferðalag for-
mannsins í viðtali við Rikissjón-
varpið. Hann telur það óviðeig-
andi.
Tveir létust
Fimm tilfeUi af heUahimnu-
bólgu höfðu greinst hér á landi í
lok síðasta árs. Tveir létust af
völdum sjúkdómsins síðla árs.
Tilfellin voru af ólíkum stofni og
því ekki talin ástæða tU að gera
sérstakar varúðarráðstafnir. Stöð
2 sagði frá.
Fjarðalistinn afneitar
Fjarðalistinn í Fjarðabyggð á
Austurlandi lýsti því yflr á aðal-
fundi sínum í Neskaupstað í dag
að hann hefði engin tengsl við
Samfylkinguna. Fjarðalistinn er í
andstöðu við stefnu Samfylking-
arinnar í virkjunarmálum, enda
bygging stóriðju eitt af helstu
baráttumálum hans.
Ögmundur vili rannsókn
Ogmundur Jónasson telur
ástæðu tU frek-
ari aðgerða til
að kanna hvort
farið hafi verið
eftir verklags-
reglum um inn-
herjaviðskipti
við einkavæð-
ingu Búnaðar-
banka íslands.
Stöð 2 greindi frá.
Fleiri þurfa líffæri
íslendingum sem þurfa á líf-
færaígræðslu að halda hefur
fjölgað mjög mikið á undanfóm-
um árum vegna þess að langvinn-
ir sjúkdómar, sem leiða tU líf-
færabUunar, eru orðnir tíðari.
Gunnar Guðmundsson lungna-
sérfræðingur, einn af stofnend-
um íslenska líffæraflutninga-
hópsins, segir ástæðuna vera
bætta meðferð og þekkingu sem
geri það að verkum að fólk lifi
lengur en áður með ákveðna
sjúkdóma. Líffæraflutningar
verða eini kosturinn til að fólkið
geti haldið áfram að lifa. RÚV
greindi frá.