Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Page 36
Ingvar
Helgason hf.
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Húnavatnssýsla:
Ók inn í
hrossahóp
Bíl var ekið inn í hrossahóp á
þjóðveginum í Langadal í Húna-
Mt vatnssýslu í gærmorgun. Engin slys
urðu á ökumanni og farþega í biln-
um. Aflífa þurfti einn hest vegna
meiðsla og bíllinn skemmdist tals-
vert. Ökumaður sá ekki hrossin
fyrr en um seinan vegna myrkurs.
Hann þarf að bera kostnað af tjóni á
bílnum og bæta hrossið að auki.
Að sögn lögreglunnar á Blönduósi
er alltof mikið um að hross séu að
þvælast á þjóðveginum á þessum
slóðum. í raun sé þetta vandræða-
ástand því ekki sé hægt að taka á
málum af þessu tagi þar sem lausa-
ganga búfénaðar sé ekki bönnuð í
hreppunum. -JSS
Hafnarfjörður:
% Þrettándabrenna
í blindhríð
Hafnflrðingar brenndu út jólin
með veglegri þrettándabrennu.
Kveikt var í bálkestinum milli sex og
sjö á laugardagskvöld. í þann mund
skall á hvassviðri og blindhríð á köfl-
um. Það kom þó ekki í veg fyrir að
álfakóngur kæmi ríðandi á svæðið
ásamt liði sínu. Þá sást til nokkurra
síðbúinna jólasveina.
Að sögn lögreglunnar var ótrúlega
...» fjölmennt við brennuna þrátt fyrir
óveðrið og fór allt hið besta fram.
Talið var óhætt að kveikja í brenn-
unni þar sem vindur stóð af byggð-
inni. -JSS
Víkingur AK.
Víkingur dreginn
DV Eskifiröi:
(:V^ Nótaveiðiskipið Óli 1 Sandgerði
kom með Víking Ak-100 í togi til
Eskiíjarðar kl. 19.30 í gærkvöld. Bil-
un i aðalvél Víkings varð þess vald-
andi að draga þurfti skipið til hafn-
ar á Eskifirði þar sem gert verður
við skipið.
Guðlaugur Jónsson, skipstjóri á
Óla í Sandgerði, sagði í samtali við
DV í gærkvöld að vel hefði gengið í
alla staði að draga skipið til hafnar
og tók það um 12 klukkustundir.
Skipin voru á loðnuveiðum út af
Reyðarfirði og var hvort um sig
komið með um 500 tonn sem landað
var til bræðslu á Eskifirði.
Vonast er tO að viðgerð á aðalvél
Víkings gangi sem fljótast fyrir sig.
-Regína
Mikill erill var hjá slökkvili&inu síödegis í gær og fram á kvöld. Margir hringdu og báðu um aðstoö vegna vatnsleka
af þökum eða stíflaðra niðurfalla. Vatnsagi var mikill og lak sums staðar inn í hús. Engar verulegar skemmdir urðu
þó af þeim sökum. DV-mynd HH
lyiargrét Frímannsdóttir:
Eg hef áhyggjur
„Auðvitað hlýt ég að hafa áhyggjur
af yfirlýsingu eins og þessari sem
barst frá Fjarðalistanum, þar sem
margir mætir fé-
lagar innan Sam-
fylkingarinnar
starfa," sagði
Margrét Frí-
mannsdóttir, tals-
maður Samfylk-
ingarinnar, I gær-
kvöld.
Fjarðalistinn
hefur í raun sagt Margrét Frí-
sig frá Samfylk- mannsdóttir -
ingunni vegna skoðanir skarast.
skoðanaágreinings um virkjanamál á
Austurlandi.
„Sumir þeirra sem standa að
Fjarðalistanum hafa að vísu ekki
endilega verið fylgismenn Samfylk-
ingarinnar. En það er áhyggjuefni
þegar skil verða milli þingflokksins,
einu formlegu stofnunar Samfylking-
arinnar, og Fjarðalistans - skoðanir
stangast á og þessi tvö sjónarmið
skarast verulega. Við höfum rætt við
okkar félaga fyrir austan og reynum
að byggja upp trúnaðartraustið að
nýju,“ sagði Margrét. -JBP
Kvótabaninn sagði kerfinu stríð á hendur og kvaðst hættur viðskiptum á Kvótaþingi:
Vatneyrin BA áfram
í kvótaviðskiptum
- ekkert óeðlilegt við það, segir Svavar Guðnason útgerðarmaður
Vatneyri BA 238, sem fræg er orð-
in vegna baráttu Svavars Rúnars
Guðnasonar við kvótakerfið, hefur
verið bundin við bryggju allt frá því
skipið var kyrrsett í fyrra. Eigi að
síður hefur útgerðin átt töluverð
viðskipti við Kvótaþing og virðist
því hafa tekið fullan þátt i kerfinu
sem verið er að berjast gegn.
„Það er ekkert óeðlilegt við það,“
sagði Svavar Rúnar Guðnason skip-
stjóri í samtali við DV. „Skipið er
með um 35 tonn af þorskveiðheim-
ildum. Ég hef þó ekkert gert út i ell-
efu mánuði. Þetta hafa bara verið
tilfærslur á tegundum. Af þvi að ég
hef ekki verið að gera út þá útvég-
aði ég t.d. einum kunningja mínum
kola og hann lét mig hafa þorsk í
staðinn. Ég leigði síðan aftur frá
mér þorskinn og fékk þá kola í stað-
inn. Þetta er bara eins og Kvóta-
þingið „fúnkerar". Ef einn vantar
eitthvað þá reddar annar því.“
Ég gaf þá yfirlýsingu í fyrra að ég
myndi ekki gera út upp á þetta og ég
hef ekki gert það. Ég átti annan bát
sem er með veiðileyfi og var ekki
sviptur þvi. Hann gat því
róið allan tímann. Ég lagði
honum hins vegar líka,“
sagði Svavar og segist því
hafa verið fullkomlega sam-
kvæmur sjálfum sér í þessu
máli.
Hætti viðskiptum, en...
Þann tíunda febrúar á síð-
asta ári sendi Svavar frá sér
yfirlýsingu fyrir hönd Hyrnó
ehf., sem er útgerðarfélag
skipsins, og lýsti því yfir að
skip í eigu félagsins hygðist
stunda veiðar áfram þrátt
fyrir að enginn kvóti væri til
staðar. Þetta gerði hann og
var síðan kærður fyrir og
sýknaður á dögunum. í yfir-
lýsingunni segir síðan orð-
rétt: „Þar sem Kvótaþing get-
ur ekki þjónað sínum til-
gangi virðist það þjóna litl-
um tilgangi að eyða púðri í
þá stofnun og er ég hættur
viðskiptum þar.“ - Daginn
Svavar Guðnason segist fullkomlega samkvæmur sjálfum
sér í kvótaviðskiptum.
eftir er hins vegar skráð
ein færsla um kvótavið-
skipti Vatneyrar hjá
Kvótaþingi og síðan 10
færslur frá 15. september
sl. til áramóta, síðast
tvær færslur þann 7. des-
ember.
Síðar í sömu yfirlýs-
ingu Svavars segir: „Og
niðurlægingin er algjör ef
hugsað er til þess að þeir
sem leigja frá sér kvótann
eiga hann í raun og veru
alls ekki frekar en hver
annar og þætti mörgum
skrýtið ef ég færi að bjóða
til leigu íbúð sem einhver
annar ætti og ég þekkti
kannski ekki neitt, hirða
síðan tekjurnar, fela þær
síðan í einhverjum
rekstri og sleppa meira að
segja við að borga skatt af
því sem einhvern tímann
hefði verið talið illa feng-
ið.“
-HKr.
Veðrið á þriðjudag:
Vægl frost
og éljagangur
Norðaustan 8-13 m/s og él á
Vestfjörðum en annars sunnan
og suðvestan 8-13 m/s. É1
sunnan- og norðvestanlands en
annars úrkomulítið. Frostlaust
með suðurströndinni en frost
annars 0-4 stig.
Veöriö í dag er á bls. 45.
MERKILEGA MERKIVÉLIN
brother PT-igoa
íslenskir statir
5 leturstærðir
8 leturgeröir
6, 9 og 12 mm prentboröar
Prentar í tvær línur
Verð kr. 6.603
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443