Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2000, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2000, Blaðsíða 21
I FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 Fréttir Homfirðingar funda með vamarliði og utanríkisráðuneyti: Viljum frekar fleiri störf: | I i miklu úrvali Friform HÁTÚNI6A (í húsn. Fönix) SÍMI: 552 4420 Mengandi öskuhaugar og asbestkofar hverfi - varnarliðið hugsar úrræði fram á vor DV, Hornafirði: Pau fengu viðurkenningu frá stjórn Hitaveitu Suöurnesja. Hitaveita Suðurnesja 25 ára: Þriggja milljarða orkuver Mörg ár eru síðan vamarliðið fór af Stokksnesi og húsin hafa síð- an staðið auð og án alls viðhalds, að frátöldu húsi þar sem Ratsjár- stofnun er með sína starfsemi. Öskuhaugar og asbestklædd hús valda Hornfirðingum áhyggjum. Bæjarráð Homafjarðar hélt nýlega fund á Hótel Höfn með fulltrúum utanríkisráðuneytisins, vamar- málaskrifstofu og Ratsjárstofnun- ar. Einnig kom fulitrúi frá Heil- brigðiseftirliti Suðumesja og full- trúar vamarliðsins. Efni fundarins voru málefni tengd mannvirkjun- um á Stokksnesi og hugsanleg mengtm frá gömlu ruslahaugunum þar og eins hvort hugsanlegt væri að asbestmengun væri í bygging- unum. Bæjarráð benti á slysahættu vegna bygginga á Stokksnesi vegna foks og lýta í landslaginu og var spurt um möguleika á notkun á þeim eða þær væm rifnar og fjar- lægðar. Áhersla var lögð á að þetta svæði hefði talsvert aðdráttarafl fyrir ferðamenn og því áríðandi að umgengni þar væri tii sóma. Bæj- arfélagið hefur ekki áhuga á að nýta byggingamar en einstakling- Frá Stokksnesi. Mörg húsanna eru farin aö láta á sjá og ekki vanþörf á heiidarúrbótum á svæðinu sem er fallegt og höfðar til útivistarfólks. Þessar myndir voru teknar á velmektardögum stöðvarinnar fyrir fimmtán árum, en eins og sjá má er umhverfið tignarlegt. DB-mynd PK ar hafa sýnt áhuga á einhverjum húsum þarna. Talsmenn varnar- liðsins sögðu að vænta mætti til- lagna frá þeim í vor varðandi lausn þessa máls, bæði hvað varð- ar ónotuðu mannvirkin og það svæði sem úrgangur hefur í gegn- um tíðina verið losaður á. -JI DV, Suðurnesjum: Hitaveita Suðumesja framleiðir raforku vel umfram það sem íbúar svæðisins þurfa - fyrirtækið hefur stóraukið afkastagetu sína og fram- leiðir inn á landskerfið. „Við seljum rafmagnið ódýrt og kaupum það dýrt aftur, þannig er þetta á pappír- unum,“ sagði Júlíus Jónsson, for- stjóri Hitaveitu Suðumesja. Fyrir- tækið skilar framleiðslu sinni í Hamranesi við Krýsuvíkurveg, þar enda línur Hitaveitu Suðurnesja og Landsvirkjun tekur við orkunni. „Við erum að endurbyggja gamalt og úrelt og í leiðinni nýtum við okk- ur þá reynslu og þekkingu sem við höfum náð á tímabilinu og stórauk- um afkastagetu, sérstaklega á raf- magni en líka í varma,“ sagði Júlí- us Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suð- umesja. Um áramótin voru liðin 25 ár frá stofnun Hitaveitu Suðumesja. Á af- mælishátíð fyrirtækisins, sem hald- in var í Eldborg í Svartsengi, var formlega tekið í notkun 30 mega- vatta orkuver, Orkuver 5. Heildar- kóstnaður vegna framkvæmdanna nemur um þremur milljörðum króna. Stöðvarhús ásamt tengibyggingu Börnin tvö, Viktoría Á. Halldórsdóttir orkuverið við hátíðlega athöfn. eru um 4000 fermetrar. Vél Orku- vers 5 er frá Fuji Electric framleidd í Kawasaki í Japan og framleiðslu- geta rafala er 30 MW og hámark 31,5 MW. Endanleg verklok nýja orku- versins eru áætluð um mitt næsta sumar þegar frágangi lóöa lýkur. Þá voru boraðar fjórar holur á Svarts- engissvæðinu, ein gufuhola 448 m djúp og tvær tvífasa holur 1855 og 1600 m djúpar, auk þess sem boruð var ein niðurdælingarhola, 1260 m. Garðar Gíslason úr Njarðvík, ræstu Ljósmyndir Oddgeir Karlsson Hitaveita Suðumesja var áður með 10 gufuhverfla í rekstri í Svartsengi með ástimplað afl 16,4 MW auk hverfils á Reykjanesi sem er 0,5 MW og var áæ'tluð fram- leiðslugeta um 130 GWst. Upphaf raforkuframleiðslu Hita- veitu Suðurnesja má rekja aftur til ársins 1978 en þá var gangsettur fyrri hverfill af tveimur 1 MW AEG gufuhverflum en þeir voru ein- göngu ætlaðir til eigin nota. -AG og I BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR I BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík Gylfaflöt 32 í samræmi við 1. mgr. 21. gr. skipulags- og bygging- arlaga er hér með auglýst til kynningar tillaga um stækkun lóðarinnar Gylfaflöt 32. Tillagan liggur frammi í sal Borgarskipulags- og Byggingarfulltrúa, Borgartúni 3,1. hæð, virka daga kl. 10:00 - 16:00 frá 18. febrúartil 17. mars 2000. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags eigi síðar en 30. mars 2000. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir. Stækkun Norðuráls: Skapar 50 ný störf DV, Grundartanga: Framkvæmdir við stækkun ál- vers Norðuráls á Grundartanga úr 60.000 tonna ársframleiðslu í 90.000 tonn ættu að hefjast á vormánuðum. Að sögn Tómasar Sigurðssonar, framkvæmdastjóra tækni- og um- hverfissviðs Norðuráls á Grundar- tanga, áttu framkvæmdir að hefjast um áramót, en hafa tafist lítiilega. „Þó má segja að verkefhið sé kom- ið í fúllan gang þar sem búið er að semja við Landsvirkjun, helmingur keranna hefúr verið pantaður er- lendis frá og í þessari viku hefjast framkvæmdir viö starfsmannahús," segir Tómas en verktaki í því verki er Trésmiðjan Kjölur á Akranesi. Að sögn Tómasar er heildarkostn- aður við stækkun verksmiðjunnar áætlaður 6 milljcirðar króna. Margir verktakar koma að byggingarfram- kvæmdum bæði innlendir og erlend- ir. Verklok eru óákveðin en talað er um seinni hluta þriðja ársfjórðungs 2001. í dag starfa 168 manns hjá ál- verinu og áætlað er að bæta við tæp- lega 50 manns eftir stækkun. -DVÓ Árni Johnsen: Breytingar á að gera í samráði við heimafólk - segir Árni Johnsen „Við viljum fá á þessu skýringar og viljum ræða um aðrar hugmynd- ir við stjómendúr íslandspósts en þær sem hafa birst í fréttum. Við erum enn ekki búnir að fá formlega til- kynningu frá fyrirtækinu um fyrirhugaðar breytingar á starfsemi stöðv- anna,“ sagði Ámi Jón Elías- son, oddviti Skaftárhrepps, við DV. í V-Skaftafellssýslu hefur verið í gangi þróunarverkefni til styrkingar byggð og atvinnu í samvinnu við At- vinnuþróunarsjóð Suðurlands og Byggðastofúun, heimamenn vilja koma að málinu í gegnum verkefúið. „Eitt af hlutverkum verkefúisins er verkefnaflutningur, og við viljum ræða þetta í því samhengi og okkur fmnst þetta skjóta skökku við yfir- lýst markmið rikisvaldsins í þeim efnum,“ sagði Ámi Jón. „Það er ástæða til að farið sé var- lega í öllum breytingum á opinberri þjónustu, sérstaklega á veikari svæð- unum. Ég hef rætt við forystumenn Islandspósts um að við leggjum höf- uðáherslu á að þær breytingar séu geröar í samráði við heimamenn," sagði Árni Johnsen, 1. þingmaður Sunnlendinga. „Það er miklu frekar ástæða til þess að krefjast þess að Is- landspóstur reyni að afla fleiri sókn- arfæra í samstarfi við aðra frekar en að draga úr starfsemi og reyna að koma henni yfir á annarra hendur,“ sagði Ámi Johnsen. -NH * ■*

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.