Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Blaðsíða 17
'JtFiSF”'"' I I | MANUDAGUR 10. JANUAR 2000 wnning Nýstárlegar ljóðasleppingar Ef þetta eintak er af einhverjum ástœðum staðsett í bókahillu þá máttu taka það með þér án þess að láta eiganda bókahillunnar vita, því enginn á þessa bók og enginn mun nokkru sinni fá aö eiga hana. Fyrstu bók ársins kalla þau hana, ungskáldin sem standa ásamt Menningarborg 2000 og bókaútgáf- unni Nykri að hinni sérstæðu Bók í mannhafið {láttu hana ganga {. Eig- inlega er þessi útgáfa líka félags- fræðileg athugun - aðstandendur hennar segjast vera að kortleggja ljóðagenin í þjóðinni með henni. Hún verður nefniiega ekki seld og enginn má eigna sér hana heldur verður henni dreift i Bónusi til þeirra sem vilja við henni taka og síðan á hún að ganga milli manna. Aftast í hverju eintaki er gestabók þar sem fólk skráir nafn sitt og hvar og hvenær það fann bókina („fund- arstað“!) og eftir nokkur ár verður hægt að lesa þessar gestabækur og sjá hverjir eru ljóðavinir og hvar þeir hafa verið staddir á ákveðinni stundu. „Það býr sama að baki hér og við seiðasleppingar, við ætlum að gá hvernig þetta skilar sér,“ segir Andri Snær Magnason, ritstjóri og hugmyndasmiður bókarinnar. „Við íhuguðum að hafa á bókunum gervi- hnattamerki eins og sett verður á Keikó þannig að við gætum til dæm- is „séð“ að nú væru tíu bækur í Hlíðunum, tvær á Akureyri og ein á leiðinni yfir hnöttinn en það reynd- ist of dýrt. Þess vegna treystum við á að fólk skrifl nafn sitt og aðrar upplýsingar í gestabókina. Við ræddum lauslega að setja vúdúbölv- un á bókina ef hún skyldi lenda í bókahillu og Sindri Freysson lagði til að við settum veggjatítlur í lítið hólf sem opnaðist ef hún væri lengi Sigurbjörg Prastardóttir: Ást Æðarnar eins og sprengiþráður úr teikni- mynd eða síðari heims- styrjöld. og við snertingu hleypur neisti í kveikinn fuðrar upp eftir framrétt- um handleggnum eins og blóðeitrun eftir blýstungu áfram hraðar frá oln- boga upp að öxl í skarp- an vinkil og inn undir rifbein þangað til hjarta- laga púðurdósin spring- ur og þá er sannarlega brýnt að þú haldir fyrir eyrun. kyrr á sama stað en báðum tillögum var hafnað.“ Andri Snær hefur gert tilraun af þessu tagi áður með ljóðabók sína Ljóðasmygl og skáldarán. Hann sendi að vísu aðeins um tíu eintök á flakk á móti um 2000 eintökum nú en hann segist núna, fimm árum seinna, enn fá fréttir af þeim. Síðast frétti hann af einu eintaki inni á salemi á TölvuMyndum og gesta- listi þess var orðinn langur og skrautlegur, það hafði til dæmis fundist í strætó og á sólbaðsstofu, einhver hafði rétt hana öðrum í Hljómskálagarðinum og einn hafði hitt hana í Þorlákshafnarrútunni. „Fólk hefur gaman af að skilja eitthvað eftir sig á þennan hátt,“ segir Andri Snær. „Vonandi verður þetta stærsti og lífseigasti viðburð- ur menningarársins því bókinni er ætlað að velkjast um alla eiiífð og þetta er eflaust eini viðburðurinn sem allir geta tekið með sér heim og upp í rúm.“ í Bók í mannhafið eru ljóð eftir 13 skáld, öll núlifandi. Þau eru: Sigur- björg Þrastardóttir, Sindri Freys- son, Kristján Þórður Hrafnsson, Andri Snær Magnason, Ása Marin Hafsteinsdóttir, Vala Þórsdóttir, Gerður Kristný, Sigtryggur Magna- son, Davíð Stefánsson, Kjartan H. Grétarsson, Margrét Lóa Jónsdóttir, Bergsveinn Birgisson og Steinar Bragi. Bók mann íiatlu hana ganga) hafið Og þú manst: Ef þú finnur hana þá læturðu hana ganga - að lestri loknum. PRÍFANDI VINNUÞJARKUR ÓSKAR EFTIR STARFI. 4X4 ENGIN FYRIRSTAÐA. Rekstrarleigusamningur Engin útborgun 50.572 kr. á mánuSi Rekstrarleiga er miðuð er við 24 mánuði og 20.000 km akstur á ári. Fjármögnunarleiga er miðuð við 60 mánuði og 25% útborgun, greiðslur eru án vsk. Vsk leggst ofan á leigugreiðslur en viðkomandi fær hann endurgreiddan ef hann er með skattskyldan rekstur. Allt verð er án vsk. Fjármögnunarleiga Utborgun 479.920 kr. 29.610 kr. á mánuði ATVINNUBÍLAR FyRiRTÆKJAÞJÓNUSTA Grjóthálsi 1 Sfmi 575 1200 Söludeild 575 1225 HYunoni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.