Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2000, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2000
33
Myndasögur
Fréttir
Kaup Akraneskaupstaöar á stúkuhúsinu innsigluö. Frá vinstri: Þorgils Stef-
ánsson, Höröur Pálsson, Gísli Gísiason, bæjarstjóri á Akranesi, og Helga
Helgadóttir. DV-mynd Daníel
100 ára stúkustarf heyrir sögunni til:
Útgerðarrisinn var
fyrsti æðstitemplar
DV, Akranesi:
í vikunni voru undirritaðir samn-
ingar á milli Akraneskaupstaðar og
góðtemplarastúkunnar Akursblóms
um kaup þess fyrrnefnda á húsnæði
stúkunnar. Félagar stúkunnar Akurs-
blóms eru allir komnir á efri ár og
engin endurnýjun hefur orðið í
stúkunni og vildu félagarnir hætta
starfínu með reisn.
Stúkuhúsið var tekið í notkun í
febrúar 1950 og hafði áður verið notað
sem útihús. Fyrsta stúkufélagið var
stofnað árið 1887 og hét það Vorblóm-
ið. Árið 1898 var annað félag stofnað
og hét það Akurlilja . Akurlilja og
Vorblómið voru síðan sameinuð í Ak-
ursblóm þann 17. nóvember 1910.
Dagsetning á stofnuninni er engin
tilviljun því að fyrsti æðstitemplarinn
í Akursblómi var Haraldur Böðvars-
son útgerðarmaður sem stofnaði
HB&Co þann 17. nóvember 1906 er
hann festi kaup á sínum fyrsta báti,
Helgu Maríu. -DVÓ
Leifssafn í Búðardal:
Óskað eftir meira fé
DV, Dalabyggð:
í fjárlögum Alþingis á yfirstand-
andi ári er gert ráð fyrir 20 millj-
ón króna framlagi til að ljúka upp-
byggingu að Eiríksstöðum. Jafn-
framt eru 10 milljónir ætlaðar til
að helja byggingu Leifssafns í Búð-
ardal.
Forsætisráðherra, menntamála-
ráðherra og fjármálaráðherra hafa
verið send erindi þar sem óskað er
eftir viðræðum um áframhaldandi
fjármögnun verkefnisins. Ánægja
er með góðar viðtökur fjárveit-
ingavaldsins við beiðnum sveitar-
félagsins um stuðning við hin
ýmsu verkefni. -DVÓ
Húnaþing:
Barátta gegn fíkniefnum
DV, Húnaþingi:
Lögreglan á Blönduósi hefur látið
útbúa bækling um fíkniefnamál og
byrjaði í dag að dreifa honum á öll
heimili í umdæminu, sem nær yfir
báðar Húnavatnssýslur. í bæklingn-
um eru margar gagnlegar upplýs-
ingar um fikniefni og afleiðingar af
vímuefnaneyslu. Kristján Þor-
björnsson, yfirlögregluþjónn á
Blönduósi, sagöi í samtali við DV að
lögreglan yrði vör við fikniefni í
auknum mæli í héraðinu og þess
vegna hefði verið ákveðið að gefa
þessum málaflokki aukinn gaum og
reyna að leggja sitt af mörkum til
þess að spoma við þessum vágesti.
í bæklingnum er upptalning á
helstu fikniefnunum, lýsing á þeim
og afleiðingum af neyslu þeirra. Þar
er hvatning til fólks um að hafa
samband við lögreglu ef það verður
vart við þessi efni í gangi og skýrt
er út hvað nafnleynd þýðir. Fjöl-
margt fleira kemur fram í bæk-
lingnum.
Lögreglumenn munu fara með
þennan bækling í alla skóla héraðs-
ins og þar munu þeir kynna fyrir
nemendum í 8-10 bekk þá vá sem
neysla fíkniefna er. -MÓ
Blaðbera vantar
í eftirtaldar qötur:
Austurbrún Njálsgötu
Norðurbrún Grettisgötu
Áhugasamir hafi samband
við afgreiðslu blaðsins
í síma 550 5777.