Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2000, Side 36
Nýr 7 manna bíll
Opel Zafira
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Borgarstjórn:
Breytingar
í Borgar-
-> leikhúsi
Málefni Borgarleikhússins voru
rædd sérstaklega á kvöldfundi borg-
arstjómar í gær og kom þar fram
krafa um breytingar á skipulagi og
starfsháttum leikhússins. Má fastlega
gera ráð fyrir að borgarstjóm endur-
skoði fjárframlög sín til leikhússins
ef kröfu um skipulagsbreytingar
verður ekki sinnt.
Tilkynnt verður síðdegis i dag hver
tekur við stöðu leikhússtjóra Borgar-
leikhússins en eins og fram kom í
fréttum DV er Páll Baldvin Baldvins-
son, formaður Leikfélags Reykjavíkur
og einn umsækjenda um leikhús-
stjórastöðuna, úr leik. Samkvæmt
heimildum DV verður það fyrsta verk
nýs leikhússtjóra að taka upp merki
Viðars Eggertssonar, fyrrum leikhús-
stjóra, og taka ærlega til í Borgarleik-
húsinu en sú tiltekt kostaði Viðar
sem kunnugt er starfið á sínum tíma.
„Það hefur enginn talað við mig.
Ég veit ekkert,“ sagði Guðjón Peder-
sen leikstjóri í morgun en Guðjón
þykir líklegastur til að hreppa hnoss-
ið og verða næsti leikhússtjóri í Borg-
arleikhúsinu. -EIR
Jakob segir frá
Jakob Frímann Magnússon verður í
opinskáu viðtali í Helgarblaði DV á
morgun. Þar ræðir hann um baráttu
umhverfisvina og strandhögg þeirra í
Noregi, bananalýðveldið ísland og per-
sónuleg málefni sín. Blaðamaður DV
fer í heimsókn til Guðlaugs Lárusson-
ar sem berst við hávaðamengun við
Miklubraut og lögsækir borgaryfirvöld
vegna þess. Fjallað er um samtök gegn
einelti og rætt við fómarlamb og rætt
við séra Sigurð Áma Þórðarson um
mjúka menn sem hann telur úrelta.
Einnig er viðtal við Þóm Einarsdóttur
sópransöngkonu sem slær í gegn í
Bretlandi og ítarleg grein um leiðindi
er í blaðinu.
Þessi ungi sveinn, sem nemur viö Vesturbæjarskóla, sá ekki námsefni sitt fyrir sólinni. Sólin skein skært á nema sem aöra Reykvíkinga í fyrradag, þó var
kalt í veöri og kannski eins gott aö halda sig inni í hlýrri kennslustofunni og læra. DV-mynd Hilmar Þór
Hrafn himinlifandi heim frá Berlín:
Myrkrahöfðinginn á
Bandaríkjamarkað
Hrafn Gunnlaugsson kvik-
myndaleikstjóri er kominn heim
af kvikmyndhátíðinni í Berlín
með gleðifregnir lifs síns í fartesk-
inu:
„Þetta hefur aldrei gerst áður
með íslenska kvikmynd. Banda-
ríska kvikmyndafyrirtækið Zeit-
geist Films hefur keypt Myrkra-
höfðingjann til dreifingar á Banda-
ríkjamarkað og ætla að hefjast
handa strax í haust,“ segir Hrafn
Gunnlaugsson sem sér nú fram á
bjarta daga eftir dræma aðsókn að
Myrkrahöfðingjanum og misjafna
dóma gagnrýnenda hér heima.
„Það mætti segja mér að það ætti
eftir að fara eins fyrir Myrkra-
höfðingjanum og Hrafninn flýgur.
Þegar Hrafninn var frumsýndur í
Háskólabíói fékk ég aðeins um 6
þúsund áhorfendur og myndin var
rökkuð niður af ákveðnum
gagnrýnendum vegna þess
að hún þótti sóðaleg, grimm
og í hana vantaði hunda. Eft-
ir að hún sló í gegn í Svíþjóð
og var þar kjörin mynd árs-
ins endurfrumsýndi ég hana
í Nýja bíói og þá komu 50
þúsund áhorfendur.“
Hrafn segir Bandaríkja-
markað þann erfiðasta í
heimi þegar komi að dreif-
ingu kvikmynda enda vilji
Bandaríkjamenn helst ekk-
ert sjá annað en amerískar
Hrafn Gunnlaugsson kampa-
kátur með sölu á Myrkrahöfö-
ingjanum til Bandaríkjanna.
DV-mynd Teitur
myndir: „Það kostar margfalt
meira að dreifa Myrkrahöfðingjan-
um í Bandaríkjunm en það kostaði
að gera myndina sjálfa þannig að
við erum að tala um menningar-
sögulegan sigur,“ segir Hrafn og er
að vonum ánægður með árangur
ferðarinnar á kvikmyndahátíðina
í Berlín sem opnaði Myrkrahöfð-
ingjanum leið inn á stærsta og
dýrasta kvikmyndamarkað heims
með ófyrirsjáanlegum möguleik-
um fyrir alla sem að gerð kvik-
myndarinnar komu.
„Ég er ánægður. Þessi mynd tók
tvö ár af lífi mínu og nú er ég að
sjá árangur. Þeir eru búnir að gefa
myndinni enskt heiti og nú heitir
hún Witchcraft," segir Hrafn
Gunnlaugson og horfir í vestur.
-EIR
Veðriö á morgun:
Suðaustanátt
og snjókoma
sunnan- og
vestanlands
Vaxandi suðaustanátt og
þykknar upp, 15-20 m/s og
snjókoma sunnan- og vestanlands
síðdegis en skýjað og þurrt
norðaustan til. Frost víða 3 til 8
stig, en hlánar við
suðurströndina.
Veðriö í dag er á bls. 37.
SYLVANIA
Cirnilegur 115 g Áningarborgari, franskar,
súperdós, Piramidelle-súkkul.,
kr. 590.
Bæjarlind 18 - 200 Kópavogi
sími 564 2100
Netfang: midjan@mmedia.is