Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2000, Blaðsíða 28
36
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2000 T>V
onn
Ummæli
Sækja og
ekki sækja
„Maður er oft spurður hvort
liðið manns ætli að
sækja í hinum og
þessum leiknum og
i við þvi er einfalt
, svar því liðið sækir
^ þegar það er með
boltann. Það er
ekki enn búið að
finna leið til að sækja þeg-
ar mótherjinn er með botann."
Atii Eðvaldsson landsliðs-
þjálfari, í Morgunblaðinu.
Ræktarstöðvar
„Kirkjan er trúræktarstöð
sem skiptir ekki síður máli en
líkamsræktarstöð varnar. “
Örn Bárður Jónsson prestur,
ÍDV.
Grunntónninn er sá
sami í nasismananum
„Þetta getur þróast í ranga
átt og endað með
skelfingu. 1 þess-
ari þróun má
finna sama
grunntóninn og í
nasisma Hitlers í
Þýskalandi."
Toshíki Toma
prestur, um for-
dóma gagnvart
þeim sem tala ekki lýtalausa
islensku, í DV.
Landsliðsmenn sem
eru ekki landsliðsmenn
„Því miður eru í landsliðinu
leikmenn sem hafa margsann-
að að þeir eru ekki landsliðs-
menn.“
Brynjar Harðarson, fyrrv.
handknattleiksmaður, í DV.
Náttúruperlur
„Náttúruperlur þurfa ekki að
vera í vondum
höndum komist
þær í eigu einstak-
linga, ríkið fer
ekki endilega bet-
ur með landið en
einstaklingar,
það sjáum við í
virkjana- og stór-
iðjustefnu ríkisstjórnarinnar.“
Guðmundur Páll Ólafsson
náttúrufræðingur, í Degi.
Landgræðsla og
lífrænn úrgangur
„Það liggur ljóst fyrir að
Sorpa lítur ekki á sig sem land-
græðslusamtök. Á sama hátt
hafa aðilar eins og Landgræðsl-
an ekki litið á sig sem sorp-
hirðufyrirtæki. Það hefur gert
að verkum að þetta að taka líf-
rænan úrganga og nýta hann
til landgræðslu, hefur ekki
komist á vegna þröskulda í
stjómkerfinu."
Björn Guðbrandur Jónsson,
hjá Gróður fyrir fólk í land-
námi Ingólfs, í Degi
Gylfi Árnason, fjármálastjóri Kaupfélags Borgfirðinga:
Ein fjallaferð á ári heldur manni við efnið
DV, Borgarnesi:
„Mér líst alveg ágætlega á að
takast á við nýja starfið," segir Gylfí
Ámason, nýráðinn ijármála- og
skrifstofustjóri Kaupfélags Borgfirð-
inga í Borgamesi. Gylfi tók um ára-
mótin við starfinu af Georg Her-
mannssyni sem hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Hymunnar í
Borgamesi. „Starf fjármálastjóra er
viðbót við mitt fyrra og áframhald-
andi starfssvið í tengslum við um-
sjón tölvumála og áætlanagerðar hjá
deildum KB og dótturfélögum þess.
Það sem að minu mati gerir starfið
áhugavert er að yfirleitt kemst mað-
ur ekki nær því að halda um púlsinn
á fyrirtækjum en að reyna hafa
stjóm á peningalegu og upplýsinga-
legu flæði þess. Upplýsingavæðing
fyrirtækja er oftar en ekki þyrnum
stráð og fjármálastjórn er sjaldnast
dans á rósum svo eitthvað á þetta
eftir að hreyfa við manni á stund-
um.“
Gylfi er viðskiptafræðingur frá Há-
skóla íslands 1989 og fór haustið 1997
í mastersnám þegar fyrst var gefinn
kostur á því í viðskiptadeildinni. „Á
árinu 1998 tók ég hluta af masters-
náminu við Verslunarháskólann í
Árósum. Það var skemmtilegur og
áhugaverður tími. Ég fór með fjöl-
skylduna í þessa „siglingu" og
höíðu allir gagn og gaman af dvöl-
inni hver á sinn hátt. Ég hef komið
víða við sem getur bæði verið kost-
ur og galli. Ég er búinn að vera lið-
lega eitt ár hjá KB, þrjú ár fram-
kvæmdastjóri hjá Afurðastöðinni í
Búðardal,
eitt ár hjá DV-mynd: Daníel
Olís og þar áður hjá Aðalbókhaldi
SíS og síðar hjá dótturfélagi þess,
Jötni hf.“
Hvemig sérðu KB fyrir þér í fram-
Maður dagsins
tíðinni?
„Borgames er alveg einstaklega
vel staösett til að reka verslun og
ýmsa þjónustustarfsemi. Því verður
ekki annað séð en að nýjar höfuð-
stöðvar við þjóð-
braut, sem
koma til með
að hýsa aðal-
verslun KB,
auk margara
annarra
verslana, geti
gert það virki-
lega gott í
framtíðinni.
Ég hef verið
áhugamaður um
knattspyrnu frá
þvi að ég man eft-
ir mér
og þótti efnilegur leikmaður. Nú
snýst knattspymuáhuginn helst um
frammistöðu sonanna sem æfa með
Skallagrími. Ég leik badminton og
hleyp reglulega. Ég fer í eina fjalla-
ferð á sumri með góðum félögum frá
menntaskólaárunum. Þessar fjalla-
ferðir gera kröfu um maður sé
þokkalegu formi, annars lendir mað-
ur í vandræðum, og slíkt lætur mað-
ur ekki gerast nema einu sinni. Það
verður þó að segjast eins og er að það
gefst ekki mikill tími til tómstunda
þegar maður er í krefjandi starfi og á
þrjú börn. Ferðalög til útlanda hafa
yfirleitt mótað sumarfrí fjölskyld-
unnar síðustu ár, það er afskap-
lega notalegt að fljúga af skerinu
við og við.“
Eiginkona Gylfa er Guðrún Vala
Elísdóttir, mannfræðingur og
kennari í Grunnskólanum í
Borgarnesi. Hún stundar einnig
nám við framhaldsdeild Kenn-
araháskóla Islands. Þau eiga þrjú
böm: Sölva, f. 1988, Nökkva, f.
1989, knattspymuáhugamenn og
Liverpool-aðdáendur, og Salvöru
Svövu, f. 1997, og, að eigin
sögn, heldur hún
líka með
Liver-
pool.
Borg og
náttúra
Umhverfis- og byggingar-
verkfræðiskor verkfræði-
deildar Háskóla íslands
heldur máistofu á
morgun kl. 16 að
Hjarðarhaga 2-6,
stofu 158. Á fundin-
um mun Trausti
Valsson skipulags-
fræðingur segja frá
bók sinni, Borg og
náttúra, sem komin
er út hjá Háskólaút-
gáfunni. Bókin er Trausti
skrifuö í tengslum Valsson.
við þema Menning-
arársins, Menning og nátt-
úra, og fjallar um hvemig
skipulag borgarinnar og
borgmenning getur eflst af
nánum tengslum við náttúr-
una. Reykjavík er umlukin
fögrum og hreinum nátt-
úrusvæðum - strönd og hafi
með sundum og eyjum og
víðáttumiklu baklandi með
heiðum, vötnum og fjöllum.
Lykiiatriði til að náttúran
og borgin nái aö tengjast og
varpa ljóma á hvort
annað er að jaðram-
ir, þar sem borgin
mætir náttúrunni,
t.d. ströndin og jað-
ar borgarinnar inn
til landsins, séu
beint aðgengilegir
fyrir íbúðarbyggð
og útivist. Að loknu
inngangserindi
Trausta munu Páll
Skúlason rektor og
Pétur H. Ármannsson arki-
tekt segja nokkur orð og
taka síðan þátt í pall-
borðsumræðum með frum-
mælandanum um þema
fundarins.
Myndgátan
Kollsteypa
Myndgátan hér aö ofan lýsir hvorugkynsorði.
Jan Opalach syngur í Lúkretía svfvirt.
Hádegistónleikar
Á tónleikum i íslensku óper-
unni í dag kl. 12.15 flytur Jan
Opalach, bass-barítón, lög eftir
Charles Ives og Carl Loewe, ásamt
píanóleikaranum Gerrit Schuil.
Tónleikamir standa yfir í u.þ.b. 35
mínútur. Jan Opalach syngur
hlutverk Júníusar í uppfærslu Is-
lensku óperunnar á óperu Benja-
mins Brittens, Lúkretía svívirt,
undir stjóm Gerrit Schuil.
Jan Opalach hefur sungiö víða
og á verkefnaskrá hans eru jafnt
alvarleg sem grínhlutverk ópem-
bókmenntanna. Hann er tíöur
gestur við New York City Opera.
Einnig hefur-------------
hann sungið Tónleikar
i Metropolit-____________
an-ópemnni og öðmm þekktum
óperuhúsum í Bandaríkjunum og
utan þeirra. Jan Opalach vann til
fyrstu verðlauna i hinni virtu
söngvakeppni sem kennd er við
Walter M. Naumburg og einnig í
alþjóölegri keppni í Hertogen-
bosch í Hollandi. Fjölmargar
hijóðritanir hafa komið út með
söng hans
Gerrit Schuil hefur búið og
starfað hér á landi undanfarin ár
og tekið virkan þátt í tónlistarlífi
íslendinga, bæði sem píanóleikari
og hljómsveitarstjóri.
Bridge
Þegar þetta spil kom fyrir í stóru
peningamóti i tvímenningi í Dan-
mörku á dögunum sáust tölur af öllu
tagi. Botninn í NS kom í hlut parsins
sem spilaði 5 lauf í NS!? Suður var á
leiðinni í hálf- eða alslemmu í rauð-
um lit og stökk í fimm lauf til að
sýna eyðu í þeim lit. Norður mis-
skildi þá sögn og passaði, suðri tfl
lítillar gleði. En toppurinn í NS kom
eftir mikfl átök í sögnum, vestur
gjafari og aflir á hættu:
* G5
<4 ÁD9
* Á1054
* KD43
KD964
8
8
1098765
N
v
A
4 Á108
W K10754
♦ KDG96
* -
732
» G632
♦ 732
* ÁG2
Vestur Norður Austur Suður
24 dobl pass 3*
pass 4* pass 4 4
pass 54 pass 5 grönd
pass 6» pass 7 4
pass p/h pass dobl redobl
Opnun vesturs var „tartan-sagn-
venjan“, eða öðru naíni Jón og Sím-
on eins og fleiri kannast við, 5 spað-
ar og minnst 4 spO í láglit til hliðar
og undir opnunarstyrk. Suður sagði
þrjá spaða tO að sýna tvOita hönd
sína og sýndi síð-
an tígul og hjarta
með fjögurra
tígla sögn sinni.
Fimm grönd var
spuming um ása
og 6 hjörtu sýndu
tvo ása og tromp-
drottningu. Suð-
ur gat ekki verið
viss um hvora ásana hann átti en
skaut á 7 tígla. Austur sá að vömin
gat hugsanlega tekið slag á lauf og
doblaði tO að fá vestur til þess að
spOa út í litnum. Suður var nokkuð
viss um að austur ætti ás i laufi og
redoblaði. Vestur spOaði hlýðinn út
laufi en sagnhafi var ekki í vand-
ræðum með að taka 13 slagi. Fyrir 7
tígla redoblaða á hættunni þáði
hann 2660 í sinn dáik.
ísak örn Sigurðsson