Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2000, Side 17
16
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2000
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2000
25
Sport
Sport
Indiana Pacers setti félagsmet í
fyrrinótt þegar liöiö vann sinn 18.
heimasigur í röö. Liðið hóf tímabiliö
illa en hefur vaxiö ásmegin svo um
munar á síöustu vikum. Indiana leiö-
ir miðriðilinn og hefur þriðja besta
vinningshlutfaUið i NBA^deUdinni.
Þeir skírteinishafar sem ætla á und-
anúrslitaleik Fram og HK í bikar-
keppninni í kvöld fá miða afhenta í
dag frá kl 15.00-17.00. Þess má geta að
stuðningsmenn HK geta fengið far
með rútu frá Digranesi sem fer
klukkan 19.30 í kvöld.
Nýr styrleikalisti á evrópsku liðun-
um var gefinn út í gær. Lazio situr
áfram í efsta sæti en AC Milan færð-
ist upp um tvö sæti og er annað í röð-
inni. Juventus er áfram í þriðja sæti
en Bayern Múnchen féU úr ööru í það
fjórða. AS Roma er í fimmta sæti og
Manchester United í þvi sjötta.
Franski varnarmaðurinn Bixente
Lizarazu hjá Bayern Múnchen verð-
ur fjarri góðu gamni vegna meiðsla í
kvöld gegn Bayer Leverkusen. V!f
Kirsten verður ekki með Leverkusen
vegna hnémeiðsla.
Luiciano Spalletti var í gær öðru
sinni á sama tímabili rekinn úr starfi
sem þjálfari 1. deUdarliðs Venezia.
Brottvikningin kemur í kjölfar, 5-0,
taps gegn Roma um síöustu helgi.
Francesco Oddo, fyrrum þjálfari Sal-
ernitana, tekur við Venezia-liðinu.
Sagan endalausa um Stan Collymore
er að taka enda og nú er ákveðið að
hann fer frá Aston Villa tU Leicester.
Félögin hafa komist að samkomulagi
og veröur Leicester að greiða ViUa
500 þúsund pund ef CoUymore nær
því að leika 50 leiki fyrir Leicester.
Það er því nokkuö ljóst að enn þreng-
ir að Arnari Gunnlaugssyni hjá
Leicester og virðist hann litla framtíð
eiga hjá félaginu.
Nú er ljóst að Steffen Iversen, fram-
línumaður Tottenham, leUcur ekki
meö liðinu næstu vikurnar. Norð-
maðurinn meiddist á ökkla í leik með
Tottenham um síðustu helgi og er
fjarvera hans mikið áfaU fyrir Totten-
ham enda er Iversen markahæsti
leikmaöur liðsins á leiktíðinni.
-JKS/SK
^ Handbolti:
Átta félög í
leikbann?
Eins og komið hefur fram í
DV er fjárhagsleg staða margra
handknattleiksdeilda félaganna i
Nissandeildinni gríöarlega erfið
svo vægt sé til orða tekið.
Átta félög í Nissandeildinni
hafa ekki getað greitt Hand-
knattleikssambandi íslands það
sem sambandinu ber, t.a.m. í
keppnisgjöld, og samkvæmt
heimildum DV nemur heildar-
upphæðin um 8 milljónum
króna. Nú er þolinmæði HSÍ
þrotin og félögin sem ekki verða
búin að gera hreint fyrir sínum
dyrum fyrir næstu helgi fá ekki
að leika í deildinni.
Fjárhagur HSÍ er bágur og
sambandið má ekki viö því að
félögin trassi að greiða skuldir
sínar.
-SK
NBA-DEILDIN
Úrslit í nótt:
Toronto-Atlanta ..........109-88
Carter 36, Christie 16, Curry 14 -
Mutombo 22, Rider 12, EUis 9.
New Jersey-Boston........131-113
Van Horn 30, Marbury 30, Gill 19 -
Walker 27, Pierce 17, Anderson 16.
San Antonio-Seattle.......79-77
Duncan 22, Robinson 19, Johnson 8 -
Baker 18, Payton 17, Barry 12.
Houston-Cleveland .........91-83
Anderson 23, WUliams 17, Thomas 14 -
Kemp 23, MUler 21, Murray 14.
Phoenix-Vancouver.........94-76
Longley 20, hardaway 13, Gugliotta 12
- Dickerson 19, Rahim 13, Bibby 12.
Sacramento-Chicago.......119-80
Webber 22, Anderson 19, Divac 16 -
Brand 25, Kukoc 12, Hawkins 9.
Patrekur Jóhannesson:
Nettelstedt og
Hameln með tilboð
- hann sýnir þeim ekki áhuga
Patrekur Jóhannesson,
landsliðsmaður i hand-
knattleik, sem undanfar-
in ár hefur leikið með
þýska liðinu Tusem
Essen hefur undir hönd-
um tilboð frá Nettelstedt,
sem leikur í bundeslíg-
unni og 1. deildarliðinu
Hameln.
Patrekur sagði að
áhugi hans fyrir þessum
tilboðum væri ekki tak-
markaður. Hann mun í
næstu viku setjast niður
með Klaus Schorn, for-
seta Essen, og þá ætti
að koma i ljós hver
framtíð Patreks er hjá
félaginu.
Patrekur hefur verið
óánægður með veru
sína hjá Essen og lengst
af eingöngu tekið þátt í
varnarleik liðsins.
Hann vill komast til
liðs þar sem hann fær
einnig að njóta sin í
sókninni. -JKS
Uppgjör í þýsku knattspyrnunni í kvöld:
Leverkusen vinnur
okkur aldrei heima
- segir Uli Höness, framkvæmdastjóri Bayern
Sannkallað uppgjör fer fram í
lýsku Bundeslígunni í knatt-
spymu í kvöld en þá leiða saman
íesta sina tvö efstu lið deildarinn-
ir Bayern Múnchen og Bayer
Leverkusen. Liðin er jöfn að stig-
im en Bæjarar teljast ofar á betra
narkahlutfalli.
Mikil spenna rikir fyrir þessum
lag og verður hvert sæti skipað á
ilympíuleikvagnum i Múnchen.
Uli Höness, framkvæmdastjóri
Bayern, var ekkert að skafa af
hlutunum í gær og sagði að
Leverkusen myndi ekki takast að
leggja Bæjara að velli í Múnchen.
Þess má geta að Leverkusen hef-
ur ekki riðið feitum hesti frá
viðureignum sínum við Bæjara í
Múnchen en 11 ár eru síðan að lið-
ið vann þar síðast sigur.
-JKS
Enski boltinn í gærkvöld:
Eiður með sigurmark
- og Bolton vann en Stoke tapaði
Eiður Smári Guðjohnsen reyndist Bolton betri
en enginn í gærkvöld er hann skoraði sigurmark
liðsins. Bolton mætti þá Port Vale á útivelli og
var mark Eiðs Smára eina mark leiksins.
Eiður Smári fékk þrjú önnur góð tækifæri til
að skora en tókst ekki. Mikið rok setti mark sitt
á leikinn og var hann lítið fyrir augað. Guðni
Bergsson lék allan leikinn í vöm Bolton.
Stoke City, undir stjóm Guðjóns Þórðarsonar,
tapaði á heimavelli Luton Town, 2-1. Stoke var
yfir i leikhléi en Luton jafnaði fljótlega í siðari
hálfleik eftir þunga sókn. Það var svo á sömu
mínútunni sem Eiður Smári var að skora og tryggja Bolton sigurinn gegn
Port Vale í 1. deildinni að Luton Town skoraði sigurmarkið.
Gengi Stoke er dapurt þessa dagana. Brynjar Bjöm Gunnarsson lék allan
leikinn en þeir Sigursteinn og Einar Þór ekki í leikmannahópnum. -SK
Knattspyrnusamband íslands stendur vel:
36 milljónir
- í hagnað á síðasta rekstrarári
Eggert Magnússon, formaður
KSf, gat ekki annað en brosað út í
bæði eyru á blaðamannfundi á
skrifstofu KSÍ i gær en þá var til-
kynnt um 36 milljón króna hagnað
hjá sambandinu á síðasta ári.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
var þó aðeins tæpar 4 milljónir en
með tilliti til fiármagnsliða og af-
komu Laugardalsvallar var hagn-
aðurinn rúmum 38 milljónum
betri en árið á undan þegar sam-
bandið kom út í 2 milljón og 650
þúsund króna mínus.
12 tíma veisla
Á sama blaðamannafundi var
tilkynnt um þriggja ára samning
KSÍ við Reykjanésbæ um afnot af
nýju knattspymuhöllinni í bæn-
um fyrir leiki í deildabikarkeppni
karla og æfingar fyrir landslið en
það verða Keflavík og ÍR sem leika
fyrsta opinbera deildabikarleikinn
þar þegar þau mætast í Reykjanes-
höllinni 3. mars.
Strax á eftir leika íslands- og
bikarmeistarar KR-inga við Njarð-
vík en daginn eftir fer fram 12
tíma knattspyrnuveisla ,í nýju
höllinni því alls 6 leiki munu fara
fram frá því klukkan 10 um morg-
uninn til tíu um kvöldið og verð-
ur þar með lengsta samfellda notk-
un á sama leikvellinum í sögu ís-
lenskrar knattspymu.
Nýtt framfaraskeið
Eggert Magnússon segir þennan
samning byijun á nýju framfara-
skeiði i íslenskri knattspyrnu og
líkti því við tilkomu fyrsta gras-
vallarins 1959 og fyrsta gervi-
grasins, 1985. -ÓÓJ
Afall hjá Celtic
Celtic tapaði í gær, 3-1, a heimavelli
fyrir 1. deildarliðinu Invemess
Caledonian Thistle í þriðju umferð
skosku bikarkeppninnar. Þessi úrslit
verða teljast eitt mesta áfall í 113 ára
sögu félagsins og líklegt er að John
Barnes, knattspyrnustjóri Celtic, sé
orðinn valtur í sessi.
karkeppni kvenna í handbolta í gær:
'furliði að Hlíðarenda í gær
Valur i urslit i
sjötta sinn
Valskonan Sigurlaug Rúnarsdóttir
skorar eitt af sex mörkum sínum án
þess að þær Anna Blöndal og Nína K.
Björnsdóttir hjá Stjörnunni komi
vörnum við. Valskonur komust í úrslit í
sjötta sinn með 27-22 sigri og mæta
þær Gróttu/KR 19. febrúar í Höllinni.
DV-mynd Hilmar Þór
Valur hafði öll völd gegn Stjörn-
unni í undanúrslitum bikarkeppninn-
ar, en liðin mættust að Hlíðarenda í
gær. Valur byrjaði leikinn af miklum
krafti og hafði þriggja marka forskot
eftir tæplega 10 mínútna leik, 4-1. En
Stjaman kom sterk inn i leikinn, jafn-
aði 7-7 en náði aldrei að taka foryst-
una og leiddi Valur 14-12.
Baráttan og viljinn
Valur sýndi mátt sinn og megin i
seinni hálfleiknum, liðið lék skipu-
lagðan og skemmtilegan handknatt-
leik þar sem baráttan og viljinn til að
komast í úrslitaleikinn geislaði af lið-
inu. Brynja Steinsen fyrirliði var
langbest i liði Vals, skoraði 6 mörk,
átti Qölmargar stoðsendingar og varði
eins og berserkur í vörninni. Einnig
áttu Gerður Beta Jóhannsdóttir og
Sigurlaug R. Rúnarsdóttir góðan leik,
likt og reyndar Valsliðið allt.
Á sama tíma náði Stjaman aldrei
takti við leikinn. Aðeins Nína K.
Björnsdóttir og Guðný Gunnsteins-
dóttir léku af getu, aðrir leikmenn
náðu sér engan veginn á strik og mun-
aði þar mestu að Ragnheiður Stephen-
sen skoraði aðeins tvö mörk í leikn-
um, og munar um minna.
„Við vorum staðráðnar í að standa
okkur í þessum leik enda höfum við
ekki verið að sýna okkar besta leik í
janúar. Það verður frábært að mæta
Gróttu/KR í úrslitunum," sagði
Brynja Steinsen, fyrirliði Vals.
Vonbrigði
„Ég varð fyrir mjög miklum von-
brigðum. Mér fannst við vera vel
stemmdar fyrir þennan leik, en ein-
hvern vegin datt botninn úr leik okk-
ar og ég kann enga skýringu á þvi.
Fyrri hálíleikurinn var allt í lagi en
svo gerist eitthvað í seinni hálfleikn-
um. Við náum aldrei að vinna maður
á móti manni og töpum leiknum á
því,“ sagði Guðný Gunnsteinsdóttir,
leikmaður Stjörnunnar.
Mörk Vals: Gerður Beta Jóhannsdóttir
7/3, Sigurlaug Rúna Rúnarsdóttir 6, Brynja
Steinsen 6/1, Anna Steinsen 3, Ama Gríms-
dóttir 2, Hafrún Kristjánsdóttir 2, Eivor
Pála Blöndal 1. Varin skot: Berglind íris
Hansdóttir 13, Alda Hrönn Jóhannsdóttir
1/1.
Mörk Stjörnunnar: Nína K. Bjömsdótt-
ir 9/2, Guðný Gunnsteinsdóttir 4, Margrét
Vilhjálmsdóttir 2, Anna B. Blöndal 2, Ragn-
heiður Stephensen 2, Sigrún Másdóttir 1,
Inga Steinunn Björgvinsdóttir 1. Varin
skot: Sóley Halldórsdóttir 12/2, Lijana Sad-
son 2. -ih
Grótta/KR í úrslit í fyrsta sinn
• • Jóhann Ingi Gunnarsson spáir í undanúrslitaleikina í handboltanum:
Onnur lögmál
ÍR-stúlkur voru Gróttu/KR allt
annað en auðveldur mótherji í und-
anúrslitaleik liðanna í gær.
Baráttuglaðar stúlkur úr Breið-
holti málaðar í stríðsmannastíl
héldu Gróttu/KR við efnið allt fram
í miðjan seinni hálfleik er heima-
stúlkur sigu fram úr og tryggðu sér
6 marka sigur, 23-17.
ÍR byrjaði vel, komst meðal ann-
ars í l^í, en Grótta/KR jafnaði flótt
og þrjú mörk í röð fyrir hálfleik
skilaði þiggja marka forustu í leik-
hléi, 10-7. í seinni hálfleik hafði
Grótta/KR ávallt frumkvæðið en
kláraði ekki leikinn fyrr en síðustu
10 mínútumar.
Hjá ÍR börðust allar saman sem
einn maður, níu skoruðu og Jenný
Ásmundsdóttir varði vel, 11 af 23
fyrstu skotum Gróttu/KR en hélt
ekki út og Grótta skoraði 10 mörk
úr 12 síðustu skotum stnum.
Hjá Gróttu/KR fór sóknin fyrst
að ganga þegar Eva Hlöðversdóttir
kom inn i leikstjómendahlutverkið
í seinni hálfleik og Eva átti
stoðsendingar í 6 af síðustu 10
mörkum Gróttu/KR og Jóna Björg
raðaði inn þrumuskotum, gerði alls
6 af 7 mörkum af 9 metrunum.
Ágústa dró vagninn yfir erfiðar
upphafsminútur.
Mörk Gróttu/KH: Jóna Björg Pálma-
dóttir 7, Ágústa Edda Bjömsdóttir 5,
Ragna K. Sigurðardóttir 3, Alla Gokorian
3, Eva Þórðardóttir 2, Edda Hrönn Krist-
insdóttir 1, Kristín Þórðardóttir 1, Selma
Grétarsdóttir 1. Varin skot: Fanney Rún-
arsdóttir 15.
Mörk ÍR: Ingibjörg Jóhannsdóttir 4,
Katrín Guðmundsdóttir 4, Inga Jóna
Ingimundardóttir 2, Hrund Sigurðardótt-
ir 2, María Másdóttir 2, Anna M. Sigurð-
ardóttir 1, Björg Fenger 1, Jóna Ragnars-
dóttir 1, Áslaug Þórsdóttir 1. Varin skot:
Jenný Ásmundsdóttir 11. -ÓÓJ
Undanúrslit í bikarkeppni HSÍ
- hallast
Stórleikir verða í handboltanum í
kvöld þegar undanúrslitaleikirnir í
karlaflokki fara fram. Annars vegar
eigast við Fram og HK og hins vegar
Víkingur og Stjarnan og hefiast báðar
viðureignimar klukkan 20.30. Það
verður ekkert gefið eftir á báðum víg-
stöðvum enda mikið í húfi, sæti í
sjálfum úrslitaleiknum sem verður í
Laugardalshöllinni um aðra helgi.
Jóhann Ingi Gunnarsson, marg-
reyndur þjálfari og mikill handbolta-
spekúlant fékkst til að spá í leiki
kvöldsins og segir hann engan vafa á
því að barátta og spenna muni ein-
kenna leiki kvöldsins.
Heimavöllurinn sterkur
það sé kominn einhver með-
byr með HK með tilkomu Sigurðar
Sveinssonar en á sama tíma verða
Framarar fyrir því að tapa fyrir HK í
deildinni um síðustu helgi. Ég held að
Framarar geri sér grein fyrir því að
þeir verða að gera eitthvað í bikam-
um. Þeir hafa líklega misst af lestinni
hvað varðar deildarbikarinn þannig
að það verður mikilvægt fyrir þeirra
stolt og framhaldið allt i deildinni að
vinna sigur í kvöld. Það yrði mjög
erfitt fyrir þá að glima við þá stað-
reynd kannski að tapa fyrir sama lið-
þó að því að Fram og Stjarnan fari í úrslitin
inu í deild og bikar á nokkrum dög-
um. Ég á svona frekar von á því að
Fram merji sigur. í öllu falli verður
viðureignin tvísýn en þarna eru á
ferð lið sem geta hæglega unnið
hvort annað. Heimavöllurinn ætti
skilyrðislaust að leika stórt hlut-
verk í þessum leik,“ sagði Jóhann
Ingi.
„Um leikinn í Víkinni má segja að
ef þetta væri ekki leikur í bikar yrði
viðureignin klárt dæmi fyrir Stjöm-
una. Bikarkeppnin hefur hins vegar
sín lögmál sem eru afskaplega ein-
kennileg stundum," segir Jóhann
Ingi.
getur komið
fyrir getur það
reynst þeim
Efallt
gengur upp hjá
Stjörnunni þá klárar
hún þennan leik. Mitt mat er þvi
að til úrslita i keppninni leiki Fram
og Stjarnan.
Fram er gamalt stórveldi í hand-
boltanum og það yrði gaman fyrir fé-
lagið að komast í alvöruúrslitaleik.
Sfiaman hefur ágæta hefð á bak við
sig og Víkingar eiga ennfremur forna
frægðarsögu aftur í tímann og Þor-
bergur Aðalsteinsson var hluti af því
tímabili. Þannig að í bikarkeppninni
getur allt gerst en ef ég á að spá þá er
það mín tilfinning að Fram og Stjarn-
an fari áfram. Það er hægt að ná upp
rosalegri stemmningu og óvæntu
hlutimir geta gerst og þess vegna
getur þetta orðið alveg öfugt,
bara vegna þess að þetta
er bikarkeppni," sagði
Jóhann Ingi
Gunnarsson í
spjallinu.
-JKS
Þorbergur er laginn í því að
finna stemmningu
„Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari
Víkings, er mjög laginn í því að finna
stemmningu fyrir leiki sem þessa.
Hann er mjög góður á svona lið með
unga og friska stráka. Hann getur
verið sannfærandi og hann á örugg-
lega eftir að fá þá vel á tærnar.
Stjömumenn em með mjög gott lið
og hafa lengi haft lið sem á að
gera stóra hluti. Reyndar hefur
verið talað um það í mörg ár
en þegar öllu er á botninn
hvolft þá em þeir liklegri
gegn Víkingum sem
sýnd veiði en ekki ge
Út frá getu, á Stjarn
að vinna en ef hugai
farið er ekki rétt eins
í handknattleik karla
kl. 20.30 í Framhúsinu
í Safamýri.
Mætuxn öll og styðjum okkar menn.