Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Page 10
10 MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2000 Fréttir Aðgangur að heilbrigðisþjónustu víða skertur: Kostnaður læknisþjón- ustu skiptir máli - 13% unga fólksins hafa ekki ráð á læknishjálp Háskóli íslands og Landlæknis- embættið framkvæmdu viðamikla rannsókn haustið 1988 um hvort mat á heilbrigðisþjónustu sam- ræmdist þjónustuþörf einstak- linga. Úrtak könnunarinnar var af öllu landinu og voru 1924 einstak- lingar á aldrinum 18-75 ára spurð- ir álits. Stuðst var við erlendar við- miðanir sérfræðinga við mat á hvort notkun heilbrigðisþjónustu samræmdist þjónustuþörf einstak- linga og hópa. Rannsóknin var undir stjórn Rúnars Vilhjálmsson- ar prófessors. Á blaðamannafundi sem haldinn var á vegum Landlæknisembættis- ins voru helstu niðurstöðurnar kynntar. Kostnaður skiptir máli Fram kom verulegur munur á að- gangi að heilsugæslu milli hópa og hefur yngra fólkið sjaldnar heimilis- lækni sem það þekkir. Auk þess frestar sá hópur frekar eða sleppir ferð til læknis ef hægt er. Þá kom fram að kostnaður víð læknisþjón- ustu á sinn þátt í forfóllum en 13% fólks á aldrinum 18-24 ára fresta eða afboða komu tU læknis vegna þess að það telur þjónustuna of dýra. Fólk á miðjum aldri fer hins vegar sjaldnar tU læknis vegna þess Þarftu spark í... Okkar þriggja ára reynsla tryggir þér frábæran árangur Átta vikna aðhaldsnámskeið Gauja litla hefjast í World Class 10. janúar Námskeið þar sem feitir kenna feitum í allan vetur! Innifalið f námskeiöinu er eftirfarandi: Yogaspuni 3 til 5 sinnum í viku • Vigtun • Fitumæling • Ýtarleg kennslugögn Matardagbækur • Mataruppskriftir • Æfingabolur • Vatnsbrúsi Fræösludagur • Hvetjandi verölaun • Viötal viö næringarráögjafa Vaxtamótun meö íþróttarkennara • Einkaviðtal viö Gauja litla Ótakmarkaöur aögangur aö World Class Skráning stendur yfir núna í síma 8961298 að það er bundnara við vinnu sína. Einhleypir og fráskildir leita síður læknis Fleiri konur en karlar þekkja nafn heimilislækna sinna. Þá kom fram að einhleypir og fráskildir leita síður til þeirra en þeir sem eru í sambúð eða giftir. Auk þess fer sá hópur síður í blóðþrýstingseftirlit og leghálsskoðun. Ekkjur fara sjaldnar en aðrar konur í brjósta- skoðun. Þeir sem starfa utan heimilis og eiga börn hafa lakari aðgang að heilbrigðisþjónustu og nota hana síður í veikindum eða í fyrirbyggj- andi skyni en þeir sem starfa heima. Aðgangur að læknisþjónustu er misjafn eftir landshlutum og er hann lakastur á Vesturlandi, Norð- urlandi vestra, Austurlandi og Suð- urlandi. Menntun hefur ekki áhrif Menntun hefur ekki mikil áhrif á það hvort farið er til læknis en þó kom fram að þeir sem meiri mennt- un hafa fylgjast frekar með blóð- þrýstingi en aðrir. Auk þess eru tengsl milli menntunar kvenna og þess að fara í leghálsskoðun en þær sem meiri menntun hafa fara oftar. Lágtekjufólk hefur lakari aðgang að heilbrigðisþjónustu en hægt er að rekja það til fjarlægðar frá lækn- isþjónustu. Viðhorf og möguleikar Ástæðurnar fyrir þeim mun sem hér er rakinn á aðgangi al- mennings að heilbrigðisþjónust- unni geta verið fjölmargar. Við- horf einstaklinga og fjölskylduað- stæður, möguleikar útivinnandi fólks og staða heilbrigðisþjónust- unnar eru þær ástæður sem nefndar eru í þessu sambandi. Besta leiðin til að tryggja að all- ir hafi heimilislækni og góð tengsl við heilbrigðisstarfsmenn er að bæta sjúkratryggingar og styrkja heilbrigðiskerfið. Þannig er hægt að draga úr mun á að- ganginum milli þjóðfélagshópa. -hól Ný saltfiskverkun á Höfn: 15 tonn af góðgæti á dag Hafin er vinnsla í nýrri saltfisk- verkun á Höfn. Þetta nýja fyrirtæki heitir Bestflskur ehf. og er eign út- gerðarmannanna Friðþórs Harðar- sonar og Ómars Franssonar ásamt Sívari Áma Scheving sem er fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins. Best- fiskur er í nýju rúmlega 800 fer- metra húsi við Óslandsveg og er búið fullkomnum búnaði fyrir salt- fiskverkim og er aðstaða öll hin glæsilegasta. Byggingarverktaki hússins er Sveinn Sighvatsson og sá hann um uppsetningu og allan frágang á hús- inu sem er frá Límtré hf. Verkfræði- stofan Hönnun Ráðgjöf hannaði húsið. Sívar Árni sagði að þeir væru með þrjá báta sem legðu upp fisk hjá þeim og vonandi kæmu fleiri seinna og þegar vantar fisk er farið á fiskmarkaðinn og tilboð gerð. Vinnsluafköst eru um 15 tonn á dag og starfsmenn 6 til 10. Fiskurinn er fullverkaður til útflutnings og 5. ..... janúar var verið aö pakka fiski í E|gendur Bestfisks, ungir og dugmiklir menn, Friðþor Haröarson, Omar fyrstu sendinguna. -JI Fransson og Sívar Árni Scheving. Framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs: Aldrei fleiri kærur Aldrei hafa Jafnréttisráði borist jafnmörg mál eins og á árinu sem var að líða en samtals barst því 22 kæru- mál. I samtali við Elsu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra Jafnréttisráðs og starfsmanns kærunefndar, berast að meðaltali 12-14 mál á ári. Helstu kærumálin eru vegna ráðninga í störf en launamál koma þar á eftir. Karlar sækja í sig veðrið Af þeim 22 sem bárust voru fimm mál sem var ólokið frá árinu 1998 og fluttust yfir á árið 1999. Nefhdin af- greiddi þau fimm og voru 4 þeirra tal- in brot. Af málum sem bárust árið 1999 voru fimm ekki talin brot. Tvö þeirra voru afturkölluð, þar af eitt þar sem samkomulag náðist og fimm voru talin brot. Eftir standa 10 mál sem flytjast yfir á þetta ár. Kærendur í mákmum 22 sem bárust á árinu 1999 voru 4 karlar og 18 konur. Þau fimm mál sem færðust frá 1998 voru konur kærendur í öllum. Árið 1998 bárust nefndinni 11 mál og lauk hún afgreiðslu á 7 málum en fjögur þeirra voru frá árinu á undan. Elsa Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs, segir flestar kærurnar vera vegna ráðninga í störf. Af þeim sjö málum sem nefndin lauk voru fimm þeirra sem réttur kæranda hafði verið brotinn að öllu leyti eða að einhverju leyti. Kvenmenn kærðu í 10 tilfellum á móti einni kæru sem lögð var fram að karlmanni. Nefndina skipa 3 lögfræðingar; tveir eru tilnefndir af Hæstarétti og einn af félagsmálaráðherra. Hægt er að skoða afgreidd mál á heimasíðu Jafnréttisráðs en hún er jafnretti.is. -hól

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.