Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Side 11
MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2000
11
Préttir
Hjartavemd:
Dagleg hreyfing er veruleg forvörn
„Flestir fara með bílinn sinn reglu-
lega í skoðun en það má ekki gleyma
að fara og láta skoða líkama sinn því
hann er sá eini sem maður á en bílana
má endurnýja," segir Ástrós Sverris-
dóttir hjúkrunarfræðingur, en hún
starfar sem fræðslufulltrúi hjá Hjarta-
vernd.
Rannsóknarstöð Hjartavemdar hef-
ur verið starfrækt frá árinu 1967.,
Þangað leitar fjöldi manns á ári
hverju til að láta athuga þá áhættu-
þætti sem tengjast hjarta- og æðasjúk-
dómum. Sá hópur sem lætur meta
áhættuþætti sína mætti vel vera
stærri en ákveðinn hópur fólks fer í
reglulegar mælingar.
Þeir sem komnir em yflr fertugt er
eindregið hvattir til að huga að sjálf-
um sér og fylgjast með helstu áhættu-
þáttum sem herja á mannfólkið. Það
er ekki að ósekju að nauðsyn ber að
fylgjast með en hver og einn getur
haft verulegt áhrif á þá þætti sem lúta
að hjarta- og æðasjúkdómum.
Hvert er blóðfitumagnið?
Rannsóknir hafa leitt í ljós að blóö-
fitutruflanir (kólesteról), hækkun
blóðþrýstings, kyrrseta og síðast en
ekki síst, reykingar, eru helstu
áhættuþættirnir. Aðspurð sagði
Ástrós að mjög einfalt væri að fá úr
því skorið hvernig líkamlegt ásig-
komulag væri hjá hverjum og einum.
Auk þess getur fólkið leitað til heimil-
islæknis síns til að fá úr því skorið
hvernig ásigkomúlagið væri en þessar
rannsóknir samanstanda af athugun á
blóðfitu, blóðþrýstingi, blóðsykri og
auk þess er hægt að fara í öndunar-
próf, áreynslupróf og hjartalínurit.
„Almennt þekkir fólk ekki sitt blóð-
fitumagn en það er nauðsynlegt að
vera meðvitaður um það og auðvelt er
að láta mæla það. Meðan blóðfitan
hækkar vægt er hægt að gripa inn í
með réttu matarræði áður en til lyfja-
meðferðar kemur. Þess má geta að
áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma
magna hver annan upp en með því að
vinna á einum þeirra, t.d. með hreyf-
ingu, er verið að vinna gegn fleiri en
einum þætti,“ segir Ástrós.
Rannsóknir Hjartaverndar hafa
leitt það í ljós að 30 mínútur í hreyf-
ingu á dag er veruleg forvörn fyrir
hjarta- og æðasjúkdóma. „Það er ekki
nægilegt að hreyfa sig eingöngu í jan-
úar. Regluleg hreyfing ætti að vera
hluti af athöfn daglegs lífs,“ segir
Ástrós. Þrátt fyrir að fólk sé sér betur
meðvitandi um líkamlega vellíðan i
dag en fyrir 30 árum hefur Ástrós
áhyggjur af unga fólkinu sem hreyfir
sig alls ekki nægilega mikið.
„Það er nægilegt að ganga t.d. í
matvöruverslunina í stað þess að setj-
ast inn í bíl. Þannig er komin ágætis-
hreyfing fyrir daginn. Þá eru það
reykingarnar en alltof stór hópur
fólks reykir þrátt fyrir að þær hafi
verið á undanhaldi en talið er að einn
íslendingur deyi af völdum reykinga á
dag,“ segir Ástrós.
Því er ekki seinna vænna að huga
að sjálfri líkamsvélinni sinni en eins
og aðrar vélar er nauðsynlegt að kom-
ið sé fram við hana af alúð og að hún
sé undir eftirliti. Því betra er að fyrir-
byggja líkamlegar veilur en að lækna
þær þegar þær hafa orðið.
-hól
Ástrós Sverrisdóttir hjúkrunarfræöingur hvetur þá sem komnir eru yfir fer-
tugt aö fara í regluiegar mælingar til aö fyrirbyggja hjarta- og æöasjúkdóma.
- staðalbúnaður
í nýjum Scénic.
Nýr Renault Scénic
kosfar frá 1.718.000 kr.
Gijótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Aksturstölvan í nýjum Scénic gefur góða yfirsýn yfir lykiltölur í
akstrinum; t.d. fjölda lítra á bcnsíntanki, meðalbensíneyðslu m.v.
aksturslag, meðaleyðslu frá síðustu áfyllingu, meðalhraða, hversu
langt má aka m.v. bensín á tanki og margt fleira. Aksturstölvan er
ómetanleg hjálp sem sparar bensín og auðveldar þér aksturinn.
Komdu og skoðaðu nýjan Scénic.
RENAULT