Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2000 Fréttir Tugmilljónatjón 1 bruna i leikfangaverksmiðju i Bolungarvik: Sárast að sjá starfið verða að engu - segir eigandinn, Örnólfur Guðmundsson DV, Bolungarvík: „Þetta var gífurlegt tjón og að mínu mati vart undir tuttugu milljónum króna. Þaö er sárast að sjá aUt sitt starf veröa að engu,“ sagði Ömólfur Guðmundsson, eig- andi Hólsvéla ehf., eftir að fyrir- tæki hans brann á laugardags- morgun. Sjómenn á leið tU skips urðu eldsins veirir um klukkan sex að morgni og tilkynntu tU neyðar- línu. SlökkvUiö Bolungarvíkur kom þegar á staðinn en töluverður eldur var þá í húsinu, aðaUega í einangrun, og hitinn orðinn gífur- legur. Fljótlega tókst að ná tökum á eldinum og var slökkvistarfi að mestu lokið á tíunda tímanum. Önnur hús voru aldrei í hættu og réð þar mestu að veður var þokka- legt. Fyrirtækið, sem er I eigu Öm- ólfs og eiginkonu hans, Málfríðar Sigurðardóttur, starfrækti leik- fangaverksmiðju og smágröfuþjón- ustu. í leikfangagerð hefur fyrir- tækið verið að hasla sér vöU, með- al annars með sölu á ÖMS-leik- föngum, svo sem gröfúm, vörubíl- um, rútum, dúkkuvögnum og kerr- um. Leikfongin hafa náð miklum vinsældum, enda þótt vönduð og nánast fúUkomin eftirmynd stærri tækja og bíla. Smágröfuþjónustan var í ýms- um verkefnum, m.a. fyrir fjar- vannaveitima og kirkjugarðana. í húsinu, sem er stórskemmt eft- ir brunann, eyðUögðust m.a. smá- beltagrafa og fólksbíU, auk allra tækja fyrirtækisins. Stór lager leikfanga er ónýtur, auk móta og hönnunarvinnu. Að sögn Örnólfs var fyrirtækið tryggt en óvíst er á þessari stundu hvort sú trygging nær að bæta aUt það tjón sem varð. Hann segir tjón þeirra hjóna gífurlegt. „Ég var búinn að byggja upp góðan markað fyrir leikfangagerð- ina, auk þess sem smágröfuþjón- ustan hafði í nógu að snúast,“ seg- ir Örnólfur. -KS Örnólfur Guömundsson við fyrirtæki sitt, Hólsvélar, eftir brunann á laugardag. Gífurlegt tjón varð í brunanum enda mikil hönnunarvinna í rúst. DV-mynd Kolbrún Skíðaganga á Miklatúni í kvöld: Áskrifendum DV boðið að læra á gönguskíði í kvöld býður DV áskrifendum í tveggja stunda kennslu á göngu- skíðum í samstarfi við Skíðasam- bands íslands. Kennslan fer fram kl. 19-21 á Miklatúni. Kennarar frá Skíðasambandinu verða á staðnum tU að veita fólki leiðsögn. Allur búnaður verður á staðnum fyrir þá sem ekki eiga skíði og kennslan er áskrifendum að sjálfsögðu að kostn- aðarlausu. „Á þessum tveimur timum verð- ur farið yfir grunnatriðin, eins og við gerum í slikri kennslu,“ sagði Bjami Friðrik Jóhannsson sem sæti á í norrænu greinanefnd Skíðasambands íslands. „Sl. sex ár hefur Skíðasambandið verið með í gangi sérstakt útbreiðsluátak sem heitir „Skíðagöngukennsla fyrir al- hennar. Við erum með búnað fyrir 60 manns sem við lánum út. Á hverju ári höfum við haldið Skíðahelgi í Laugardal. Síðast þeg- ar hún var haldin mættu 750 manns í Laugardalinn og tóku þátt í henni með okk- ur. Stefnan hjá okkur er sú að vera meira hér sunnalands heldur Fjölmennt var á síðustu skíðahelgi sem Skíðasam- en verið hefur og átak- band íslands stóð fyrir (Laugardal, eins og sjá má á ið mun verða í gangi myndinni. Þessar helgar eru árlegur viðburður. hér á höfuðborgar- svæðinu mestan hluta menning". Þetta átak miðar að því vetrar. Það mun ekki fara fram hjá að kynna íþróttina fyrir almenn- neinum." ingi í því skyni að fjölga iðkendum -JSS Kóngurinn í fríi - og þá verður barist hart Tónskáld og textahöfundar hugsa sér gott til glóðarinnar þeg- ar Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks 2000 er hafin. Aug- lýst hefur verið eftir lögum í keppnina en henni mun ljúka á úrslitakvöldi I Sæluviku Skagfirð- inga föstudaginn 5. maí nk. öllum laga- og textahöfundum landsins er heimil þátttaka. Heyrst hefur á skotspónum að kóngurinn sjálfur, Geirmundur Valtýsson, gefi völl- inn eftir, ef svo má segja - verði ekki með í ár. Það munu hins veg- ar fjölmargir víða um land gera og hugsa sér gott til glóðarinnar enda góð verðlaun í boði. Án efa verður hart barist um sigurlaunin aö þessu sinni. Dómnefnd mun velja tíu lög til að keppa á úrslitakvöldi þann 5. maí og sérstofnuð hljómsveit flytja lögin ásamt söngvurum sem höf- undar velja. Framkvæmdastjóri keppninnar Geirmundur Valtýsson, höfundur skagfirsku sveiflunnar, er sagður taka sér frí frá keppni í ár. er Helga D. Ámadóttir og hljóm- sveitarstjóm er í höndum Eiríks Hilmissonar. Keppni kvenfélags- ins á Króknum er helsti vettvang- ur fyrir fjölmarga tón- og textahöf- unda sem vilja koma verkum sín- um á framfæri. Síðasti skilafrest- ur er 2. febrúar 2000. -JBP AUt heilsunnar veena cr Heilsudýnur Svefnherbergishúsgögn Jámgqflar Heihukoddar Hlíffiardýnw' Rúmteppasett Hágœða bámullarlök Sœngur Scengurver Larnpar Speglar J4V|'k- AKU*^ Listhúsinu Laugardal.sími 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, sími 461 1150 • www.svefnogheilsa.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.