Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Side 33
MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2000 45 Jónas Bragi sýnir skúlptúra í Hári & List. Bárur Síðastliðna helgi opnaði mynd- listarmaðurinn Jónas Bragi sína fimmtu einkasýningu, Bárur, í sýningarsal Hárs og Listar, Strandgötu 39, Hafnarfirði. Á sýn- ingunni sýnir Jónas Bragi skúlpt- úra og myndverk sem hann hefur unnið úr kristalgleri og öðrum glerefnum sem eru meðhöndluð á sérstakan og athyglisverðan hátt. Verkin eru flest geometrísk form sem skírskota til náttúrunnar. Sýningar Jónas Bragi er fæddur i Hafnar- firði 1964 og hóf ungur að fást við gler. Hann lauk námi í skúlpt- úradeild Myndlista- og handíða- skóla íslands 1989 og stundaði glerlistarnám í West Surrey Col- lege of Art & Design og Edinburgh College of Art, þaðan sem hann lauk meistaranámi í glerlist meö sóma, og var verk hans, Öldur, valið besta útskriftarlistaverk úr gleri á Bretlandseyjum á sýning- unni Crystal ‘92. Jónas Bragi hefur haldið fjórar einkasýningar og tekið þátt í fiölda samsýninga viðs vegar um heim, t.d. í Japan, Hollandi, Englandi og á Norðurlöndunum. Sýningin er opin á almennum af- greiðslutíma verslana virka daga og 14 til 18 á sunnudögum. Listaklúbbur Leikhúskjallarans: Krítarhringur- inn og Brecht í kvöld verður dagskrá í Lista- klúbbi Leikhúskjallarans í tengsl- um við sýningu Þjóðleikhússins á Krítarhringnum í Kákasus eftir Bertolt Brecht. Krítarhringurinn í Kákasus er eitt af vinsælustu verk- um Brechts en leikritið er nú sýnt í fyrsta skipti á íslensku leiksviði. Brecht skrifaði verkið í Bandaríkj- unum árið 1944, i útlegð frá Þýska- landi nasismans. í því er tekið til meðferðar efni sem frægt hefur orð- ið í bókmenntum en það er deila tveggja kvenna um barn, deila sem dómari leiðir til lykta með óvenju- legum hætti. Skemmtanir Leikstjóri sýningarinnar er Stef- an Metz sem kemur frá leikhúsinu Theatre de Complicite í London sem hefur á síðustu árum hlotið heims- frægð fyrir óvenjulegar og magnað- ar leiksýningar. Umsjón með dag- skránni hefur Melkorka Tekla Ólafsdóttir sem flytur inngang um verkið og höfundinn. Leikarar í sýningunni lýsa aðferðunum sem beitt var viö uppsetninguna og leika atriði úr verkinu. Dagskránni lýkur með umræðum gesta og nokkurra af aðstandendum sýningarinnar. Húsið verður opnað kl. 19.30 og dagskráin hefst 20.30. Ein eftirminnilegasta persóna sýningarinnar á Krítarhringnum í Þjóðleikhúsinu er litli drengurinn sem deilt er um. Hann er listilega leikinn af brúöu sem Suzann Wáchter bjó tii og Brynhildur Guðjónsdóttir stýrir. Hætturnar eru margar sem James j Bond lendir í. James Bond Nítjánda James Bond kvik- myndin, The World Is not Enough, er sýnd í Bíóborginni. Sem fyrr er Bond að bjarga heim- inum og tU að svo geti orðið þarf hann að ganga í gegnum miklar eldraunir. Það er ekkert nýtt fyrir Bond eða 007, sem eru hans ein- kennisstafir, að eiga við hryðju- verkamenn og nú er það hópur slíkra manna sem ætlar sér að ná yfirráðum yfir olíulindum heims- ins. TU að koma í veg fyrir að svo verði þarf Bond að glíma við hryðjuverkaforingjann Renard, auk þess ///////// sem fallegar stelpur verða á vegi hans sem hann að sjálfsögðu stenst ekki, þótt ekki séu þær aUar þar sem þær eru séðar. Það er Pierce Brosnan sem leik- ur Bond í þriðja sinn og hefur hann fest sig í hlutverkinu á sama hátt og Sean Connery og Roger Moore gerðu á sínum tíma. Nýjar myndir í kvikmyndahúsum: Bíóhöllin: End of Days Saga-bió: Járnrisinn Bíóborgin:The World Is not Enough Háskólabió: Englar alheimsins Háskólabíó: Mickey Blue Eyes Kringlubíó: The 13th Warrior Laugarásbíó: Deep Blue Sea Regnboginn: Drive Me Crazy Stjörnubíó: Jóhanna af Örk Krossgátan Veðrið kl. 12 á hádegi í gær: Eljagangur fyrir norðan 1 dag verður nokkuð hvöss norðan- átt, 10-15 metrar á sekúndu og snjó- koma eða éljagangur um norðanvert landið en hægari norðanátt og víðast léttskýjað um landið sunnanvert í Veðrið í dag nótt. I dag verður norðvesUæg átt, 8-13 metrar á sekúndu með éljum norðaustan til fram eftir degi en ann- ars hægari og léttskýjað. Undir kvöld þykknar upp allra vestast á landinu. Frost verður á bilinu 0 til 7 stig í dag, kaldast í innsveitum norðan til á landinu. Sólarlag í Reykjavík: 15.41 Sólarupprás á morgun: 11.20 Síðdegisflóð í Reykjavík: 13.50 Árdegisflóð á morgun: 1.28 Akureyri skýjað -1 Bergstaðir skýjað -4 Bolungarvík alskýjað -4 Egilsstaðir -6 Kirkjubæjarkl. alskýjað -4 Keflavikurflv. úrkoma í grennd 2 Raufarhöfn skýjað -7 Reykjavík komsnjór 1 Stórhöfði úrkoma í grennd 3 Bergen hálfskýjaö 5 Helsinki skýjað 4 Kaupmhöfn skýjað 4 Ósló léttskýjað 3 Stokkhólmur 5 Þórshöfn snjóél á síð. kls. 3 Þrándheimur slydda á síð. kls. 4 Algarve hálfskýjað 16 Amsterdam léttskýjað 7 Barcelona alskýjað 11 Berlín skýjað 6 Chicago rigning 3 Dublin léttskýjað 4 Halifax alskýjað 1 Frankfurt rigning 6 Hamborg þokumóða 4 Jan Mayen skýjað -2 London léttskýjað 5 Lúxemborg skýjað 4 Mallorca skýjað 15 Montreal þoka 3 Narssarssuaq alskýjað -15 New York skýjað 5 París 7 Róm þokumóöa 11 Vin þokumóða -2 Washington skýjað 4 Winnipeg heiðkskírt -7 Birta María fædd Birta María er vikugömul á þessari mynd. Þessi fallega, litla stúlka heitir Birta María Pétursdóttir. Hún fæddist 19. október siðastliðinn á Barn dagsins Landspítalanum, kl. 16.55. Við fæðingu var hún 52 sentímetrar á lengd og 3330 grömm aö þyngd. Foreldrar hennar heita Regína Laufdal og Pétur J. Pétursson. 1 2 3 4 5 6 7 B 9 10 11 12 13 14 Ú 17 18 19 20 21 Gengið Almennt gengi Lf 07. 01. 2000 kl. 9.15 Eininn Kaup Sala Tollqenqi Dollar 71,850 72,210 72,800 Pund 118,240 118,850 116,730 Kan. dollar 49,190 49,500 49,500 DBnsk kr. 9,9570 10,0120 9,9040 Norsk kr 9,0470 9,0970 9,0830 Sænsk kr. 8,5780 8,6250 8,5870 R. mark 12,4570 12,5319 12,3935 Fra. franki 11,2913 11,3591 11,2337 Belg. franki 1,8360 1,8471 1,8267 Sviss. franki 46,1100 46,3700 45,9700 Holl. gyllini 33,6097 33,8116 33,4382 Þýskt mark 37,8693 38,0969 37,6761 It. líra 0,038250 0,03848 0,038060 Aust sch. 5,3826 5,4149 5,3551 Port. escudo 0,3694 0,3717 0,3675 Spá. peseti 0,4451 0,4478 0,4429 Jap. yen 0,681400 0,68550 0,714000 írskt pund 94,044 94,609 93,564 SDR 98,810000 99,41000 99,990000 ECU 74,0700 74,5100 73,6900 í' Lárétt: 1 glappaskot, 8 hljóða, 9 knæpa, 10 þrengsli, 11 lokað, 13 reiðufé, 15 geð, 16 ólmi, 17 skraflr, 19 flas, 21 kjarkaður. Lóðrétt: 1 köld, 2 slóttugheit, 3 ókyrrð, 4 stofu, 5 hættuleg, 6 ryk- kom, 7 fjörugri, 12 niðurinn, 14 veinið, 15 lítil, 16 gruni, 18 haf, 20 ónefndur. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 skvap, 6 ös, 8 leiöur, 9 örk, 10 eðla, 11 kæni, 13 káf, 14 stinn, 15 tá, 17 kul, 19 sáir, 20 ýr, 21 æpir. Lóðrétt: 1 slök, 2 ker, 3 vikni, 4 aö- eins, 5 puð, 6 örlátir, 7 staf, 12 ætur, 13 knái, 14 ský, 16 ára, 18 læ. Simsvari vegna gengisskráningar 5623270 .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.